Jónas
Uppsveitakastið
Spjall og hugleiðingar um menn og málefni í uppsveitum Árnessýslu
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: uppsveitakastid.buzzsprout.com
Autor
Jónas
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
11 nov. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Tveir á tali - Hvað er um að vera? 11.11.2026 55:20
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fara um víðan völl, en þó mest í uppsveitunum. Fjallað um það sem fannst á vefsíðum og tengdist uppsveitunum.
Þingmaður sunnlendinga - Ingveldur Anna Sigurðardóttir 04.11.2026 1:23:31
Við fengum nýjasta þingmann okkar sunnlendinga í spjall en Ingveldur Anna Sigurðardóttir kom í heimsókn. Hún fer hérna yfir æskuna undir Eyjafjöllum, árin í Búðardal og síðan aftur flutninginn heim í sveitina. Hún fór óvænt inn á þing í sumar og hefur þegar markað sér spor. Hér er um að ræða ungan og öflugan fulltrúa okkar á þingi sem á efalaust eftir að láta meira að sér kveða í framtíðinni.
Edda Jónsdóttir - Félagsheimili Hrunamanna 28.10.2026 1:09:40
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, heimsóttu hið stórglæsilega Felagsheimili Hrunamanna. Edda Jónsdóttir tók á móti okkur og fræddi okkur um hugmyndina bak við félagsheimilið. Góður opnunartími og alltaf heitt á könnunni. Þarna er hægt að setjast niður og glugga í bækur og blöð, spjalla yfir kaffibolla hitta nágrannana og eiga rólega stund í amstri dagsins. Í félagsheimilinu er líka önnur...
Þingmaður sunnlendinga - Sigurður Helgi Pálmason 22.10.2026 1:31:55
Sigurður Helgi Pálmason er sjöundi þingmaður sunnlendinga. Hér fer hann yfir lífshlaup sitt, æskuna í Garðabæ, fjölskylduna, skólann á Eiðum, sjómennskuna, tónlistina, þættina Fyrir alla muni og náttúrulega þingmennskuna. Stórskemmtilegt og opið spjall og hann hafði frá mörgu spennandi að segja.
Afsakið hlé - Leikfélagið Borg 14.10.2026 56:00
Nú brugðu tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, undir sig bensín- og rafhlöðufótunum og heimsóttu Leikfélagið Borg. Þar er verið að æfa leikrítið Afsakið hlé sem er gamanleikrit og fjallar um lífsins vandamál sem Ævar Eiður er að glíma við og reyna að leysa með aðstoð vina sinna. Við sögu koma Helgi Dagur, Mist Eik og Leifur Arnar. Við ræddum við leikarana auk þess að heyra í formanni leikf...
Þingmaður sunnlendinga - Sandra Sigurðardóttir 09.10.2026 1:22:08
Nýjasti þingmaður okkar sunnlendinga er Sandra Sigurðardóttir, VIðreisn. Hún er úr Hveragerði eins og fleiri þingmenn og hefur verið þar í bæjarmálapólitíkinni. Hún hefur komið víða við og má vel segja að hún óttast ekki að taka að sér flókin og á tíðum erfið og krefjandi verkefni. Betur frá því í þessu spjalli okkar og ég hvet alla til að kynnast henni og fyrir hvað hún stendur.
Kvenfélög uppsveitanna 30.09.2026 1:05:28
Til mín komu tvær frábærar konur, þær Marta Esther Hjaltadóttir frá Kvenfélagi Hrunamannahrepps og Lára Bergljót Jónsdóttir frá Kvenfélagi Skeiðahrepps. Þær komu til að kynna fyrir okkur sameiginlegt verkefni kvenfélaganna í uppsveitum Árnessýslu en það er Skemmtikvöld í góðum félagsskap í Árnesi 02.09. Þetta kvöld er haldið í tilefni af viku einmannaleikans, ókeypis inn og mikið um dýrðir. Um lei...
Þingmaður sunnlendinga - Guðrún Hafsteinsdóttir 23.09.2026 1:35:26
Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður okkar sunnlendinga og formaður Sjálfstæðisflokksins, kom í spjall í fyrstu haustlægðinni. Guðrún hafði frá mörgu að segja, æskunni og uppvextinum í Hveragerði, lífinu með Kjörís, samheldinni fjölskyldu, ferðalögum á fjöllum og svo auðvitað pólitíkinni. Guðrún brennur fyrir landi og þjóð og veit ekkert betra en að ferðast um hálendið og kynnast náttúrunni. Það var...
Heimir Karlsson 16.09.2026 55:40
Uppsveitakastið heimsótti Heimi Karlsson í Grímsnes- og Grafningshreppnum. Þar hefur hann, ásamt eiginkonu sinni, búið sér heimili á fallegum friðsælum stað í kjarrinu. Heimir talaði um æsku sína í smáíbúðahverfinu í Reykjavík, íþróttirnar, árin á Stöð 2, Holland, England og síðan mogunútvarpið á Bylgjunni. Heimir er einn af þeim fáu sem hefur spilað landsleiki bæði í handbolta og fótbolta og eins...
Þingmaður sunnlendinga - Ásta Lóa Þórsdóttir 09.09.2026 1:13:24
Þingmenn sunnlendinga hafa fengið boð um að koma í Uppsveitakastið. Fyrst til að mæta var Ásta Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins og fyrsti þingmaður suðurlands. Ásta Lóa hafði frá mörgu skemmtilegu að segja um það sem hefur á daga hennar drifið. Uppvöxturinn í Reykjavík og síðan Mosfellssveit, Kvennaskólinn, Suður- Afríka og margt fleira. Í eftirköstum hrunsins tók hún síðan upp...
Tveir á tali - um allt og ekki neitt 02.09.2026 59:16
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, ræddu um veturinn framundan og hvað er í boði. Það bendir allt til þess að íþóttastarf verði mjög spennandi í öllum sveitarfélögum, og svo eru það klúbbar og allt.
Lilja Zohra 26.08.2026 1:01:49
Í Reykholti býr Lilja Zohra ásamt manni sínum. Lilja er þúsundþjalasmiður, en þau reka lítið fyrirtæki þar sem þau framleiða út við ýmislegt skorið út með lazer. En það er ekki nóg. Lilja heldur úti tveim hlaðvarpsþáttum í félagi við aðra og er auk þess í fullu starfi sem rekstrarstjóri. Svo finnur hún líka tíma fyrir áhugamálin í viðbót við allt þetta. Það var virkilega gaman að fá hana í heimsók...
Ragnheiður Georgsdóttir og Farmers Bistro 19.08.2026 57:49
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, skruppu í Farmers Bistro til að fá sér að borða og fræðast um leið um Ragnheiði Georgsdóttur, Farmers Bistro, Flúðasveppi, garðyrkjustöðina, hrossarækt o.fl. Það er skemmst frá að segja að við forum þaðan mettir og glaðir og heilmikið fróðir um sveppi og sveppasúpu.
Axel Á. Njarðvík 12.08.2026 59:51
Eftir sumarfrí Uppsveitakastsins lá leiðin í Eystra-Geldingaholt þar sem sr. Axel Á. Njarðvík tók á móti mér og bauð mér til stofu í einu af elstu húsum sveitarinnar. Við tók skemmtilegt ferðalag um sögu hússins og um leið sögu sveitarinnar. Axel hafði frá mörgu að segja, uppvöxtur í Reykjavík, vinnu, nám og svo flutningurinn í sveitina þar sem við tóku ný verkefni. Axel er umhugað um náttúruna og...
Mikki og Filip á Mika 02.07.2026 1:05:49
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, brugðu undir sig betri fætinum og fóru á hið margrómaða Mika Restaurant í Reykholti. Þar hittum við fyrir Michał Jerzy Józefik eða Mikka og Filip Jan Józefik. Mikki stofnaði Mika ásamt konu sinni Bożenu Józefik og nú er sonur þeirra kominn á fullt í reksturinn. Þau hjónin fluttu frá Póllandi og langaði bara ekki aftur til Póllands og í þættinum segir Mik...
Ásta Stefánsdóttir - sveitarstjóri Bláskógabyggðar 24.06.2026 47:23
Ásta Stefánsdóttir kom í heimsókn og hafði frá mörgu að segja. Sem ung stúlka stundaði hún frekar óhefbundnar veiðar með ömmu sinni, draumurinn um að verða kennari. vinnan hjá sýslumanni og síðar Árborg og eins kíkti dómarinn Ásta í heimsókn. Bláskógabyggð á hins vegar hug hennar allan síðasliðin ár, uppbyggingin, framkvæmdirnar og framtíðin. Það var virkilega gaman að hafa Ástu í spjalli. Hægt er...
Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir 17.06.2026 1:03:15
Nú duttu Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, heldur betur í lukkupottinn. Til okkar kom Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir og hafði heldur betur frá mörgu að segja. Uppvöxtur í Reykjavík, ferðalög, flutningur í Gnúpverjahrepp, hestamennska, reiðskólinn, búskapurinn og ég veit ekki hvað og hvað. Hægt er að nálgast þáttinn á Spotify og eins á heimasíðu þáttarins
Hrunamannahreppur 1150 ára og Gullspretturinn 10.06.2026 1:06:22
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu góða gesti í þáttinn. Fyrst kom Esther Guðjónsdóttir, fyrir hönd afmælisnefndar og kynnti fyrir okkur dagskrá afmælishátíðarinnar sem verður mjög viðamikil. Allir hvattir til að mæta. Eins kom Gríma Guðmundsdóttir og kynnti Gullsprettinn sem er utanvegahlaup í kring um Laugarvatn. Tveir spennandi viðburðir og tveir skemmtilegir viðmælendur.
Bessi Hressi - Bergsveinn Theódórsson 03.06.2026 1:11:31
Uppsveitakastið brá undir sig betri fætinum og heimsótti athafnamanninn og skemmtikraftinn Bessa á Flúðum. Bessi hefur heldur betur fundið sitt hlutverk í lífinu en það er að sjá til þess að allir geti skemmt sér og notið lífsins. Það eru ófáar skemmtanirnar sem hann hefur boðið uppá með það að markmiði að fólk komi saman og njóti samveru án þess að það kosti. Þegar þessi þáttur er að koma út er B...
Gestur frá Hæli 27.05.2026 1:15:59
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu góðan Gest í þáttinn. Þessi Gestur ræddi um íþróttastarf í Uppsveitum og var sannarlega ekki komið að tómum kofanum hjá honum. Hvort sem rætt var um frjálsar, golf, boltaíþróttir allt var í kollinum á okkar Gesti. Eðlilega komst ekki allt að á stuttum tíma en heyrn er sögu ríkari.
Tveir á tali um kosningar 20.05.2026 1:01:16
Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, tala um nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar. Um leið og Uppsveitakastið óskar sigurvegurum kosninganna til hamingju með úrslitin er öllum framboðum þökkuð drengileg barátta og góð kynni í þeim þáttum sem teknir voru upp í aðdraganda kosninganna. Í þessum þætti ræddum við úrslit kosninganna í hverju sveitarfélagi fyrir sig og bárum saman við síðustu kosn...
Kappræður framboða í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 13.05.2026 1:47:31
Þann 12. maí 2026 hittust E-listi og L-listi í kappræðum í Árnesi. Uppsveitakastið var á staðnum og tók kappræðurnar upp og afraksturinn birtist hér. Umræður voru líflegar en spurningarnar voru sendar inn með Slido kerfinu.
Oddvitaspjall GOGG 12.05.2026 1:23:26
Borg í Grímsnesi var þann 11.05.2026 vettvangur oddvitaspjalls þeirra Guðmundar Finnbogasonar, oddvita A-listans, og Andrésar Bertelsen, oddvita Ö-listans. Það var þétt setinn salur og góð stemmning. Farið var um víðan völl og málefnin rædd fram og tilbaka. Þetta var skemmtileg og fræðandi kvöldstund og væntanlega komu allir eitthvað fróðari heim að spjalli loknu.
T- listinn Bláskógabyggð 08.05.2026 58:20
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við T-listann í Bláskógabyggð. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
Þ-listinn Bláskógabyggð 08.05.2026 1:05:25
Uppsveitakastið tekur þátt í undirbúningi sveitarstjórnakosninga. Í þessum þætti kynnum við Þ-listann í Bláskógabyggð. Hér kynna þau stefnumál sín og hvað framboðið stendur fyrir.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice