Fjármálakastið

Fjármálakastið

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: podcasters.spotify.com

Autor

Fjármálakastið

Kategorie

Business

Web podcastu

podcasters.spotify.com

Nejnovější epizoda

26. zář 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Þáttur 119 - Viðtal við framkvæmdastjóra viðskipta hjá Nasdaq Iceland 26.09.2026

Gestur þáttarins þessa vikuna er Finnbogi Rafn Jónsson framkvæmdastjóri viðskipta hjá Nasdaq Iceland. Í þættinum er rætt um innleiðingu miðlægs mótaðila hjá Nasdaq Iceland sem tilkynnt var í síðustu viku, hvernig horfurnar eru fyrir nýskráningar í Kauphöll á næstunni, stöðuna á hlutabréfamarkaði og tækniframfarir hjá Nasdaq. ------------- Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintec...

Þáttur 118 - Reynslumikill fjármálastjóri mætir í settið 11.09.2026

Gestur vikunnar í Fjármálakastinu er Ólafur Þór Jóhannesson fjármálastjóri ÞG verks og systurfélagsins Arcusar ehf, eignarhaldsfélags sem eru í fullri eigu Þorvaldar Gissurarsonar. Ólafur er reynslumikill fjármálastjóri en hann hefur starfað sem fjármálastjóri, forstjóri, endurskoðandi, kennari við Háskólann í Reykjavík, stjórnarmaður og ráðgjafi í ýmsum atvinnugreinum. Hægt er að bæði hlusta og/e...

Þáttur 117 - Umræður um frumútboð Anthropic, rafmyntamarkaði og efnahagsmálin 03.09.2026

Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt var um fyrirhugað frumútboð hjá gervigreindarfyrirtækinu Anthropic, það helsta sem er að eiga sér stað á rafmyntamörkuðum þessa dagana, horfurnar í efnahagslífinu og sitthvað fleira. ------------------- Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech

Þáttur 116 - Viðtal við Hönnu Kristínu um gervigreind í fyrirtækjarekstri 26.08.2026

Í þessum þætti er rætt við Hönnu Kristínu Skaftadóttur, doktor í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum og fagstjóra viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst. Hún er einnig hópstjóri gervigreindarhóps Reykjavík Fintech. Í þessum þætti er rætt um þau tækifæri sem felast í nýtingu gevigreindar í rekstri, hvar Ísland stendur á því sviði og einnig hópastarfið hjá Reykjavík Fintech. Umræ...

Þáttur 115 - Viðtal við Ernu Björgu Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka 21.08.2026

Gestur þáttarins er Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka. Farið var yfir efnahagshorfur og stýrivaxtahækkunina síðastliðinn miðvikudag. Samstarfsaðilar: Reykjavík Fintech Akademias Bella Books

Þáttur 114 - Viðtal við Ragnar Árnason prófessor í hagfræði 11.08.2026

Í þessum þætti er rætt við Ragnar Árnason prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands. Rætt er um áhrif þess á sjávarútveginn ef Ísland myndi ganga í ESB, áhrif aukinnar skattlagningar stjórnvalda á sjávarútveginn, gang greinarinnar, ETS kerfið og fleira. ------------ Samstarfsaðilar Reykjavík Fintech Bella Books Akademias

Þáttur 113 - Viðtal við Má Wolfgang Mixa prófessor við HÍ 06.08.2026

Í þessum þætti er rætt við Má Wolfgang Mixa prófessor við Háskóla Íslands. Rætt var um efnahagsmálin en stýrivaxtaákvörðun verður tilkynnt í lok mánaðar, einnig var rætt um hvort sameiningar á bankamarkaði séu mögulegar eftir að Samkeppniseftirlitið gaf út sína afstöðu til málsins og margt fleira. ----------- Samstarfsaðilar Akademias Reykjavík Fintech

Þáttur 112 - Rætt um horfur í ferðaþjónustunni við framkvæmdastjóra SAF 20.07.2026

Í þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um stöðu og horfur í greininni. Rætt er um fyrirhugaðar skattahækkanir stjórnvalda á greinina, boðaða neytendamarkaðssetningu, hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst blasir við greininni og margt fleira. ------------- Þátturinn er í samstarfi við Reykjavík Fintech.

Þáttur 111 - Spjall við Val Þór, meðstofnanda Taktikal 17.07.2026

Í þessum þætti er rætt við Val Þór Gunnarsson meðstofnanda tæknifyrirtækisins Taktikal. Rætt er um vöxt og rekstur fyrirtækisins, nýsköpunargeirann, þá hröðu tækniþróun sem er að eiga sér stað um þessar mundir og hvaða áhrif hún mun hafa á rekstur fyrirtækja og margt fleira. ---------- Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech.

Þáttur 110 - Viðtal við Hermann Guðmundsson forstjóra Kemi 09.07.2026

Í þessum þætti er rætt um rekstur og vöxt fyrirtækisins Kemi sem Hermann Guðmundsson hefur stýrt um langt skeið. Rætt er um nýleg kaup Kemi á Fálkanum-Ísmar, vaxtartækifærin í geiranum á næstunni, nálgun Hermanns á rekstur og stjórnun fyrirtækja, efnahagsástandið og margt fleira. Vek athygli á fréttabréfi Fjármálakastsins en lesa má eldri bréf á fjarmalakastid.substack.com. Samstarfsaðili þáttarin...

Þáttur 109 - Viðtal: Fjártækni á Íslandi í sókn 02.07.2026

Í þessum þætti er rætt við Gunnlaug Jónsson stofnanda og stjórnarformann Reykjavík Fintech. Rætt er um vöxtinn sem hefur átt sér stað í fjártæknigeiranum, einkum að undanförnu, starfsemi Fjártækniklasans, tækifærin í fjártækni og á sviði gervigreindar og margt fleira. Ég vil einnig vekja athygli á nýju fréttabréfi Fjármálakastsins. Hægt er að lesa bréfin og gerast áskrifandi á fjarmalakastid.subst...

Þáttur 108 - Staða lítilla og meðalstórra fyrirtækja rædd 19.06.2026

Í þessum þætti er rætt um stöðuna í rekstrarumhverfi lítill og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um skýrslu sem unnin var af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka sem ber heitið Óvissa út við sjóndeildarhring: Efnahagur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um þær áskoranir og tækifæri sem fyrirtækin standa frammi fyrir um þessar mundir, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á þeirra starfsemi, v...

Þáttur 107 - Efnahagsspjall við Kára hagfræðing hjá Arion 11.06.2026

Í þessum þætti er farið um víðan völl yfir efnahagsmálin. Kári Friðriksson hagfræðingur hjá Arion greiningu er gestur þáttarins. Í þættinum er rætt um verðbólguhorfur, hagvaxtarhorfur, fasteigna og byggingamarkaðinn, hvaða efnahagslegu áhrif innganga Íslands í ESB myndi hafa, atvinnuleysi, stöðuna á vinnumarkaði og fleira.

Þáttur 106 - Efnahagsspjall við Agnar Tómas Möller 21.05.2026

Í þessum þætti er rætt um ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti um 25 punkta. Einnig er rætt um efnahagsmálin, Opinber fjármál, sjávarútveginn og skuldabréfamarkaðinn.

Þáttur 105 - Viðtal við Hreiðar Má Hermannsson, forstjóra Eikar 08.05.2026

Í þessum þætti er rætt við Hreiðar Má Hermannsson forstjóra fasteignafélagsins Eikar. Rætt er um stöðu og horfur í rekstri Eikar, atvinnuhúsnæðismarkaðinn, horfur í efnahagsmálum og fleira.

Þáttur 104 - Efnahagsspjall með Unu Jónsdóttur hjá Landsbankanum 21.04.2026

Í þessum þætti er rætt um nýja Hagspá Landsbankans og efnahagsmálin. Rætt er við Unu Jónsdóttur aðalhagfræðing Landsbankans.

Þáttur 103 - Spjall um tækni og hugverkaiðnaðinn 17.04.2026

Í þessum þætti er rætt við Sigríði Mogensen, sviðstjóra iðnaðar og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins. Rætt er um nýja atvinnustefnu stjórnvalda, framþróun á sviði gervigreindar og vöxt hugverkaiðnaðarins en Samtök iðnaðarins gáfu út skýrslu um það málefni á dögunum. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 102 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson 26.03.2026

Í þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson sem starfaði lengi vel sem forstjóri Ölgerðarinnar sem nú heitir Bera. Rætt er um þær breytingar sem eru í farvatninu hjá fyrirtækinu, vaxtartækifærin hjá fyrirtækinu, nýtt hlutverk Andra Þórs innan fyrirtækisins, efnahagshorfur og ýmislegt fleira. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 100 - Praktísk ráð í rekstri frá Sólveigu í Strata Advisory 20.02.2026

Í þessum þætti er rætt við Sólveigu Gunnarsdóttur fjármálaráðgjafa og eiganda Strata Advisory. Rætt er um rekstur fyrirtækja, námskeiðið Praktík í rekstri sem ráðgjafarfyrirtækið stendur fyrir, efnahagsástandið, hvernig skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru að hafa áhrif á fyrirtæki í rekstri og margt fleira. -------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmal...

Þáttur 99 - Efnahagsspjall við Þórð Pálsson 09.02.2026

Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt var um vaxtaákvörðunina í síðustu viku, stöðuna á vinnumarkaði, ríkisfjármálin, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á efnahagslífið, fjártækni og samruna á bankamarkaði. ----------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 98 - Viðtal við Daða Kristjánsson hjá Visku sjóðum 03.02.2026

Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt er um tækifærin á sviði gervigreindar um þessar mundir bæði fyrir fyrirtæki og starfsmenn, vaxtaákvörðun Seðlabankans sem verður tilkynnt á morgun og fleira. ----------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 97 - Björn Berg: „Gott að hafa ofnæmi fyrir skuldum“ 22.01.2026

Í þessum þætti er rætt við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa um persónuleg fjármál og markmiðasetningu í fjármálum. Hann segir að besta fjármálaráðið sem hann gefi fólki gjarnan er að þróa með sér ofnæmi fyrir því að skulda og kveðst ekki vera hrifinn af því viðhorfi sem virðist vera ríkjandi um að nánast ómögulegt sé fyrir fyrstu kaupendur að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þá er einnig ræt...

Þáttur 96 - Spjall um skatta, regluverk og landeldi 15.01.2026

Í fyrsta þætti ársins 2026 er rætt við Orra Hauksson stjórnarformann First Water og fyrrum forstjóra Símans. Farið var um víðan völl og meðal annars rætt um fjárfestingar í landeldi, starfsemi First Water og hvað sé á döfinni hjá fyrirtækinu. Þá var einnig rætt um erindi Orra á Skattadegi Deloitte, horfur í efnahagsmálunum og fleira. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/...

Þáttur 95 - Efnahagsspjall með Kára í Arion 27.10.2025

Í þessum þætti var rætt um efnahagsmálin við Kára Friðriksson hagfræðing í Arion greiningu. Rætt var um áhrifin af biluninni á Grundartanga á efnahagslífið, áhrifin af falli Play á ferðaþjónustuna, vaxta og verðbólguhorfur og horfur á fasteignamarkaði í kjölfar nýlegs dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Þá var farið yfir nýja Hagspá Arion banka og að lokum rætt um skýrslu bankans um stöðuna...

Þáttur 94 - Yfirferð yfir Q2 uppgjörin með Helga Frímanns 17.09.2025

Fjármálakastið snýr aftur eftir smá sumarfrí og er þétt dagskrá fram undan í haust. Í þessum þætti er farið yfir allt það helsta sem fram kom í uppgjörum skráðu félaganna í Kauphöllinni fyrir annan ársfjórðung þessa árs. Helgi Frímannsson fjárfestingaráðgjafi hjá New Iceland Advisors mætti í settið til Magdalenu Torfadóttur. Í þættinum er rætt um horfur í starfsemi allra félaganna og einnig hverni...

Poslouchej podcast Fjármálakastið v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály