U701

Mjólkurhúsið

Society IS ↓ 20 episodes

Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka. Í þessum þætti setjumst við niður og fáum að heyra sögu gestanna. Verkefnin, upphafið, áskoranir og það sem hefur gert ferðalagið þess virði.

Author

U701

Category

Society

Podcast website

mjolkurhusid.podbean.com

Latest episode

May 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#19 - Dagmar Ýr Stefánsdóttir 29.05.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Dagmar.   Hún er Jökuldalsmær sem hefur farið úr sveitinni, í heimavist, nám, fjölmiðla, Alcoa, Austurbrú og inn í sveitarstjórnarmálin — en samtalið snýst ekki um ferilskrána, heldur það sem mótar manneskjuna á leiðinni. Við ræðum meðal annars: – uppvöxtinn á Jökuldal og frelsið í sveitinni   – heimavist, sjálfstæði og samkennd milli barna   – leiðina í fjölmiðlafr...

#18 - Björgvin "Bubbi" Elísson 22.05.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Björgvin Elísson, oftast kallaður Bubbi. Bubbi hefur komið víða við í rekstri á Héraði og Austurlandi. Hann hefur rekið hellusteypu, Bón og púst, sinnt ræstingum, tekið við hárgreiðslustofu, byggt upp skiltagerð, stofnað Toppluti og rekur í dag Bara snilld í Fellabæ. Við ræðum meðal annars: – fyrstu skrefin í rekstri og hellusteypuna – Bón og púst og hvernig þjónust...

#17 - Garðar Valur 15.05.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Garðar Valur.   Garðar er hluti af Austurnet á Egilsstöðum og hefur komið að fjölmörgum hugbúnaðar- og frumkvöðlaverkefnum sem hafa orðið til hér fyrir austan. Í samtalinu förum við yfir leiðina úr bankanum, í nám, í óvissuna og áfram inn í verkefni sem urðu stærri en kannski var séð fyrir í upphafi. Við ræðum meðal annars:   – tímann í Landsbankanum fyrir hrun og á...

#16 - Skúli Björn Gunnarsson 08.05.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Skúli Björn Gunnarsson.   Skúli var forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri í 25 ár og hefur átt stóran þátt í að móta staðinn sem menningar-, fræða- og ferðamannastað á Austurlandi. Í samtalinu förum við yfir upphafið, söguna í húsinu, fólkið í kringum verkefnið og hvað það þýðir að kveðja starf sem hefur verið svo stór hluti af lífinu. Við ræðum meðal anna...

#15 - Björt Sigfinnsdóttir 01.05.2026

Í þættinum í dag er Björt Sigfinnsdóttir. Björt er listakona, tónlistarkona og ein þeirra sem hafa mótað menningarlífið á Seyðisfirði með djúpum og varanlegum hætti. Hún kom að uppbyggingu LungA, bæði hátíðarinnar og síðar LungA skólans, og hefur í gegnum tíðina unnið með tónlist, list, verkefnastjórnun og samfélag á mörgum sviðum. Í samtalinu ræðum við fyrstu skrefin í tónlistinni, hvernig LungA...

#14 - Hildur Þórisdóttir 24.04.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Hildur Þórisdóttir. Hildur er Seyðfirðingur að eigin vali, fráfarandi sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi og manneskja sem hefur varið stórum hluta síðustu ára í að vinna fyrir samfélagið sitt. Við ræðum meðal annars: – hvernig Seyðisfjörður tók á móti henni sem unglingi – miðbæinn, regnbogagötuna og gróskuna í litlu samfélagi – fæðingu í ófærð og hvað hún segir okk...

#13 - Unnar Erlingsson 17.04.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Unnar Erlingsson. Unnar er grafískur hönnuður sem flutti austur með fjölskyldunni og byggði þar upp líf, tengsl og ný verkefni. Í samtalinu rifjum við upp fyrstu árin fyrir austan, hvernig hann fann sig í nýju samfélagi og hvernig lífið breyttist þegar veikindi komu inn á heimilið. Við ræðum meðal annars: – flutninginn austur og fyrstu árin – lífið sem grafískur hön...

#12 - Alda Ósk Harðardóttir 10.04.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Alda Ósk. Hún er eigandi Snyrtistofu Öldu á Egilsstöðum, en umfram allt manneskja sem hefur byggt upp sitt eigið starf í nánu sambandi við fólk og staðinn sem hún kallar heim. Í þessu samtali ræðum við leiðina inn í snyrtifræðina, hvað það þýðir að fara ung í rekstur og hvernig þjónustustarf verður oft miklu mannlegra en fólk sér utan frá. Við ræðum meðal annars: –...

#11 - Gréta "bókakaffi" Sigurjónsdóttir 03.04.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Gréta Jóna Sigurjónsdóttir. Hún er tónlistarkona, kennari og frumkvöðull sem hefur markað sín spor bæði í menningarlífi Austurlands og í daglegu samfélagi. Í samtalinu rifjum við upp tónlistina, Dúkkulísur, áföll, kennslu og hvernig hugmynd verður að stað sem fólk tengir við hlýju og nærveru. Við ræðum meðal annars: – fyrstu skrefin í tónlist – Dúkkulísur og hljómsv...

#10 - Guðjón Sigmundsson 27.03.2026

Í þættinum er gestur minn Guðjón Sigmundsson úr Vaski.   Hann segir frá bernsku sinni, fyrstu starfsárunum og hvernig hann byggði upp rekstur með þjónustulund, útsjónarsemi og mikilli seiglu. Við ræðum meðal annars: – uppvöxt og skólaár á Austurlandi   – fyrstu störfin og vinnusiðferði   – uppbyggingu Vasks   – þjónustulund, lausnaleit og seiglu í rekstri Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki b...

#9 - Kristdór (Kristó) 20.03.2026

Í þættinum í dag er gestur minn Kristó. Hann hefur lengi verið eitt þekktasta andlit Dekkjahallarinnar á Austurlandi og byggt upp starfsemi sem margir á svæðinu þekkja vel. Í samtalinu rifjar hann upp hvernig hann flutti ungur austur, hvernig reksturinn þróaðist og hvað hefur haldið honum gangandi í gegnum árin. Við ræðum meðal annars: – upphafið í Dekkjahöllinni – flutninginn austur og fyrstu ári...

#8 - Auður Vala 13.03.2026

Í þættinum í dag er Auður Vala. Auður hefur komið víða við í gegnum tíðina – meðal annars í íþróttum, ferðamálum og verkefnum þar sem metnaður og ábyrgð skipta miklu máli. Við ræðum meðal annars: – vinnuna sem fólk sér ekki – metnað og ábyrgð í starfi – að fara „all in“ í verkefni – rætur og tengsl við Austurland Mjólkurhúsið er hlaðvarp um ferlið, ekki bara útkomuna. Þátturinn er framleiddur af U...

#7 - Þorgeir Arason 06.03.2026

Í þætti #7 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Þorgeiri Arasyni, sem og konan hans komu fyrst austur árið 2008 og settust að á Egilsstöðum. Hann vígðist til prestsstarfa árið 2009 og hefur síðan þá starfað í samfélaginu. Við ræðum aðflutning, sterkt samfélag og hvernig það er að ala upp börn á Egilsstöðum. Við förum inn í þjónustustarf prestsins og spyrjum: Lýkur vinnudeginum nokkurn tímann í s...

#6 - Elín Káradóttir 27.02.2026

Í þætti #6 í Mjólkurhúsinu setjumst við niður með Elínu Káradóttur og ræðum leið sem byrjaði í Hróarstungu á Austurlandi, lá suður, slysast til Hveragerðis — og endaði í fasteignasölu sem hún síðar keypti og byggði upp. Við tölum um samfélag og rætur, grunnskólagönguna og hvernig tilviljanir verða stundum að stefnu. Elín segir frá því hvernig hún fór að selja eignir á Austurlandi á meðan lífið var...

#5 - Davíð Kristinsson 20.02.2026

Þáttur #5 – Davíð Kristinsson Í þessum þætti hittum við Davíð Kristinsson á Seyðisfirði og förum með honum aftur til Danmerkur, þar sem hann starfaði í næturlífinu og rak skemmtistaði í allt öðrum takti en flestir þekkja. Við ræðum hvernig það var að lifa og vinna í umhverfi sem krafðist hraða, ákvarðana og seiglu — og hvernig það var að snúa aftur heim til Íslands eftir þann kafla. Hvað breytist...

#4 – Díana Mjöll 13.02.2026

þessum þætti ræðir Elí Þór við Díönu Mjöll, framkvæmdarstjóra og eiganda Tanni Travel — rútufyrirtækis og ferðaskrifstofu. Samtalið snýst um það að taka við fyrirtæki sem faðir hennar stofnaði og hvernig þau byggðu það upp áfram. Díana segir frá ábyrgðinni sem fylgir kynslóðaskiptum, breytingum í rekstri og því að móta sinn eigin sess innan fyrirtækis sem á sér langa sögu. Þetta er samtal um fjöls...

#3 - Óskar Bjarnason 06.02.2026

þessum þætti ræðir Elí Þór við Óskar Bjarnason, oftast kenndan við Bólholt. Óskar segir frá því hvernig hann endaði á Egilsstöðum og hvernig verkefnið Bólholt varð til. Samtalið fer yfir upphafið, aðdragandann og þær ákvarðanir sem leiddu verkefnið áfram, ásamt því að Óskar segir frá því sem hann fæst við í dag. Þetta er samtal um staðsetningu, vegferð og hvernig hugmyndir taka á sig mynd þegar ma...

#2 - Sigrún Steindórsdóttir 06.02.2026

þessum þætti ræðir Elí Þór við Sigrúnu Steindórsdóttur, sem rekur fyrirtækið Rammalausnir Sigrúnar. Sigrún segir frá því hvernig reksturinn byrjaði, hvernig hann hefur þróast og hvernig vegferðin hefur gengið í gegnum árin. Samtalið fer yfir ferðalagið frá því hún útskrifaðist í húsgagnasmíði árið 1993, lauk sveinsprófi árið 2009 og byggði upp eigið fyrirtæki skref fyrir skref. Þetta er samtal um...

#1 - Þór Ragnarsson 06.02.2026

Í þessum fyrsta viðtalsþætti Mjólkurhússins ræðir Elí Þór við Þór Ragnarsson. Samtalið snýst um ferlið á bak við verkin, hvernig hugmyndir verða til og hvaða ákvarðanir móta leiðina áfram. Þór deilir reynslu sinni af því að vinna hlutina í rólegheitum, hlusta á innsæið og leyfa ferlinu að þróast frekar en að elta fyrirfram skilgreinda útkomu. Mjólkurhúsið er hlaðvarp um samtöl á milli verka. Um fó...

#0 - Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka 06.02.2026

Þessi þáttur er inngangur að Mjólkurhúsinu. Hér er ekki viðmælandi — heldur hugmyndin sjálf. Elí Þór þáttastjórnandi fer yfir hvað Mjólkurhúsið er, af hverju þessi þáttaröð varð til og hvers vegna áherslan er á ferlið, ekki bara útkomuna. Þetta er hlaðvarp um samtöl á milli verka. Um fólkið, ákvarðanirnar og allt það sem gerist þar á milli.

Listen to the Mjólkurhúsið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.