Fjármálakastið

Fjármálakastið

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: podcasters.spotify.com

Autor

Fjármálakastið

Kategorie

Business

Web podcastu

podcasters.spotify.com

Nejnovější epizoda

26. zář 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Þáttur 93 - Spjall um rafmyntir, markaði og bankasamruna 08.07.2025

Í þessum þætti er rætt um rafmyntamarkaði og allt það helsta sem hefur gerst í geiranum að undanförnu. Einnig er farið yfir mikla skuldasöfnun í Bandaríkjunum og þá staðreynd að fjárfestar eru í meiri mæli farnir að horfa til þess að fjárfesta utan Bandaríkjanna. Þá er einnig rætt um horfur á innlendum og erlendum mörkuðum og loks velt vöngum um nýjustu vendingar í samrunamálum banka. ------------...

Þáttur 92 - Spjall um bankasamruna, markaðinn og fleira 29.05.2025

Í vikunni sendu stjórnir Arion banka og Íslandsbanka bréf til stjórnar Kviku þar sem óskað var eftir samrunaviðræðum við Kviku. Þá er ekki langt síðan Íslandsbankaútboðið kláraðist og hlutabréfamarkaðurinn hefur tekið við sér að undanförnu. Í síðustu viku voru vextir lækkaðir um 25 punkta og verðbólgan mælist nú 3,8%. Í þessum þætti er rætt um þessi mál ásamt fleiru við Má Wolfgang Mixa, dósent í...

Þáttur 91 - Efnahagsspjall með Jóni Bjarka 14.05.2025

Í þessum þætti er farið yfir efnahagsmálin en Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka mætti í settið. Rætt er um væntingar fyrir stýrivaxtaákvörðunina í næstu viku, væntingingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um hjöðnun verðbólgu og horfur á því sviði. Þá var einnig rætt um áhrif mögulegra tolla áforma Bandaríkjaforseta á íslenskt efnhagslíf og horfur á innlenda hlutabréfamarkaðnum. ---------...

Þáttur 90 - Spjall um gervigreind og fjármál 19.04.2025

Í þessum þætti er rætt við Söfu Jemai stofnanda og framkvæmdastjóra Víkonnekt. Rætt er um gervigreind almennt, hvernig hægt er að nýta hana í fjárhagslegum ákvarðanatöku, hvað er nýjast í fræðunum, hvað er fram undan, hvernig standa íslensk fyrirtæki á þessu sviði og margt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 89 - Spjall um englafjárfestingar og nýsköpun 30.03.2025

Í þessum þætti er rætt við Jón Inga Bergsteinsson formann ICEBAN - Samtök englafjárfesta á Íslandi og fjárfesti. Rætt er um englafjárfestingar, fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja, stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum nýsköpunarfyrirtækja og ýmislegt fleira. ------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 88 - Spjall um rekstrarumhverfi fjölmiðla, efnahagshorfur og fleira 17.03.2025

Í þættinum er rætt við Gunnar Úlfarsson hagfræðing Viðskiptaráðs um nýja úttekt Viðskiptaráðs á rekstraumhverfi fjölmiðla. Einnig er rætt um hagræðingartillögur fyrir ríkisstjórnina, gagnrýni á frumvarp um almannatryggingar, leigubílalögin og fleira. Þá er spáð í spilin hvað Seðlabankinn gerir við næstu vaxtaákvörðun sem verður næstkomandi miðvikudag og hvaða áhrif tollastríð myndi hafa á Ísland....

Þáttur 87 - Efnahagsspjall við Konráð Guðjóns 15.02.2025

Í þessum þætti er rætt við Konráð Guðjónsson hagfræðing. Rætt er um efnahagshorfur hér heima og erlendis, ríkisfjármálin, kjarasamningana, fasteignamarkaðinn og fleira. Þá er farið yfir spurningar frá hlustendum þar sem meðal annars er komið inn á hans sýn á mögulegan samruna Arion og Íslandsbanka. Léttu nóturnar eru á sínum stað. --------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirv...

Þáttur 86 - Spjall um rekstrarumhverfi banka og fjártækni 04.02.2025

Í þessum þætti er rætt við Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja, regluverkið og séríslenskar kröfur á banka. Einnig er rætt um hvað sé fram undan hjá SFF og um nýlega ráðstefnu samtakanna á sviði fjártækni. Léttu nóturnar eru á sínum stað ásamt spurningum frá hlustendum. ---------------- Fyrirvari: ht...

Þáttur 85 - Efnahagshorfur með aðalhagfræðingi Arion 17.01.2025

Í þessum þætti er rætt við Ernu Björg Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka. Rætt var um ganginn í efnahagslífinu á síðasta ári og horfurnar fyrir þetta ár. Spáð í spilin varðandi þróun verðbólgu og vaxta og rætt um ganginn í útflutningsgreinum Íslands ásamt fleiru. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 84 - Markaðsspjall með Alexander, stofnanda Akkur - Greining og ráðgjöf 19.12.2024

Í þessum þætti er rætt við Alexander Jensen Hjálmarsson stofnanda nýs greiningarfyrirtækis sem nefnist Akkur - Greining og ráðgjöf. Rætt er um greiningar og verðmöt, stöðu og horfur á mörkuðum, nýútkomna greiningu Akkurs á Arion banka, farið er yfir spurningar frá hlustendum og sitthvað fleira. ------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 83 - Rafmyntaspjall með Daða í Visku Digital Assets 14.11.2024

Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson stofnanda Visku Digital Assets. Rætt er um allt það helsta sem er að eiga sér stað í heimi rafmyntanna, m.a. miklar verðhækkanir á Bitcoin, kjör Trumps og þýðingu þess fyrir geirann, framtíð rafmynta, regluverkið og breytingar á því, skuldasöfnun ríkja og margt fleira. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakasti...

Þáttur 82 - Viðtal við Garðar Stefánsson, forstjóra Good Good 11.10.2024

Matvælafyrirtækið Good Good sem framleiðir sultur og smyrjur hefur verið í mikilli sókn á Bandaríkjamarkaði undanfarin ár. Í þessum þætti er rætt við Garðar Stefánsson, forstjóra Good Good um uppbyggingu fyrirtækisins, reksturinn, helstu markaði fyrirtækisins og markaðsetningu. Þá er rætt um samninginn sem fyrirtækið landaði við verslunarkeðjuna Costco í Bandaríkjunum og ýmislegt fleira. ---------...

Þáttur 81 - Viðtal við Unu Jónsdóttur, aðalhagfræðing Landsbankans 28.08.2024

Í þessum þætti er rætt við Unu Jónsdóttur, aðalhagfræðing Landsbankans. Rætt er um vaxtaákvörðunina í síðustu viku og spáð í spilin varðandi verðbólguþróun, ferðaþjónustuna, fasteignamarkaðinn og hagvaxtarhorfur. ------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 80 - Viðtal við Hörpu Magnúsdóttur, stofnanda Hoobla 08.08.2024

Í þessum þætti er rætt við Hörpu Magnúsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Hoobla. Harpa starfar einnig sem mannauðsráðgjafi. Rætt var um starfsemi Hoobla, tekjumódel og rekstur nýsköpunarfyrirtækja, umhverfi nýsköpunarfyrirtækja og mannauðsmál. -------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 79 - Viðtal við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka 26.07.2024

Í þessum þætti er rætt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka. Rætt er um nýjustu verðbólgutölur, fasteignamarkaðinn, efnahagshorfur, stöðu ferðaþjónustunnar og skuldabréfamarkaðinn. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 78 - Viðtal við Jón Finnbogason, framkvæmdastjóra Stefnis 04.07.2024

Í þessum þætti er rætt við Jón Finnbogason, framkvæmdastjóra Stefnis. Rætt er um stöðu og horfur á hlutabréfa og skuldabréfamarkaði, skuldasöfnun ríkisins, ESG-fjárfestingar og sjóðastýringu. Þá er einnig rætt um kaup sjóðs á vegum Stefnis á Heimstaden á Íslandi, fjárfestingar lífeyrissjóða á fasteignamarkaðnum, leigumarkaðinn, skipulagsmál og fleira. ------------------- Fyrirvari: https://www.ste...

Þáttur 77 - Viðtal við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs 25.06.2024

Í þessum þætti er rætt við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs. Rætt er um nýja skýrslu IMD viðskiptaháskólans sem sýnir samkeppnishæfni ríkja og stöðu Íslands á því sviði. Einnig er rætt um sérstakan vaxtastuðning, fasteignamarkaðinn, efnahagsmál og golf. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 76 - Viðtal við Jónínu Gunnarsdóttur, rekstrarstjóra Blikk 13.06.2024

Í þessum þætti er rætt við Jónínu Gunnarsdóttur, rekstrarstjóra Blikk. Jónína hefur starfað í fjármála og færsluhirðingargeiranum í fjölda ára og starfaði á tímabili sem forstjóri Teya (SaltPay). Rætt er um starfsemi Blikk, fjártækni, færsluhirðingu og fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 75 - Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela 16.05.2024

Í þessum þætti er rætt við Davíð Torfa Ólafsson, forstjóra Íslandshótela. Rætt er um skráningu félagins á Aðalmarkað sem verður 30. maí næstkomandi, sögu hótelkeðjunnar, íslenska ferðaþjónustu og margt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 74 - Viðtal við Magnús Árna Skúlason, framkvæmdastjóra Reykjavík Economics 09.05.2024

Í þessum þætti er rætt við Magnús Árna Skúlason, framkvæmdastjóra Reykjavík Economics. Rætt er um efnahagshorfur, stýrivexti, aukningu ríkisútgjalda, fasteignamarkaði í OECD, atvinnuhúsnæði og sitthvað fleira. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 73 - Viðtal við Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, prófessor við HÍ 26.04.2024

Í þessum þætti er rætt við Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands. Rætt er um nokkrar rannsóknir á sviði heilsuhagfræði en Tinna Laufey hefur leitt margar rannsóknir á því sviði. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 72 - Viðtal við Ragnheiði M. Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nordic Ignite 05.04.2024

Í þessum þætti er rætt við Ragnheiði M. Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nordic Ignite en það félag fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum á hugmyndastigi. Rætt er um stofnun félagsins og hvert það stefnir, fjárfestingar í nýsköpun og fleira. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 71 - Hagfræðingar fara yfir efnahagshorfur 20.03.2024

Í þessum þætti er rætt við Kára S. Friðriksson, hagfræðing hjá Arion banka og Hjalta Óskarsson, hagfræðing hjá Landsbankanum. Farið var yfir stýrivaxtaákvörðunina, verðbólguhorfur, kjarasamningana og aðkomu ríkisins að þeim, íbúðamarkaðinn, horfur erlendis og fleira.

Þáttur 70 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar 05.03.2024

Í þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar og nýkjörin formann Viðskiptaráðs. Rætt var um Viðskiptaþingið sem haldið var á dögunum, útgjöld hins opinbera, áfengislöggjöfina, rekstur Ölgerðarinnar og fleira. --------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 69 - Viðtal við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá 16.02.2024

Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt er um efnahagsmál bæði hér heima og erlendis og margt fleira. Einnig er farið yfir spurningar hjá hlustendum. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Poslouchej podcast Fjármálakastið v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály