Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
#199 – Stjórnmálamenn þurfi að þora að taka afstöðu – Diljá Mist í viðtali 26.02.2024 1:14:50
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, ræðir um nýlega ferð sína til Úkraínu, um stöðuna í stjórnmálunum hér heima og erlendis, hvernig henni varð við þegar veist var að henni fyrir utan Alþingi nýlega, um stjórnmálamenn sem veigra sér undan því að taka afstöðu til mála, blýhúðun á regluverki og hvort að það séu einhverjar líkur á því að...
#198 – Gömlu byssurnar sóttar upp í hillu – Ríkisstjórnin með fyrirvara ofan á fyrirvara 23.02.2024 1:06:22
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir allt það helsta á vettvangi stjórnmálanna. Þeir ræða um skrautlega uppákomu í þinginu, hvernig umræða um útlendingamál hefur tekið breytingum, krísustjórnun RÚV fyrir hönd Samfylkingarinnar, ríkisstjórnarsamstarfið, stöðu fjölmiðla, hlaðvarpsframleiðslu opinberra stofnana og margt fleira.
#197 – Kaldur vetur á austurvígstöðvum – Evrópa vaknar við vondan draum 20.02.2024 46:15
Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu og stríðsfréttaritari Þjóðmála, ræðir um stöðuna í Úkraínu, hvernig herjum Rússa og Úkraínumanna hefur orðið ágengt, hvort að vestræn ríki séu að standa sig í stuðningi við Úkraínu, um tækjatjón Svartahafsflotans, ummæli Trump um varnarmál Evrópuríkja og margt fleira.
#196 – Bjórkvöld Þjóðmála – Live from Kringlukráin 15.02.2024 1:23:33
Við færðum Þjóðmálastofuna á Kringlukrána og tókum upp þátt fyrir framan fullt hús af hlustendum sem nutu þess að vera viðstaddir upptöku á valentínusardaginn. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um undarlega umræðu stjórnmálamanna um HS Orku, hugmyndir VG um svonefnt atvinnulýðræði, um stöðu flugfélaganna og ferðaþjónustunnar, stöðuna í kjaraviðræðum auk þess sem teknar eru áhugaverðar...
#195 – Hversu margar ríkisstofnanir þarf í 400 þúsund manna samfélagi? 12.02.2024 1:02:13
Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, og Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte, ræða um samspil hins opinbera og einkageirans, hvort að líkur séu á því að opinberir aðilar nýti sér þær lausnir sem einkafyrirtæki hafa upp á að bjóða eða þá þekkingu og reynslu sem þau búa yfir, hversu margar ríkisstofnanir það þarf til að reka um 400 þúsund manna samfélag, hvernig gögn nýtast til f...
#194 – Að loknu Viðskiptaþingi – Hvað eru fylgistölur stjórnmálaflokka að segja okkur? 08.02.2024 1:22:59
Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um Viðskiptaþing, hvernig Viðskiptaráð hefur þróast, hvort að stjórnendur í atvinnulífinu eigi að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni og þá hvernig, um samskipti einkageirans og hins opinbera, hvort að áhersla fyrirtækja á samfélagsskýrslur fari þverrandi og fleira þessu tengt. Þá er einnig tekin umræða um stöðuna í stjórnmálunum, hvort að ólík afstaða stj...
#193 – Ísland er gulleyja full af tækifærum – Þórdís Kolbrún í ítarlegu viðtali 02.02.2024 1:17:25
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra og varformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um stöðuna í stjórnmálunum og á stjórnarheimilinu, þá gagnrýni sem ríkisstjórnin fær á sig fyrir að ná ekki saman um stór og mikilvægi mál, um fjármálaráðuneytið og ríkisfjármálin, fyrirhugaða sölu á Íslandsbanka, hvernig hægt er að bregðast við stöðunni í Grindavík, stöðu Sjálfstæðisflokksins og margt fleira...
#192 – Verðbólgan kólnar og gul viðvörun á vinnumarkaði – Er ástæða til að stofna þjóðarsjóð? 31.01.2024 1:18:59
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hjaðnandi verðbólgu og útlitið framundan, hvort að von sá á vaxtalækkun, kjaraviðræður sem nú eru í frosti, ummæli Vilhjálms Birgissonar í nýlegu viðtali í Spursmálum, hvort að rétt sé að stofna þjóðarsjóð eða ekki, andstöðu Landverndar við framförum, um stöðu Alvotech og Marel og margt fleira.
#191 – Sannleikurinn er fyrsta fórnarlambið í stríði – Upplýst umræða um átökin fyrir botni Miðjarahafs 25.01.2024 1:20:51
Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Bjarni Már Magnússon, prófessor og forseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst, ræða um stöðuna fyrir botni Miðjarahafs, um þá skautun sem á sér stað í umræðu um þau mál, frjálslega notkun gildishlaðinna hugtaka, og margt annað sem tengist þeim átökum sem nú eiga sér stað á svæðinu.
#190 – Er fálkinn orðinn múkki? – Tvígrip á glasið og ólögleg blokkering 23.01.2024 1:14:30
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir atburði dagsins í pólitíkinni, vantrauststillögu sem var lögð fram en dregin til baka, aðdragandann og mögulegar afleiðingar, stöðuna í ríkisstjórnarsamstarfinu, aðgerðir vegna stöðunnar í Grindavík og þær ríkislausnir sem þar eru boðaðar, færslu utanríkisráðherra um mótmæli vegna hælisleitenda og margt fleira.
#189 – Launahækkanir en engar kjarabætur – Sáttartónninn brestur á hátónum 19.01.2024 1:01:58
Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur og Hörður Ægisson ræða um hvaða möguleikar eru til staðar varðandi húsnæði Grindvíkinga, hvaða áhrif það mun hafa á verðbólgu og vexti, hvað óvinsæl ríkisstjórn er líkleg til að gera, um stöðuna í kjaraviðræðum, um verðmætasköpun útflutningsgreina og margt fleira.
#188 – Svandís í vanda og siðfræðingarnir þagna – Árangur áfram, ekkert stopp í hlaðvarpi þjóðarinnar 09.01.2024 1:06:44
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um heitustu mál dagsins. Svandís Svavarsdóttir er í vanda og hlutabréfin eru græn. Það er ekki endilega orsakasamhengi þarna á milli en það er farið nánar yfir það í þættinum. Rætt er um stöðu matvælaráðherrans og ríkisstjórnarinnar, um þróun mála í kjaraviðræðum, dulda varasjóði ríkisins, stöðuna í orkumálum og afturhaldsáróður Landverndar, mögulegan...
#187 – Aukin orkuframleiðsla er forsenda framfara og hagsældar 05.01.2024 1:25:46
Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq Minerals, og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og efnahagsráðgjafi Þjóðmála, ræða um orkumál í sögulegu og efnahagslegu samhengi. Rætt er um mögulegan orkuskort hér á landi, hvaða þýðingu það hefur að búa til orku, til hvers hún er nýtt, hvernig hægt er að auka orkuframleiðslu, hvernig við stöndum í samanburði við aðrar þjóðir og mar...
#186 – Guðni kveður Bessastaði – Margir (halda að þér séu) kallaðir en fáir útvaldir 02.01.2024 1:43:44
Stefán Einar Stefánsson og Friðjón Friðjónsson ræða um þá óvæntu ákvörðun Hr. Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, að gefa ekki kost á sér á ný. Rætt er um hvaða ástæður kunna að liggja þar að baki, aðdragandann að því hvernig Guðni varð forseti, sögulegan fróðleik um forsetaembættið og þá sem setið hafa á Bessastöðum, hvaða kandídatar eru líklegir til að bjóða sig fram og það sem meira máli...
#185 – Áramótaþáttur og flugeldasýning á Kringlukránni 30.12.2023 3:06:50
Það er mikill gestagangur í síðasta hlaðvarpþætti ársins sem tekinn er upp á Kringlukránni. Við horfum til viðskipta, atvinnulífs, stjórnmála og annarra þáttar þegar við förum yfir allt það helsta á árinu, tökum stöðuna um áramót og leggjum mat á komandi ár. Við förum yfir þetta í þremur lotum. Fyrst koma þeir Hörður Ægisson, Stefán Einar Stefánsson og Örn Arnarson. Í lotu tvö koma þau Gréta María...
#184 – Ekkert jólastress, bara stjórnarkreppa – Tökum aðra mynd 22.12.2023 1:05:14
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um skipan sendiherra, stöðuna á stjórnarheimilinu og í stjórnmálunum almennt, ríkisstjórn sem þorir ekki að takast á við alvöru mál og annað það helsta sem við þurfum að vita fyrir jólin.
#183 – Þunn lína milli stjórnmála og loftslagsmála – Guðlaugur Þór mætir í Þjóðmálastofuna 18.12.2023 58:58
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, mætir í Þjóðmálastofuna og svarar spurningum um orku- og loftslagsmál, þau áhrif sem þessir málaflokkar hafa á stjórnmálaumræðu, skattlagningu og lagasetningu. Þá er rætt um það hvort að rétt sé að staðsetja umhverfismál á vinsti-hægri ás stjórnmálanna, hvaða áhrif atvinnulífið hefur á þessa málaflokka, hvort að aðgerðir á Íslandi skip...
#182 – Yfirtökutilboð og verkfall hálaunastéttar – Möguleikinn á skynsömum kjaraviðræðum 15.12.2023 1:00:26
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta, málefni Marels, verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra sem eru að stórskaða okkur, hvaða kröfur aðilar vinnumarkaðarins munu leggja fram í komandi kjaraviðræðum, horfurnar í hagkerfinu, skort á umræðu um hlutabréfaverð og margt fleira.
#181 – Kyrrstaða er vond staða – Hvernig er hægt að bera betur í dag en í gær? 11.12.2023 1:03:59
Gestur Pálmason stjórnendaráðgjafi hefur á undanförnum árum unnið með stjórnendum fyrirtækja, leiðtogum innan félagasamtaka og stjórnmálamönnum bæði hér á landi og erlendis. Hann mætir í Þjóðmálastofuna og ræðir um það hvort að sömu lögmál gildi um leiðtoga í ólíkum geirum, um leiðtoga sem verða værukærir og lenda í kyrrstöðu, hvort að stefnumótun sé ofnotað hugtak, hvort og þá hvernig markmið við...
#180 – Aðventumorgunn og gestagangur á Jómfrúnni 07.12.2023 1:19:30
Þáttur dagsins var tekinn upp á Jómfrúnni. Þar mættu nokkrir góðir viðmælendur til að ræða meðal annars um listamannalaun, niðurstöðu Pisa könnunar, furðulega umfjöllun ríkisfjölmiðilsins um krónuna, leit að heimildarmönnum, það hvort að Icesave skipti lengur máli í umræðunni, málefni Marels og Eyri Invest, orkumál og margt margt fleira. Meginmarkmið þáttarins var þó að hafa gaman, svona eins og í...
#179 – Þingmaður handtekinn og hópferð til Dubai – Ekkert að sjá hér 01.12.2023 42:58
Það hefur hvorki þurft dyraverði né lögreglu í Þjóðmálastofuna hingað til. Það þurfti heldur ekki í dag þegar þeir Brynjar Níelsson og Þórður Gunnarsson mættu og fóru yfir allt það helsta sem ber á góma í okkar ágæta samfélagi. Þar má nefna handtöku þingmanns og undarlega eftirmála þess, mikinn fjölda Íslendinga á loftslagsráðstefnu SÞ, hvort að loftslagsmál snúist í raun um það eða pólitíska hugm...
#178 – Björn Berg og Bergur Ebbi rýna inn í framtíðina 27.11.2023 1:09:00
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og fyrirlesari, ræða framtíðina í nýjasta hlaðvarpsþætti Þjóðmála. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig framtíðin lítur út og hvað hún beri í skauti sér en við vitum þó að hún kemur. Í þættinum ræðum við almennt um framtíðina, hvort við séum of upptekin af því að hugsa um hana, hvort það skiptir máli hvað við vitum eða vi...
#177 – Of mörg fordæmi fyrir fordæmalausum aðstæðum 24.11.2023 1:03:47
Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Konráð S. Guðjónsson, fráfarandi aðalhagfræðingur Arion banka og nýráðinn aðstoðarmaður fjármálaráðherra, ræða um stöðuna í hagkerfinu, peningamálafund Viðskiptaráðs og ummæli seðlabankastjóra þar, horfur í vaxtamálum, stöðuna í Grindavík, kjaraviðræður sem eru framundan og margt fleira.
#176 – Hátíðarkvöld Þjóðmála gert upp ásamt öllu hinu 20.11.2023 1:14:10
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson gera upp Hátíðarkvöld Þjóðmála sem haldið var á degi íslenskrar tungu í síðustu viku, þær viðurkenningar sem Þjóðmál veittu og margt fleira sem snýr að þessu vel heppnaða kvöldi. Þá er rætt um stöðuna í Eyri Invest sem hefur áhrif á stöðu Marel, hlutabréfakaup forstjóra, komandi stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, stöðuna í Grindavík og margt fleira.
#175 – Söknuður að samfélagi – Hvað verður um Grindavík og Grindvíkinga? 16.11.2023 49:00
Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Marine Collagen í Grindvík, og Vilhjálmur Árnason alþingismaður, sem einnig er búsettur í Grindavík, ræða um þá stöðu sem komin er upp í bænum sem nú er búið að rýma, um þær áskoranir sem íbúar standa frammi fyrir við að koma lífinu í eins eðlilegt horf og hægt er, um stöðu atvinnulífsins á svæðinu og margt annað sem snýr að lífi Grindvíkinga um þessar mundi...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice