RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Podcast'in sitesini ziyaret etmeyi ve yapımcısını desteklemeyi unutma: www.ruv.is
Nereden dinlenir?
Uygulamada podcast'ler Replaio Radio Çok yakındaPodcast'ler çok yakında uygulamaya geliyor. Şimdi yükle ve podcast'lere yepyeni bir bakışı ilk gören sen ol
Bölümler
Einkaþotur: Bráðmengandi bruðl eða sjálfsagður munaður ríkra? (e) 18.10.2022 18:11
Það er einkaþotuskortur í heiminum. Reykjavíkuflugvöllur er fullur af þeim, enda lenda þar um tvö hundruð stykki á mánuði þegar mest er og gert er ráð fyrir að nærri því 900 einkaþotur lendi þar í ár. Ef eigendur, eða leigjendur, einkaþotnanna vilja staldra hér við á landinu í einhvern tíma þarf að greiða stæðisgjald - það er ókeypis fyrstu sex tímana, en svo byrjar mælirinn að tikka. En einkaþotu...
Vandræði kvikmyndastjörnunnar Ezra Miller 17.10.2022 17:46
Aðdáendur ofurhetjumynda hafa beðið árum saman eftir The Flash, kvikmynd um samnefnda kempu sem hlaupið getur á ofurhraða. Myndin var svo gott sem tilbúin árið 2018 en frumsýningu hefur verið ítrekað frestað. Meðal annars vegna þess að leikarinn sem fer með aðalhlutverkið, Ezra Miller, hefur ítrekað komist í kast við lögin á síðustu misserum, og fjölmargar fréttir verið fluttar af furðulegu athæfi...
Taktísk kjarnavopn 14.10.2022 18:16
Pútín Rússlandsforseti hefur ekki verið feiminn við að hóta kjarnorkustríði undanfarnar vikur. Rússland býr yfir tvö eða þrjú þúsund slíkum vopnum, nánar tiltekið taktískum kjarnavopnum. Tactical nuclear weapons. Fyrirbæri sem hefur ekki verið mikið fjallað um undanfarin ár, en nú líður varla sá dagur þar sem ekki birtist frétt sem fjallar á einn eða annan hátt um þessar óhuganlegu sprengjur. En h...
Samsæriskenningasmiður sektaður um milljarð dollara 13.10.2022 17:51
Samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones er í vandræðum. Hann er einn sá alræmdasti sinnar tegundar í Bandaríkjunum og hefur þurft að súpa seyðið af því. Hann fullyrti trekk í trekk að skotárásin í Sandy Hook grunnskólanum í Conneticut, þar sem 26 voru skotin til bana, þar af 20 lítil börn, hafi raunverulega ekki gerst. Nánar tiltekið sagði hann í þættinum sínum Info Wars að þetta hafi allt saman veri...
Skiptar skoðanir um sögufrægt skip Shackletons 12.10.2022 18:00
Fyrr á þessu ári fundu vísindamenn eitt frægasta skip í sögu landkönnunar á heimskautasvæðum á þriggja kílómetra dýpi í afskekktu og illfæru hafsvæði við Suðurskautslandið, skip sem leitað hafði verið lengi. Endurance, skip bresku heimskautahetjunnar Ernest Shackletons, sökk í Weddel-hafi 1915 þegar Shackleton gerði tilraun til að ganga fyrstur manna þvert yfir Suðurskautslandið, og það hefur hvíl...
Neysluskammtar gerðir refsilausir: Taka fjögur 11.10.2022 16:51
Stríðið gegn vímuefnum er í raun stríð gegn fólki. Skylda yfirvalda er að verja fólkið í landinu en ekki fara í stríð gegn því. Þetta segir Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, og fyrsti flutningsmaður frumvarps um afglæpavæðingu vörslu neysluskammta - frumvarp sem er nú á kunnuglegri leið í gegn um Alþingi í fjórða sinn. Halldóra segir óhjákvæmilegt að löggjafinn taki þetta skref að loku...
Djöfladýrkun og barnaníð í hollenskum smábæ 10.10.2022 17:05
Smábær nokkur í Hollandi tapaði á dögunum dómsmáli gegn samfélagsmiðlinum Twitter. Bærinn Bodegraven krafðist þess að Twitter fjarlægði ummæli notenda um að í bænum væri starfræktur djöfladýrkunarbarnaníðshringur og bæjarbúar hefðu pyntað og myrt fjölda barna. Twitter féllst ekki á það. Þrír hollenskir menn hafa þegar verið dæmdir fyrir að dreifa sögusögnum á netinu um meint satanískt athæfi bæjar...
Annar Hollywoodframleiðandi ákærður fyrir kynferðisbrot 07.10.2022 15:00
Metoo bylgjunar halda áfram að skella á heimsbyggðinni hver á fætur annarri, stórar og smáar. Í vikunni sem nú er að líða voru nákvæmlega fimm ár liðin frá því að bandaríska dagblaðið New York Times fletti ofan af ítrekuðum og grófum kynferðisbrotum Hollywoodstórstjörnuframleiðandans Harvey Weinstein, sem löngum þótti nánast ósnertanlegur risi í kvikmyndaheiminum. Það varð kveikjan að fyrstu bylgj...
Vinur Pútíns í Téténíu 06.10.2022 17:52
Einn dyggasti bandamaður Vladimir Pútíns Rússlandsforseta heima fyrir er forseti rússneska sjálfstjórnarlýðveldisins Téténíu, Ramzan Kadyrov. Frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu hefur hann verið með herskáustu mönnum og hann hvatti meðal annars til þess á dögunum að Rússar beiti kjarnavopnum í stríðinu. Þá tilkynnti hann nýverið að hann ætli að senda syni sína á vígvöllinn, en þeir eru allir á...
Lækningamáttur ofskynjunarsveppa 05.10.2022 21:05
Íslenskir ofskynjunarsveppir, trjónupeðlur, eru farnir að skjóta reglulega upp kollinum, víðar en á umferðareyjum og öðru graslendi. Við sjáum nú hverja fréttina á fætur annari þar sem fjallað er um nýjar rannsóknir úti í heimi sem gefa sterklega til kynna að virka efnið í sveppunum, ofskynjunarefnið sílósíbin, sé til margra hluta nytsamlegt. Það hefur svo sem legið fyrir í áratugi, bara ekki fari...
Harmleikur á leikvangi 04.10.2022 18:19
125 létu lífið og mörg hundruð slösuðust í troðningi að loknum fótboltaleik í Indónesíu um helgina. Lögregla á fótboltaleikvanginum beitti táragasi á áhorfendur sem ruddust niður á völlinn að leik Arema FC og Persebaya Surabaya loknum, og fólk á flótta undan gasinu tróðst undir við útganga leikvangsins. Þetta er eitt versta stórslys í sögu fótboltans. Táragas hefur átt þátt í flestum mannskæðustu...
Rafbyssuvæðing lögreglunnar í gegn um tíðina 03.10.2022 21:37
Lögreglan á Íslandi er að vígbúast enn frekar - tilraunaverkefni með rafbyssur er að fara af stað. Lögreglan hefur reyndar viljað fá rafbyssur í tæpa tvo áratugi, umræðan um það var mjög hávær hér í kring um hrunið. Alls kyns tilraunaverkefni voru gerð, skýrslur skrifaðar, en niðurstaðan var sú að rafbyssuvæðing væri ekki tímabær. Og nú, eftir fregnirnar af mögulegri hryðjuverkaárás á Íslandi báru...
Sértrúarsöfnuður veldur usla í Japan 30.09.2022 18:29
Trúarsöfnuður sem stofnaður var í Kóreu á sjötta áratug síðustu aldar og var upp á sitt besta á árum kalda stríðsins er í sviðsljósinu að nýju eftir morðið á Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, sem var borinn til grafar í Tókýó í vikunni. Morðingi Abes var drifinn áfram af hatri á Sameiningarkirkjunni eins og söfnuðurinn hét lengst af, þó nú sé formlegt nafn hans Heimsfriðarsamtök fjö...
Umdeild tilfærsla embættismanns milli safna 29.09.2022 19:40
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, skipaði Hörpu Þórsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, í stöðu Þjóðminjavarðar í lok ágúst. Þetta var gert án auglýsingar og stuðst við lagaheimild sem gefur leyfi fyrir tilfærslum embættismanna í starfi. Tilfærslan hlaut ekki góðar viðtökur, ekki vegna Hörpu persónulega, heldur kannski aðallega vegna...
Elskar Hobbitann og hatast út í hinsegin fólk 28.09.2022 18:03
Giorgia Meloni verður að öllum líkindum næsti forsætisráðherra Ítalíu, eftir að flokkur hennar Fratelli d? Italia eða Bræðralag Ítalíu, vann stórsigur í þingkosningum á sunnudag. Hún verður þá fyrst kvenna til að gegna þessu valdamesta embætti ítalska stjórnkerfisins. Það er ekki eina ástæða þess að velgengni hennar í kosningum hefur vakið heimsathygli, Meloni og flokkur hennar eru langt til hægri...
Glæpavarnir lögreglunnar 27.09.2022 20:05
Frumvarp um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu er tilbúið í dómsmálaráðuneytinu og mun líta dagsins ljós fljótlega. Þetta sagði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra í viðtali í síðustu viku. Tilefnið var handtaka tveggja ungra íslenskra manna sem eru grunaðir um að hafa verið að skipuleggja hryðjuverk á Íslandi. Vopnaframleiðsla, fjöldamorð, hryðjuverk, voðaverk, eru orðin sem lögreglan hefur notað...
Dularfull dauðsföll rússneskra auðkýfinga 26.09.2022 18:28
Frá því í byrjun árs hafa margir rússneskir auðkýfingar og kaupsýslumenn fallið fyrir eigin hendi, eða þá fallið út um glugga og fram af klettum. Sérstaklega margir sem á einhvern hátt tengjast rússneskum olíu- og orkufyrirtækjum - grunsamlega margir, telja sumir, og hafa velt upp þeim möguleika að allavega einhverjum þessara manna hafi kannski verið komið fyrir kattarnef. Enda er það svosem þekkt...
Bling Bretadrottningar 23.09.2022 18:09
Eins og sjónvarpsáhorfendur sem fylgdust með útför Elísabetar II. Bretadrottningar á mánudag tóku eftir hvíldu krúnudjásn bresku konungsfjölskyldunnar á kistu þegar hún var borin til grafar: valdasproti hennar, valdahnöttur og kórónan sem drottningin sáluga bar við hátíðleg tilefni. Kóróna þessi á sér áhugaverða sögu, þó hún sé ekki sérlega gömul sjálf er hún prýdd eðalsteinum og perlum sem rekja...
Allt í fokki hjá Flokki fólksins 22.09.2022 18:39
Það hefur ekki blásið byrlega fyrir Flokki fólksins undanfarið. Eftir það sem má kalla stórsigur í síðustu Alþingiskosningum og gott gengi í sveitarstjórnarkosningunum í vor, hefðu sumir sagt að nú væri aldeilis tækifæri fyrir flokkinn að láta til sín taka. En hneykslismálin hafa gert flokknum erfitt um vik, bæði á þinginu og svo núna er allt uppi í háaloft í bæjarpólitíkinni á Akureyri. Karlarnir...
Haustlitirnir: Náttúran býr sig undir vetrarkomu 21.09.2022 19:04
Haustið er uppskera sumarsins og undirbúningur fyrir veturinn. Náttúran breytir um lit til að leggjast í dvala, plönturnar færa næringuna niður í ræturnar og fella fagurgul laufin til að geta tekist á við vorið eftir kuldann og myrkrið í vetur. Skógfræðingar segja að á Íslandi sé æskilegt æskilegt fyrir plönturnar að haustlitirnir verði komnir í kringum 1. október. Það þýðir að þær séu heilbrigðar...
Skandall skekur skákheiminn 20.09.2022 17:53
Skákheimurinn er í uppnámi eftir að grunur vaknaði um að ungur bandarískur stórmeistari, Hans Niemann, hafi svindlað í skák gegn norska meistaranum Magnusi Carlsen, á virtu skákmóti í Bandaríkjunum í byrjun mánaðar. Æsilegar kenningar ganga á netinu um það hvernig Niemann gæti mögulega hafa farið af því. Carlsen hefur ekki tjáð sig um málið fyrir utan eina dularfulla færslu á Twitter, en í gær átt...
Endurgreiðslur til Hollywood á kostnað Kvikmyndasjóðs? 19.09.2022 21:25
Kvikmyndabransinn á Íslandi er helst í dag. Á nýafstaðinni Edduhátíð notaði kvikmyndagerðarfólk flest tækifærið til að hvetja stórnvöld til að falla frá ríflega þrjátíu prósenta niðurskurði til Kvikmyndasjóðs. Íslensk kvikmyndagerð þarf á peningunum að halda til að blómstra, til að lifa af. Og íslensk kvikmyndagerð er mikilvæg. En á sama tíma erum við að fá stærsta kvikmyndaverkefni sögunnar til Í...
Tvísýn evrópsk gleðiganga í Belgrad 16.09.2022 18:06
Yfirvöld í Belgrad, höfuðborg Serbíu, lögðu bann við samevrópskri gleðigöngu hinsegin fólks sem halda á í borginni á morgun, en gangan verður að líkindum gengin samt, samkvæmt síðustu fréttum. Gleðigangan er hápunkturinn á EuroPride, evrópskri hátíð hinsegin fólks, sem haldin er í Serbíu í ár. Það er í fyrsta sinn sem EuroPride er haldið í landi í Suðaustur-Evrópu og vonuðust aðstandendur til að v...
R Kelly fær fleiri dóma 15.09.2022 19:41
Bandaríski hip hop og r&b tónlistarmaðurinn Robert Kelly, R Kelly, var dæmdur í sumar í 30 ára fangelsi fyrir að stýra kynferðisglæpahring, misnota konur og börn kynferðislega, stunda mansal, fjárkúgun og mútur. Kelly hafði enn fleiri ákærur á bakinu sem átti eftir að greiða úr. Nýjasti dómurinn yfir honum féll í gær, þar sem hann var fundinn sekur fyrir barnaníð og kynferðisbrot. Fram kemur í fré...
Samsæri eðlufólksins úr annarri vídd 14.09.2022 17:43
Um árabil hefur breski samsæriskenningasmiðurinn David Icke reynt að vekja heimsbyggðina til vitundar um það sem hann álítur eitt mesta samsæri veraldarsögunnar, jú að heiminum sé stjórnað á bak við tjöldin af varasamri elítu eðlufólks, sem kom hingað til Jarðarinnar úr annarri vídd fyrir þúsundum ára. Allt valdamesta fólks heims sé í raun eðlur í mannsham sem hafi það markmið að kúga mannfólkið o...
Benzer podcast'ler
Replaio bir podcast yayıncısı değildir; program adları, kapak görselleri ve ses içerikleri yazarlarına aittir ve herkese açık RSS beslemeleri aracılığıyla dağıtılır