Marta María Winkel
Marta María býður heim
Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: sites.libsyn.com
Autor
Marta María Winkel
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
16 nov. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
36. Eik Gísladóttir: Nýr kafli á nýjum forsendum 16.11.2026 1:15:13
Eik Gísladóttir flugfreyja hjá Icelandair hefur lifað margbrotnu lífi. Þegar hún var 21 árs fann hún ástina þegar hún kynntist fyrri manni sínum, Heiðari Helgusyni fótboltamanni. Skyndilega var hún orðin fótboltaeiginkona með öllu sem því fylgir; lúxusbílum, glæsifatnaði og svo kynntist hún Victoriu Beckham . Þegar þau fóru hvort í sína áttina þurfti hún að læra að lifa upp á nýtt. Í þættinum æt...
35: Atli Steinn Guðmundsson: Langt frá því að vera A4 persóna 09.11.2026 1:27:18
Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður á Morgunblaðinu og mbl.is . er ein af þessum litríku manneskjum sem fer sínar eigin leiðir í lífinu. Hann er alinn upp við heraga og var til dæmis látinn ryksuga æskuheimili sitt við Sunnuflöt í Garðabæ tvisvar í viku þegar hann var barn. Í þættinum ræðir Marta María við Atla Stein um óvenjulegt lífshlaup hans eins og þegar hann vann sem strippari á hommaklúbbum...
34. Annie Mist Þórisdóttir: Lífsbreytandi að vinna 30 milljónir 01.11.2026 1:28:02
CrossFit-goðsögnin Annie Mist Þórisdóttir sigraði heimsleikana 2011 og vann 30 milljónir í kjölfarið. Þetta var verðskuldað því hún hafði fórnað læknisfræðinni fyrir íþróttaferilinn. Hún fann ástina í CrossFitinu og á síðustu sex árum hefur hún eignast þrjú börn með manninum sínum. Í dag á breytingaskeiðið stórt pláss í hjarta hennar eftir að hún og Katrín Tanja byrjuðu með Empower-appið sem er sé...
33. Björt Ólafsdóttir: Lærði að það er ekki hægt að gera allt í einu 26.10.2026 1:28:07
Björt Ólafsdóttir einn eigenda fasteignaþróunarfélagsins Iðu og fyrrverandi ráðherra er stólpakona sem nýtir tímann í botn. Þessa stundina er hún að leggja lokahönd á lífrænu blokkina sem stendur við Frakkastíg 1. Björt er fjögurra barna móðir sem þarf reglulega að minna sig á að barnauppeldi er ekki Bootcamp-þjálfun. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Bjartar og hvernig hún komst á þann stað...
32. Jóga Gnarr: Lífið er sirkus 19.10.2026 1:47:59
Jóga Gnarr hefur haft það að ævistarfi að hjálpa fólki. Hún er með hjarta úr gulli og notar húmorinn til þess að fá umhverfið til að skilja samhengi hlutann. Hún mætir helst aldrei í viðtöl og það tók um það bil 20 ár að sannfæra hana um að mæta í þetta viðtal. Í þættinum ræðir hún lífshlaup sitt, sigra og sorgir og hvernig lífið umturnaðist þegar hún varð ástfangin af Jóni Gnarr. Þessi þáttur er...
31. Þórdís Kjartansdóttir. Fædd 19. júní og þurfti að æxla ábyrgð 12.10.2026 1:57:44
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Læknahúsinu Dea Medica er ein af þessum kláru og skemmtilegu konum sem lætur ekkert stoppa sig. Hún byrjaði að vinna þegar hún var 12 ára og hefur síðan þá verið með mörg járn í eldinum. Hún fæddist 19. júní og mamma hennar sagði henni að hún yrði að taka mið af því. Þegar Þórdís var tvítug snarbreyttist tilveran þegar foreldrar hennar fóru hvort í sína áttina....
30. Dorrit Moussaieff: „Heimurinn minn var fullkominn" 05.10.2026 1:08:05
Dorrit Moussaieff viðskiptakona og fyrrverandi eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar hefur átt ævintýralegt lífshlaup og er nú á tímamótum. Í þættinum ræddu þær þegar hún hitti Ólaf Ragnar fyrst, hvernig samband þeirra þróaðist og endaði fyrr á þessu ári. Hún varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom fyrst til landsins og er alls ekki skilin við þjóðina þótt hjónabandinu sé lokið. Þessi þáttur er í boð...
29. Lukka Pálsdóttir: Við getum valið að vaxa 28.09.2026 1:43:16
Lukka Pálsdóttir sjúkraþjálfari og einn af eigendum Greenfit býr yfir ákveðinni seiglu sem hefur komið henni á þann stað sem hún er í dag. Lukka hefur átt ótrúlegt lífshlaup en þegar hún fæddist höfðu foreldrar hennar gegnið í gegnum mikinn harm þegar faðir hennar lenti í flugslysi. Í þættinum ræðir Lukka um ástina, ævintýrin, myndkörfulán og fitubrennslupúls en líka Zone 2 sem er það sem flestir...
28. Birgir Jónsson: Ef lífið er bílaleigubíll þá ætla ég að skila mínum útjöskuðum 21.09.2026 1:38:59
Birgir Jónsson fyrrverandi forstjóri Play er rokkari sem er alltaf til í að hlaupa auka hring til þess að lífið verði allavega 9% skemmtilegra. Í þættinum talar Birgir um lífshlaupið og hjartans mál. Um tíma bjó hann í Rúmeníu og lýsir spillingunni sem þar var á áhrifaríkan hátt. Þótt hann þrífist best í mótvindi þá gengst hann við því að það sé ekki gott að vakna með kvíðahnút í maganum á hverjum...
27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á 14.09.2026 1:10:52
Anna Margrét Björnsson, blaðamaður og upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu, hefur lengi haft sterkan og persónulegan fatastíl. Svartur hefur alltaf verið í uppáhaldi, ásamt eyeliner og stöku hlébarðamunstri. Langafi hennar var Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, og í þættinum ræðum við meðal annars hvort það hafi haft einhver áhrif á uppvöxt hennar - eða alls engin. Faðir Önnu Margr...
26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar 07.09.2026 1:55:44
Kristín Agnarsdóttir grafískur hönnuður býr í Lundúnum. Hún er á kafi inni í framtíðartækni og notaði tæknina til að eignast tvo drengi. Svo notaði hún gervigreindina til þess að skilja við barnsföður sinn. Þegar Kristín sagði föður sínum að hún væri að fara að mæta í þennan þátt þá hló hann upphátt og sagði: „Ætlar þú að ræða allar góðu ákvarðanirnar sem þú hefur tekið á lífsleiðinni" og spurði s...
25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér 31.08.2026 1:28:12
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður er félagslegur einfari sem líður best með sjálfum sér. Hann er einn af þessum mönnum sem tekið er eftir og fer alltaf sínar leiðir hvort sem það er í klæðaburði, lífsstíl eða vinnu. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, gaddavírs peysur, fyrirsætuferilinn, Reykholtsmálið og ástina. Þátturinn er í boði Icelandair , SKINCARELAB í Smáralind og Blue L...
24. Sigurlín Ívarsdóttir: Útrásar árin ógnuðu fjölskyldulífinu 24.08.2026 2:12:12
Sigurlín Ívarsdóttir prestur og fjölskylduráðgjafi hefur átt litríka tilveru. Hún var prestur í Bresku biskupakirkjunni í Lundúnum á árunum fyrir hrun þegar eiginmaður hennar starfaði hjá Kaupþingi. Hún segir að útrásárárin hafi einkennst af sukki og ógnað hennar fjölskyldulífi. Í þættinum ræðir Marta María við Sigurlín um lífshlaup hennar, áfallavinnu, tísku og hvað það skipti miklu máli að horfa...
23. Hrund Gunnsteinsdóttir: Ég er mjög æst í þetta líf 17.08.2026 1:29:09
Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur InnSæi sagði upp draumastarfinu því hún var ekki að finna sig. Hún segist hafa farið allt of hratt upp metorðastigann sem leiddi til þess að heilsan brást. Við tók uppbyggingarferli sem varð að Prisma-námi sem sló í gegn. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, taugakerfið, InnSæi og hvernig það var að finna ástina í örmum Alfreðs Gíslasonar. Þátturinn er í b...
22. Inga Dóra Guðmundsdóttir: Er með plan B ef allt fer á versta veg á Grænlandi 10.08.2026 1:44:55
Inga Dóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri hjá Air Greenland er hálf íslensk og hálf grænlensk. Hún fæddist á Íslandi en var á 13 ári þegar fjölskyldan flutti til Grænlands. Hún segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Qaqortoq og það hafi tekið tíma að aðlagast. Inga Dóra er ekkert blávatn og hefur gengt mörgum áhrifastöðum og tekið virkan þátt í pólitík. Hún var um tíma framkvæmd...
21. Valgerður Halldórsdóttir: Stórt hús getur ekki bjargað ástarsamböndum 03.08.2026 1:16:55
Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi er sérfræðingur í stjúptengslum. Hún fór að hafa áhuga á stjúptengslum þegar hún varð sjálf stjúpmóðir. Hún segir að það þýði ekki neitt að kaupa hús og setja alla undir sama þak og halda að allt muni ganga eins og í sögu. Fólk verði að kynnast og það þýði ekkert að halda bara matarboð. Fólk þurfi að kynnast maður á mann. Tilfinningin að tilhe...
20. Vilborg Guðnadóttir: Drifkraftur lífsins er að sjá aðra vaxa 27.07.2026 1:38:56
Vilborg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur var send í fóstur þegar hún var eins og hálfs árs því móður hennar fékk berkla. Hún flutti ekki aftur heim fyrr en hún var á sjöunda ári en þá var landslagið breytt. Hún byrjaði að safna sér fyrir íbúð þegar hún var 9 ára því hún upplifði að það væri engu að treysta. Þetta hafði mótandi áhrif og hefur Vilborg haft það að ævistarfi að hjálpa fjölskyldum í v...
19. Kamilla Einarsdóttir: Ég get fyrirgefið allt ef fólk er fyndið 20.07.2026 1:46:22
Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir skrópaði sig úr út menntaskóla og fór að vinna á Vegas. Þegar hún var tvítug var hún búin að eignast tvö börn og voru blankheit slík að hún át vorrúllur í öll mál. Þegar Kamilla var þrítug bættist þriðja dóttirin í hópinn. Kamilla er einhleyp og sér ekki fyrir sér að fara í samband því umönnunarþörf hennar sé við frostmark. Í þættinum ræðir Kamilla lífshlaup sit...
18. Ragna Árnadóttir: Sækir alltaf í erfiðustu verkefnin 13.07.2026 1:38:30
Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets er þrjóskukind með góðan fatastíl. Hún er lögfræðingur og stjórnsýslunörd sem hefur verið óhrædd við að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Hún var dómsmálaráðherra í bankahruninu og upplifði mikinn ótta þegar mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan heimili hennar. Í þættinum ræðir Ragna um ástina sem hún fann á Tunglinu þegar hún hitti manninn sinn, sumarbústaðaeldhú...
17. Hildur Gunnlaugsdóttir: Fann ástina á Tinder og sló í gegn sem áhrifavaldur um fertugt 06.07.2026 1:46:15
Hildur Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri ASK arkitekta er praktískt í hugsun. Fyrir áratug fann hún ástina á Tinder þegar Hreiðar Leví Guðmundsson handboltastjarna súperlækaði hana. Í dag búa þau ásamt börnunum í fallegu raðhúsi í Hvassaleitinu. Hildur varð óvænt áhrifavaldur þegar hún ákvað að deila framkvæmdum á húsinu á Instagram. Hún er þessi fyndna og jákvæða týpa sem lætur fátt stoppa sig. Þ...
16. Sigurjón Sighvatsson: Ég hef aldrei verið númer eitt 29.06.2026 2:04:24
Sigurjón Sighvatsson er einn fárra Íslendinga sem á að baki glæstan feril í Hollywood. Hann sló í gegn með Wild at Heart (1990) en hann var búinn að slá í gegn hérlendis þegar hann fór út í nám. Hann var í vinsælum hljómsveitum og lærði bókmenntafræði. Hann er einn af þeim sem er alltaf til í að taka aukahring til að ná meiri árangri. Við ræðum æskuna og hvernig það hafi verið að alast upp hjá ein...
15. Bryndís Hagan Torfadóttir: Stólpakona með hjartað á réttum stað 22.06.2026 1:49:06
Bryndís Hagan Torfadóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri SAS á Íslandi hefur átt litríkt lífshlaup. Hún hefur alltaf fylgt hjartanu sem hefur komið henni þangað sem hún ætlaði sér. Í þessum þætti förum við yfir æviskeiðið og hvað hún hafi lært en hún verður 80 ára á næsta ári. Bryndís fer yfir það hvað hefur gagnast henni best í lífinu og markmiðið hafi alltaf verið að gera sitt besta. Þessi þáttur...
14. Þorbjörg Hafsteinsdóttir: Ég vil ekki sjá eftir neinu 15.06.2026 1:39:21
Þorbjörg næringaþerapisti og hjúkrunarfræðingur hefur lifað margbrotnu lífi. Hún er alin upp af einstæðri móður en faðir hennar stimplaði sig út og kom lítið við sögu framan af. Þegar þau voru að kynnast upp á nýtt fórst hann í sjóslysi. Hún fann ástina í Danmörku en leiðir skildi og svo féll hann frá langt fyrir aldur fram. Þorbjörg lifir heilbrigðu lífi og vill eldast með reisn. Í þættinum ræðu...
13. Margrét Hugrún: Sumir vaxa best utan girðingarinnar 08.06.2026 1:30:21
Margrét Hugrún Gústavsdóttir ólst upp hjá kornungri en sjálfstæðri móður á sjöunda áratug síðustu aldar. Þær fluttu víða sem olli því að hún þurfti að skipta oft um skóla en þannig sankaði hún að sér lífsreynslu og sjónarmiðum sem juku með henni bæði seiglu og sjálfsstæði. Á unglingsaldri urðu þýðingarmikil tengsl í lífi hennar þegar hún hitti föður sinn í fyrsta sinn en fljótlega eftir það var hú...
12. Sasa: Það segir mér enginn hvað ég á að gera 01.06.2026 1:43:42
Svanhildur Sigurðardóttir, eða Sasa eins og hún er kölluð er ein af þessum jákvæðu, duglegu og bjartsýnu manneskjum sem smitar annað fólk af lífsgleði sinni. Þegar hún var 11 ára bar hún út blöð og safnaði sér peningum, fór ein á skrifstofu Icelandair og pantaði sér miða til Kaupmannahafnar án þess að biðja um leyfi frá foreldrum sínum. Fyrir fimm árum greindist hún með krabbamein og hefur tekist...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice