Jónas
Uppsveitakastið
Spjall og hugleiðingar um menn og málefni í uppsveitum Árnessýslu
Author
Jónas
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 2, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Mikki og Filip á Mika 02.07.2026 1:05:49
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, brugðu undir sig betri fætinum og fóru á hið margrómaða Mika Restaurant í Reykholti. Þar hittum við fyrir Michał Jerzy Józefik eða Mikka og Filip Jan Józefik. Mikki stofnaði Mika ásamt konu sinni Bożenu Józefik og nú er sonur þeirra kominn á fullt í reksturinn. Þau hjónin fluttu frá Póllandi og langaði bara ekki aftur til Póllands og í þættinum segir Mik...
Ásta Stefánsdóttir - sveitarstjóri Bláskógabyggðar 24.06.2026 47:23
Ásta Stefánsdóttir kom í heimsókn og hafði frá mörgu að segja. Sem ung stúlka stundaði hún frekar óhefbundnar veiðar með ömmu sinni, draumurinn um að verða kennari. vinnan hjá sýslumanni og síðar Árborg og eins kíkti dómarinn Ásta í heimsókn. Bláskógabyggð á hins vegar hug hennar allan síðasliðin ár, uppbyggingin, framkvæmdirnar og framtíðin. Það var virkilega gaman að hafa Ástu í spjalli. Hægt er...
Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir 17.06.2026 1:03:15
Nú duttu Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, heldur betur í lukkupottinn. Til okkar kom Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir og hafði heldur betur frá mörgu að segja. Uppvöxtur í Reykjavík, ferðalög, flutningur í Gnúpverjahrepp, hestamennska, reiðskólinn, búskapurinn og ég veit ekki hvað og hvað. Hægt er að nálgast þáttinn á Spotify og eins á heimasíðu þáttarins
Hrunamannahreppur 1150 ára og Gullspretturinn 10.06.2026 1:06:22
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu góða gesti í þáttinn. Fyrst kom Esther Guðjónsdóttir, fyrir hönd afmælisnefndar og kynnti fyrir okkur dagskrá afmælishátíðarinnar sem verður mjög viðamikil. Allir hvattir til að mæta. Eins kom Gríma Guðmundsdóttir og kynnti Gullsprettinn sem er utanvegahlaup í kring um Laugarvatn. Tveir spennandi viðburðir og tveir skemmtilegir viðmælendur.
Bessi Hressi - Bergsveinn Theódórsson 03.06.2026 1:11:31
Uppsveitakastið brá undir sig betri fætinum og heimsótti athafnamanninn og skemmtikraftinn Bessa á Flúðum. Bessi hefur heldur betur fundið sitt hlutverk í lífinu en það er að sjá til þess að allir geti skemmt sér og notið lífsins. Það eru ófáar skemmtanirnar sem hann hefur boðið uppá með það að markmiði að fólk komi saman og njóti samveru án þess að það kosti. Þegar þessi þáttur er að koma út er B...
Gestur frá Hæli 27.05.2026 1:15:59
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu góðan Gest í þáttinn. Þessi Gestur ræddi um íþróttastarf í Uppsveitum og var sannarlega ekki komið að tómum kofanum hjá honum. Hvort sem rætt var um frjálsar, golf, boltaíþróttir allt var í kollinum á okkar Gesti. Eðlilega komst ekki allt að á stuttum tíma en heyrn er sögu ríkari.
Tveir á tali um kosningar 20.05.2026 1:01:16
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, tala um nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar. Um leið og Uppsveitakastið óskar sigurvegurum kosninganna til hamingju með úrslitin er öllum framboðum þökkuð drengileg barátta og góð kynni í þeim þáttum sem teknir voru upp í aðdraganda kosninganna. Í þessum þætti ræddum við úrslit kosninganna í hverju sveitarfélagi fyrir sig og bárum saman við síðustu kosn...
Kappræður framboða í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 13.05.2026 1:47:31
Þann 12. maí 2026 hittust E-listi og L-listi í kappræðum í Árnesi. Uppsveitakastið var á staðnum og tók kappræðurnar upp og afraksturinn birtist hér. Umræður voru líflegar en spurningarnar voru sendar inn með Slido kerfinu.
Oddvitaspjall GOGG 12.05.2026 1:23:26
Borg í Grímsnesi var þann 11.05.2026 vettvangur oddvitaspjalls þeirra Guðmundar Finnbogasonar, oddvita A-listans, og Andrésar Bertelsen, oddvita Ö-listans. Það var þétt setinn salur og góð stemmning. Farið var um víðan völl og málefnin rædd fram og tilbaka. Þetta var skemmtileg og fræðandi kvöldstund og væntanlega komu allir eitthvað fróðari heim að spjalli loknu.
T- listinn Bláskógabyggð 08.05.2026 58:20
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við T-listann í Bláskógabyggð. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
Þ-listinn Bláskógabyggð 08.05.2026 1:05:25
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við Þ-listann í Bláskógabyggð. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
E-listinn Skeiða- og Gnúpverjahreppi 07.05.2026 58:39
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við E-listann í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
L-listinn Skeiða- og Gnúpverjahreppi 07.05.2026 1:11:09
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við L-listann í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
A-listinn Grímsnes- og Grafningshrepp 07.05.2026 1:03:08
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við A-listann í Grímsnes- og Grafningshreppi. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
Ö-listinn Grímsnes- og Grafningshrepp 07.05.2026 1:00:14
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við Ö-listann í Grímsnes- og Grafningshreppi. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
L- listinn Hrunamannahreppi 04.05.2026 1:05:14
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við L-listann í Hrunamannahreppi. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
D-listi sjálfstæðismanna og óháðra í Hrunamannahreppi. 04.05.2026 1:09:39
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við D-lista sjálfstæðismanna og óháðra í Hrunamannahreppi. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
Kristófer A. Tómasson 01.04.2026 1:01:03
Nú var farið um víðan völl. Kristófer kom til mín og spjallaði um það sem á daga hans hefur drifið. Barnæskan í Biskupstungum, heimilið í Hveragerði, sæluna á Selfossi, árin í Árnesi og svo framvegis. Námið, vinnuna og verkefnin sem hafa verið ærið mörg, Ekki má gleyma Lions starfinu, sem er bara skemmtun og eiginlega ekkert starf. Þetta var góð og skemmtileg heimsókn.
Tveir á tali + Þorvaldur og Malin 19.03.2026 1:04:21
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fóru í keppni í fjórgangi hjá Uppsveitadeildinni í byrjun mars mánaðar. Í framhaldinu fengum við Þorvald Loga Einarsson og Malin Andersen í spjall um þau sjálf, hestamennsku og keppni og lífið og tilveruna. Þetta unga fólk á framtíðina fyrir sér í sinni vinnu og áhugamáli og verður spennandi að fylgjast með þeim. En í augnablikinu er hægt að hlusta á þau...
Aldís Hafsteinsdóttir 11.03.2026 1:00:14
Hrunamaðurinn og Hvergerðingurinn Aldís Hafsteinsdóttir kom og spjallaði á léttu nótunum, eins og hennar er von og vísa, um heima og geima. Lífið og tilveruna, æskuna, vinnurnar, skólana, fjölskylduna og fleira. Þó ung sé þá hefur hún náð að afreka margt og ferilskráin myndi vera nokkrar blaðsíður. Hressilegt viðtal við hressa konu.
Magnús Kjartan og Tveir á tali 04.03.2026 1:18:00
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu góðan gest en Magnús Kjartan Eyjólfsson úr Stuðlabandinu kom í heimsókn. Á skemmtilegan hátt fór hann yfir æskuna, uppvöxtinn og ferilinn. Hvernig það er að flétta saman vinnunni og fjölskyldunni. Hvernig það er að stjórna Brekkusöngnum fyrir mis margmennri brekku og margt fleira. Hlustun gerir mann sögum ríkari.
Magnús Orri - Rauðukambar 25.02.2026 1:06:52
Magnús Orri Marínarson Schram kom til mín og kynnti fyrir okkur Rauðukamba í Þjórsárdal. Þar er verið að byggja hótel og baðstað sem er merkilegt sökum þess að hótelið og baðstaðurinn er inni í fjalli með frábæru útsýni suður yfir landið. Þegar hótelið opnar verður það með stærri vinnustöðum í sveitunum og líklega verður uppbygging í kring um hótelið talsverð. Það verður spennandi að fylgjast með...
Laugarás lagoon - Bryndís og Gísli 18.02.2026 1:08:35
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, skruppu í Laugarás lagoon til að baða sig og fá sér eitthvað í gogginn. Þar hittum við Bryndísi Björnsdóttur, framkvæmdastjóra, og Gísla Matthías Auðunsson, matreiðslumeistara, og þau kynntu fyrir okkur Laugarás lagoon og veitingastaðinn Ylju. Það er skemmst frá að segja að bæði veitingastaðurinn og lónið eru frábærlega vel heppnuð og flottur nýr áfangas...
Bara tveir á tali 04.02.2026 1:02:03
Við sátum tveir Jónas Yngvi og Árni Þór og fórum yfir það sem er efst á baugi í Uppsveitunum. Danir eru áberandi á Flúðum, þorrablót í fullum gangi, sum búin önnur ekki, íþróttastarf, skák, félagsstarf. Matarhornið var á sínum stað.
Atli og Alda 28.01.2026 1:20:51
Þau setja sterkan svip á mannlífið og eru ófeimin við að prófa eitthvað nýtt. Atli Lilliendahl og Alda Björk Lilliendahl Ólafsdóttir komu í spjall og sögðu frá stórmerkilegu lífshlaupi sínu, Grænland, Svíþjóð, England, svo nefnd séu einhver lönd sem þau bjuggu í áður en þau hittust fyrir tilviljun hér á landi. Þau eru með ótal járn í eldinum og maður veltir helst fyrir sér hvernig sólarhringurinn...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.