Gabríela Bryndís Ernudóttir
Biskupsmálið
Hlaðvarpssería um Biskupsmálið. Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir
Autor
Gabríela Bryndís Ernudóttir
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
22. Mär 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
6. þáttur - lokaþáttur 22.03.2026 1:14:12
Í lokaþættinum er sjónum beint að langvarandi áhrifum ofbeldis og þeim lærdómi sem samfélagið getur dregið af einu stærsta uppgjörsmáli íslensks samtíma. Varpað er ljósi á hvernig afleiðingar ofbeldis geta varað í áratugi, jafnvel kynslóðir. Í þættinum heyrast raddir fólks sem varð fyrir beinum eða óbeinum afleiðingum málsins. Guðrún Ebba segir meðal annars frá því hvað kirkjan þarf að gera til að...
5. þáttur 15.03.2026 51:36
Í þessum þætti beinist athyglin að því sem tók við eftir að Guðrún Ebba steig fram opinberlega með sögu sína í bókinni Ekki líta undan, sem Elín Hirst skráði. Fjallað er um þau viðbrögð sem mættu henni í kjölfarið, ekki síst frá eigin fjölskyldu, þegar frásögn hennar var dregin í efa opinberlega og hún ásökuð um rangar eða falskar minningar. Í þættinum svarar Guðrún Ebba í fyrsta sinn opinberlega...
4. þáttur 08.03.2026 1:07:13
Í þættinum er sjónum beint að þeirri vegferð sem hófst þegar Guðrún Ebba, dóttir biskups, fór í áfengismeðferð árið 2003 og minningar um kynferðisofbeldi föður hennar fóru að brjótast fram eftir áratuga bælingu. Fjallað er um hvernig kynferðisofbeldi í æsku getur haft djúpstæð áhrif á líf þolenda síðar meir, meðal annars á sjálfsmynd, mörk, tengsl og bjargráð. Guðrún Ebba segir frá því hvernig hún...
3. þáttur 01.03.2026 59:19
Þriðji þáttur fjallar um hvernig málin voru afgreidd innan kirkjunnar árið 1996. Ólafur kærði konurnar til ríkissaksóknara fyrir ærumeiðingar og þær voru yfirheyrðar af lögreglu klukkutímunum saman. Ferlið einkenndist af ótta og óvissu, á meðan valdamesti maður kirkjunnar hélt stöðu sinni og virðingu. Þó málin hafi verið felld niður varð afleiðingin sú að konurnar höfðu stöðu sakborninga, og þá vo...
2. þáttur 22.02.2026 1:02:17
Í öðrum þætti er farið yfir það hvað gerist þegar konur stíga fram gegn valdamiklum manni, og mæta kerfi sem virkar hægt og illa, og verndar frekar biskupsembættið en brotaþola. Við heyrum frásögn konu sem kemur nú fram í fyrsta sinn, sem lýsir því að hún hafi orðið fyrir áreitni af hendi Ólafs Skúlasonar sem fermingarbarn í Bústaðakirkju fyrir rúmri hálfri öld. Þátturinn hefst á vettvangsferð í...
1. þáttur 15.02.2026 44:19
Þann 15. febrúar árið 1996 kom út frétt í DV um að nokkrar konur væru að ásaka valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskup Íslands, Ólaf Skúlason, um kynferðisofbeldi. Biskupsmálið svokallaða varð eitt eldfimasta mál samfélagsins í marga áratugi á eftir. Alfred-Wolfgang, ekkill Sigrúnar Pálínu, einna þeirra kvenna sem stigu fram, rifjar upp líf þeirra saman, baráttu hennar, þöggunina sem þau mættu og...
Biskupsmálið - Trailer 29.01.2026 2:52
Í febrúar eru liðin 30 ár frá fyrstu fréttum af því þegar konur stigu fram og sögðu frá kynferðislegu ofbeldi af hendi eins valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskups Íslands, Ólafs Skúlasonar. Biskupsmálið er heimilidaþáttaröð sem fjallar um hvernig kirkja, réttarkerfi og samfélag brugðust við þegar valdamikið embætti var sett undir smásjá. Eftirlifendur, fjölmiðlafólk og fræðimenn segja sögu af...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet