Fjármálakastið
Fjármálakastið
Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.
Určitě navštivte web podcastu a podpořte jeho tvůrce: podcasters.spotify.com
Autor
Fjármálakastið
Kategorie
Web podcastu
Nejnovější epizoda
26. zář 2026
Kde poslouchat?
Podcasty v aplikaci Replaio Radio Už brzyPodcasty míří do aplikace už brzy. Nainstaluj si ji teď a jako první uvidíš úplně nový pohled na podcasty
Epizody
Þáttur 18 - Viðtal við Vigni S. Halldórsson, stjórnarmann í Samtökum iðnaðarins. 07.03.2022 17:48
Í þessum þætti er rætt um fasteignamarkaðinn, byggingageirann og áhrif innrásar Rússa í Úkraínu á markaði svo fátt eitt sé nefnt. Rætt er við Vigni S. Halldórsson, byggingaverktaka og stjórnarmann í Samtökum iðnaðarins.
Þáttur 17 - Viðtal við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing og greinanda hjá Íslandsbanka 10.02.2022 28:16
Í þessum þætti er rætt við Bergþóru Baldursdóttur, hagfræðing sem starfar í greiningardeild Íslandsbanka. Í þættinum er meðal annars rætt um stýrivaxtahækkun Seðlabankans, verðbólguna, fasteignamarkaðinn, kjaramálin, ferðaþjónustuna og fleira.
Þáttur 16 - Viðtal við Elísu Örnu Hilmarsdóttur, aðalhagfræðing Viðskiptaráðs 27.01.2022 26:15
Í þessum þætti er rætt við Elísu Örnu Hilmarsdóttur, aðalhagfræðing Viðskiptaráðs. Elísa er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og var nýverið ráðin sem annar tveggja aðalhagfræðinga Viðskiptaráðs en hún starfaði áður hjá Seðlabankanum. Í þættinum er rætt um helstu áskoranirnar í íslensku efnahagslífi á þessu ári, kjaramálin, sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda, stýrivexti, fasteignamarkaðinn, samfélagsba...
Þáttur 15 - Áramótaþáttur - Viðtal við Má Mixa, lektor í fjármálum 05.01.2022 35:51
Hverju á að fjárfesta í árið 2022? Í þessum sérstaka áramótaþætti Fjármálakastsins er rætt við Má Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskólann í Reykjavík. Rætt er um árið 2021 á mörkuðum, horfur á árinu 2022 á hlutabréfa, skuldabréfa og fasteignamörkuðum. Einnig er rætt um rafmyntir og ýmislegt fleira.
Þáttur 14 - Viðtal við Jón Sigurðsson, fráfarandi forstjóra Össurar 20.12.2021 27:13
Í þessum þætti er rætt við Jón Sigurðsson, fráfarandi forstjóra stoðtækjafyrirtækisins Össurar. Jón tók við forstjórastól Össurar fyrir rétt tæpum 26 árum en mun láta af störfum í apríl á næsta ári. Í þættinum er rætt um feril Jóns og tíð hans í forstjórastól Össurar. Þá er jafnframt rætt um vöxt Össurar í gegnum árin, hvað stuðlaði að velgengni fyrirtækisins og ýmislegt fleira.
Þáttur 13 - Viðtal við Sólveigu Gunnarsdóttur, eiganda Sólveig Consulting 17.12.2021 29:26
Í þessum þætti er rætt við hana Sólveigu Gunnarsdóttur, eiganda Sólveig Consulting. Sólveig er með BSc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Hult International Business School. Þá er hún einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Sólveig hefur starfað í 12 ár á fjármálamarkaði og hefur starfað sem stjórnarmaður en rekur nú sitt eigið fyrirtæki Sólveig Consulting en þar ráðlegg...
Þáttur 12 - Viðtal við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins 10.12.2021 23:09
Í þessum þætti er rætt við Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Anna Hrefna er hagfræðingur og hefur lengi starfað við efnahagsgreiningar. Í þættinum er meðal annars rætt um fjárlögin, brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar, fjölgun opinberra starfsmanna og ýmislegt fleira en einnig er rætt um þær efnahagslegu áskoranir sem við stóðum frammi fyrir á árin...
Þáttur 11 - Viðtal við Bjarna Herrera, forstöðumann sjálfbærni hjá KPMG, um sjálfbær fjármál 02.12.2021 33:43
Í þessum þætti er rætt við Bjarna Herrera Þórisson, forstöðumann sjálfbærni hjá KPMG. Bjarni er með gráðu í lögfræði og viðskiptafræði og einnig MBA gráðu frá Yonsei háskóla. Hann hefur komið að fjölmörgum verkefnum í gegnum tíðina sem snúa að sjálfbærni í gegnum félagið sitt Circular sem síðar var selt til KPMG. Í þættinum er rætt um sjálfbærni og sjálfbær fjármál sem hafa notið sívaxandi vinsæld...
Þáttur 10 - Viðtal við Konráð S. Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs 27.11.2021 27:59
Í þessum þætti er rætt við Konráð S. Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Konráð er með bachelor gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði frá University og Warwick. Meðal annars er rætt um stýrivaxtahækkunina í þar síðustu viku, húsnæðismarkaðinn, nýja greiningu Viðskiptaráðs um atvinnurekstur hins opinbera, sóttvarnaraðgerðir, ríkisfjármálin og fleira.
Þáttur 9 - Viðtal við Arnald Þór Guðmundsson, formann Ungra fjárfesta 22.11.2021 18:02
Í þessum þætti er rætt við hann Arnald Þór Guðmundsson, formann Ungra fjárfesta, um fjárfestingar, markaði og starf Ungra fjárfesta. Félagið Ungir fjárfestar var stofnað af sex ungum fjárfestum í upphafi árs 2014 og er tilgangur félagsins að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félagsmanna. Félagið hefur einnig það markmið að vekja áhuga félagsmanna og ungs fólks á fjármálum, fjárfe...
Þáttur 8 - Viðtal við Rósu Kristinsdóttur, meðstofnanda Fortuna Invest 15.11.2021 22:30
Í þessum þætti er rætt við Rósu Kristinsdóttur, meðstofnanda Fortuna Invest. Rósa er lögfræðingur og starfar sem yfirlögfræðingur og regluvörður hjá Akta. Fortuna Invest er fræðsluvettvangur sem veitir aðgengilega fræðslu um fjárfestingar með það að markmiði að auka fjölbreytileikann í þátttöku á fjármálamarkaði. Í þættinum er rætt meðal annars rætt um hlutverk og markmið Fortuna Invest og nýútkom...
Þáttur 7 - Viðtal við Gunnlaug Jónsson, framkvæmdastjóra Fjártækniklasans 08.11.2021 35:21
Í þessum þætti er rætt við hann Gunnlaug Jónsson, verkfræðing og framkvæmdastjóra Fjártækniklasans, um fjártækni. Mikil gróska hefur verið í fjártækni að undanförnu og hafa mörg ný og spennandi fyrirtæki sprottið upp. Fjártækniklasinn er samfélag um framfarir í fjártækni og tilgangur hans er að efla nýsköpun í fjármálum og gera viðskipti auðveldari og betri.
Þáttur 6 - Viðtal við Björn Berg um nýju bókina hans Peninga 01.11.2021 30:53
Í þessum þætti er rætt við hann Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra greiningar hjá Íslandsbanka, um nýútkomna bók hans Peninga. Bókin Peningar varpar ljósi á áhugaverðar og spaugilegar hliðar fjármála og er bókinni skipt upp í kafla þar sem ýmis atriði eru tekin fyrir í fjármálalegu samhengi. Bókinni er skipt í nokkra kafla og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Þáttur 5 - Viðtal við Heiðar Guðjónsson, forstjóra Sýnar 25.10.2021 22:28
Í þessum þætti er rætt við Heiðar Guðjónsson, forstjóra Sýnar, um málefni Norðurslóða. Heiðar er hagfræðingur, fjárfestir og sérfræðingur í málefnum Norðurslóða en hann ritaði bókina Norðurslóðasókn sem kom út árið 2013. Í þættinum er rætt um tækifærin sem felast á Norðurslóðum, gjaldmiðlamál, hlutverk Seðlabanka og ýmislegt fleira.
Þáttur 4 - Viðtal við Þórunni Björk Steingrímsdóttur, verðbréfamiðlara hjá Landsbankanum 18.10.2021 18:23
Í þessum þætti er rætt við Þórunni Björk Steingrímsdóttur en hún starfar í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum. Þórunn er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum. Í þættinum er rætt um horfur á mörkuðum á komandi misserum, hvaða hluti þarf að hafa í huga áður en maður byrjar að fjárfesta, s...
Þáttur 3 - Viðtal við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka 11.10.2021 39:02
Í þessum þætti er rætt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka. Jón Bjarki er með BS gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í hagfræði frá University of Warwick. Í þættinum er meðal annars rætt um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í síðustu viku, hvort það sé góð hugmynd að taka húsnæðisliðinn út úr verðbólguviðmiði Seðlabankans, nýja Þjóðhagsspá Íslandsbanka og fleira.
Þáttur 2 - Viðtal við Svanhildi Hólm, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs 23.09.2021 46:11
Í þessum þætti er rætt við Svanhildi Hólm Valsdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Svanhildur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfaði áður sem aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra og þar áður í fjölmiðlum. Í þættinum er meðal annars rætt um áherslur Viðskiptaráðs sem kynntar voru í aðdraganda kosninga. Umsjónarmaður þáttarins er...
Þáttur 1 - Viðtal við Magnús Harðarson, forstjóra Kauphallarinnar 14.09.2021 26:15
Í fyrsta þætti Fjármálakastsins er rætt við Magnús Harðarson forstjóra Kauphallarinnar. Magnús tók við forstjórastól Kauphallarinnar af bróður sínum Páli Harðarsyni í október 2019. Hann hefur starfað hjá Kauphöllinni síðan 2002 en áður starfaði hann sem hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun og sem efnahagslegur ráðgjafi. Magnús hefur doktorspróf í hagfræði frá Yale-University. Í þættinum er rætt um fjá...
Podobné podcasty
Replaio není vydavatelem podcastů; názvy pořadů, obálky a audio patří jejich autorům a šíří se přes veřejné RSS kanály