Gabríela Bryndís Ernudóttir

Biskupsmálið

Society IS ↓ 7 episodios

Hlaðvarpssería um Biskupsmálið. Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir

Autor

Gabríela Bryndís Ernudóttir

Categoría

Society

Web del podcast

www.buzzsprout.com

Último episodio

22 de mar. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android 5 M+ de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

6. þáttur - lokaþáttur 22.03.2026

Í lokaþættinum er sjónum beint að langvarandi áhrifum ofbeldis og þeim lærdómi sem samfélagið getur dregið af einu stærsta uppgjörsmáli íslensks samtíma. Varpað er ljósi á hvernig afleiðingar ofbeldis geta varað í áratugi, jafnvel kynslóðir. Í þættinum heyrast raddir fólks sem varð fyrir beinum eða óbeinum afleiðingum málsins. Guðrún Ebba segir meðal annars frá því hvað kirkjan þarf að gera til að...

5. þáttur 15.03.2026

Í þessum þætti beinist athyglin að því sem tók við eftir að Guðrún Ebba steig fram opinberlega með sögu sína í bókinni Ekki líta undan, sem Elín Hirst skráði. Fjallað er um þau viðbrögð sem mættu henni í kjölfarið, ekki síst frá eigin fjölskyldu, þegar frásögn hennar var dregin í efa opinberlega og hún ásökuð um rangar eða falskar minningar.  Í þættinum svarar Guðrún Ebba í fyrsta sinn opinberlega...

4. þáttur 08.03.2026

Í þættinum er sjónum beint að þeirri vegferð sem hófst þegar Guðrún Ebba, dóttir biskups, fór í áfengismeðferð árið 2003 og minningar um kynferðisofbeldi föður hennar fóru að brjótast fram eftir áratuga bælingu. Fjallað er um hvernig kynferðisofbeldi í æsku getur haft djúpstæð áhrif á líf þolenda síðar meir, meðal annars á sjálfsmynd, mörk, tengsl og bjargráð. Guðrún Ebba segir frá því hvernig hún...

3. þáttur 01.03.2026

Þriðji þáttur fjallar um hvernig málin voru afgreidd innan kirkjunnar árið 1996. Ólafur kærði konurnar til ríkissaksóknara fyrir ærumeiðingar og þær voru yfirheyrðar af lögreglu klukkutímunum saman. Ferlið einkenndist af ótta og óvissu, á meðan valdamesti maður kirkjunnar hélt stöðu sinni og virðingu. Þó málin hafi verið felld niður varð afleiðingin sú að konurnar höfðu stöðu sakborninga, og þá vo...

2. þáttur 22.02.2026

Í öðrum þætti er farið yfir það hvað gerist þegar konur stíga fram gegn valdamiklum manni, og mæta kerfi sem virkar hægt og illa, og verndar frekar biskupsembættið en brotaþola. Við heyrum frásögn konu sem kemur nú fram í fyrsta sinn, sem lýsir því að hún hafi orðið fyrir áreitni af hendi Ólafs Skúlasonar sem fermingarbarn í Bústaðakirkju fyrir rúmri hálfri öld.  Þátturinn hefst á vettvangsferð í...

1. þáttur 15.02.2026

Þann 15. febrúar árið 1996 kom út frétt í DV um að nokkrar konur væru að ásaka valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskup Íslands, Ólaf Skúlason, um kynferðisofbeldi. Biskupsmálið svokallaða varð eitt eldfimasta mál samfélagsins í marga áratugi á eftir. Alfred-Wolfgang, ekkill Sigrúnar Pálínu, einna þeirra kvenna sem stigu fram, rifjar upp líf þeirra saman, baráttu hennar, þöggunina sem þau mættu og...

Biskupsmálið - Trailer 29.01.2026

Í febrúar eru liðin 30 ár frá fyrstu fréttum af því þegar konur stigu fram og sögðu frá kynferðislegu ofbeldi af hendi eins valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskups Íslands, Ólafs Skúlasonar.  Biskupsmálið er heimilidaþáttaröð sem fjallar um hvernig kirkja, réttarkerfi og samfélag brugðust við þegar valdamikið embætti var sett undir smásjá.  Eftirlifendur, fjölmiðlafólk og fræðimenn segja sögu af...

Escucha el podcast Biskupsmálið en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos