Fjármálakastið
Fjármálakastið
Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: podcasters.spotify.com
Autor
Fjármálakastið
Kategorie
Web podcastu
Nejnovější epizoda
26. zář 2026
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Þáttur 43 - Viðtal við Eyþór Mána, framkvæmdastjóra Hopp 15.03.2023 25:35
Í þessum þætti er rætt við Eyþór Mána Steinarsson, framkvæmdastjóra deilisamgöngufyrirtækisins Hopp. Rætt er um fyrirtækið Hopp, sögu þess og starfsemi en líka um nýsköpunarumhverfið á Íslandi og hvernig það er að vera ungur frumkvöðull í dag. -------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræ...
Þáttur 42 - Viðtal við Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóra sölu og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland 08.03.2023 34:53
Í þessum þætti er rætt við Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóra sölu og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland. Rætt er um starfsemi Kauphallarinnar og hvað sé fram undan hjá þeim, fjárfestingar, regluverk á fjármálamarkaði og ýmislegt fleira. ----------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræð...
Þáttur 41 - Viðtal við Gunnar og Elísu, hagfræðinga Viðskiptaráðs 02.03.2023 47:38
Í þessum þætti er rætt við Gunnar Úlfarsson og Elísu Örnu Hilmarsdóttur, hagfræðinga Viðskiptaráðs. Rætt er um verðbólguna, aðgerðir Seðlabankans, nýliðið Viðskiptaþing, orkumál, kjaramálin, fasteignamarkaðinn og fleira. ----------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er...
Þáttur 40 - Viðtal við Önnu Hrefnu, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, um kjaramálin og jafnlaunavottun 23.02.2023 31:29
Í þessum þætti er rætt við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífins um stöðu kjaramála, hvort jafnlaunavottunin hafi skilað tilætluðum árangri, stýrivaxtahækkanir Seðlabankans, verðbólguna, fasteignamarkaðinn og sitthvað fleira. --------------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Stefnir er styrktaraðili þáttarins...
Þáttur 39 - Viðtal við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá 10.02.2023 42:11
Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá, fyrrverandi yfirmann greiningardeildar Kaupþings og einn af virkustu meðlimum fjármálatwitter. Rætt er um stýrivaxtahækkanir Seðlabankans, verðbólguna, húsnæðismarkaðinn, kjaramálin, efnahagshorfur erlendis, fyrirhugaða sameiningu Kviku og Íslandsbanka, lög á fjármálamarkaði, skortsölu, skuggabankastarfsemi og sitthvað f...
Þáttur 38 - Viðtal við Stefaníu Kolbrúnu Ásbjörnsdóttur, hagfræðing hjá Samtökum atvinnulífsins 03.02.2023 26:47
Í þessum þætti er rætt við Stefaníu Kolbrúnu Ásbjörnsdóttur, hagfræðing hjá Samtökum atvinnulífsins. Stefanía hélt áhugavert erindi á Skattadegi Deloitte, Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka atvinnulífsins þar sem hún fjallaði um fjármögnun vegakerfisins. Í þessum þætti er farið yfir erindið hennar en einnig yfir nýjustu verðbólgutölur, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku og einnig er farið...
Þáttur 37 - Viðtal við Halldór Kára Sigurðarson, hagfræðing Húsaskjóls 26.01.2023 28:51
Í þessum þætti er rætt við Halldór Kára Sigurðarson, hagfræðing Húsaskjóls. Halldór hefur á undanförnum misserum skrifað fjöldann allan af greinum sem fjalla um stöðu og horfur á fasteignamarkaðnum. Í þættinum er rætt um stöðu og horfur á fasteignamarkaðnum hér á landi, fasteignamarkaði í nágrannalöndunum, aðgerðir Seðlabankans, sögulega þróun markaðarins og sitthvað fleira. ----------------...
Þáttur 36 - Viðtal við Fidu Abu Libdeh, stofnanda og framkvæmdastjóra GeoSilica 18.01.2023 21:23
Í þessum þætti er rætt við Fidu Abu Libdeh, stofnanda og framkvæmdastjóra GeoSilica. Rætt er um vöxt fyrirtækisins, áskoranirnar í rekstrinum og frumkvöðlalífinu, nýsköpunarumhverfið á Íslandi og margt fleira.
Þáttur 35 - Viðtal við Ernu Björgu Sverrisdóttur, aðalhagfræðing Arion banka 12.01.2023 32:46
Í þessum þætti er rætt við Ernu Björgu Sverrisdóttur, aðalhagfræðing Arion banka, um kjaramálin, gengi krónunnar, stýrivexti, verðbólgu, fasteignamarkaðinn, efnahagshorfur og ýmislegt fleira.
Þáttur 34 - Viðtal við Lárus Welding um bókina hans og efnahagsmál 06.01.2023 35:55
Í þessum þætti er rætt við Lárus Welding en hann gaf nýverið út bókina Uppgjör bankamanns. Rætt er um nýútkomna bók hans, tímann sem bankastjóri Glitnis en einnig efnahagsmálin innanlands og erlendis.
Þáttur 33 - Áramótaþáttur - Viðskiptafréttir ársins með blaðamönnum Viðskiptablaðsins 27.12.2022 27:06
Í þessum áramótaþætti Fjármálakastsins er viðskiptafréttaárið gert upp með blaðamönnunum Guðnýju Halldórsdóttur og Sigurði Gunnarssyni frá Viðskiptablaðinu. Rætt er um helstu viðskiptamenn ársins, viðskipti ársins, verstu viðskipti ársins, stöðuna í efnahagslífinu, horfur á næsta ári og fleira.
Þáttur 32 - Safa Jemai: „Mikilvægt að vera stöðugt að læra eitthvað nýtt“ 06.12.2022 22:01
Í þessum þætti er rætt við Söfu Jemai, stofnanda og framkvæmdastjóra nýsköpunarfyrirtækisins Víkonnekt. Safa er menntaður hugbúnaðarverkfræðingur sem fluttist hingað til lands frá Túnis fyrir um fjórum árum síðan og hefur hún stofnað nokkur fyrirtæki síðan. Í þættinum er rætt um þau fjölmörgu fyrirtæki sem hún hefur stofnað, nýsköpun á Íslandi, frumkvöðlalífið og sitthvað fleira.
Þáttur 31 - Júlíus Þór: „Umfjöllun fjölmiðla hefur því miður borið vott um vanþekkingu“ 19.11.2022 34:59
Í þessum þætti er rætt við Júlíus Þór Halldórsson, blaðamann á Viðskiptablaðinu. Rætt er um stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Íslandsbankasölunni og þau viðbrögð sem hún hefur fengið. Einnig er rætt um stöðu ÍL-sjóðs, fall rafmyntakauphallarinnar FTX, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans næstkomandi miðvikudag og fleira.
Þáttur 30 - Konráð: „Verðbólgan er sameiginlegur óvinur okkar allra“ 02.11.2022 32:50
Í þessum þætti er rætt við Konráð S. Guðjónsson, hagfræðing og efnahagslegan ráðgjafa Samtaka atvinnulífsins. Rætt er um kjarasamningana sem nú eru fram undan, verðbólguna, stýrivexti, fasteignamarkaðinn og ýmislegt fleira.
Þáttur 29 - Helga Valfells: „Það er hægt að gera allt en ekki allt í einu.“ 22.10.2022 36:02
Í þessum þætti er rætt við Helgu Valfells, stofnanda og framkvæmdastjóra vísissjóðsins Crowberry Capital. Helga er með grunngráðu í hagfræði og enskum bókmenntum frá Harvard og MBA gráðu frá London Business school. Í þættinum er rætt um fyrirtækið hennar, nýsköpun, konur og fjárfestingar og ýmislegt fleira.
Þáttur 28 - Valdimar Ármann: „Við lifum á sögulegum tímum á mörkuðum.“ 06.10.2022 30:02
Í þessum þætti er rætt við Valdimar Ármann, forstöðumann eignastýringar Arctica Finance. Rætt er um efnhagsástandið í Bretlandi, fjárhagsvanda Credit Suisse, stýrivexti, skuldabréfamarkaðinn og horfur á mörkuðum bæði hér heima og erlendis og ýmislegt fleira.
Þáttur 27 - Stefán Baxter, stofnandi Snjallgagna 26.09.2022 38:35
Í þessum þætti er rætt um nýsköpunarumhverfið á Íslandi, hvernig það hefur breyst í áranna rás og hvernig það er í samanburði við önnur lönd. Einnig er rætt um hvað ungir frumkvöðlar ættu að tileinka sér til að ná árangri og ýmislegt fleira. Rætt er við Stefán Baxter en hann er stofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Snjallgagna og hefur starfað í nýsköpun í áratugi.
Þáttur 26 - Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda 19.09.2022 26:32
Í þessum þætti er rætt við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Rætt er um áfengisgjöld, fjárlagafrumvarpið, hvað stjórnvöld geti gert til að bæta rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja, kjaramál, fasteignaskatta og ýmislegt fleira.
Þáttur 25 - Daði Kristjánsson, stofnandi Visku Digital Assets 08.09.2022 43:59
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson, stofnanda Visku Digital Assets sem er fyrsti íslenski rafmyntasjóðurinn. Daði starfaði í um 15 ár á fjármálamarkaði áður en hann tók þá ákvörðun að stofna Visku ásamt félögum sínum. Í þættinum er rætt um rafmyntir, bálkakeðjutækni, hvort sú gagnrýni sem rafmyntir fá á sig sé réttmæt, gerjunina í rafmyntaheiminum, stöðuna á fjármálamörkuðum og sitthvað...
Þáttur 24 - Viðtal við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar 20.07.2022 30:13
Í þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Rætt er um stöðuna í greininni, horfur, kjarasamningana sem eru fram undan, hvort hvalveiðar séu skaðlegar fyrir ferðaþjónustuna og fleira.
Þáttur 23 - Viðtal við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráði 12.07.2022 19:07
Í þessum þætti er rætt við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráði um skýrsluna The Icelandic Economy. Einnig er rætt um hvort bóla sé til staðar á fasteignamarkaði, hvort verðbólgan muni fara í tveggja stafa tölu, samkeppnishæfni og fleira.
Þáttur 22 - Viðtal við Þórð Gunnarsson, hagfræðing 27.06.2022 18:53
Í þessum þætti er rætt við Þórð Gunnarsson, hagfræðing, um stýrivaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku, fasteignamarkaðinn, verðbólgu, skráningu Nova og Alvotech og fleira.
Þáttur 21 - Viðtal við Ragnar Árnason, prófessor emeritus við HÍ 29.05.2022 20:21
Í þessum þætti ræðum við um kostnað vegna umferðartafa en samkvæmt nýlegri rannsókn sem gerð var fyrir Samtökin samgöngur fyrir alla með stuðningi frá Rannsóknarmiðstöð um samfélags og efnahagsmál kemur fram að við töpum um 60 milljörðum á umferðartöfum. Til að ræða um þessi mál fékk ég til mín hann Ragnar Árnason, prósessor emeritus, við Háskóla Íslands og formann Rannsóknarráðs RSE.
Þáttur 20 - Viðtal við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfræðideildar Landsbankans 09.05.2022 14:54
Í þættinum er rætt um stýrivaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku en síðastliðinn miðvikudag tilkynnti Peningastefnunefnd Seðlabankans að stýrivextir yrðu hækkaðir um 1 prósentustig. Sú spá var í takt við spá Hagfræðideildar Landsbankans. Í þættinum er rætt við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfræðideildar Landsbankans.
Þáttur 19 - Viðtal við Andreu Sigurðardóttur, fyrrum blaðamann á Viðskiptablaðinu 02.05.2022 25:55
Í þessum þætti er rætt um Íslandsbankaútboðið. Þann 22. mars seldi ríkið 22,5 prósent hlut í Íslansbanka til 207 fjárfesta á tæpa 53 milljarða króna. Þar með er ríkið ekki lengur meirihluta eigandi að bankanum en eftir söluna þá á ríkið 42,5 prósent í bankanum en einkaaðilar 57,5 prósent. Til að ræða um útboðið fékk ég til mín hana Andreu Sigurðarsdóttur, fyrrum blaðamann á Viðskiptablaðinu.
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály