Marta María Winkel

Marta María býður heim

Society IS ↓ 18 episodes

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.

Author

Marta María Winkel

Category

Society

Podcast website

sites.libsyn.com

Latest episode

Jul 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

17. Hildur Gunnlaugsdóttir: Fann ástina á Tinder og sló í gegn sem áhrifavaldur um fertugt 06.07.2026

Hildur Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri ASK arkitekta er praktískt í hugsun. Fyrir áratug fann hún ástina á Tinder þegar Hreiðar Leví Guðmundsson handboltastjarna súperlækaði hana. Í dag búa þau ásamt börnunum í fallegu raðhúsi í Hvassaleitinu. Hildur varð óvænt áhrifavaldur þegar hún ákvað að deila framkvæmdum á húsinu á Instagram. Hún er þessi fyndna og jákvæða týpa sem lætur fátt stoppa sig.  Þ...

16. Sigurjón Sighvatsson: Ég hef aldrei verið númer eitt 29.06.2026

Sigurjón Sighvatsson er einn fárra Íslendinga sem á að baki glæstan feril í Hollywood. Hann sló í gegn með Wild at Heart (1990) en hann var búinn að slá í gegn hérlendis þegar hann fór út í nám. Hann var í vinsælum hljómsveitum og lærði bókmenntafræði. Hann er einn af þeim sem er alltaf til í að taka aukahring til að ná meiri árangri. Við ræðum æskuna og hvernig það hafi verið að alast upp hjá ein...

15. Bryndís Hagan Torfadóttir: Stólpakona með hjartað á réttum stað 22.06.2026

Bryndís Hagan Torfadóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri SAS á Íslandi hefur átt litríkt lífshlaup. Hún hefur alltaf fylgt hjartanu sem hefur komið henni þangað sem hún ætlaði sér. Í þessum þætti förum við yfir æviskeiðið og hvað hún hafi lært en hún verður 80 ára á næsta ári. Bryndís fer yfir það hvað hefur gagnast henni best í lífinu og markmiðið hafi alltaf verið að gera sitt besta. Þessi þáttur...

14. Þorbjörg Hafsteinsdóttir: Ég vil ekki sjá eftir neinu 15.06.2026

Þorbjörg næringaþerapisti  og hjúkrunarfræðingur hefur lifað margbrotnu lífi. Hún er alin upp af einstæðri móður en faðir hennar stimplaði sig út og kom lítið við sögu framan af. Þegar þau voru að kynnast upp á nýtt fórst hann í sjóslysi. Hún fann ástina í Danmörku en leiðir skildi og svo féll hann frá langt fyrir aldur fram. Þorbjörg lifir heilbrigðu lífi og vill eldast með reisn. Í þættinum ræðu...

13. Margrét Hugrún: Sumir vaxa best utan girðingarinnar 08.06.2026

Margrét Hugrún Gústavsdóttir ólst upp hjá kornungri en sjálfstæðri móður á sjöunda áratug síðustu aldar. Þær fluttu víða sem olli því að hún þurfti að skipta oft um skóla en þannig sankaði hún að sér lífsreynslu og sjónarmiðum sem juku með henni bæði seiglu og sjálfsstæði. Á unglingsaldri urðu þýðingarmikil tengsl í lífi hennar þegar hún hitti föður sinn í fyrsta sinn en fljótlega eftir það var hú...

12. Sasa: Það segir mér enginn hvað ég á að gera 01.06.2026

Svanhildur Sigurðardóttir, eða Sasa eins og hún er kölluð er ein af þessum jákvæðu, duglegu og bjartsýnu manneskjum sem smitar annað fólk af lífsgleði sinni. Þegar hún var 11 ára bar hún út blöð og safnaði  sér peningum, fór ein á skrifstofu Icelandair og pantaði sér miða til Kaupmannahafnar án þess að biðja um leyfi frá foreldrum sínum. Fyrir fimm árum greindist hún með krabbamein og hefur tekist...

11. Gylfi Þór Þorsteinsson: Veröldin hrundi þegar mamma var myrt 24.05.2026

Gylfi Þór Þorsteinsson verkefnastjóri hjá Rauða krossinum og oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ upplifði mikla sorg þegar móðir hans var myrt á bóndabæ fyrir Norðan. Hann gat ekki tekist á við sorgina, lokaði sig af og gat ekki grátið. Í þættinum ræðir Gylfi þennan hræðilega tíma og  hvernig hann náði seinna á lífsleiðinni að koma hlutunum á réttan stað. Hann ræðir líka hvernig veröldin hrundi á nýja...

10. María Sigrún Hilmarsdóttir: Það stækkar fólk að lenda í áföllum 18.05.2026

María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður á fréttastofu Rúv. hefur fengið þung verkefni í lífinu. Eitt af því er að eignast fatlað barn. Hún lýsir ferlinu og hvernig hún hafi siglt í gegnum það. Í fyrra slasaðist hún alvarlega í skíðaslysi á Snæfellsjökli en er nú komin á kreik á ný. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra og hvernig það hafi stækkað hana að fá snúin verkefni í fangið. Hún er bjartsýn o...

9. Einar Þorsteinsson: Skíðin voru ekki ástæða skilnaðarins 11.05.2026

Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík lifir drauminn í Seljahverfinu. Hann er tvíkvæntur og á að tvær dætur með fyrri eiginkonu sinni og tvo drengi með núverandi eiginkonu sinni, Millu Ósk Magnúsdóttur. Þau voru á leiðinni í tæknifrjóvgun þegar hún varð barnshafandi. Einar segir að lífið geti verið flókið og því skipti máli að fara reglulega til hjónabandsráðgjafa. Í þættinum...

8. Brynjar Níelsson: Góð kona og guð það eina sem getur hjálpað fólki í vandræðum. 04.05.2026

Brynjar Níelsson lögfræðingur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann er íhaldssamur mannvinur og segir að fólk megi ekki láta reiðina fara með sig út í skurð. Hann lærði margt um mannleg samskipti þegar hann keyrði leigubíl á háskólaárunum. Hann var vinsæll lögmaður áður en hann fór inn á þing og segir að reynslan hafi kennt honum að það sé bara tvennt sem geti bjargað fólki...

7. Þorvaldur Davíð sættist við pabba sinn áður en hann féll frá. 27.04.2026

Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari seldi steina með ömmu sinni niður í bæ þegar önnur börn voru í leikskóla. Hann var barnastjarna en var alltaf að reyna að ýta leiklistinn í burtu. Í þættinum ræðir hann um uppvöxtinn, æskuna og það að eiga föður sem glímdi við alkóhólisma. Hann náði að sættast við pabba sinn áður en hann féll frá.  Marta María býður heim er í boði:  Icelandair Blue Lagoon Skin...

6. Ellý Ármanns fann bróður sinn nýlega 20.04.2026

Faðir Ellýjar reyndi að senda skipsfélaga sinn í DNA-próf því hann vildi ekki gangast við henni. Móðir hennar gafst ekki upp og réð lögmann til að fá úr faðerni Ellýjar skorið. Fyrir stuttu fann Ellý bróður sinn sem nánast jafngamall henni sjálfri. Við ræðum ástina, gjaldþrotið og hamingjublöðruna. En líka andlegar tengingar og hvað gerist þegar fólk fylgir hjartanu.   Marta María býður heim er í ...

5. Helga Hlín er alltaf með olnbogana úti 13.04.2026

Helga Hlín Hákonardóttir lögfræðingur og eigandi Strategíu lætur engan segja sér hvernig hún að haga sér. Í þættinum segir hún frá því þegar hún flutti til Reykjavíkur tvítug að aldri með barn á handleggnum og tíkarspena í hárinu til þess að hefja lögfræðinám. Svo rann upp sá dagur að hún mætti á þykkbotna Buffalo-skóm inn í fjármálaheiminn. Hún segist hafa verið rétt kona á réttum tíma en þetta v...

4. Strákurinn í blokkinni sem lét ekkert stoppa sig 06.04.2026

Ari Edwald  oddviti   Miðflokksins  í Reykjavík   er  alinn   upp  í  blokk  í  Álfheimum   og   þurfti   sjálfur   að   hafa   fyrir   lífinu ,  ólíkt   því   sem   margir   halda .  Við ætlum   að   fara   yfir   lífshlaupið ,  ræða   sigra   og   fyrirmyndir   og   hvað   lífið   verður   miklu   skemmtilegra   þegar   það  er  stemning . Eitt  af   því   fyrsta   sem Ari kenndi   mér   fyrir  ...

3. Lærði snemma að setja undir sig hausinn og halda alltaf áfram 30.03.2026

Gestur  minn  í  dag  er Ásthildur Sturludóttir  bæjarstjóri  í  Akureyri . Í  þessum   þætti   ætlum   við   að   ræða   vinskapinn ,  hjarta tengingar   og   það   að   setja alltaf   undir  sig  hausinn   og   halda   alltaf   áfram   sama   hvað  á  dynur .  Við   ætlum   líka   að   ræða   ástina ,  ófrjósemi   og   gleðina   sem   fylgdi   því   að   fá   að verða   móðir .  Hvernig   það  ...

2. 39 ára vinskapur dýpkar tilveruna 23.03.2026

Gestur minn í dag er ein af mínum elstu og bestu vinkonum. Hún heitir Júlía Margrét Alexandersdóttir. Við tvær bundumst djúpum tilfinningaböndum þegar við pöntuðum 10 pepperóní pítsur heim til bekkjarbróður okkar. Júlía datt út af vinnumarkaði fyrir nokkrum árum vegna alvarlegra veikinda. Við ætlum þó ekki að velta okkur upp úr því í dag heldur rifa upp gömul prakkarastrik og fara yfir það þegar J...

1. Lífið byrjar þegar þegar þú fattar að þú átt bara eitt líf 20.03.2026

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík talar um ástina, innsæi, kvenfyrirmyndir og hvernig það sé að vera alltaf eins og vél sem gengur aðeins of hratt. Marta María býður heim er í boði Icelandair og Skincarelab í Smáralind.

Marta María býður heim 16.03.2026

Listen to the Marta María býður heim podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.