U701

Mjólkurhúsið

Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka. Í þessum þætti setjumst við niður og fáum að heyra sögu gestanna. Verkefnin, upphafið, áskoranir og það sem hefur gert ferðalagið þess virði.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: mjolkurhusid.podbean.com

Autor

U701

Categorie

Society

Site-ul podcastului

mjolkurhusid.podbean.com

Cel mai nou episod

13 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

#31 - Herdís Gunnarsdóttir 13.11.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Herdís Magna Gunnarsdóttir. Herdís ólst upp á Egilsstaðabúinu. Eftir skóla gat hún komið við hjá afa sínum í fjósinu og svo gengið á æfingu eins og aðrir krakkar í bænum. Sextán ára fór hún norður í Menntaskólann á Akureyri og langaði að sjá meira af heiminum. Á þeim tíma var langt frá því sjálfgefið að hún ætti eftir að koma heim og taka við búinu. Mig langaði að h...

#30 - Ragnar Sigurðsson 06.11.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Ragnar Sigurðsson. Ragnar flutti austur fyrir um 15 árum og hefur síðan komið víða við í atvinnulífi og samfélagsmálum á Austurlandi. Leiðin hefur legið í gegnum blaðamennsku, veitingarekstur, fyrirtækjarekstur og stjórnmál, en í gegnum allt þetta hefur áhuginn á samfélaginu og framtíð þess verið áberandi. Við förum yfir hvernig það er að koma inn í nýtt samfélag, t...

#29 - Þorbjörg Ásbjörnsdóttir 30.10.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Þorbjörg Ásbjörnsdóttir, betur þekkt sem Obba. Leiðin austur tók á sig óvænta mynd hjá Obbu og fjölskyldu hennar. Síðan þá hefur lífið snúist um búskap, fjölskyldu og ýmis verkefni sem hafa smám saman þróast í eitthvað meira. Obba hefur farið sínar eigin leiðir og ekki alltaf vitað fyrirfram hvert þær myndu liggja. Í samtalinu kynnumst við líka persónulegri hlið á l...

#28 – Einar Birgir Kristjánsson 23.10.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Einar Birgir Kristjánsson. Einar kom austur til að prófa eitt ár á togara. Það ár varð að áratugum og leiðin lá úr sjómennsku yfir í fyrirtækjarekstur þar sem fátt hefur verið alveg fyrirsjáanlegt. Tandraberg hefur tekið á sig ýmsar myndir í gegnum tíðina. Sum verkefni gengu upp, önnur ekki og stundum þurfti einfaldlega að finna eitthvað nýtt að gera. Í dag snýst st...

#27 - Hlynur Bragason 16.10.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Hlynur Bragason. Hlynur, sem margir þekkja sem Hlyn Sæta, hóf skólaakstur fyrir Fellahrepp haustið 1990. Þá var hann 24 ára með eina Mitsubishi Rosa-rútu og hafði varla hugmynd um hvað þetta eina verkefni ætti eftir að verða stór hluti af lífi hans. Síðan hefur margt breyst. Rúturnar urðu fleiri, verkefnin stærri og reksturinn teygði sig meðal annars til Reykjavíkur...

#26 - Sigurður Aðalsteinsson 09.10.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Sigurður Aðalsteinsson, eða Siggi, sem margir þekkja sem Veiðimeistarann. Siggi ólst upp á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal þar sem landið og náttúran voru ekki eitthvað sem maður fór sérstaklega út að skoða — þau voru einfaldlega hluti af hversdeginum. Sú reynsla fylgdi honum síðar inn í hreindýraveiðarnar, þar sem hann var meðal þeirra sem fóru snemma af stað í leiðsögn þ...

#25 - Hildur Bergsdóttir 02.10.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Bergsdóttir. Hildur er félagsráðgjafi að mennt en leiðin hennar í vinnu með fólki hefur sjaldnast haldið sig innan eins ákveðins ramma. Íþróttastarf, félagsráðgjöf, ungmennastarf, alþjóðleg verkefni og útivist hafa smám saman runnið saman — og með tímanum varð náttúran sjálf hluti af því hvernig hún vinnur með fólki. Í samtalinu komum við meðal annars inn á h...

#24 - Jódís Skúladóttir 25.09.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Jódís Skúladóttir. Jódís segist hafa gengið með guðfræðinámið í maganum frá því hún var ung kona, en leiðin þangað varð allt önnur en hún hafði kannski séð fyrir sér. Í samtalinu förum við frá trú, kirkju og samfélagi yfir í sögu þar sem ábyrgðin kom mjög snemma og lífið krafðist þess að hún yrði fullorðin áður en hún var í raun tilbúin til þess. Þetta er meðal anna...

#23 - Ásgrímur Ingi 18.09.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Ásgrímur Ingi. Ingi hefur farið ýmsar leiðir í gegnum lífið, sumar skipulagðar og aðrar sem urðu einfaldlega til vegna þess að hann sagði já þegar eitthvað áhugavert kom upp. Í samtalinu birtist aftur og aftur þessi vilji til að prófa sig áfram, taka sjálfan sig ekki of hátíðlega og treysta fólkinu í kringum sig. Það leiðir okkur frá skólaárunum og litlum samfélögum...

#22 - Viðar Örn Hafsteinsson 11.09.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Viðar Hafsteinsson. Við byrjum samtalið á íþróttahúsinu á Egilsstöðum, fólkinu sem þar er og því sem fær mann til að halda áfram að gefa tíma sinn í sama verkefnið ár eftir ár. Við ræðum meðal annars: – hvernig íþróttaáhuginn og þrjóskan fylgdu Viðari frá unga aldri – hvernig hann neitaði fyrst að taka við meistaraflokki Hattar – tengslin milli yngri flokka og meist...

#21 - Þór Þorfinnsson 04.09.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Þór Þorfinnsson. Þór kom austur á Hallormsstað árið 1984, upphaflega aðeins til skamms tíma. En dvölin lengdist, staðurinn varð að heimili og starfið að ævistarfi. Í samtalinu lítum við bæði til baka og aðeins fram á við — yfir áratugi þar sem skógurinn hefur vaxið, viðhorf til skógræktar breyst og ákvarðanir sem teknar voru fyrir löngu eru fyrst núna orðnar sýnileg...

#20 - Berglind Harpa 28.08.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Berglind Harpa. Berglind hefur lengi starfað í heilbrigðiskerfinu en síðustu ár hefur hún einnig tekið virkan þátt í sveitarstjórn og samfélagsmálum á Austurlandi. Í samtalinu förum við frá uppvextinum í Hveragerði og leiðinni austur yfir í ábyrgðina sem fylgir því að stíga fram, taka ákvarðanir og reyna að hafa áhrif á samfélagið sem maður býr í. Við ræðum meðal an...

#19 - Dagmar Ýr Stefánsdóttir 29.05.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Dagmar.   Hún er Jökuldalsmær sem hefur farið úr sveitinni, í heimavist, nám, fjölmiðla, Alcoa, Austurbrú og inn í sveitarstjórnarmálin — en samtalið snýst ekki um ferilskrána, heldur það sem mótar manneskjuna á leiðinni. Við ræðum meðal annars: – uppvöxtinn á Jökuldal og frelsið í sveitinni   – heimavist, sjálfstæði og samkennd milli barna   – leiðina í fjölmiðlafr...

#18 - Björgvin "Bubbi" Elísson 22.05.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Björgvin Elísson, oftast kallaður Bubbi. Bubbi hefur komið víða við í rekstri á Héraði og Austurlandi. Hann hefur rekið hellusteypu, Bón og púst, sinnt ræstingum, tekið við hárgreiðslustofu, byggt upp skiltagerð, stofnað Toppluti og rekur í dag Bara snilld í Fellabæ. Við ræðum meðal annars: – fyrstu skrefin í rekstri og hellusteypuna – Bón og púst og hvernig þjónust...

#17 - Garðar Valur 15.05.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Garðar Valur.   Garðar er hluti af Austurnet á Egilsstöðum og hefur komið að fjölmörgum hugbúnaðar- og frumkvöðlaverkefnum sem hafa orðið til hér fyrir austan. Í samtalinu förum við yfir leiðina úr bankanum, í nám, í óvissuna og áfram inn í verkefni sem urðu stærri en kannski var séð fyrir í upphafi. Við ræðum meðal annars:   – tímann í Landsbankanum fyrir hrun og á...

#16 - Skúli Björn Gunnarsson 08.05.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Skúli Björn Gunnarsson.   Skúli var forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri í 25 ár og hefur átt stóran þátt í að móta staðinn sem menningar-, fræða- og ferðamannastað á Austurlandi. Í samtalinu förum við yfir upphafið, söguna í húsinu, fólkið í kringum verkefnið og hvað það þýðir að kveðja starf sem hefur verið svo stór hluti af lífinu. Við ræðum meðal anna...

#15 - Björt Sigfinnsdóttir 01.05.2026

Í þættinum í dag er Björt Sigfinnsdóttir. Björt er listakona, tónlistarkona og ein þeirra sem hafa mótað menningarlífið á Seyðisfirði með djúpum og varanlegum hætti. Hún kom að uppbyggingu LungA, bæði hátíðarinnar og síðar LungA skólans, og hefur í gegnum tíðina unnið með tónlist, list, verkefnastjórnun og samfélag á mörgum sviðum. Í samtalinu ræðum við fyrstu skrefin í tónlistinni, hvernig LungA...

#14 - Hildur Þórisdóttir 24.04.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Þórisdóttir. Hildur er Seyðfirðingur að eigin vali, fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi og manneskja sem hefur varið stórum hluta síðustu ára í að vinna fyrir samfélagið sitt. Við ræðum meðal annars: – hvernig Seyðisfjörður tók á móti henni sem unglingi – miðbæinn, regnbogagötuna og gróskuna í litlu samfélagi – fæðingu í ófærð og hvað hún segir okk...

#13 - Unnar Erlingsson 17.04.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Unnar Erlingsson. Unnar er grafískur hönnuður sem flutti austur með fjölskyldunni og byggði þar upp líf, tengsl og ný verkefni. Í samtalinu rifjum við upp fyrstu árin fyrir austan, hvernig hann fann sig í nýju samfélagi og hvernig lífið breyttist þegar veikindi komu inn á heimilið. Við ræðum meðal annars: – flutninginn austur og fyrstu árin – lífið sem grafískur hön...

#12 - Alda Ósk Harðardóttir 10.04.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Alda Ósk. Hún er eigandi Snyrtistofu Öldu á Egilsstöðum, en umfram allt manneskja sem hefur byggt upp sitt eigið starf í nánu sambandi við fólk og staðinn sem hún kallar heim. Í þessu samtali ræðum við leiðina inn í snyrtifræðina, hvað það þýðir að fara ung í rekstur og hvernig þjónustustarf verður oft miklu mannlegra en fólk sér utan frá. Við ræðum meðal annars: –...

#11 - Gréta "bókakaffi" Sigurjónsdóttir 03.04.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Gréta Jóna Sigurjónsdóttir. Hún er tónlistarkona, kennari og frumkvöðull sem hefur markað sín spor bæði í menningarlífi Austurlands og í daglegu samfélagi. Í samtalinu rifjum við upp tónlistina, Dúkkulísur, áföll, kennslu og hvernig hugmynd verður að stað sem fólk tengir við hlýju og nærveru. Við ræðum meðal annars: – fyrstu skrefin í tónlist – Dúkkulísur og hljómsv...

#10 - Guðjón Sigmundsson 27.03.2026

Í þættinum er gestur minn Guðjón Sigmundsson úr Vaski.   Hann segir frá bernsku sinni, fyrstu starfsárunum og hvernig hann byggði upp rekstur með þjónustulund, útsjónarsemi og mikilli seiglu. Við ræðum meðal annars: – uppvöxt og skólaár á Austurlandi   – fyrstu störfin og vinnusiðferði   – uppbyggingu Vasks   – þjónustulund, lausnaleit og seiglu í rekstri Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki b...

#9 - Kristdór (Kristó) 20.03.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Kristó. Hann hefur lengi verið eitt þekktasta andlit Dekkjahallarinnar á Austurlandi og byggt upp starfsemi sem margir á svæðinu þekkja vel. Í samtalinu rifjar hann upp hvernig hann flutti ungur austur, hvernig reksturinn þróaðist og hvað hefur haldið honum gangandi í gegnum árin. Við ræðum meðal annars: – upphafið í Dekkjahöllinni – flutninginn austur og fyrstu ári...

#8 - Auður Vala 13.03.2026

Í þættinum í dag er Auður Vala. Auður hefur komið víða við í gegnum tíðina – meðal annars í íþróttum, ferðamálum og verkefnum þar sem metnaður og ábyrgð skipta miklu máli. Við ræðum meðal annars: – vinnuna sem fólk sér ekki – metnað og ábyrgð í starfi – að fara „all in“ í verkefni – rætur og tengsl við Austurland Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna. Þátturinn er framleiddur af U...

#7 - Þorgeir Arason 06.03.2026

Í þætti #7 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Þorgeiri Arasyni, sem og konan hans komu fyrst austur árið 2008 og settust að á Egilsstöðum. Hann vígðist til prestsstarfa árið 2009 og hefur síðan þá starfað í samfélaginu. Við ræðum aðflutning, sterkt samfélag og hvernig það er að ala upp börn á Egilsstöðum. Við förum inn í þjónustustarf prestsins og spyrjum: Lýkur vinnudeginum nokkurn tímann í s...

Ascultă podcastul Mjólkurhúsið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice