RÚV Hlaðvörp

Víðsvegar

Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: shows.acast.com

Autor

RÚV Hlaðvörp

Categorie

Society

Site-ul podcastului

shows.acast.com

Cel mai nou episod

12 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Öskjuhlíðartimbrið: Saga þess og örlög 12.11.2026

Byrjað var að fella tré á afmörkuðu svæði í Öskjuhlíð í byrjun árs 2025 til að tryggja flugöryggi. Málið átti sér langan aðdraganda og margir fylltust söknuði þegar þeir sáu skóginn hverfa. En hver urðu örlög þessara trjáa í Öskjuhlíð? Og hver er saga skógræktar í hlíðinni? Viðmælendur: Hallgrímur Jón Hallgrímsson, yfirverkstjóri Borgarskóga hjá Reykjavíkurborg. Einar Birgir Kristjánsson, framkvæm...

Hvað eru barnvæn sveitarfélög? 05.11.2026

Við kíkjum inn á Áhrifadaga ungmenna, ráðstefnu sem haldin var í Hofi á Akureyri í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. UNICEF á Íslandi hefur unnið að verkefninu í samstarfi við íslensk sveitarfélög. En hvað nákvæmlega eru barnvæn sveitarfélög? Og hvenær byrjaði þetta verkefni? Viðmælendur: Marín Rós Eyjólfsdóttir verkefnastjóri Barnvænna sveitarfélaga hjá UNICEF. Ragnheið...

Vegurinn yfir Öxi 29.10.2026

Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur Öxi, leiðinni á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif þessi holótti og gamli malarvegur á líf ungs fólks á Djúpavogi og fjölskyldur þeirra. Við rifjum meðal annars upp þegar nemendur í 10. bekk Djúpavogsskóla lögðu af stað fótgangandi yfir Öxi einn laugardagsmorgun í apríl 2026. Flest nemendanna stefndu á framhaldsnám við Menntaskólann á Egilsstöðum og þ...

Flakkað um Þjóðarbókhlöðuna 22.10.2026

Víðsvegar flakkar um Þjóðarbókhlöðuna, þessa merkilegu byggingu sem margir þekkja frá námsárum sínum. Í þættinum er spjallað við starfsfólk og gesti sem hafa alls konar sögur að segja. Umsjón Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Litið yfir farinn veg II 15.10.2026

Rifjum upp valin brot úr ferðum Víðsvegar um landið frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þekking að hverfa: Spjallað um torfhús í Skagafirði 08.10.2026

Sífellt færri kunna að gera við torfhús og hvað gerist ef sú þekking hverfur alveg? Í dag kynnumst við systkinunum Sigríði Sigurðardóttur og Helga Sigurðssyni, sem ólust upp á bænum Stóru-Ökrum í Skagafirði. Þau hafa bæði lagt mikið af mörkum til varðveislu og viðhalds torfbæja. Helgi ferðast um allt land og hefur sérhæft sig í viðgerðum á torfbæjum. Sigríður var í tæp 32 ár safnstjóri Byggðasafns...

Matarmenning á Akureyri 01.10.2026

Í þætti dagsins flökkum við um Akureyri og spjöllum um matarmenningu staðarins, að fornu og nýju. Allt frá hefðbundnum heimilismat, að bernaissósu og frönskum á milli, yfir í fínni veitingastaði. Viðmælendur: Inga Þöll Þórgnýsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Rakel Elín Garðarsdóttir, Þorgerður Jóhanna Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Bergmann, Snæbjörn Bergmann og Reynir Gretarsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdót...

Vopnafjörður: Breskir veiðimenn, sláturhús og ferðaþjónusta 24.09.2026

Víðsvegar er enn á ferðalagi um Vopnafjörð, þennan nyrsta fjörð Austfjarða. Nú er ætlunin að forvitnast um sögu breskra veiðimanna í Hofsá, nýlegt sláturhús og ferðaþjónustu í uppsveitum fjarðarins. Þetta er þriðji og síðasti þátturinn í þessari Vopnafjarðarseríu, sem varð til eftir flakk um fjörðinn mánudaginn 31. ágúst. Viðmælendur: Sigríður Dóra Sverrisdóttir, Skúli Þórðarson, Gíslína Skúladótt...

Vopnafjörður: Lífið við höfnina, fótbolti og sýn sveitarstjóra á framtíðina 17.09.2026

Víðsvegar heldur enn til á Vopnafirði, þar sem við kynnumst staðnum og veltum fyrir okkur hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu þar að finna. Viðmælendur: Kristinn Ágústsson, Sara Líf Magnúsdóttir, Íris Edda Jónsdóttir, áhöfnin á Indriða Kristins BA 751 og Heiðar Kristbergsson. Í þættinum er spilað brot þætti Berglindar Häsler „Frá Vopnafirði til vesturheims“ frá 2009. Þar ræddi hún vi...

Vopnafjörður: Daglegt líf íbúa og spjall um tækifærin í framtíðinni 10.09.2026

Ferðinni er heitið á norðausturhorn landsins, nánar tiltekið til Vopnafjarðar. Kynnumst staðnum og spjöllum við fólk á förnum vegi – og spyrjum hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu að finna í Vopnafirði. Viðmælendur: Stefán Guðnason, Thorberg Einarsson, Berglind Ósk Wiium, Þórhildur Sigurðardóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir og Kristinn Ágústsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hos...

Flakkað um Hrísey 10.06.2026

Í dag liggur leiðin út í Hrísey í Eyjafirði. Þangað fór þáttastjórnandi Víðsvegar mánudaginn 8. júní, flakkaði um og spjallaði við fólk á förnum vegi. Viðmælendur: Peter ferðamaður frá Hollandi, Björgvin L. Pálsson, Aron Trausti Sigurbjörnsson, Dröfn Teitsdóttir, Theódóra Kristjánsdóttir, Þórunn Björk Arnórsdóttir, Ásrún Ýr Gestsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir. Þetta var síðasti þáttur Víðsveg...

Litið yfir farinn veg 03.06.2026

Þessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Tvö verðlaunabú í Eyjafirði og framkvæmdastjóri á tímamótum 27.05.2026

Í þetta skipti erum við komin í Eyjafjörð þar sem ætlunin er að forvitnast aðeins um landbúnað í firðinum. Við heimsækjum kúabúið á Espihóli og svínabúið á Sölvastöðum. Bæði þessi bú eru í Eyjafjarðarsveit en eiga það líka sameiginlegt að hafa nýlega fengið verðlaun frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Nautgriparæktarverðlaun ársins fóru á Espihól og svínabúinu á Sölvastöðum var veitt Hvatningarverðla...

Flakkað um Ólafsfjörð 20.05.2026

Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði. Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræ...

Menning og ferðaþjónusta á Akureyri 13.05.2026

Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu. Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufir...

Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga 06.05.2026

Þátturinn er að þessu sinni helgaður undirbúningi og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga, en að því verkefni koma mörg hundruð manns. Spjallað verður við þrjá formenn kjörstjórna, á mismunandi tímapunktum í ferlinu. Þannig fáum við innsýn í verkefni kjörstjórna í ólíkum sveitarfélögum á mismunandi tímum við undirbúning kosninga. Við endum síðan þáttinn á skrifstofu landskjörstjórnar og forvitnumst u...

Fjöruferð og þörungarannsóknir 29.04.2026

Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar. Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Við slógumst í för með þeim. Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason...

Flakkað á milli þriggja almenningsbókasafna 22.04.2026

Í þetta skipti verður þátturinn helgaður almenningsbókasöfnum. Við flökkum á milli þriggja sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Mosfellsbæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar - og kynnumst bókasafninu á hverjum stað fyrir sig.  Viðmælendur: Auður Halldórsdóttir og Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir á Bókasafni Mosfellsbæjar, Lísa Zachrison Valdimarsdóttir og Eyrún Ósk Jónsdóttir á Bókasafni Kópavogs, og...

Áherslur eldri borgara fyrir kosningar 15.04.2026

Í dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land. Viðmælendur: Björn S...

Hvernig blóð er unnið og sent um allt land 08.04.2026

Í dag fræðumst við um hvernig blóð, sem safnað er af Blóðbankankanum, er unnið og svo flutt um allt land - en starfsemi Blóðbankans er mikilvægur hluti heilbrigðiskerfisins svo hægt sé að framkvæma margar algengar og lífsnauðsynlegar aðgerðir og læknismeðferðir. Viðmælendur: Hanna Vigdís Jóhannesdóttir og Stefán Rafn Stefánsson hjúkrunarfræðingar við Blóðbankann á Akureyri. Monica og Árni Jökull G...

Þjóðminjasafnið: Starfsemin og áskoranir 01.04.2026

Í þessum þætti verður farið í Þjóðminjasafn Íslands við Suðurgötu í Reykjavík, þar sem við ræðum við fjóra sérfræðinga safnsins, kynnumst starfseminni í gegnum þeirra verkefni og heyrum um helstu áskoranir sem fylgja varðveislu og miðlun á þjóðminjum landsins. Viðmælendur: Atli Freyr Kristófersson, Ágústa Kristófersdóttir, Helga Vollertsen og Karólína Stefánsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir....

Atvinnulífið á Grenivík 25.03.2026

Í dag er ferðinni heitið til Grenivíkur - þéttbýliskjarnans í Grýtubakkahreppi við austanverðan Eyjafjörð - og þar ætlum við að kynnast atvinnulífinu. Viðmælendur: Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson, Ingvar Þór Ingvarsson, Hermann Gunnar Jónsson og Ingólfur Björnsson hjá smíða- og afþreyingarfyrirtækinu Fjallhamri. Erica Patricia Rivera og Karol Brynja í Jónsabúð. Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Gr...

Byggðamál og byggðarannsóknir 18.03.2026

Í þætti dagsins kynnum við okkur í byggðamál og byggðarannsóknir – málefni sem snýr að því hvernig fólk býr, vinnur og þróar samfélög sín á mismunandi svæðum. Það er einnig viðeigandi að í þessum þætti eru viðmælendur á þremur stöðum: Í Borgarnesi, Stokkhólmi og Skagafirði. Viðmælendur: Arnar Már Elíasson, Sigríður Elín Þórðardóttir, Vífill Karlsson og Sæunn Gísladóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdót...

Tónlistarlífið í Austur-Húnavatnssýslu 11.03.2026

Í þetta skiptið liggur leiðin í Austur-Húnavatnssýslu, svæði sem nú samanstendur af tveimur sveitarfélögum: Húnabyggð og Sveitarfélaginu Skagaströnd. Þar ætlum við að kynna okkur tónlistarlífið. Hvað einkennir það? Hvernig hefur það þróast á undanförnum árum? Hvernig er aðgengi að tónlistarmenntun? Viðmælendur: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Eyþór Franzson Wechner. U...

Dalabyggð: Sjálfsmynd samfélags 04.03.2026

Í þessum fyrsta þætti Víðsvegar er ferðinni heitið í Dalabyggð - þar sem við forvitnumst um hvað einkennir sjálfsmynd svæðisins sem og þá miklu ímyndarvinnu sem íbúar hafa verið í síðustu ár. Sú vinna byrjaði af krafti eftir að sveitarfélagið var tekið inn í byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir. Viðmælendur: Björn Bjarki Þorsteinsson, Linda Guðmundsdóttir, Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Ingibjö...

Ascultă podcastul Víðsvegar în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice