Jónas
Uppsveitakastið
Spjall og hugleiðingar um menn og málefni í uppsveitum Árnessýslu
Author
Jónas
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 2, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rakel Theódórsdóttir - Byggðaþróunarfulltrúi 21.01.2026 1:07:47
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu til sín góðan gest. Rakel Theódórsdóttir, nýr byggðarþróunarfulltrúi uppsveitanna, kom í heimsókn og sagði okkur frá sér og sínum högum. Hún hefur komið víða við, afgreitt kaffi í London, unnið í Friðheimum, aðstoðað ferðamenn í vanda og bara alls konar. Núna er hún sem sagt orðin byggðaþróunarfulltrúi og leiðir okkur í allan sannleik um hvað það s...
Stefán Þorleifsson 14.01.2026 1:02:11
Í þessum þætti er tekið hús á Stefáni Þorleifssyni, tónlistarmanni og kennara (og margt fleira). Hann tók á móti okkur í Tónsmiðju Suðurlands og við ræddum lífshlaupið, tónlistina, kennsluna og margt fleira. Stefán er lífsglaður og hláturmildur með skoðanir á hlutunum og við hefðum getað talað mikið lengur um tónlist og kennslu. Því miður voru einhverjir tæknilegir örðugleikar á upptöku spyrils þ...
Árný Fjóla og Daði Freyr 01.01.2026 1:03:33
Á nýársdag gáfu Árný Fjóla og Daði Freyr sér tíma til að kíkja við og spjalla við okkur í Tveir á tali. Við ræddum um tónlistina og myndlistina og bara flest milli himins og jarðar. Eurovision bar á góma ásamt leiklist í FSU og þar sem Árni Þór var einn af stjórnendum var auðvitað rætt um körfubolta. Það var virkilega gaman að fá þessa ungu listamenn í heimsókn og heyra aðeins af þeirra lífi.
Tveir á tali - Við hvorn annan 17.12.2025 1:10:27
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, spjalla um desember, jólin, hefðir og allt sem tengist jólunum...og þeim sjálfum. Pínulítið sjálfhverfur þáttur þar sem farið er um víðan völl. - Valið á uppsveitamanni ársins er í gangi og nokkrar tilnefningar hafa borist en við hvetjum alla sem hafa tillögur að hafa samband.
Guðmundur skólastjóri 10.12.2025 1:05:18
Guðmundur Finnbogason, skólastjóri Þjórsárskóla, mætti í létt spjall. Við spjölluðum um daginn og veginn, skátastarf, náttúruna, æskuna, menntamál, eldamennsku og margt fleira. Guðmundur hefur komið víða við og segir frá sér og sínum verkum í þessu hressilega spjalli.
Tveir á tali á Sæsabar 03.12.2025 1:02:05
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, brugðu sér af bæ og kíktu inn á Sæsabar. Auðvitað var talað við Sæsa sjálfan, eða Sævald Þór Eyþórsson, um barinn og lífið og tilveruna. Eins fengum við annan góðan gest en Sigurður Emil Pálsson, eða bara Siggi, sem vann Blítt og létt keppnina í ML kíkti við og tók lagið fyrir okkur. Ekki má gleyma að í lokin var sungum við jólalag þar sem þátturinn var...
Sylvía Karen Heimisdóttir - Sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps 26.11.2025 56:30
Hver er Sylvía Karen Heimisdóttir, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps? Hún kom í spjall í Uppsveitakastið. Við ræddum um æskuna á Selfossi, nám, störf, fjölskylduna og áhugamál. Það var gaman að kynnast konunni bak við titilinn í skemmtilegu og þægilegu spjalli.
Tveir á tali - Björgunarsveitin Eyvindur, Einar og Tobias 19.11.2025 1:09:19
Tveir á tali, þeir Jónas og Árni, fengu góða gesti í þáttinn. Einar Hjörleifsson og Tobias Ölvisson frá Björgunarfélaginu Eyvindi kíktu til okkar og sögðu okkur frá starfinu og Eyvindi. Tveir hressir strákar sem brenna fyrir því að láta gott af sér leiða. Eins fórum við yfir það sem okkur hafði borist til eyrna í atburðum og uppákomum sem eru á næstunni í uppsveitunum.
Heilsugæsla uppsveitanna 04.11.2025 1:04:50
Tveir á tali, þeir Jónas og Árni, fengu góða heimsókn enda tilefnið ærið. Nú er heilsugæslustöðin í Laugarási að flytja sig um set, þó ekki í fyrsta skipti en uppsveitirnar sem læknishérað urðu til 1899 og var fyrsti læknirinn staðsettur í Grímsnesi. Í Laugarási hefur hins vegar verið læknir frá 1922 eða í 103 ár. Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, kom til okkar í spjall um fyrirhugaðan flutning á...
Vörðukórinn - Ferðasaga frá Skotlandi 29.10.2025 1:57:19
Dagana 21.-26. október fór Vörðukórinn til Skotlands til að syngja í St. Mary's Parish Church í Haddington nálægt Edinborg. Ég gat komist með sem maki og tók upp nokkur tóndæmi í ferðinni. Tónleikarnir voru sungnir með skoskum kór, The Garleton Singers, og lauk með að báðir kórar sungu saman þjóðsönginn okkar. Algert gæsahúðamóment. Þessi þáttur er ferðasaga með tóndæmum og ég þakka bara fyri...
Sölvi Arnarson - Efstidalur 22.10.2025 1:19:04
Í þáttinn Tveir á tali kom góður gestur. Við, Jónas og Árni, tókum á móti Sölva Arnarsyni veitingamanni í Efstadal og í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Sölvi kynnti fyrir okkur ísinn og salatostinn sem þau gera í Efstadal og sagði okkur um leið frá ferðaþjónustunni sem hann ásamt systrum sínum og fjölskyldum reka. Eins sagði hann okkur af rekstri Héraðsskólans á Laugarvatni en þar reka þau gistiheim...
Sigurjón Sæland - Leikdeild UMF Bisk. 15.10.2025 1:00:30
Sigurjón Sæland kom í heimsókn og kynnti nýjustu afurð leikdeildar UMF Bisk. en það er leikritið 39 & hálf vika eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ólafar Sverrisdóttur. Leikritið er gamanleikrit í farsastíl þar sem meðganga er viðfangsefnið og eins og einkennir góð gamanleikrit þá er eitthvað um misskilning og rangtúlkanir og svo vonandi leysist allt að lokum. Þar sem sjón er sögu ríkar...
Tveir á tali - Hvað er að frétta? 08.10.2025 1:00:08
Jónas Yngvi og Árni Þór voru einir í þetta skipti með þáttinn tveir á tali. Nóg að tala um enda mikið um að vera í uppsveitunum. Við fórum yfir allt sem netleit okkar hafði leitt í ljós og segjum frá uppákomum, fundum, skemmtunum, sveitarstjórnarmálum o.fl. Hrekkjavakan á stóran sess og eins tölum við aðeins um Ylju, nýja veitingastaðinn í Laugarási. Friðheimar eru alltaf að gera góða hluti og þan...
Björgvin Skafti Bjarnason 01.10.2025 1:06:59
Skafti kíkti í heimsókn og við spjölluðum um hvað á daga hans hefur drifið. Hann talaði um æskuna í Skeiðháholti, árin í Gósen, sveitarstjórnarmál og við ræddum aðeins um Parkinson sjúkdóminn. Skafti er líka hagyrðingur og það gæti vel verið að einhver vísa skjóti upp kollinum.
Karl Hallgrímsson 24.09.2025 1:07:52
Karl Hallgrímsson er deildarstjóri í Reykholtsskóla í Bláskógabyggð. Hann er líka tónlistamaður. Hann tók sig til og fór í Háskóla Íslands til að læra um stjórnun menntastofnana og skrifaði ritgerðina "Röfl um mengi og magann á beljum". Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, vildu fræðast meira um ritgerðina og líka manninn og hann kom til okkar og sagði okkur frá sjálfum sér, tónli...
Helga Jóhanna 17.09.2025 50:58
Helga Jóhanna er athafnakona sem lætur ekkert stoppa sig. Nýlega var hún kjörin formaður suðurlandsdeildar FKA en það er ekki eina járnið sem hún hefur í eldinum. Hún rekur gistiheimili ásamt eiginmanni sínum, hefur sungið á plötur, gefið út bækur og margt fleira. Eins hefur hún tekið að sér að gefa saman hjón á hinum ýmsu stöðum. Helga er hvergi hætt og lítil hætta á að hún rykfalli í rólegheitum...
Tveir á tali með fjallkóngum 10.09.2025 1:01:40
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, tóku á móti 3 fjallkóngum en það eru Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, fjallkóngur Biskupstungna, Guðmundur Árnason, fjallkóngur Gnúpverja og Ingvar Hjálmarsson, fjallkóngur austurleitar Flóa- og Skeiða. Þeir ræddu göngur og þær áskoranir sem þeim fylgja. Rætt var um réttirnar, sauðfé og í raun allt sem sneri að fjallferðum og sauðfjárbúskap. Eins var talað...
Lína Björg Tryggvadóttir 03.09.2025 55:13
Lína Björg Tryggvadóttir, byggðaþróunarfulltrúi, kom í þáttinn og talaði um uppsveitirnar og starf sitt hjá þeim. Hún fór yfir verkefni sín og fræddi mig meðal annars um möguleika til styrkja vegna nýsköpunar. Fróðlegt og skemmtilegt viðtal.
Matthías Bjarnason - Sveitarfélagið Árnessýsla 27.08.2025 55:23
Matthías Bjarnason mætti til okkar til að tala um lokaverkefnið sitt í opinberri stjórnsýslu við Háskólann á Bifröst. Verkefnið heitir Sveitarfélagið Árnessýsla og í því er fjallað um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna í Árnessýslu, áskoranir og tækifæri sem slíkri sameiningu fylgir. Forvitnilegt verkefni þar sem ekki er leitast við að komast að einhverri niðurstöðu heldur að fjalla um verkefn...
Siggi í Skarði 21.08.2025 42:52
Sigurður Björgvinsson, eða Siggi í Skarði, kom í spjall. Hann ræddi uppvöxtinn í Reykjavík og sjómennsku. Svo ræddi hann fyrstu ár Búrfellsvirkjunar, vinnustaðinn, samfélagið og sveitina. Flutninginn af mölinni og Skarð. Sönginn og kórastarfið. Það var gaman að spjalla við Sigga Bjögg eins og alltaf
Grímsævintýri - Laufey Guðmundsdóttir 13.08.2025 59:55
Grímsævintýri er skemmtun sem haldin er í Grímsnes- og Grafningshrepp á hverju ári. Laufey Guðmundsdóttir kom í heimsókn og kynnti fyrir okkur hátíðina og eins Kvenfélag Grímsneshrepps sem stendur að Grímsævintýri. Tombólan er fastur liður en í ár verður hún 99 ára gömul. Það er mikið um að vera og kvenfélagið síungt og fjörugt. Við hvetjum alla til að kíka og skemmta sér og öðrum.
Hestakráin með nýja eigendur 06.08.2025 49:50
Í vor keyptu þau Helgi Haukur Hauksson og Helga Margrét Friðriksdóttir Hestakránna. Í tilefni af því skrapp Uppsveitakastið í heimsókn og hitti Helgu. Það er mikið að gera hjá þeim en auk þess að reka Hestakránna reka þau einnig Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal auk þess að vera með útleigu á gistingu og að standa í flugningum. Það er bjart framundan hjá þessu unga fólki og spennandi tímar.
Sólheimar í Grímsnesi 30.07.2025 1:08:38
Tveir á tali brugðu undir sig díselfætinum og fóru í heimsókn að Sólheimum í Grímsnesi. Þar tóku á móti okkur Kristín Björg Albertsdóttir, framkvæmdastjóri, og Kristófer Agnarsson listamaður. Þau fræddu okkur um fjölbreytta starfssemi Sólheima en þar má finna listasmiðjur, verslanir, kaffihús og margt fleira. Það var gaman að rölta um Sólheima og skoða þorpið. Á myndinni er Kristófer Agnarsson, l...
Pálmi Gunnarsson 23.07.2025 1:18:05
Í dag fagnar Uppsveitakastið árs afmæli en þann 22.07.2024 kom fyrsti þátturinn út. Viðmælandi dagsins er hinn góðkunni Pálmi Gunnarsson bassaleikari og söngvari. Við ræddum saman um náttúruna, silunga, sjónvarpsþætti, bækur og margt fleira. Eins var spjallað um tónlistina og helstu áhrifavalda. Pálmi hefur frá mörgu skemmtilegu að segja. Við ræddum um verndun silunga og uppbyggingu veiðistaða....
Tveir á tali - Sumarspjall 16.07.2025 59:02
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fara yfir það helsta sem er um að vera í uppsveitunum þennan mánuðinn. Skoðum dagskrána á útihátíðinni Flúðir um versló og þar verður nóg um að vera, Umferðarhornið er á sínum stað. Leikhópurinn Lotta fær glimrandi umsögn.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.