RÚV Hlaðvörp
Víðsvegar
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Flakkað um Hrísey 10.06.2026 52:02
Í dag liggur leiðin út í Hrísey í Eyjafirði. Þangað fór þáttastjórnandi Víðsvegar mánudaginn 8. júní, flakkaði um og spjallaði við fólk á förnum vegi. Viðmælendur: Peter ferðamaður frá Hollandi, Björgvin L. Pálsson, Aron Trausti Sigurbjörnsson, Dröfn Teitsdóttir, Theódóra Kristjánsdóttir, Þórunn Björk Arnórsdóttir, Ásrún Ýr Gestsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir. Þetta var síðasti þáttur Víðsveg...
Litið yfir farinn veg 03.06.2026 50:17
Þessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Tvö verðlaunabú í Eyjafirði og framkvæmdastjóri á tímamótum 27.05.2026 53:24
Í þetta skipti erum við komin í Eyjafjörð þar sem ætlunin er að forvitnast aðeins um landbúnað í firðinum. Við heimsækjum kúabúið á Espihóli og svínabúið á Sölvastöðum. Bæði þessi bú eru í Eyjafjarðarsveit en eiga það líka sameiginlegt að hafa nýlega fengið verðlaun frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Nautgriparæktarverðlaun ársins fóru á Espihól og svínabúinu á Sölvastöðum var veitt Hvatningarverðla...
Flakkað um Ólafsfjörð 20.05.2026 49:59
Í þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði. Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræ...
Menning og ferðaþjónusta á Akureyri 13.05.2026 47:42
Í dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu. Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufir...
Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga 06.05.2026 48:24
Þátturinn er að þessu sinni helgaður undirbúningi og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga, en að því verkefni koma mörg hundruð manns. Spjallað verður við þrjá formenn kjörstjórna, á mismunandi tímapunktum í ferlinu. Þannig fáum við innsýn í verkefni kjörstjórna í ólíkum sveitarfélögum á mismunandi tímum við undirbúning kosninga. Við endum síðan þáttinn á skrifstofu landskjörstjórnar og forvitnumst u...
Fjöruferð og þörungarannsóknir 29.04.2026 51:03
Í þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar. Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Við slógumst í för með þeim. Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason...
Flakkað á milli þriggja almenningsbókasafna 22.04.2026 53:53
Í þetta skipti verður þátturinn helgaður almenningsbókasöfnum. Við flökkum á milli þriggja sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Mosfellsbæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar - og kynnumst bókasafninu á hverjum stað fyrir sig. Viðmælendur: Auður Halldórsdóttir og Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir á Bókasafni Mosfellsbæjar, Lísa Zachrison Valdimarsdóttir og Eyrún Ósk Jónsdóttir á Bókasafni Kópavogs, og...
Áherslur eldri borgara fyrir kosningar 15.04.2026 52:49
Í dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land. Viðmælendur: Björn S...
Hvernig blóð er unnið og sent um allt land 08.04.2026 54:25
Í dag fræðumst við um hvernig blóð, sem safnað er af Blóðbankankanum, er unnið og svo flutt um allt land - en starfsemi Blóðbankans er mikilvægur hluti heilbrigðiskerfisins svo hægt sé að framkvæma margar algengar og lífsnauðsynlegar aðgerðir og læknismeðferðir. Viðmælendur: Hanna Vigdís Jóhannesdóttir og Stefán Rafn Stefánsson hjúkrunarfræðingar við Blóðbankann á Akureyri. Monica og Árni Jökull G...
Þjóðminjasafnið: Starfsemin og áskoranir 01.04.2026 52:39
Í þessum þætti verður farið í Þjóðminjasafn Íslands við Suðurgötu í Reykjavík, þar sem við ræðum við fjóra sérfræðinga safnsins, kynnumst starfseminni í gegnum þeirra verkefni og heyrum um helstu áskoranir sem fylgja varðveislu og miðlun á þjóðminjum landsins. Viðmælendur: Atli Freyr Kristófersson, Ágústa Kristófersdóttir, Helga Vollertsen og Karólína Stefánsdóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir....
Atvinnulífið á Grenivík 25.03.2026 54:41
Í dag er ferðinni heitið til Grenivíkur - þéttbýliskjarnans í Grýtubakkahreppi við austanverðan Eyjafjörð - og þar ætlum við að kynnast atvinnulífinu. Viðmælendur: Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson, Ingvar Þór Ingvarsson, Hermann Gunnar Jónsson og Ingólfur Björnsson hjá smíða- og afþreyingarfyrirtækinu Fjallhamri. Erica Patricia Rivera og Karol Brynja í Jónsabúð. Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Gr...
Byggðamál og byggðarannsóknir 18.03.2026 53:44
Í þætti dagsins kynnum við okkur í byggðamál og byggðarannsóknir – málefni sem snýr að því hvernig fólk býr, vinnur og þróar samfélög sín á mismunandi svæðum. Það er einnig viðeigandi að í þessum þætti eru viðmælendur á þremur stöðum: Í Borgarnesi, Stokkhólmi og Skagafirði. Viðmælendur: Arnar Már Elíasson, Sigríður Elín Þórðardóttir, Vífill Karlsson og Sæunn Gísladóttir. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdót...
Tónlistarlífið í Austur-Húnavatnssýslu 11.03.2026 52:19
Í þetta skiptið liggur leiðin í Austur-Húnavatnssýslu, svæði sem nú samanstendur af tveimur sveitarfélögum: Húnabyggð og Sveitarfélaginu Skagaströnd. Þar ætlum við að kynna okkur tónlistarlífið. Hvað einkennir það? Hvernig hefur það þróast á undanförnum árum? Hvernig er aðgengi að tónlistarmenntun? Viðmælendur: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Eyþór Franzson Wechner. U...
Dalabyggð: Sjálfsmynd samfélags 04.03.2026 55:12
Í þessum fyrsta þætti Víðsvegar er ferðinni heitið í Dalabyggð - þar sem við forvitnumst um hvað einkennir sjálfsmynd svæðisins sem og þá miklu ímyndarvinnu sem íbúar hafa verið í síðustu ár. Sú vinna byrjaði af krafti eftir að sveitarfélagið var tekið inn í byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir. Viðmælendur: Björn Bjarki Þorsteinsson, Linda Guðmundsdóttir, Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Ingibjö...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet