RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Podcast'in sitesini ziyaret etmeyi ve yapımcısını desteklemeyi unutma: www.ruv.is
Nereden dinlenir?
Uygulamada podcast'ler Replaio Radio Çok yakındaPodcast'ler çok yakında uygulamaya geliyor. Şimdi yükle ve podcast'lere yepyeni bir bakışı ilk gören sen ol
Bölümler
Kamilla konungskona 13.09.2022 19:40
Bretland hefur fengið nýjan konung eftir andlát Elísabetar annarar í síðustu viku. Karl Bretaprins, elsti sonur drottningarinnar, varð Karl þriðji Bretakonungur um leið og móðir hans dró síðasta andann. Og eiginkona Karls, Camilla Parker Bowles, varð á sama tíma eiginkona konungsins, konungskona eins konar. Eins og Filippus var drottningamaður Elísabetar. Heimspressan hefur verið undirlögð af freg...
Morðin í Saskatchewan 12.09.2022 18:35
Þetta helst fjallar um fjöldamorðin í Saskatchewan-fylki Kanada í síðustu viku. Tíu voru myrtir í hnífárásum á afskekktu verndarsvæði frumbyggja í Kanada, sunnudaginn 4. september síðastliðinn. Tveir bræður voru eftirlýstir og sagðir vera á flótta en annar bróðirinn fannst síðar látinn ekki langt frá vettvangi glæpanna. Hinn bróðirinn, Myles Sanderson, var loks handtekinn á miðvikudag eftir fjóra...
Elísabet Bretadrottning látin 09.09.2022 18:18
Þetta helst er að þessu sinni tileinkaður Elísabetu 2. Bretadrottningar sem lést á fimmtudaginn 8. september, 96 ára að aldri. Birta Björnsdóttir fréttamaður reifar langa ævi og feril Elísabetar og spilað er viðtal við Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara RÚV í Lundúnum, um drottningu frá því í febrúar á þessu ári, þegar 70 ár voru liðin frá valdatöku hennar.
Konur í íslenskum fangelsum 08.09.2022 20:30
Tíu konur afplána dóma í fangelsinu á Hólmsheiði. Hlutfall kvenna í fangelsi hefur farið hækkandi undanfarinn áratug og hefur verið á bilinu átta prósent til rúmlega ellefu. Það var í kring um fimm prósent fyrir um tíu árum síðan. Samkvæmt nýjum tölum frá Fangelsismálastofnun eru konurnar sem nú afplána dóma á aldrinum 23 til 62 ára. Dómarnir sem konurnar hlutu eru misþungir, allt frá níu mánaða f...
Raunir Shamimu Begum 07.09.2022 18:11
Lundúnastúlkan Shamima Begum var aðeins fimmtán ára gömul þegar hún strauk að heiman og gekk til liðs við Íslamska ríkið í Sýrlandi ásamt tveimur skólasystrum sínum á svipuðu reki. Lífið í Íslamska ríkinu reyndist ekki vera sú útópía sem hún hafði búist við. Hún eignaðist þrjú börn með hollenskum vígamanni og missti þau öll ung og hefur hafist við í flóttamannabúðum í norðaustanverðu Sýrlandi unda...
Hver er nýjasti húsráðandi í Downingsstræti 10? 06.09.2022 18:26
Mary Elizabeth Truss verður forsætisráðherra Bretlands í dag. Truss er þingmaður fyrir Suðvestur Norfolk, hún er utanríkisráðherra, ráðherra kvenna og jafnréttis. Leiðtogi Íhaldsflokksins. Þetta er sumsé lýsingin á Twitterreikningnum hennar. Hún ætlar að leggja fram efnahagsáætlun sem á að taka á verðbólgu, yfirvofandi efnahagslægð og síversnanadi efnahag almennings. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar...
Bronsmunir frá Benín snúa heim 05.09.2022 18:20
Fyrir 125 árum lögðu breskir nýlenduhermenn í rúst höfuðborg afrísks konungsríkis, Benín, þar sem nú er Nígería. Þeir myrtu fjölda manns og höfðu á brott með sér þúsundir listmuna úr bronsi sem síðan dreifðust um Evrópu. Æ síðan hafa afkomendur þeirra sem verkin sköpuðu á sínum tíma reynt að fá þau aftur heim. Að undanförnu hafa allnokkur söfn í Evrópu lýst því yfir að þau hyggist skila stolnum br...
Kynferðisbrot og kynferðisleg áreitni á Íslandi 02.09.2022 18:09
Tvær skýrslur komu út í liðinni viku. Önnur kemur út árlega og hefur gert undanfarna áratugi, en hin er byggð á stórri rannsókn. Báðar snúa þær að kynferðislegri áreitni eða kynferðisofbeldi. Sú árlega, skýrsla Stígamóta, sýnir ákveðið umfang kynferðisbrota á landinu, þau brot sem fólk verður fyrir og leitar sér aðstoðar vegna. Biðlistarnir á Stígamótum eru að lengjast, fólk getur þurft að bíða í...
Langt ferðalag mjaldrasystra til Klettsvíkur 01.09.2022 18:06
Mjaldrasysturnar Litla Grá og Litla Hvít flytja ekki í sjókvína í Klettsvík í Vestmannaeyjum í ár, eftir að bátur sökk við kvína um miðjan ágúst. Flutningur mjaldranna úr sérstakri hvalalaug yfir í sjókvína hefur ítrekað tafist, en þrjú ár voru í sumar síðan mjaldrarnir fluttu til Íslands frá Kína. Þetta helst rekur sögu og ferðalag mjaldrasystranna, sem og annars og dularfyllri mjaldurs sem komst...
Aldrei fleiri dauðsföll vegna of stórra lyfjaskammta 31.08.2022 18:54
Þetta helst fjallar í dag um banvænar afleiðingar ofskömmtunar lyfja, löglegra og ólöglegra. 31. ágúst er viðeigandi, alþjóðlegi ofskömmtunardagurinn, International Overdose Awareness Day á ensku. Dagurinn er haldinn með það að markmiði að binda enda á dauðsföll vegna ofskömmtunar. 46 lyfjatengd andlát voru skráð hjá embætti Landlæknis í fyrra, allt árið 2021. Þau hafa aldrei verið fleiri, samkvæm...
Síðasti maður ættbálks síns látinn 30.08.2022 18:25
Þetta helst fjallar um mann sem kallaður hefur verið ?holumaðurinn? og jafnframt einmanalegasti maður heims. Fyrir 26 árum réðust vígamenn á litla kofaþyrpingu, heimkynni ættbálks nokkurs í regnskóginum í vestanverðri Brasilíu. Vígamennirnir voru á höttunum eftir landsvæði ættbálksins, vildu leggja það undir skógarhögg eða landbúnað. Þeir jöfnuðu þorpið við jörðu og myrtu alla íbúa, nema einn. Æ s...
Stærsta kjarnorkuver Evrópu miðpunktur stríðs 29.08.2022 19:28
Alheimurinn óttast að meiriháttar kjarnorkuslys kunni að vera yfirvofandi í stærsta kjarnorkuveri Evrópu, kjarnorkuverinu í úkraínsku iðnaðarborginni Zaporizhzhia. Rússneskt herlið hefur haft verið á valdi sínu síðan í mars, en skæðir bardagar hafa staðið yfir allt umhverfis það vikum saman. Leiðtogar um allan heim hafa hvatt bæði Rússa og Úkraínumenn að láta af bardögunum, en hver vísar þar á ann...
Maðurinn sem fjármagnaði þjóðarmorðið í Rúanda 26.08.2022 17:59
Í næsta mánuði mætir fyrir stríðsglæpadómstól í Haag maður nokkur um nírætt, sem sagður er þjást af elliglöpum og fleiri kvillum. Maðurinn, Rúandamaðurinn Felicien Kabuga, var handtekinn í París fyrir tveimur árum eftir að hafa verið á flótta undan réttvísinni í 26 ár. Hann er sakaður um að hafa, árið 1994, leikið stórt hlutverk í þjóðarmorðinu í Rúanda, þegar rúandískir Hútúar slátruðu mörg hundr...
Feðginin Alexander Dugin og Darya Dugina 25.08.2022 17:50
Á laugardagskvöldið 20. ágúst sprakk sprengja um borð í bifreið á ferð um fjörutíu kílómetra frá Moskvu. Ökumaður bílsins lét lífið. Hún hét Darya Dugina og var kunn sjónvarpskona í Rússlandi. Margt er enn á huldu um tilræðið þó rússnesk stjórnvöld fullyrði að úkraínska leyniþjónustan hafi verið að verki. Dugina ók í bíl föður síns, sem margir telja að sé líklegra að hafi verið skotmark árásarmann...
Hálft ár af stríði í Úkraínu 24.08.2022 18:38
Það er 24. ágúst, þjóðhátíðardagur Úkraínu, og nákvæmlega hálft ár liðið frá því að Vladimir Putin Rússlandsforseti skipaði herliði sínu að ráðast inn í Úkraínu og hertaka landið. Á þessu hálfa ári hafa milljónir Úkraínubúa þurft að flýja heimili sín og land, leita sér skjóls í öðrum löndum og um alla Evrópu hafa flugvellir og lestarstöðvar fyllst af Úkraínumönnum á flótta undan þessu óskiljanlega...
Hvað þýðir yfirlýsing um neyðarástand í loftslagsmálum? 23.08.2022 20:32
Það ríkir einhvers konar neyðarástand í loftslagsmálum, um það erum við flest sammála um. Loftslagsbreytingar eru farnar að bíta. Hitabylgjur, flóð, dauði heilu tegundanna, skógareldar, hungursneið og uppskerubrestir eru farin að verða nánast daglegur fréttamatur - út af loftslagsbreytingum. Við erum á góðri leið með að eyðileggja heimili okkar og við höfum líka vitað það í langan tíma. Sameinuðu...
Körfuboltastjarnan og vopnasalinn 22.08.2022 18:50
Þetta helst fjallar um tvær manneskjur sem sitja í fangelsi, hvor í sínu landinu, sem orðið hafa að peðum í valdatafli stórveldanna. Bandarísk körfuboltastjarna hefur dúsað í fangelsi í Rússlandi fyrir að hafa flutt kannabisvökva til landsins í um hálft ár. Alræmdur rússneskur vopnasali - kallaður sölumaður dauðans - hefur setið inni í Bandaríkjunum í meira en áratug. Nú gæti svo farið að yfirvöld...
Hundrað kíló af kókaíni 19.08.2022 19:16
Kókaín, og stór og smá mál því tengdu, eru á dagskrá Þetta helst í dag. Íslensk lögðu hald á hundrað kíló af kókaíni í gámi sem var reynt að smygla hingað til lands í gegn um Sundahöfn og er þetta lang, lang mesta magn af þessu rándýra dópi sem hefur fundist hér á landi. Fyrsta málið sem var kallað stóra kókaínmálið snerist um eitt kíló. Svo kom annað stórt kókaínmál sem snerist um 16. Og nú í vik...
Tasmaníutígurinn snýr aftur 18.08.2022 18:41
Við höfum af og til undanfarin ár heyrt af tilraunum vísindamanna til að vekja loðfílinn, sem dó út fyrir um fjögur þúsund árum, aftur til lífsins með erfðatækni. Á dögunum kynntu vísindamenn í Ástralíu og Bandaríkjunum áform um að vekja aðra útdauða skepnu til lífsins. Tasmaníutígurinn var eitt sinn stærsta pokarándýr Ástralíu en dó endanlega út árið 1936, og var útdauðinn af manna völdum. Fyrirt...
Fangelsi er ekki staður fyrir veikt fólk 17.08.2022 18:00
Fangelsi eru ekki gerð fyrir fólk sem er alvarlega veikt á geði, segir yfirlæknir geðheilbrigðisteymis fangelsanna. Margir þeir sem nú sitja inni eru þar vegna ofbeldisbrota og innan veggja fangelsanna ríkir ofbeldismenning. Sumir fangar, sem geðheilbrigðisteymið telur að eigi ekki erindi inn í fangelsi, beita ofbeldi þar en hefðu líklega ekki gert það áður. Fangelsin búa til ofbeldismenn. Og fang...
Umdeildir rostungar á ferð og flugi 16.08.2022 18:29
Sjávarspendýr, stór og mikil, mörg hundruð kíló að þyngd með stórar skögultennur, eru til umfjöllunar í Þetta helst þætti dagsins. Vera Illugadóttir fjallar um rostunga sem hafa valdið usla í samfélagi okkar mannanna upp á síðkastið. Allnokkrir hafa ratað í fréttirnar að undanförnu, dýr sem komin voru langt frá heimkynnum sínum í Norður-Íshafi og vöktu bæði mikla athygli og þóttu valda talsverðum...
Það helsta um Söngva Satans og dauðadóm æðsta klerksins 15.08.2022 18:38
Þetta helst fjallar um meira en þrjátíu ára gamlan dauðadóm, sem var næstum því uppfylltur fyrir stuttu. Bresk - indverski rithöfundurinn Salman Rushdie var stunginn margítrekað á hol síðastliðinn föstudag, þar sem hann stóð á sviði í New York ríki fyrir framan fullan sal af fólki. Hann var fluttur með þyrlu á sjúkrahús, gekkst þar undir aðgerð og losnaði úr öndunarvél eftir rúman sólahring. Hann...
Afskipti Rússa af starfsemi Fréttablaðsins 12.08.2022 17:45
Fréttablaðið birti í vikunni mynd af rússneskum fána sem var notaður sem dyramotta á úkraínsku heimili. Þetta helst fjallar um viðbrögð rússneska sendiráðsins hér í bæ á þeirri birtingu og atburðarrásina sem þá fór af stað. Netárás var gerð á vef Fréttablaðsins, Rússar kröfðu ritstjórnina um afsökunarbeiðni og hótað var öllu illu. Árásin var kærð til lögreglu, Blaðamannafélagið fordæmdi afskiptin...
Drottningin hættir á toppnum 11.08.2022 18:45
Serena Williams er óumdeilanlega ein besta og merkilegasta íþróttakona heims. Hún og systir hennar, Venus, eiga að baki frekar lygilega sögu og það er óhætt að segja að þetta heimsfræga tvíeyki hafi svo sannarlega unnið fyrir þeim gífurlega árangri sem þær geta státað af í dag. Þó að saga systranna sé á mjög margan hátt sameiginleg og samtvinnuð, verður Serena stjarna Þetta helst í dag. Serena Wil...
Banvænar og óútreiknanlegar eldingar 10.08.2022 18:45
Við ætlum að líta til himins. Að meðaltali deyja um 60 manns á dag eftir að hafa orðið fyrir eldingu. Þó eru bara til heimildir um níu banaslys af völdum eldinga hér á Íslandi, en það á sér svo sem nokkuð eðlilegar skýringar. Félagsfælni, persónuleikabreytingar og jafnvel sjálfsvígshugsanir geta hrjáð þau sem hafa orðið fyrir eldingu og lifað það af. Þórður Arason jarðeðlisfræðingur er einn helsti...
Benzer podcast'ler
Replaio bir podcast yayıncısı değildir; program adları, kapak görselleri ve ses içerikleri yazarlarına aittir ve herkese açık RSS beslemeleri aracılığıyla dağıtılır