Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Hlaðvarp

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.spreaker.com

Autor

Thorarinn Hjartarson

Categoría

Society

Web del podcast

www.spreaker.com

Último episodio

23 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

#79 Hvað er að gerast í Afghanistan? (Viðtal við Magnús Þorkel Bernharðsson) 01.09.2021

Magnús Þorkell er prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams College í Massachusetts. Þórarinn ræðir við Magnús um ástandið í Afghanistan sem Magnús segir í grunninn vera sorgarsögu. Umræðuefnin snúa að hugmyndafræði talíbana, stjórnmál, bæði í Bandaríkjunum og á alþjóðavísu, hvort að yfirtökunni fylgi aukin hryðjuverkaógn, áhrif internetsins, flóttamannamál og fleira. Efnisyfirlit: 00:00:00 Mi...

#78 Þræðir valdsins - Tíu árum síðar (Viðtal við Jóhann Hauksson) 21.08.2021

Fyrir um 10 árum skrifaði Jóhann Hauksson blaðamaður bókina Þræðir valdsins. Bókin vakti mikla athygli og fjallar um tengsl viðskipta og stjórnmála á Íslandi; aðstöðubrask, klíkuskap og frændhygli. Þórarinn ræðir við höfundinn um Þræði valdsins í sögulegu samhengi. Telur Jóhann að hlutirnir hafi breyst á þeim 10 árum sem liðin eru frá útgáfu bókarinnar?

#77 Að leggja niður Útlendingastofnun - Flóttamenn, jaðarsetning og menningarárekstrar (Viðtal við Semu Erlu Serdar) 01.08.2021

Þórarinn ræðir við Semu Erlu um mál hælisleitenda og flóttamanna. Farið er yfir hvað Ísland getur gert betur í málefnum hælisleitenda, afhverju Sema vill leggja niður Útlendingastofnun, U-beygju nágrannaríkja í þessum efnum, jaðarsetningu, menningarárekstra og tjáningarfrelsi.

#76 Tónlist, stjórnmál og tilgangur lífsins (Viðtal við Bigga Veiru) 28.07.2021

Þórarinn ræðir við Birgi Þórarinsson, sem er betur þekktur sem Biggi Veira í GusGus. Umræðuefnið er samspil tónlistar við stjórnmál. Ýmsar hugmyndir eru reifaðar, meðal annars hver tilgangur lífsins er. Efnisyfirlit: 00:00:00 Hver er Biggi Veira? 00:05:00 Nýfrjálshyggjan 00:09:50 Hefur þú alltaf verið tónlistamaður? En pólitískur? 00:15:30 Tónlist sem tól gegn ofríki ríkisstjórna 00:21:30 Er GusGu...

#75 Covid-19 - Frelsi og aðgerðir (Viðtal við Arnar Þór Jónsson) 24.07.2021

Þórarinn ræðir við Arnar Þór Jónsson, héraðsdómara og frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins í SV-Kjördæmi, um aðgerðir baráttunni við Covid-19. Umræðurnar snúast um hugmyndir okkar um dauðann, heimspeki, hóphyggju, frelsi og margt fleira.

#74 Leikjafræði íslenskra stjórnmálaflokka í Alþingiskosningum 2021 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson) 22.07.2021

Þórarinn ræðir við Bjarna Halldór og Ólaf Harðarson um Alþingiskosningar 2021. Farið er yfir sögulegar samlíkingar og stjórnmálalega leikjafræði flokkanna fyrir kosningar.

#73 Stríðið við auðvaldið - Engin laun hærri en þreföld lágmarkslaun (Viðtal við Katrínu Baldursdóttur) 17.07.2021

Þórarinn ræðir við Katrínu Baldursdóttur. Katrín er sósíalisti sem að vill breyta samfélaginu til hins betra með auknum jöfnuði og valdeflingu þeirra sem eru lægra settir í samfélaginu. Þau ræða laun og kjör, húsnæðismál, hugmyndafræði og heimspeki.

#72 ASÍ - Stéttabarátta og pólitík (Viðtal við Drífu Snædal) 15.07.2021

Þórarinn ræðir við Drífu Snædal, Forseta ASÍ, um stéttabaráttu, pólitík, húsnæðismál og hugmyndafræði. 00:00:00 Hvað eru stéttarfélög? 00:03:30 PlayAir 00:10:50 Húsnæðismál 00:20:30 Pólitík 00:30:00 Mun ASÍ taka afstöðu í kosningunum? 00:36:45 Næsta kjarabarátta 00:44:00 Á einkarekstur eitthvað erindi í heilbrigðisþjónustu?

#71 Félags- og barnamálaráðherra fer úr sveit í borg (Viðtal við Ásmund Einar Daðason) 11.07.2021

Þórarinn ræðir við Ásmund Einar Daðason um komandi kosningar, málefni barna, sálfræðiþjónustu, húsnæðismál, landbúnaðarmál og margt fleira.

#70 Er #MeToo að ganga of langt? (Viðtal við Ivu Adrichem) 07.07.2021

Þórarinn, Kristín og Iva Adrichem ræða hvort að #MeToo hreyfingin hafi gengið of langt.

#69 Á frjálshyggja upp á pallborðið í komandi kosningum? (Viðtal við Andrés Magnússon) 04.07.2021

Þórarinn ræðir við Andrés Magnússon um það hvort að frjálshyggja eigi erindi við íslensk stjórnmál og hvort að sú hugsjón muni koma til með að eiga upp á pallborðið í næstkomandi kosningum. Efnisyfirlit: 00:00:00 Er einhver flokkur sem að frjálshyggjumenn geta sætt sig við í næstu kosningum? 00:11:00 Fjölmiðlastyrkur 00:21:00 Sjálfstæðislfokkurinn og kerfið 00:28:00 Samfylkingin 00:41:00 Hagsmunir...

#68 Norrænt málþing um fjölmiðlafrelsi og aðför Samherja að Helga Seljan (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson) 30.06.2021

Þórarinn ræðir við Þórð Snæ Júlíusson um aðför Samherja gegn Helga Seljan og öðrum fjölmiðlum vegna umfjöllun um Namibíumálið svokallaða. Málið litaði umræður á Norrænu málþingi sem fór fram nýlega. Linkur á málþingið: https://www.press.is/is/um-felagid/felagarnir/streymi-a-norraent-malthing-um-fjolmidlafrelsi-a-islandi Efnisyfirlit: 00:00:00 Fjölmiðlar og lýðræði 00:05:15 Aðför Samherja að Helga...

#67 Er samfélagið safnhaugur einstaklinga? (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson) 26.06.2021

*Upptaka frá 12.06.21 Þórarinn og Gunnar Smári Egilsson ræða um dauða nýfrjálshyggjunnar, húsnæðismarkaðinn, stjórnmál, félagslegan Darwinisma og margt fleira. •00:06:20 Dauði nýfrjálshyggjunnar •00:20:00 Afrek sósíalískrar hugsunar á 20. öldinni •00:26:00 Aporophobia og húsnæðismarkaðurinn •00:31:00 Að hata vandamálin •00:34:00 Magnús Scheving og innantómar tilfinningar og væl stjórnmálamanna •00...

#66 Framtíð ferðaþjónustu á Íslandi (Viðtal við Jóhannes Þór Skúlason) 24.06.2021

Þórarinn ræðir við Jóhannes Þór, framkvæmdastjóra samtaka ferðaþjónustunnar, um framtíð ferðaþjónustu á Íslandi. •00:00 - Tilgangur SAF •04:50 - Simmi Vill er að tala út um rassgatið á sér •14:50 - Þegar ferðaþjónustan breyttist úr frjálshyggjumönnum í sósíalista vegna Covid-19 •21:40 - Hlutverk stjórnvalda eftir Covid •27:30 - Ferðaþjónustan var á niðurleið fyrir Covid-19. Hversu langt mun viðspy...

#65 Á að niðurgreiða sálfræðiþjónustu? (Viðtal við Tryggva Guðjón Ingason) 17.06.2021

Tryggvi Guðjón Ingason er formaður Sálfræðingafélag Íslands. Þórarinn ræðir við Tryggva um pólitísk og praktísk álitaefni sem snúa að niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu.

#64 Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar stefnir á þing (Viðtal við Hildu Jönu Gísladóttur) 15.06.2021

Þórarinn ræðir við Hildu Jönu Gísladóttur. Hilda er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Akureyrarbæ og stefnir nú á þing. Hún tók þátt í hinu nýstárlega þverpólitíska tilraunarverkefni þar sem pólitíkin byggðist á samstöðu og allir flokkar mynduðu meirihluta í sameiningu. Þau ræða meðal annars hvort að Hilda sjái fyrir sér hvort slíkt fyrirkomulag myndi virka á Alþingi ásamt öðrum álitaefnum.

#63 Brynjar snýr aftur í stjórnmál (Viðtal við Brynjar Níelsson) 11.06.2021

Brynjar er ekki hættur í stjórnmálum. Þórarinn ræðir við hann um prófkjörið, framtíðina, verðmætasköpun, #metoo, markþjálfun og spillingu.

#62 Í stjórnmál eftir þrjátíu ár í fjölmiðlum (Viðtal við Sigmar Guðmundsson) 06.06.2021

Sigmar Guðmundsson stefnir á þing eftir um þrjátíu ár starf í fjölmiðlum. Hann býður sig fram í Suðvesturkjördæmi fyrir flokk Viðreisnar. Þórarinn ræðir við Sigmar um stefnumál flokksins, krónuna, geðheilbrigðismál, frelsi og margt fleira.

#61 Afglæpavæðing fíkniefna - Eiturlyf eða vímuefni (Viðtal við Ólaf Ísleifsson) 04.06.2021

Þórarinn og Kristín ræða við Ólaf Ísleifsson, þingmann Miðflokksins, um afglæpavæðingu fíkniefna.

#60 Kveður eftir fjörutíu ára þingmennsku - Kosningar, umhverfið og Samherji (Viðtal við Steingrím J. Sigfússon) 02.06.2021

Þórarinn ræðir við Steingrím J. Sigfússon um ferilinn, pólitík, kosningar og umhverfisvernd. Í síðari hluta viðtalsins ræða þeir um stjórnmálamenningu á Íslandi og hvort að Kristján Þór Júlíusson hefði átt að segja af sér embættinu í kjölfar Samherjamálsins. Að lokum er rætt um hverja Steingrímur myndi helst vilja fá með sér í sumarbústaðarferð.

#59 Eru hlaðvörp fjölmiðlar? (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson) 30.05.2021

Þórarinn og Jakob Bjarnar leggja fyrir sig rannsóknarspurningu: Eru hlaðvörp fjölmiðlar? Auk þess að svara henni ræða þeir um blaðamennsku og ritstjórnir, ríkisspenann, góða fólkið, traust til fjölmiðla og margt fleira.

#58 Héraðsdómari á leið í stjórnmál (Viðtal við Arnar Þór Jónsson) 23.05.2021

Þórarinn ræðir við Arnar Þór Jónsson héraðsdómara um fyrirhugaða þátttöku hans í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Auk álitaefna um að dómari bjóði sig fram til setu á Alþingi ræða þeir ýmis hugmyndafræðileg og samfélagsleg álitamál.

#57 Hugleiðingar með Ivu Adrichem 21.05.2021

Þórarinn og Kristín ræða við Ivu Adrichem um allskyns samfélagsleg álitaefni. Rætt er um Onlyfans, stjórnmál, fasisma, feminísma og margt fleira.

#56 Formaður Samfylkingarinnar - Stefnumál, forræðishyggja og gervigreind (Viðtal við Loga Einarsson) 13.05.2021

Þórarinn ræðir við Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar. Umræðurnar snúa að stefnumálum Samfylkingarinnar, forræðishyggju, , tjáningarfrelsi, skatta og gervigreind.

#55 Formaður VR - Lífskjarasamningar og húsnæðismál (Viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson) 09.05.2021

Þórarinn ræðir verkalýðsmál við Ragnar Þór Ingólfsson. Rætt er um hina títtnefndu lífskjarasamninga, krónutöluhækkanir og húsnæðismál.

Escucha el podcast Ein Pæling en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos