RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Podcast'in sitesini ziyaret etmeyi ve yapımcısını desteklemeyi unutma: www.ruv.is
Nereden dinlenir?
Uygulamada podcast'ler Replaio Radio Çok yakındaPodcast'ler çok yakında uygulamaya geliyor. Şimdi yükle ve podcast'lere yepyeni bir bakışı ilk gören sen ol
Bölümler
Röddin þögguð í afgerandi þjóðaratkvæðagreiðslu 17.10.2023 15:00
Ástralska þjóðin gekk til kosninga í þjóðaratkvæðagreiðslu um helgina. Niðurstöðurnar voru afgerandi: 60 prósent sögðu nei, tillagan var felld í öllum ríkjunum sex. Tillagan hefur verið kölluð Röddin, The Voice, sem átti að gefa frumbyggjum landsins meiri réttindi og viðurkenningu í stjórnarskránni. Og það sem vakti ekki síst athygli er að töluvert stór hópur frumbyggja sögðu líka nei. Sunna Valge...
Einfeldningslegar spurningar um stríð í Miðausturlöndum 16.10.2023 15:00
Á rúmri viku hefur blóðugt stríð Hamas-samtakanna og Ísraelsmanna náð slíkri stigmögnun að útlit er fyrir að fleiri ríki dragist inn í átökin. Hagsmunaaðilar eru vítt og breitt um miðausturlönd en áhrifin ná einnig til Evrópu og gætu meðal annars haft áhrif á stuðning annarra landa við Úkraínu. Þessi þáttur er fyrir þau sem skilja ekki alveg hvað er að gerast í kringum Ísrael. Þóra Tómasdóttir ban...
Baráttan um brimið í Þorlákshöfn 13.10.2023 15:00
Tæplega tíu þúsund manns mótmæla framkvæmdunum við höfnina í Þorklákshöfn, eina staðnum á landinu þar sem brimbrettafólk gengur að góðum öldum vísum. Ástríðufullt samfélag brimbrettaelskenda hefur byggst upp í kringum þetta svæði, sem er nú í hættu. Sunna Valgerðardóttir ræðir í þættinum við Ólaf Pálsson, stjórnarmann í Brimbrettafélagi Íslands.
Umboðsmaðurinn með mikilvægu álitin 12.10.2023 15:30
Umboðsmaður Alþingis hefur stóru hlutverki að gegna í samfélaginu. Álit hans skipta töluverðu máli. Embættisins hefur verið útskýrt annað slagið í fréttum undanfarna áratugi, á milli þess sem álitum hans á hinu og þessu er slegið upp. Þú getur verið nærfataþjófur af landsbyggðinni, ósáttur stöðumælasektargreiðandi, landeigandi með álver í bakgarðinum eða ráðherra - mál þitt á erindi til umboðsmann...
Hvernig leitar lögregla að týndu fólki? 11.10.2023 15:00
Hvaða aðferðir reynast árangursríkastar þegar lögregla leitar að týndu fólki. Við spyrjum um vinnubrögð til dæmis þegar leitað er að fólki í vímuefnavanda eða í sjálfsvígshugleiðingum. Bergþóra Halla Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir frá því hvernig unnið er þegar leitað er að horfnum einstaklingum. Þóra Tómasdóttir ræddi við hana.
Bjarni segir af sér og allt upp í loft 10.10.2023 15:00
Formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra ríkisstjórnarinnar, Bjarni Benediktsson, hefur sagt af sér. Stjórnmálafræðiprófessor segir afsögnina geta skýrst af erfiðu ríkisstjórnarsamstarfi og að kosningar gætu verið framundan. Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir fara yfir feril stjórnmálamannsins Bjarna Benediktssonar og ræða við prófessorinn Eirík Bergmann um hvað þetta þýðir nú allt...
Átök Hamas og Ísraels 09.10.2023 15:00
Blóðug átök standa nú yfir milli Ísraels og Hamas-samtakanna. Tveir stórir hópar Íslendinga hafa verið í Jerúsalem og hefur utanríkisþjónustan unnið að því undanfarna sólarhringa að koma þeim í var. Þórlindur Kjartansson er aðstoðarmaður utanríkisráðherra og hefur verið með það á sínu borði að koma fólkinu heim. Við ræðum um Ísrael, Palestínu og þá afstöðu Íslands að styðja tveggja ríkja leið til...
Tæknifrjóvgunarferðir til Grikklands - seinni hluti 06.10.2023 15:00
Hvers vegna velja Íslendingar í auknum mæli að leita til Grikklands eftir hjálp við að eignast börn? Helga Halldórsdóttir og Sandra Árnadóttir voru nýskriðnar yfir tvítugt þegar þær eignuðust son eftir glasafrjóvgun í Aþenu. Við heimsækjum litlu fjölskylduna og heyrum þeirra upplifun af ferlinu. Ásthildur Sturludóttir reyndi í mörg ár að eignast barn. Það tókst loks þegar hún var orðin 42 ára gömu...
Tæknifrjóvgunarferðir til Grikklands - fyrri hluti 05.10.2023 15:00
Íslendingar leita í auknum mæli til Grikklands til þess að fá aðstoð við að eignast börn. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Hanna Björk Halldórsdóttir íþróttafulltrúi í Mosfellsbæ segja sögur sínar en þær eignuðust báðar börn eftir ferðir til Grikklands. Þrá eftir að eignast barn, örvænting og siðferðislegar spurningar verða einnig til umfjöllunar.
Ráðgátan í Sycamore Gap 04.10.2023 15:00
Rannsókn lögreglunnar í Norðymbralandi á niðurfellingu trés er enn í fullum gangi. Tréð var sagað niður í skjóli nætur og samkvæmt nýjustu fréttum er nú enginn í haldi, þó að nokkrir hafi verið handteknir, meðal annars skógarhöggsmaður á eftirlaunum og sextán ára drengur. Rannsóknin er á viðkvæmu stigi og lögreglan verst allra frétta. Lagt hefur verið hald á keðjusög í tengslum við glæpinn, sem he...
Kúrdíski refurinn bakvið lætin í Svíþjóð 03.10.2023 15:00
Rawa Maijd eða kúrdíski refurinn er maðurinn sem sagður er bera megin ábyrgð á því hrottalega ofbeldi sem framið hefur verið á götum Stokkhólms og nágrennis á undanförnum vikum. Við heyrum sögu refsins sem fer fyrir genginu Foxtrot og skoðum hvers vegna Svíum reynist svo erfitt að stöðva hann. Fjölmiðlamennirnir Atli Steinn Guðmundsson og Kári Gylfason lýsa ástandinu í Svíþjóð.
Útlendingarnir sem máttu ekki vera hérna 07.11.2022 20:00
Útlendingar verða á dagskrá í Þetta helst í dag. Eða reyndar þeir útlendingar sem voru sendir úr landi með leiguflugi til meginlandsins í síðustu viku. Þeir fimmtán útlendingar sem stjórnvöld handtóku, lyftu úr hjólastól, kipptu úr framhaldsskóla og settu suma í fangelsi, en eru nú á götunni í Grikklandi. Búið að kalla ríkislögreglustjóra fyrir allsherjar- og menntamálanefnd og embættið á að skila...
Moldríki bindindismaðurinn í Downing-stræti 04.11.2022 15:19
Maðurinn sem breski Íhaldsflokkurinn hefur falið það verkefni að sigla hagkefinu í örugga höfn þykir nákvæmismaður. Hann er ungur, forríkur, hefur áhuga á tölfræði, er bindindismaður á áfengi og neytir ekki nautakjöts. Hann heitir Rishi Sunak og Ragnhildur Thorlacius fjallar um hann í Þetta helst.
Breiðfylkingin sem skrapp saman 03.11.2022 17:59
Forysta Samfylkingarinnar var algjörlega endurnýjuð á landsfundi um síðustu helgi. Ný formaður, Kristrún Mjöll Frostadóttir, er tekinn við stjórnartaumunum. Flokkurinn heitir núna Samfylkingin - jafnaðarflokkur Íslands og merki flokksins er ekki lengur rauða kúlan, heldur alþjóðlega jafnaðarmannamerkið rauða rósin. Nýrrar forystu bíður ærið verkefni. Nú er staðan sú að helmingur sex sitjandi þingm...
Elon Musk og frelsun fuglsins 02.11.2022 19:14
Fuglinn er frelsaður, skrifaði Elon Musk, ríkasti maður heims, á internetið síðastliðinn föstudag. Fuglinn í þessu samhengi er samfélagsmiðillinn Twitter, frelsaður af Musk sjálfum, en kaup hans á miðlinum fyrir heila 44 milljarða Bandaríkadala gengu loks í gegn. Lógó, eða kennimerki Twitter, er blár tístandi fugl og færslurnar sem fólk skrifar á miðilinn eru alla jafna kölluð tíst, eða Tweet. Mus...
Mál ónefnda fótboltamannsins, Gylfa Sigurðssonar II 01.11.2022 19:15
Það fer að nálgast eitt og hálft ár síðan Gylfi Þór Sigurðsson, fyrrverandi leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Everton, lykilmaður í íslenska landsliðinu og raunar einn besti fótboltamaður sem Ísland hefur alið af sér, var handtekinn í Manchester í Bretlandi vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Gylfi var látinn laus gegn tryggingu en hefur verið í farbanni síðan, sem hefur verið framlengt no...
Samherjar á sextugsaldri læsa saman hornum í formannsslag 31.10.2022 16:56
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hefur skorað formanninn Bjarna Benediktsson á hólm. Guðlaugur vill verða taka við keflinu. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram um næstu helgi, hefst föstudaginn 4. nóvember, og kosningin verður á sunnudag. Þetta er fyrsti landsfundur flokksins síðan fyrir faraldurinn. Guðlaugur Þór smalaði húsfylli í Val...
Skotárásir IV: Hið illa (e) 28.10.2022 17:47
Fjórði og síðasti þáttur Katrínar Ásmundsdóttur um skotárásir. Fyrri þættir voru um árásina í Uvalde í Texas, tíðni skotárása, deilur um vopnaeign, pólitík og tilefni og hvatir að baki slíkum voðaverkum. Í dag lýkur umfjölluninni með viðtali við Sólveigu Önnu Bóasdóttur, prófessor í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands, um hið illa. Illskunni hefur verið kennt um ófá voðaverk. Katrín spyr Só...
Skotárásir III: Hvatinn (e) 27.10.2022 19:59
Þriðji þáttur af fjórum í seríu Katrínar Ásmundsdóttur um skotárásir í Bandaríkjunum. Í þættinum er rætt við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, og spyrjum hana út í hvatanna og tilefnin að baki skotárásum. Sér í lagi fjöldaskotárásum, eins og þeirri sem átti sér stað í grunnskóla í Uvalde í Texas undir lok síðasta mánaðar. Þar sem m...
Skotárásir II: Skotvopnalöggjöf (e) 26.10.2022 15:39
Skotvopnalöggjöf og eldheitar umræður og deilur um skotvopnaeign í Bandaríkjunum eru á dagskrá í dag. Hart hefur verið tekist á um málið í áraraðir. Löggjöfin er æði frjálslynd í samanburði við önnur ríki heims og rétturinn til að eiga og bera vopn er verndaður í annarri grein stjórnarskrárinnar, þótt einnig sé deilt um það. Von margra, sér í lagi Demókrata, er sú að árásirnar verði loks til þess...
Skotárásir I: Skotárásin í Uvalde í Texas (e) 25.10.2022 17:59
Um miðjan maí myrti átján ára maður tíu og særði þrjá í stórmarkaði í Buffalo í New York í Bandaríkjunum, í árás sem lögregluyfirvöld lýsa sem hreinum og klárum rasískum hatursglæp. Árásarmaðurinn var handtekinn á vettvangi. Skotárásin var þá ein sú mannskæðasta í Bandaríkjunum það sem af er ári - jafnvel þótt hún væri númer 198 á þeim rúmlega nítján vikum sem þá voru liðnar af árinu. Það átti þó...
Guccimeistari, milljarðamæringur og svindlari 24.10.2022 16:08
Um árabil var maður að nafni Ramon Abbas einn allra vinsælasti áhrifavaldur Nígeríu. Hann var með meira en tvær milljónir fylgjenda á Instagram þar sem hann stærði sig af lúxuslífstíl sínum í Dúbaí, íklæddur dýrustu merkjavöru, með Rólexúr og dýra skartgripi, akandi sportbílum eða fljúgandi í einkaþotu. Abbas kallaði sig Hushpuppi á Instagram og einnig, með vísun í eitt uppáhalds fatamerki sitt, B...
Alræmdasta óleysta morðmál Noregs 21.10.2022 16:01
Birgitte Tengs var sautján ára gömul þegar hún fannst látin í kjarrgróðri við vegkant, skammt frá heimili sínu á Karmøy í sunnanverðum Noregi, í maí 1995. Hún hafði verið myrt. Í hönd fór ein umfangsmesta lögreglurannsókn norskrar sögu. Frændi Birgitte var dæmdur fyrir morðið en síðar sýknaður, meðal annars þökk sé vitnisburði Gísla Guðjónssonar réttarsálfræðings. Morðið á Birgitte telst því óleys...
Kíkirinn sem getur ferðast aftur í tímann (e) 20.10.2022 20:25
Það eru um það bil tvö þúsund milljarðar vetrarbrauta í okkar sýnilega alheimi. Hver og ein vetrarbraut er með marga milljarða stjarna. Við, jarðarbúar, búum á einni slíkri stjörnu. Í Þetta helst í dag ætlum við að líta út í geim, langt upp í himininn og út um allt, næstum því til upphafs tímans. James Webb sjónaukinn, nýjasta tryllitæki geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, var ekki búinn að...
Paradísareyjar urðu að eitruðum vígvelli 19.10.2022 15:17
Bandaríkin gerðu tugi tilrauna með kjarnorkusprengjur á Marshall-eyjum, afskekktum eyjaklasa í Kyrrahafi, á árum kalda stríðsins, sem þá var á valdi Bandaríkjanna. Íbúar eyjanna sem sprengjum var varpað á voru fluttir burt, en geislavirknin barst víðar og á byggðar eyjar þar sem íbúar hafa glímt við alvarleg heilsufarsleg vandamál æ síðan. Marshalleyingar segja að Bandaríkin hafi aldrei greitt þei...
Benzer podcast'ler
Replaio bir podcast yayıncısı değildir; program adları, kapak görselleri ve ses içerikleri yazarlarına aittir ve herkese açık RSS beslemeleri aracılığıyla dağıtılır