Jónas

Uppsveitakastið

Spjall og hugleiðingar um menn og málefni í uppsveitum Árnessýslu

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: uppsveitakastid.buzzsprout.com

Autor

Jónas

Categorie

Society

Site-ul podcastului

uppsveitakastid.buzzsprout.com

Cel mai nou episod

11 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Sigurjón Sæland - Leikdeild UMF Bisk. 15.10.2025

Sigurjón Sæland kom í heimsókn og kynnti nýjustu afurð leikdeildar UMF Bisk. en það er leikritið 39 & hálf vika eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ólafar Sverrisdóttur. Leikritið er gamanleikrit í farsastíl þar sem meðganga er viðfangsefnið og eins og einkennir góð gamanleikrit þá er eitthvað um misskilning og rangtúlkanir og svo vonandi leysist allt að lokum.  Þar sem sjón er sögu ríkar...

Tveir á tali - Hvað er að frétta? 08.10.2025

Jónas Yngvi og Árni Þór voru einir í þetta skipti með þáttinn tveir á tali. Nóg að tala um enda mikið um að vera í uppsveitunum. Við fórum yfir allt sem netleit okkar hafði leitt í ljós og segjum frá uppákomum, fundum, skemmtunum, sveitarstjórnarmálum o.fl. Hrekkjavakan á stóran sess og eins tölum við aðeins um Ylju, nýja veitingastaðinn í Laugarási. Friðheimar eru alltaf að gera góða hluti og þan...

Björgvin Skafti Bjarnason 01.10.2025

Skafti kíkti í heimsókn og við spjölluðum um hvað á daga hans hefur drifið. Hann talaði um æskuna í Skeiðháholti, árin í Gósen, sveitarstjórnarmál og við ræddum aðeins um Parkinson sjúkdóminn. Skafti er líka hagyrðingur og það gæti vel verið að einhver vísa skjóti upp kollinum.

Karl Hallgrímsson 24.09.2025

Karl Hallgrímsson er deildarstjóri í Reykholtsskóla í Bláskógabyggð. Hann er líka tónlistamaður. Hann tók sig til og fór í Háskóla Íslands til að læra um stjórnun menntastofnana og skrifaði ritgerðina "Röfl um mengi og magann á beljum". Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, vildu fræðast meira um ritgerðina og líka manninn og hann kom til okkar og sagði okkur frá sjálfum sér, tónli...

Helga Jóhanna 17.09.2025

Helga Jóhanna er athafnakona sem lætur ekkert stoppa sig. Nýlega var hún kjörin formaður suðurlandsdeildar FKA en það er ekki eina járnið sem hún hefur í eldinum. Hún rekur gistiheimili ásamt eiginmanni sínum, hefur sungið á plötur, gefið út bækur og margt fleira. Eins hefur hún tekið að sér að gefa saman hjón á hinum ýmsu stöðum. Helga er hvergi hætt og lítil hætta á að hún rykfalli í rólegheitum...

Tveir á tali með fjallkóngum 10.09.2025

Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, tóku á móti 3 fjallkóngum en það eru Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, fjallkóngur Biskupstungna, Guðmundur Árnason, fjallkóngur Gnúpverja og Ingvar Hjálmarsson, fjallkóngur austurleitar Flóa- og Skeiða. Þeir ræddu göngur og þær áskoranir sem þeim fylgja. Rætt var um réttirnar, sauðfé og í raun allt sem sneri að fjallferðum og sauðfjárbúskap. Eins var talað...

Lína Björg Tryggvadóttir 03.09.2025

Lína Björg Tryggvadóttir, byggðaþróunarfulltrúi, kom í þáttinn og talaði um uppsveitirnar og starf sitt hjá þeim. Hún fór yfir verkefni sín og fræddi mig meðal annars um möguleika til styrkja vegna nýsköpunar. Fróðlegt og skemmtilegt viðtal.

Matthías Bjarnason - Sveitarfélagið Árnessýsla 27.08.2025

Matthías Bjarnason mætti til okkar til að tala um lokaverkefnið sitt í opinberri stjórnsýslu við Háskólann á Bifröst. Verkefnið heitir Sveitarfélagið Árnessýsla og í því er fjallað um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna í Árnessýslu, áskoranir og tækifæri sem slíkri sameiningu fylgir. Forvitnilegt verkefni þar sem ekki er leitast við að komast að einhverri niðurstöðu heldur að fjalla um verkefn...

Siggi í Skarði 21.08.2025

Sigurður Björgvinsson, eða Siggi í Skarði, kom í spjall. Hann ræddi uppvöxtinn í Reykjavík og sjómennsku. Svo ræddi hann fyrstu ár Búrfellsvirkjunar, vinnustaðinn, samfélagið og sveitina. Flutninginn af mölinni og Skarð. Sönginn og kórastarfið. Það var gaman að spjalla við Sigga Bjögg eins og alltaf

Grímsævintýri - Laufey Guðmundsdóttir 13.08.2025

Grímsævintýri er skemmtun sem haldin er í Grímsnes- og Grafningshrepp á hverju ári. Laufey Guðmundsdóttir kom í heimsókn og kynnti fyrir okkur hátíðina og eins Kvenfélag Grímsneshrepps sem stendur að Grímsævintýri. Tombólan er fastur liður en í ár verður hún 99 ára gömul. Það er mikið um að vera og kvenfélagið síungt og fjörugt. Við hvetjum alla til að kíka og skemmta sér og öðrum. 

Hestakráin með nýja eigendur 06.08.2025

Í vor keyptu þau Helgi Haukur Hauksson og Helga Margrét Friðriksdóttir Hestakránna. Í tilefni af því skrapp Uppsveitakastið í heimsókn og hitti Helgu. Það er mikið að gera hjá þeim en auk þess að reka Hestakránna reka þau einnig Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal auk þess að vera með útleigu á gistingu og að standa í flugningum. Það er bjart framundan hjá þessu unga fólki og spennandi tímar.

Sólheimar í Grímsnesi 30.07.2025

Tveir á tali brugðu undir sig díselfætinum og fóru í heimsókn að Sólheimum í Grímsnesi. Þar tóku á móti okkur Kristín Björg Albertsdóttir, framkvæmdastjóri, og Kristófer Agnarsson listamaður. Þau fræddu okkur um fjölbreytta starfssemi Sólheima en þar má finna listasmiðjur, verslanir, kaffihús og margt fleira. Það var gaman að rölta um Sólheima og skoða þorpið.  Á myndinni er Kristófer Agnarsson, l...

Pálmi Gunnarsson 23.07.2025

Í dag fagnar Uppsveitakastið árs afmæli en þann 22.07.2024 kom fyrsti þátturinn út.  Viðmælandi dagsins er hinn góðkunni Pálmi Gunnarsson bassaleikari og söngvari. Við ræddum saman um náttúruna, silunga, sjónvarpsþætti, bækur og margt fleira. Eins var spjallað um tónlistina og helstu áhrifavalda.  Pálmi hefur frá mörgu skemmtilegu að segja. Við ræddum um verndun silunga og uppbyggingu veiðistaða....

Tveir á tali - Sumarspjall 16.07.2025

Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fara yfir það helsta sem er um að vera í uppsveitunum þennan mánuðinn. Skoðum dagskrána á útihátíðinni Flúðir um versló og þar verður nóg um að vera, Umferðarhornið er á sínum stað. Leikhópurinn Lotta fær glimrandi umsögn.

Einar Gíslason, Kjarnholtum 09.07.2025

Ég skrapp í heimsókn til Einars í Kjarnholtum og spjallaði við hann um lífið og tilveruna. Hvernig var að alast upp í Biskupstungum, skólagönguna, mannlífið og fleira. Um leið og við nutum útsýnis yfir sveitina spjölluðum við um daginn og veginn, gamla tíma og nýja. Góð heimsókn og fræðandi.

Heiðrún Kristmundsdóttir 02.07.2025

Heiðrún Kristmundsdóttir frá Haga er ein af forsprökkum körfuboltabúða á Flúðum í júlí. Karfan á hug hennar allan og hún hefur komið víða við. Spilað og þjálfað.... annars er bara best að hlusta á hana tala um körfuna, sveitina, hestana og allt sem gaman og skemmtilegt er að gera. Það er ekki að vita nema eitthvað nýtt skjóti upp kollinum sem enginn vissi fyrir. Spurningin er: Á Heiðrún sér uppáha...

Hallbera Gunnarsdóttir 18.06.2025

Hallbera Gunnarsdóttir er kennari, söngvari, útivistafrömuður og helling fleira. Hvað kom til að ákveðið var að sofa í tjaldi allan ársins hring? Af hverju eru haldnir tónleikar úti á Laugarvatninu sjálfu?  Hallbera kíkti í spjall til okkar í Tveir á tali og fór yfir lífshlaupið og hvernig hægt er að hafa gaman að einföldu hlutunum.  Minnum líka á tónleikana á Laugarvatni þann 27.06.2025

Magnús Bjarki - Björgunarsveitin Ingunn 11.06.2025

Á Laugarvatni er árlega haldið hlaup sem kallast Gullspretturinn. Í ár er það haldið þann 14.06. Magnús Bjarki Snæbjörnsson, formaður björgunarsveitarinnar Ingunnar á Laugarvatni, kom og kynnti þennan viðburð fyrir mér. Eins sagði Magnús frá fjölbreyttu starfi sveitarinnar og var þar greinilega nóg um að vera. Ég hvet alla sem hlusta til að kíkja á Gullsprettinn og sjá keppendur hlaupa þennan hrin...

Tveir á tali - Upp í sveit 04.06.2025

Eins og okkar er vísa þá eru tveir á tali að spjalla um allt sem gerist í uppsveitunum og við vitum af. Ástráður Unnar Sigurðsson kom og sagði okkur frá sumarhátíðinni í Skeiða- og Gnúpverjahrepp en hún kallast Upp í sveit. Ljóst er að dagskráin verður fjölbreytt og eins og fyrri ár gaman að taka þátt. Hvað þar gerist kemur í ljós við hlustun á þáttinn nú eða með því að mæta og upplifa. Tveir á ta...

Björg Eva Erlendsdóttir 28.05.2025

Björg Eva er mörgum vel kunnug. Fædd í Gnúpverjahreppnum og sérstakur áhugamaður um náttúruvernd. Hún er framkvæmdastjóri Landverndar og nýtir sumarfríið til landvörslu. Við ræddum um uppvaxtarárin á Hamarsheiði, Þjórsána, Þjórsárdalinn, virkjanir og vindmyllur svo eitthvað sé nefnt. Skemmtilegt og fróðlegt spjall um náttúru í nútíð og framtíð.

Tveir á tali - Enduro 21.05.2025

Heimir Sigurðsson frá Hreppaköppum kynnti Enduro keppni. Eins var farið yfir fundargerðir og fleira. Fréttir og skemmtanir. GÓSS í Friðheimum og fullt í viðbót.

Tveir á tali - Pálmi Hilmarsson 07.05.2025

Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór fengu Pálma Hilmarsson í heimsókn. Pálmi er nemendum Menntaskólans að Laugarvatni að góðu kunnur því hann hefur verið staðahaldari þar í þónokkur ár. Pálmi sagði okkur frá sögu ML og skólahalds að Laugarvatni og skaut inn nokkrum skemmtisögum í leiðinni. Skemmtilegt og fróðlegt spjall og við vitum að hlustendur kvarta ekki þó aðeins hafi lengst í annan en...

Tveir á tali (26) 23.04.2025

Jónas Yngvi og Árni Þór settust niður að loknum páskum og fóru yfir það sem stóð uppúr um páskana og eins hvað er framundan. Páskaeggin og málshættirnir fengu sinn skammt ásamt nýjum lið sem er matarhorn, enda báðir miklir matgæðingar. Við stefnum að því að kíkja á veitingastaði í uppsveitum og smakka það sem er í boði og ræða okkar upplifun. Í þessum þætti var mætt á nýjan austurlenskan veitingas...

Haraldur Þór Jónsson - oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps 16.04.2025

Haraldur Þór Jónsson - oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps fer yfir stöðu sveitarfélagsins þegar tæp 3 ár eru liðin af kjörtímabilinu. Litið er yfir farinn veg og rætt um hvað hefur áunnist og hvað er eftir. Staða sveitarfélagsins, virkjanamál, veiðifélagið, Samfylkingin og margt fleira. Hvað er framundan? Mun Samfylkingin bjóða fram í sveitarfélaginu, eða verður Haraldur áfram með Samvinnulistann?...

Tveir á tali -- um allt og ekki neitt 09.04.2025

Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, spjalla um hvað er efst á baugi í uppsveitunum þessa dagana. 

Ascultă podcastul Uppsveitakastið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice