Fjármálakastið

Fjármálakastið

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.

Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: podcasters.spotify.com

Autor

Fjármálakastið

Kategorie

Business

Web podcastu

podcasters.spotify.com

Nejnovější epizoda

26. zář 2026

Kde poslouchat?

Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzy

Podcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty

Stáhnout z Google Play Nainstaluj zdarma Android téměř 10 mil. stažení · hodnocení 4,8 iOS už brzy

Epizody

Þáttur 68 - Viðtal við Halldór Halldórsson, forstjóra Kalkþörungafélagsins 26.01.2024

Í þessum þætti er rætt við Halldór Halldórsson, forstjóra Íslenska kalkþörungafélagsins. Rætt var um starfsemi og stofnun Kalkþörungafélagsins, deilur félagsins við skattayfirvöld, skattamál, íþyngjandi regluverk og fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 67 - Viðtal við Agnar Tómas Möller 12.01.2024

Í þessum þætti er rætt við Agnar Tómas Möller. Agnar hefur áratugareynslu af fjármálamarkaði og stundar nú nám í sagnfræði við Háskóla Íslands og situr í stjórn Íslandsbanka. Rætt var um horfur í efnahagsmálum, bæði hér heima og erlendis, hlutabréfa og skuldabréfamarkaði og ýmislegt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 66 - Áramótaþáttur með viðskiptablaðamönnum 04.01.2024

Í þennan Áramótaþátt Fjármálakastsins fékk ég til mín viðskiptablaðamennina Júlíus Þór Halldórsson og Magnús Heimi Jónasson til að gera upp viðskiptafréttaárið 2023 og ræða um horfur fyrir árið 2024. Rætt var um helstu viðskiptafréttir ársins bæði innlendar og erlendar, hvaða aðilar voru áberandi í viðskiptalífinu á árinu sem leið, horfur í efnahagslífinu og á mörkuðum og sitthvað fleira. --------...

Þáttur 65 - Viðtal við Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs 22.12.2023

Í þessum þætti er rætt við Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs og fyrrum aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Rætt er um efnahagshorfur, kjarasamningana sem fram undan eru, rekstur Kópavogsbæjar, hlutverk ríkis og sveitarfélaga, skattamál, leikskólamál, skipulagsmál, gæluverkefni og margt fleira. ------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarma...

Þáttur 64 - Viðtal við Valdimar Ármann um efnahagshorfur 04.12.2023

Í þessum þætti er rætt við Valdimar Ármann, forstöðumann eignastýringar hjá Arctica Finance. Rætt er um efnahagshorfur hérlendis og erlendis, horfur á skuldabréfa- og hlutabréfamörkuðum, fasteignamarkaðinn, verðbólgu og vaxtastig bæði hér heima og erlendis og fleira. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 63 - Svanhildur og Gunnar hjá Viðskiptaráði 27.11.2023

Í þessum þætti er rætt við Svanhildi Hólm Valsdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs og Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs. Rætt er um Peningamálafund Viðskiptaráðs sem fram fór í síðustu viku, stýrivexti, efnahagshorfur, kjarasamningana sem eru fram undan, fasteignamarkaðinn og fleira. --------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 62 - Viðtal við Sólveigu R. Gunnarsdóttur, fjármálaráðgjafa 09.11.2023

Í þessum þætti er rætt við Sólveigu R. Gunnarsdóttur, eiganda ráðgjafarfyrirtækisins Sólveig Consulting og fjármálastjóra GeoSilica. Rætt er um góð ráð þegar kemur að fjármálum, hvað fyrirtæki ættu að hafa í huga, nýsköpunarumhverfið á Íslandi og fjárfestingar í nýsköpun, efnahagshorfur, stýrivexti og kjaraviðræðurnar sem eru fram undan, fasteignamarkaðinn og fleira. Fyrirvari: https://www.stefnir...

Þáttur 61 - Viðtal við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar 16.10.2023

Í þessum þætti er rætt við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar. Rætt var um það sem fram fór á haustfundi Landsvirkjunar sem bar yfirskriftina Leyfum okkur græna framtíð. Þá var rætt um þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í orkumálum, hvernig stjórnvöld ættu að bregðast við, hvar Ísland stendur í alþjóðlegum samanburði í þessum málaflokki og fleira. ------------------- Fyrirvari: https:...

Þáttur 60 - Viðtal við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 04.10.2023

Í þessum þætti er rætt við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Rætt er um efnahagsmálin, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og kjarasamningana fram undan. Einnig er rætt um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, hagræðingaraðgerðir og skattamál. Þá er auk þess rætt um nýsköpunargeirann og hvað sé fram undan í ráðuneytinu í þeim efnum ásamt fleiru. ------------ Fyrirv...

Þáttur 59 - Viðtal við Daða Kristjánsson um skuldavanda ríkja 28.09.2023

Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Visku Digital Assets en hann hefur starfað í 16 ár á fjármálamarkaði. Rætt er um skuldavanda ríkja, einkum Bandaríkjanna, hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur af stöðunni og hvaða áhrif það myndi hafa ef til skuldakrísu kæmi. Einnig er rætt um stöðuna á skuldabréfamörkuðum, verðbólguna, bæði hér heima og erlendis og viðbrö...

Þáttur 58 - Viðtal við Ingvar Haraldsson, samskiptastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja 24.09.2023

Í þessum þætti er rætt við Ingvar Haraldsson, samskiptastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja. Rætt er um regluverk á fjármálamarkaði og breytingar sem hafa átt sér stað í fjármálageiranum á undanförnum misserum. Einnig er rætt um hugmyndir viðskiptaráðherra um bankaskatt. Þá er rætt um starfsemi og hlutverk SFF og auk þess um fjármálalæsi ungs fólks og fleira. --------------- Fyrirvari: https://www.st...

Þáttur 57 - Viðtal við Ólaf Sigurðsson, framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs 14.09.2023

Í þessum þætti er rætt við Ólaf Sigurðsson, framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs. Rætt er stuttlega um fjárlagafrumvarpið og efnahagsástandið en einblínt er á lífeyrismálin. Fjallað er um fjárfestingastefnu lífeyrissjóða, hvernig fjárfestingar lífeyrissjóða hafa gengið undanfarið, lagaumgjörðina í kringum lífeyrissjóði, fjárfestingar lífeyrissjóða erlendis, sjálfbærar fjárfestingar og gagnrýni á þ...

Þáttur 56 - Viðtal við Má Wolfgang Mixa, dósent í fjármálum við HÍ 07.09.2023

Í þessum þætti er farið yfir efnahagsmálin. Ég fékk til mín í settið hann Má Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Farið var yfir víðan völl og rætt um allt það helsta sem snýr að efnahagsmálum líðandi stundar. Rætt var um stýrivexti, verðbólgu, komandi kjaraviðræður, fasteignamarkaðinn, skýrslu viðskiptaráðherra og hugmyndir hennar um bankaskatt, hlutabréfamarkaðinn, skul...

Þáttur 55 - Viðtal við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS 31.08.2023

Í þessum þætti er rætt við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, formann Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Rætt er um ýmislegt tengt sjávarútvegi meðal annars stöðu greinarinnar, orðspor atvinnuvegarins, nýsköpun í sjávarútvegi, ákvörðun matvælaráðherra um að framlengja ekki hvalveiðibannið, fiskeldi og fleira. Þá er rætt stuttlega um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og verðbólguna.

Þáttur 54 - Viðtal við Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnar 25.08.2023

Í þessum þætti er rætt við Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnar. Rætt er um ýmislegt tengt ferðaþjónustu eins og til dæmis hvernig sumarið hefur gengið, hvort Ísland sé uppselt, lúxus ferðaþjónustu, markaðssetningu greinarinnar, hvernig íslensk ferðaþjónusta stendur í alþjóðlegum samanburði, aðgangsstýringu, skattlagningu og ýmislegt fleira. --------------- Fyrirvari: https://...

Þáttur 53 - Viðtal við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair 31.07.2023

Í þessum þætti er rætt við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair. Rætt er um uppgjör félagsins, hvernig sumarið hefur gengið og ýmislegt tengt félaginu. ----------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra sjóða sem lýtur eftirli...

Þáttur 52 - Viðtal við Andreu Sigurðardóttur og Andrés Magnússon, blaðamenn 06.07.2023

Í þessum þætti er rætt við Andreu Sigurðardóttur og Andrés Magnússon, blaðamenn á Morgunblaðinu. Rætt er um Lindarhvolsskýrsluna, Íslandsbankaútboðið og ýmislegt fleira. ------------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  rekstrarfélag verðbréfasjóða og rekstraraðili sérhæfðra s...

Þáttur 51 - Viðtal við Kristbjörgu M. Kristinsdóttur, fjármálastjóra Stefnis 29.06.2023

Í þessum þætti er rætt við Kristbjörgu M. Kristinsdóttur, fjármálastjóra Stefnis. Rætt er um sögu Stefnis og þá sjóði sem Stefnir býður upp á. Einnig er rætt um fjárfestingar almennt, sjálfbærar fjárfestingar og fleira. Stefnir er aðalstuðningsaðili þáttarins. ------------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því...

Þáttur 50 - Viðtal við Guðmund Halldórsson, framkvæmdastjóra Te og kaffi 05.06.2023

Í þessum þætti er rætt við Guðmund Halldórsson, framkvæmdastjóra Te og kaffi. Rætt er um sögu og rekstur Te og kaffi og sitthvað fleira. Fjármálakastið fer nú í tveggja vikna sumarfrí en nýr þáttur er væntanlegur í lok júní. -------------------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að...

Þáttur 49 - Viðtal við Björn Berg Gunnarsson, ráðgjafa, um fjármál í íþróttum 24.05.2023

Í þessum þætti er rætt við Björn Berg Gunnarsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafa og fyrrverandi fræðslustjóra Íslandsbanka, um fjármál í íþróttum erlendis. Rætt er um tekjur og virði íþróttaliða, laun íþróttamanna ásamt kostnaði stórmóta og fleira. Einnig var rætt stuttlega um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í morgun. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarm...

Þáttur 48 - Viðtal við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka um fasteignamarkaðinn 11.05.2023

Í þessum þætti er rætt við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing hjá Íslandsbanka. Rætt er um fasteignamarkaðinn og stöðu og horfur á þeim markaði. Einnig er rætt um verðbólguna og spáð í spilin hvað Seðlabankinn gerir í lok mánaðar ásamt fleiru. ------------------------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um s...

Þáttur 47 - Viðtal við Jóhann Má Helgason, sérfræðing í fjármálum fótbolta - Fjármál í íslenska fótboltanum 28.04.2023

Í þessum þætti er rætt við Jóhann Má Helgason en hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri Vals og einnig Aftureldingar og er sérfræðingur í fjármálum fótbolta. Farið er yfir fjármál í í íslensku knattspyrnunni. Rætt er um rekstur og fjármál félaga, laun leikmanna, VAR og flest sem viðkemur fjármálum íslenska fótboltans. ------------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari...

Þáttur 46 - Viðtal við Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra KLAK 13.04.2023

Í þessum þætti er rætt við Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra KLAK. Rætt er um starfsemi KLAK og alla þá nýsköpunarhraðla sem KLAK stendur fyrir, nýsköpunarumhverfið á Íslandi og ýmislegt fleira. ----------------------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er  re...

Þáttur 45 - Viðtal við Helga Vífil, blaðamann á Innherja og Þórð Gunnarsson, hagfræðing 04.04.2023

Í þessum þætti er rætt við Helga Vífil Júlíusson, blaðamann á Innherja og Þórð Gunnarsson, hagfræðing. Rætt er um óróann á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, stýrivexti, verðbólguna, fasteignamarkaðinn, fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar en einnig rekstrarumhverfi fjölmiðla í dag.

Þáttur 44 - Viðtal við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra SAF 24.03.2023

Í þessum þætti er rætt um stöðu og horfur í ferðaþjónustunni, viðburð sem fjallaði um þjóhagslegt mikilvægi ferðaþjónustunnar sem haldinn var fyrr í vikunni og hverjar eru helstu náttúruperlur Íslands og ýmislegt fleira. Gestur þáttarins að þessu sinni er Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Poslouchej podcast Fjármálakastið v Replaio

Rádio a podcasty v jedné aplikaci - zdarma a bez registrace. Nainstaluj si ji ještě dnes a nepropásni premiéru

Stáhnout z Google Play

Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály