Jónas

Uppsveitakastið

Society IS ↓ 84 episodes

Spjall og hugleiðingar um menn og málefni í uppsveitum Árnessýslu

Author

Jónas

Category

Society

Latest episode

Jul 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Einar Gíslason, Kjarnholtum 09.07.2025

Ég skrapp í heimsókn til Einars í Kjarnholtum og spjallaði við hann um lífið og tilveruna. Hvernig var að alast upp í Biskupstungum, skólagönguna, mannlífið og fleira. Um leið og við nutum útsýnis yfir sveitina spjölluðum við um daginn og veginn, gamla tíma og nýja. Góð heimsókn og fræðandi.

Heiðrún Kristmundsdóttir 02.07.2025

Heiðrún Kristmundsdóttir frá Haga er ein af forsprökkum körfuboltabúða á Flúðum í júlí. Karfan á hug hennar allan og hún hefur komið víða við. Spilað og þjálfað.... annars er bara best að hlusta á hana tala um körfuna, sveitina, hestana og allt sem gaman og skemmtilegt er að gera. Það er ekki að vita nema eitthvað nýtt skjóti upp kollinum sem enginn vissi fyrir. Spurningin er: Á Heiðrún sér uppáha...

Hallbera Gunnarsdóttir 18.06.2025

Hallbera Gunnarsdóttir er kennari, söngvari, útivistafrömuður og helling fleira. Hvað kom til að ákveðið var að sofa í tjaldi allan ársins hring? Af hverju eru haldnir tónleikar úti á Laugarvatninu sjálfu?  Hallbera kíkti í spjall til okkar í Tveir á tali og fór yfir lífshlaupið og hvernig hægt er að hafa gaman að einföldu hlutunum.  Minnum líka á tónleikana á Laugarvatni þann 27.06.2025

Magnús Bjarki - Björgunarsveitin Ingunn 11.06.2025

Á Laugarvatni er árlega haldið hlaup sem kallast Gullspretturinn. Í ár er það haldið þann 14.06. Magnús Bjarki Snæbjörnsson, formaður björgunarsveitarinnar Ingunnar á Laugarvatni, kom og kynnti þennan viðburð fyrir mér. Eins sagði Magnús frá fjölbreyttu starfi sveitarinnar og var þar greinilega nóg um að vera. Ég hvet alla sem hlusta til að kíkja á Gullsprettinn og sjá keppendur hlaupa þennan hrin...

Tveir á tali - Upp í sveit 04.06.2025

Eins og okkar er vísa þá eru tveir á tali að spjalla um allt sem gerist í uppsveitunum og við vitum af. Ástráður Unnar Sigurðsson kom og sagði okkur frá sumarhátíðinni í Skeiða- og Gnúpverjahrepp en hún kallast Upp í sveit. Ljóst er að dagskráin verður fjölbreytt og eins og fyrri ár gaman að taka þátt. Hvað þar gerist kemur í ljós við hlustun á þáttinn nú eða með því að mæta og upplifa. Tveir á ta...

Björg Eva Erlendsdóttir 28.05.2025

Björg Eva er mörgum vel kunnug. Fædd í Gnúpverjahreppnum og sérstakur áhugamaður um náttúruvernd. Hún er framkvæmdastjóri Landverndar og nýtir sumarfríið til landvörslu. Við ræddum um uppvaxtarárin á Hamarsheiði, Þjórsána, Þjórsárdalinn, virkjanir og vindmyllur svo eitthvað sé nefnt. Skemmtilegt og fróðlegt spjall um náttúru í nútíð og framtíð.

Tveir á tali - Enduro 21.05.2025

Heimir Sigurðsson frá Hreppaköppum kynnti Enduro keppni. Eins var farið yfir fundargerðir og fleira. Fréttir og skemmtanir. GÓSS í Friðheimum og fullt í viðbót.

Tveir á tali - Pálmi Hilmarsson 07.05.2025

Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór fengu Pálma Hilmarsson í heimsókn. Pálmi er nemendum Menntaskólans að Laugarvatni að góðu kunnur því hann hefur verið staðahaldari þar í þónokkur ár. Pálmi sagði okkur frá sögu ML og skólahalds að Laugarvatni og skaut inn nokkrum skemmtisögum í leiðinni. Skemmtilegt og fróðlegt spjall og við vitum að hlustendur kvarta ekki þó aðeins hafi lengst í annan en...

Tveir á tali (26) 23.04.2025

Jónas Yngvi og Árni Þór settust niður að loknum páskum og fóru yfir það sem stóð uppúr um páskana og eins hvað er framundan. Páskaeggin og málshættirnir fengu sinn skammt ásamt nýjum lið sem er matarhorn, enda báðir miklir matgæðingar. Við stefnum að því að kíkja á veitingastaði í uppsveitum og smakka það sem er í boði og ræða okkar upplifun. Í þessum þætti var mætt á nýjan austurlenskan veitingas...

Haraldur Þór Jónsson - oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps 16.04.2025

Haraldur Þór Jónsson - oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps fer yfir stöðu sveitarfélagsins þegar tæp 3 ár eru liðin af kjörtímabilinu. Litið er yfir farinn veg og rætt um hvað hefur áunnist og hvað er eftir. Staða sveitarfélagsins, virkjanamál, veiðifélagið, Samfylkingin og margt fleira. Hvað er framundan? Mun Samfylkingin bjóða fram í sveitarfélaginu, eða verður Haraldur áfram með Samvinnulistann?...

Tveir á tali -- um allt og ekki neitt 09.04.2025

Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, spjalla um hvað er efst á baugi í uppsveitunum þessa dagana. 

Nils Guðjón - Heildrænar meðferðir 02.04.2025

Nils Guðjón kom i spjall á dögunum. Hann er best þekktur sem Nils nuddari en hann gerir bara svo mikið meira. Hann fór yfir ferilinn frá því hann var peyji á Bergstaðarstrætinu til Ólympíuleikanna í París. Forvitnilegt og skemmtilegt spjall.

Tveir á Tali. Djöflaeyjan - Menntaskólinn að Laugarvatni 26.03.2025

Menntaskólinn að Laugarvatni hefur verið að sýna Djöflaeyjuna við góðar undirtektir. Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu í heimsókn þau Stefaníu Maren Jóhannsdóttur og Daníel Aron Bjarndal Ívarsson sem leikstýrðu verkinu. Mikið var spjallað um verkið og eins um skólann. Samkvæmt þeirra hlutlausu frásögn þá er ML víst besti skóli landsins en það er víst betra að hlusta á þáttinn og he...

Ævar Austfjörð 19.03.2025

Ævar Austfjörð kíkti við til að fræða mig og aðra um eitt og annað. Auðgandi landbúnaður er eitt af hans hugðarefnum og hann ræddi um þá aðferð og kynnti um leið ráðstefnu sem haldin verður þann 02. apríl á hótel Hilton. En það var ekki allt því hann kynnti einnig þann lífsstíl að borða einungis dýraafurðir. Þetta var forvitnilegt og skemmtilegt spjall sem gaman var að taka þátt í.

Tveir á tali 12.03.2025

Jónas Yngvi og Árni Þór fóru vítt og breitt yfir málefni uppsveitanna. Hinn sívinsæli liður, Lesið úr fundargerðum sveitarstjórna, er á sínum stað en einnig er farið yfir viðburði og fréttatilkynningar sem okkur hafa borist.  Ef menn vilja koma einhverju á framfæri þá er um að gera að hafa samband við okkur. Tveir á tali koma alltaf út á tveggja vikna fresti.

Sex í sveit 05.03.2025

Björk Jakobsdóttir, leikstjóri, kom í spjall ásamt eiginmanninum, Gunnari Helgasyni. Björk hefur undanfarna mánuði verið að leikstýra leikdeild UMFG í verkinu Sex í sveit eftir Marc Camoletti í heimfæslu og þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Rætt var um sýninguna og svo allt annað og mikið meira. Eftir spjallið fór ég á leiksýninguna og er skemmst frá að segja að úr varð hin besta skemmtun og ég hvet...

Tveir á tali - Bragi kíkti við 26.02.2025

Tveir á tali eru: Jónas Yngvi og Árni Þór. Bragi Viðar Gunnarsson, formaður Jökuls, kom í heimsókn og fræddi okkur um þetta nýja félag. Létt spjall um hestamennsku og sport, tamningar og keppnir, inni og úti, sumar og vetur.  Eins fórum við yfir hvað er á döfinni í uppsveitum. Kíkt í fundargerðir sveitarstjórna og létt skoðun á félagslífinu framundan. 

Odda - Oddrún Ýr Sigurðardóttir 19.02.2025

Í þessum þætti er spjallað við Oddu. Hún bregður sér í mörg hlutverk í daglega lífinu: kennari, hestadómar, kennsla og svo keypti hún ásamt eiginmanni sínum honum  Þorra keypti Garðyrkjustöðina Reykás fyrir um ári síðan. Hún sagði mér frá baráttunni við að reka garðyrkjustöð meðan raforkan hækkar og hækkar.  Þetta er ekki raunasaga heldur sterk kona að reyna ásamt manninum sínum að gera drauminn a...

Tveir á tali 12.02.25 12.02.2025

Nú er komið að tilraun hjá Uppsveitakastinu. Árni Þór Hilmarsson og Jónas Yngvi Ásgrímsson fara yfir það sem er á döfinni í uppsveitunum. Skoðaðar eru fundargerðir sveitarstjórna og molar lesnir úr þeim.  Stefnt er að því að hafa þessa þætti reglulega og væri vel þegið ef klúbbar, félög, fyrirtæki, einstaklingar láti okkur vita af viðburðum eða bara hverju því sem koma má á framfæri. Gestum verður...

Fjóla Kristinsdóttir 05.02.2025

Fjóla Kristinsdóttir er nýr sveitarstjóri í Grímsnes- og Grafningshreppi. Hún fer hér yfir uppvöxt á Selfossi, námið, störfin og áhugamálin.  Fjóla hefur mikla reynslu í störfum tengdum fjármálum ásamt því að hafa unnið við margvísleg störf á sveitarstjórnarstigi.  Það var gaman að spjalla við hana og hún á líklega eftir að koma aftur enda hefur hún frá mörgu að segja.

Árni Þór Hilmarsson 15.01.2025

Árni Þór Hilmarsson kíkti í spjall um lífið og tilveruna, kennsluna, íþróttir, sveitalífið, tónlistina o.fl. Skemmtilegt spjall og farið víða um. 

Sigurður Ingi 01.01.2025

Um leið og Uppsveitakastið óskar hlustendum sínum gleðilegs nýs árs og þakkar samfylgdina á nýliðnu ári er nýr þáttur settur í loftið. Hreppamaðurinn Sigurður Ingi Jóhannsson fer hér í stuttu máli yfir lífshlaup og feril. Það er líklega óhætt að segja að fáir ráðherrar hafa stjórnað jafn mörgum ráðuneytum og hann. Bóndi, dýralæknir, þingmaður, ráðherra. Það var mjög gaman að fá að heyra í honum va...

Óskar í Hruna 18.12.2024

Í þessum þætti af Uppsveitakastinu er spjallað við Óskar Hafstein Óskarsson eða Óskar í Hruna. Farið er um víðan völl, rætt um preststarfið, jólin, búskapinn og margt fleira. Óskar er viðræðugóður og gaman er að heyra hvað á daga hans hefur drifið.  Þátturinn er styrktur af Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Björgvin G. Sigurðsson - Þjórsárdalur 20.11.2024

Björgvin G. Sigurðsson hefur komið víða við. Hann hefur verið þingmaður, ráðherra, kennari, leiðsögumaður o.fl. Núna er hann að rita sögu Þjórsárdals. Hann kom í heimsókn og sagði frá sinni sögu og eins sögu Þjórsárdalsins. Skemmtilegt spjall og áheyrendur verða margs vísari um Þjórsárdalinn og byggð þar. Þátturinn er styrktur af Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeið...

Heilsueflandi Uppsveitir - Gunnar Gunnarsson 06.11.2024

Gunnar Gunnarsson segir frá verkefninu Heilsueflandi Uppsveitir.  Hann segir frá hvernig heilsuefling bætir ekki aðeins líkamlega líðan heldur andlega einnig. Heilsuefling á sér þrjár hliðar, líkamlega, andlega og félagslega. Gunnar segir hvernig efling þessara þátta eflir og styrkir. En heilsueflandi er líka meira. Gunnar segir frá hvernig tókst til með fjölmenningadag uppsveitanna. Þátturinn er...

Listen to the Uppsveitakastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.