RÚV
Í ljósi sögunnar
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Thomas Quick III 31.08.2018 41:08
Þátturinn er sá síðasti um lygilega sögu Svíans Sture Bergwall, öðru nafni Thomas Quick, sem um árabil var þekktur sem versti raðmorðingi Norðurlandanna, dæmdur fyrir átta morð og grunaður um fjölda annarra, en er í dag frjáls maður.
Thomas Quick II 24.08.2018 40:03
Þátturinn er annar af þremur um lygilega sögu Svíans Sture Bergwall, öðru nafni Thomas Quick, sem um árabil var þekktur sem versti raðmorðingi Norðurlandanna, dæmdur fyrir átta morð og grunaður um fjölda annarra, en er í dag frjáls maður.
Thomas Quick I 17.08.2018 39:56
Þátturinn er sá fyrsti af þremur um lygilega sögu Svíans Sture Bergwall, öðru nafni Thomas Quick, sem um árabil var þekktur sem versti raðmorðingi Norðurlandanna, dæmdur fyrir átta morð og grunaður um fjölda annarra, en er í dag frjáls maður.
Radovan Karadzic 10.08.2018 41:29
Í þættinum er fjallað um ævi Radovans Karadzic, leiðtoga Bosníuserba í Júgóslavíustríðinum, og lygilegan flótta hans undan réttvísinni í þrettán ár, en hann var að lokum dæmdur í fjörutíu ára fangelsi af stríðsglæpadómstól fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni 2016.
Spillingarsaga FIFA II 06.07.2018 40:32
Í þættinum er fjallað áfram um rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar og skattstofu á vafasömum fjármálum Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA. Síðari þáttur af tveimur.
Spillingarsaga FIFA I 29.06.2018 39:54
Í þættinum er fjallað um sögu Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, starf þess sem áratugum saman hefur einkennst af mútum og spillingu, og upphaf rannsóknar bandarísku alríkislögreglunnar á fjármálum sambandsins, sem komst í heimsfréttirnar 2015. Fyrri þáttur af tveimur.
„Engillinn“ Ashraf Marwan II 22.06.2018 40:48
Seinni þáttur um Egyptann Ashraf Marwan, sem var tengdasonur Nassers Egyptalandsforseta og jafnframt njósnari fyrir ísraelsku leyniþjónustuna um árabil. Í þessum þætti er fjallað um þátt Marwans í Yom Kippur-stríðinu 1973 og dularfullan dauða hans í Lundúnum áratugum síðar.
„Engillinn“ Ashraf Marwan I 15.06.2018 40:59
Í þættinum er sögð lygileg saga Egyptans Ashraf Marwan, sem var tengdasonur Nassers Egyptalandsforseta og jafnframt mesti landráðamaður í sögu Egyptalands, sem seldi Ísrael ríkisleyndarmál árum saman. Fyrri þáttur af tveimur.
Morðið á Robert F. Kennedy 08.06.2018 40:12
Í þættinum er fjallað um morðið á bandaríska stjórnmálamanninum Robert F. Kennedy, sem var skotinn til bana á hóteli í Los Angeles aðfaranótt 5. júní 1968, þegar hann sóttist eftir tilnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins, og um ævi Kennedys og morðingja hans, Palestínumannsins Sirhan Sirhan.
Estonia 11.05.2018 39:47
Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta sjóslys í sögu Evrópu á friðartímum, þegar eistneska farþegaferjan MS Estonia sökk í illviðri á Eystrasaltinu á leið til Stokkhólms í september 1994.
Byltingarmennirnir sem tortímdu sjálfum sér 04.05.2018 38:50
Í þættinum er fjallað um róttækan hóp vinstrimanna í Japan, Sameinaða rauða herinn. Í árslok 1971 héldu liðsmenn hópsins í afskekktan fjallakofa til að stunda heræfingar, en dvöl þeirra þar leystist fljótt upp í ofbeldi og blóðsúthellingar.
Queen Mary og Dönsku Vestur-Indíur 27.04.2018 41:10
Í þættinum er fjallað um sögu Dönsku Vestur-Indía, nýlendu Danmerkur í Karíbahafi, og Queen Mary Thomas, svarta verkakonu sem leiddi blóðuga uppreisn gegn dönskum yfirvöldum á eyjunum 1878, en nýlega var reist stytta af henni í Kaupmannahöfn.
Timbúktú-handritin 13.04.2018 39:39
Í þættinum er fjallað um borgina sögufrægu Timbúktú í norðanverðu Malí. Þegar vígamenn íslamista tóku borgina yfir á vormánuðum 2012 tókst bókavörðum borgarinnar á nær ótrúlegan hátt að forða þúsundum ómetanlegra fornhandrita frá glötun.
Timbúktú-handritin 13.04.2018 39:39
Í þættinum er fjallað um borgina sögufrægu Timbúktú í norðanverðu Malí. Þegar vígamenn íslamista tóku borgina yfir á vormánuðum 2012 tókst bókavörðum borgarinnar á nær ótrúlegan hátt að forða þúsundum ómetanlegra fornhandrita frá glötun.
Alberto Fujimori 06.04.2018 41:20
Í þættinum er fjallað um Alberto Fujimori, forseta Perú frá 1990 til ársins 2000. Fujimori, sonur japanskra innflytjenda til Perú, naut mikillar hylli á fyrstu árum valdatíðar sinnar, en undir lok hennar kom margt misjafnt í ljós um stjórnarhætti hans.
Mannæturnar í Tsavo 23.03.2018 38:08
Í þættinum er fjallað um tvö ljón, sem herjuðu á verkamenn sem lögðu járnbraut fyrir breska heimsveldið í Kenía undir lok nítjándu aldar, og tilraunir bresks herforingja til að ráða niðurlögum ljónanna.
Alexander Litvinenko 16.03.2018 40:20
Í þættinum er fjallað um mál Rússans Alexander Litvinenko, fyrrverandi leyniþjónustumanns og andstæðings rússneskra stjórnvalda, sem lést í Lundúnum í nóvember 2006 eftir að honum var byrlað geislavirkt efni í tebolla.
Umsátrið í Waco 09.03.2018 39:37
28. febrúar 1993 ætluðu útsendarar Áfengis-, tóbaks- og skotvopnaeftirlits Bandaríkjanna að kanna grunsemdir um að liðsmenn fámenns kristins trúarsafnaðar, sem hélt til á búgarði fyrir utan borgina Waco í Texas, hefðu ólögleg skotvopn undir höndum. Aðgerðin endaði með skotbardaga og blóðbaði. Umsátur bandarísku alríkislögreglunnar um búgarðinn átti svo eftir að standa í fimmtíu daga.
Jedwabne 02.03.2018 43:45
Í þættinum er fjallað um fjöldamorð á Gyðingum í pólska smábænum Jedwabne í miðri seinni heimsstyrjöld, 10. júlí 1941, og umræðu sem kviknaði í kjölfarið af útgáfu bókar um fjöldamorðin í Póllandi, sextíu árum síðar.
Benjamín Netanyahu 23.02.2018 39:34
Í þættinum er fjallað um uppvöxt Benjamíns Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og leið hans til valda. Netanyahu eða „Bíbí“ eins og hann er gjarnan kallaður ólst að stórum hluta upp í Bandaríkjunum, og tók þar sín fyrstu skref á braut stjórnmála í ísraelsku utanríkisþjónustunni. Hann hefur verið umdeildur frá upphafi ferilsins en ekki síst var það hörð andstaða við Óslóar-friðarsamningana sem kom...
Benjamín Netanyahu 23.02.2018 39:34
Í þættinum er fjallað um uppvöxt Benjamíns Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og leið hans til valda. Netanyahu eða „Bíbí“ eins og hann er gjarnan kallaður ólst að stórum hluta upp í Bandaríkjunum, og tók þar sín fyrstu skref á braut stjórnmála í ísraelsku utanríkisþjónustunni. Hann hefur verið umdeildur frá upphafi ferilsins en ekki síst var það hörð andstaða við Óslóar-friðarsamningana sem kom...
Korean Air 858 16.02.2018 38:40
29. nóvember 1987 hvarf suðurkóresk farþegaþota á leið frá Bagdad til Seoul skyndilega í hafið á miðri leið og 115 manns um borð fórust. Undirbúningur stóð þá sem hæst fyrir fyrstu Ólympíuleika Suður-Kóreu sem fara áttu fram í Seoul sumarið 1988. Grunur vaknaði því fljótt hvort óvinaríkið Norður-Kórea hefði með einhverjum hætti grandað þotunni til að spilla fyrir Ólympíuleikunum.
Korean Air 858 16.02.2018 38:40
29. nóvember 1987 hvarf suðurkóresk farþegaþota á leið frá Bagdad til Seoul skyndilega í hafið á miðri leið og 115 manns um borð fórust. Undirbúningur stóð þá sem hæst fyrir fyrstu Ólympíuleika Suður-Kóreu sem fara áttu fram í Seoul sumarið 1988. Grunur vaknaði því fljótt hvort óvinaríkið Norður-Kórea hefði með einhverjum hætti grandað þotunni til að spilla fyrir Ólympíuleikunum.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice