Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
#174 – Jörðin skelfur og Marel titrar – Skattar hækka í Garðabæ 09.11.2023 48:15
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í Þjóðmálastofuna, þó ekki skjálfandi eins og jörðin. Í þættinum er meðal annars fjallað um skattahækkanir í Garðabæ, uppsögn forstjóra Marel, lokun Bláa lónsins og það hvernig fámennur hópur hefur komið í veg fyrir að íbúar á Suðurnesjum búi við raforkuöryggi, það hvort að verkalýðshreyfingin sé líkleg til að standa sameinuð að kjarasamningum, grein...
#173 – Stríð og friður í nútímanum – Stríðsfréttaritari Þjóðmála fer yfir stöðuna 06.11.2023 52:24
Kristján Johannessen, stríðsfréttaritari Þjóðmála og fréttastjóri á Morgunblaðinu, ræðir um stöðu mála í Úkraínu og fyrir botni Miðjarahafs. Rætt er um það hvort að innrás Rússa inn í Úkraínu falli í skuggann af átökum Ísraelsmenna við hryðjuverkasamtökin Hamas, hvernig vopnum er beitt á þessum svæðum, hvernig stuðningi Vesturlanda er háttað, hvaða hlutverki Ísland gegnir í þessu öllu saman og mar...
#172 – Grimmd fyrir botni Miðjarahafs – Yfirveguð umræða um hitamál 31.10.2023 1:23:55
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um átökin sem nú eiga sér stað fyrir botni Miðjarahafs, orsök þeirra og afleiðingar, hvort og þá hvernig afleiðingar þeirra koma fram í íslenskum stjórnmálum. Rætt er um söguna sem liggur þarna að baki, um grimma stefnu Hamas-samtakanna, hvernig tillagan um tveggja ríkja lausn hefur fallið um sjálfa sig, hvort að hægt sé að byggja undir hagsæld í Ga...
#171 – Markaðurinn lítill í sér – Vesen að eiga vildarpunkta – Bótaþegar á rafmagnsbílum 26.10.2023 56:00
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hlutabréfamarkað í ládeyðu, flókna stöðu Marel og það hvort að verið sé að skortselja félagið, erfiðleika þingmanna við að eiga vildarpunkta, um verkalýðsleiðtoga sem eru ekki takt við félagsmenn sína, gagnrýni formanns Samfylkingarinnar á skattalækkanir fyrir tekjulága, afslátt við sölu á hlut í Hampiðjunni, litla framleg matvöruverslana, ríkissty...
#170 – Heiðrún Lind stígur ölduna í ólgusjó 23.10.2023 1:03:31
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, ræðir um stöðu sjávarútvegsins, hvort að leyndarhyggja ríki yfir greininni eins og sumir stjórnmálamenn halda fram, möguleikann á frekar samþjöppun, um fiskeldi og tækifærin sem þar liggja, fjárfestingar og arðsemi og margt annað sem snýr að þessari mikilvægu atvinnugrein á Íslandi.
#169 – Afleiðingar óróleikans á hagkerfin – Lilja Dögg kíkir í Þjóðmálastofuna 18.10.2023 1:08:30
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, ræðir um stöðuna í efnahagslífinu hér heima og erlendis, hvaða áhrif átök hafa á hagkerfi heimsins og hvort að til sé að verða ójafnvægi í heimskerfinu út frá efnahag þjóða. Þá er rætt um stöðu ríkisstjórnarinnar, hvort það hafi virkilega verið bara best að kjósa Framsókn, Samkeppniseftirlitið og samskipti þess við atvinnulífið, stöðu fjöl...
#168 – Fjölskyldumynd í brotnum ramma á sunnudegi – Ríkisstjórn með kíki á blinda auganu – Hús Gyðinga merkt með stjörnu í Berlín 15.10.2023 1:01:30
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um stólaskipti innan ríkisstjórnarinnar, helstu verkefni hennar, hvaða mál hún er að einblína á – og ekki að einblína á – og hver skilaboð hennar eru. Þá er einnig fjallað um átökin fyrir botni Miðjarahafs og það vaxandi gyðingahatur sem við höfum því miður orðið vitni að síðustu daga.
#167 – Aukaþáttur – Bjarni segir óvænt af sér 11.10.2023 45:40
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða í sérstökum aukaþætti um aðdraganda og ástæður fyrir óvæntri afsögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Rætt er um álit umboðsmanns Alþingis og þá þau atriði sem þar koma fram, hvaða pólitísku afleiðingar afsögn Bjarna hefur, hvort að andstæðingar Bjarna hafi borið sigur úr býtum og margt annað sem þessu tengist.
#166 – Biðleikur Seðlabankans – Ráðherragrín eða ráðherrapirringur – Hrikalegir atburðir í Ísrael 09.10.2023 1:07:58
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um það hvort að ákvörðun Seðlabankans um að hækka ekki vexti í síðustu viku hafi átt að koma á óvart eða hvort um biðleik sé að ræða, um skrýtin viðbrögð við ráðherragríni og enn eitt höggið í innri samskipti ríkisstjórnarinnar, um sviptingar á fjármálamarkaði, um þá hræðilegu atburði sem áttu sér stað í Ísrael um helgina og furðuleg viðbrögð þeirra s...
#165 – Haustfundur með Þórði Pálssyni – 15 ár frá hruni – ESG staðlar sem enginn bað um 06.10.2023 1:09:38
Þórður Pálsson mætir í Þjóðmálastofuna og fjallar um aðdraganda og eftirmála fjármálahrunsins haustið 2008, þar sem nú eru liðin 15 ár frá þeim tíma. Við fjöllum um það hvort að staða Íslands hafi verið öðruvísi en annarra ríkja, hvort það sé eðli fjármálamarkaða að taka dýfur eða jafnvel hrynja með reglulegu millibili, hvort og þá hvernig hagkerfið hefur breyst síðan þá og margt fleira. Við tökum...
#164 – Er fasteignamarkaðurinn kominn út í stýrivaxtahorn? – Upptaka af fundi með FVH 05.10.2023 1:05:30
Félag viðskipta- og hagfræðinga, í samstarfi við Þjóðmál, stóð fyrir hádegisfundi þann 4. október sem ber yfirskriftina Er fasteignamarkaðurinn kominn út í stýrivaxtahorn . Á fundingum var rætt um nýja stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands, sem var birt fyrr um morguninn, og hvaða áhrif stefna Seðlabankans hefur á fasteignamarkaðinn og efnahaginn. Gestir fundarins voru þau Rannveig Sigurðardóttir,...
#163 – Páll Gunnar rennur á bananahýðinu – Fundargerðin sem hvarf – Erfiður hlutabréfamarkaður 27.09.2023 1:18:08
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson koma saman á ný. Í þættinum er rætt um smjörklípu verkalýðsforystunnar sem vill allt í einu skipta um gjaldmiðil, stöðuna á eldrauðum hlutabréfamarkaði, stjórnmálamenn sem boða umfangsmiklar aðgerðir við vandamálum sem ekki eru orðin, yfirlætisfulla lækna sem vilja banna alla hluti, vandræðagang Samkeppniseftirlitsins, gula spjaldið sem við gefum Willum Þó...
#162 – Winter is coming in the pólitík – Brim sigrar SKE – Reykjavík rekin á yfirdrætti og smálánum 21.09.2023 1:15:37
Andrés Jónsson og Friðjón Friðjónsson fara yfir sviðið á vettvangi stjórnmála nú þegar þingið er byrjað á ný, hvaða mál verða hitamál í pólitíkinni í vetur, hvaða mál eru ekki rædd, hvaða verkefni hefur ekki tekist að leysa og fleira í þeim dúr. Þá er rætt um stjórnsýsluklúður Samkeppniseftirlitsins og matvælaráðuneytisins, við förum yfir spurningar úr sal, tekin er umræða um yfirvofandi greiðsluþ...
#161 – Leitað til lögfræðings – Ruglingurinn um fullveldi og sjálfstæði – Dómarar í skjallbandalagi 18.09.2023 1:09:58
Bjarni Már Magnússon, prófessor og nýr forseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst og hafréttarsérfræðingur, ræðir um hafrétt og það hlutverk sem fagið gegnir í öryggis- og varnarmálum, um muninn á fullveldi og sjálfstæði þjóða, átök um umráðasvæði og nýtingu á Norðurslóðum, það hvort að alþjóðastofnanir séu að taka völd af þjóðríkjum og önnur flókin mál sem krefjast úrlausna. Þá er einnig fjallað...
#160 – Rauður markaður en hagsveifluleiðréttur frumjöfnuður er hugtak dagsins 13.09.2023 55:45
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson rýna fjárlög næsta árs og hvaða, eða öllu heldur hvort þau feli í sér einhver pólitísk skilaboð. Þá er rætt um horfur á vinnumarkaði, hvort að það séu einhverjar líkur á því að vextir fari lækkandi og margt fleira.
#159 – Helgarvaktin með Hildi Sverrisdóttur 08.09.2023 1:04:15
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um það helsta á vettvangi stjórnmálanna, ríkisstjórnarsamstarfið, hvort að pólitískt erindi Sjálfstæðisflokksins felist eingöngu í því að bæta eða breyta vondum málum í þinginu, hvernig pólitísk umræða endar oft út í skurði, hvort það sé rangt fyrir stjórnmálamenn að sækjast eftir völdum, hvaða flokk hún vildi síst vilja hafa á þingi og m...
#158 – Í gullleit á Grænlandi – Hetjusögur úr atvinnulífinu 05.09.2023 1:12:54
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ferðast með hlaðvarpi Þjóðmála til að skoða öfluga starfsemi Amaroq Minerals og þau áhrif sem hún hefur haft á atvinnuuppbyggingu á Suður-Grænlandi. Fjallað er um hetjusögur úr atvinnulífinu, breyting á þinginu, hvalveiðar og kvikmyndageirann, sektarsjóð Samkeppniseftirlitsins, innherjaupplýsingar á gjaldeyrismarkaði og margt annað.
#157 – „Maður er ekki ráðherra til að fá útrás fyrir sína villtustu drauma“ – Þriðja vaktin staðin að svörtum bakstri 31.08.2023 49:00
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson eru menn sem taka þriðju vaktina alvarlega. Þeir mæta í Þjóðmálastofuna og taka umræðu um vottaðar hvalveiðar, leikþáttinn í kringum skýrslu matvælaráðherra um sjávarútveginn, hvort það sé vandamál að bankar séu reknir með hagnaði, horfurnar á gasmarkaði í Evrópu í vetur, svartan bakstur og margt margt fleira.
#156 – Ríkisstjórn í gjörgæslu – Björn Ingi rýnir í stöðuna í pólitíkinni 28.08.2023 49:20
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, ræðir um stjórnarsamstarfið og samskipti ríkisstjórnarflokkanna, það hvort að flokksráðsfundir Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna hafi kveikt einhverja neista í ástlausu hjónabandi flokkanna, um helstu áskoranirnar framundan, flókin mál sem stjórnmálamenn forðast að ræða og margt fleira.
#155 – Vaxtahækkunarhaukar sigra dúfurnar – Forstjóraskipti í Kviku – Fráleit vinnubrögð SKE 23.08.2023 1:20:15
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stýrivaxtahækkun Seðlabankans og það hvort að bankinn sé að missa salinn eða standi fastur fyrir á sínu, um stöðuna á vinnumarkaði og undarleg ummæli verkalýðsforystunnar, um forstjóraskiptin í Kviku banka, hlutverk Stoða í fjárfestingum hér á landi, undarlegan samning Samkeppniseftirlitsins við matvælaráðuneytið og margt fleira. Þá svörum við nokk...
#154 – Maraþonþáttur Þjóðmála 18.08.2023 4:04:00
Við skellum í fjögurra klukkustunda þátt fyrir þá sem hlaupa maraþon – og alla hina sem vilja alvöru umræðu um þjóðfélagsmál. Fjölmargir gestir líta við og bjóða hér upp á úrvalsefni sem enginn má láta framhjá sér fara.
#153 – Stjórnkerfið í sumarfríi – Orkuskipti með orku sem má ekki framleiða 15.08.2023 1:23:00
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hugmyndir framsóknarmanna um bankaskatt, losunarheimildir í skipaflutningum og viðhorf stjórnvalda til atvinnulífsins í því samhengi, um undarleg ummæli orkumálastjóra, kyrrstöðu í frekari orkuöflun og verðmætasköpun í landinu og það hvort að stjórnkerfið sé fullt af fólki sem vill ekki sjá frekari orkuöflun. Í þættinum er einnig rætt um bréf forst...
#152 – Stríð og friður – Brothætt staða Samfylkingarinnar – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna 07.08.2023 49:38
Björn Bjarnason ræðir um stöðuna í stjórnmálunum, bæði hér á landi og erlendis. Rætt er um kvikmyndina um Oppenheimer og það hvaða áhrif framleiðsla á kjarnorkuvopnum hefur haft á valdajafnvægi í heiminum, stöðuna í Úkraínu og hvað kann að vera framundan á þeim vígstöðvum, um það hvort við séum að meta alþjóðastjórnmál í baksýnisspeglinum eða hvort við getum metið framtíðina af atburðum nútímans o...
#151 – Brekkusöngurinn með Herði og Stefáni Einari – Gjaldeyrir flýgur um á þyrlum 02.08.2023 1:08:52
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara léttir inn í verslunarmannahelgina. Í nýjum þætti er rætt um stöðu ferðaþjónustunnar og hvernig ferðamenn við viljum helst fá til landsins, um hagnað bankanna og traust almennings til bankakerfisins, um nýja stjórn Íslandsbanka og það hvernig kjör hennar fór fram, um þingmann Pírata sem vill efla lögregluna og margt fleira.
#150 – Verðbólga eða gróðabólga? – Eru margir á Þór Saari vagninum? – Ekki láta hávaðann ráð för 30.07.2023 56:00
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson fara yfir málefni líðandi stundar á helgarvakt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt er um tiltrú á aðgerðir Seðlabankans og stjórnvalda í baráttu við verðbólgu og hvort að það sé rétt að tala um verðbólgu sem gróðabólgu, hvort það sé góð hugmynd að stofna þjóðarsjóð, það hvernig stjórnvöld nota Samkeppniseftirlitið eins og svissneskan vasahníf, um hluthafafund í Íslandsbanka,...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice