RÚV
Í ljósi sögunnar
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Maurice Hilleman 15.03.2019 40:59
Í þættinum er fjallað um Maurice Hilleman, bandarískan vísindamann sem þróaði meira en 40 bóluefni á ferlinum, fleiri en nokkur annar, og vann meðal annars að bóluefninu gegn mislingum. Hann er sagður hafa með lífsverki sínu bjargað fleiri mannslífum en nokkur annar vísindamaður.
Tyrkneska kvennaveldið II 08.03.2019 41:08
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um það tímabil í sögu Tyrkjaveldis þar sem mæður og barnsmæður Tyrkjasoldána voru mjög valdamiklar við hirðina og beittu áhrifum sínum óspart, sér í lagi er fjallað um ævi einnar áhrifamestu konu tyrkneskrar sögu.
Tyrkneska kvennaveldið I 01.03.2019 39:59
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um sögu Ottómanveldisins tyrkneska. Á ofanverðri sextándu öld fór í hönd tímabil þar sem mæður og barnsmæður Tyrkjasoldána voru mjög valdamiklar við hirðina og beittu áhrifum sínum óspart.
Pitcairn-eyja 22.02.2019 41:56
Í þættinum er fjallað um sögu afskekktrar smáeyju í Kyrrahafi, Pitcairn. Uppreisnarmenn af breska skipinu Bounty settust að á eyjunni árið 1790. Tveimur öldum síðar urðu afkomendur þeirra alræmdir þegar fjöldi karla á eyjunni var ákærður fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn börnum.
Gröf Tútankamons 15.02.2019 41:22
Í þættinum er fjallað um breska fornleifafræðinginn Howard Carter, sem árið 1922 uppgötvaði grafhvelfingu drengfaraósins Tútankamons í Konungadalnum í Egyptalandi.
Landnám Venesúela 08.02.2019 41:43
Í þættinum er fjallað um sögu Suður-Ameríkulandsins Venesúela eftir að Spánverjar hófu að leggja landið undir sig í byrjun sextándu aldar. Lesari: Guðni Tómasson. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Landnám Venesúela 08.02.2019 41:43
Í þættinum er fjallað um sögu Suður-Ameríkulandsins Venesúela eftir að Spánverjar hófu að leggja landið undir sig í byrjun sextándu aldar. Lesari: Guðni Tómasson. Umsjón: Vera Illugadóttir.
George Soros 01.02.2019 41:38
Í þættinum er fjallað um ævi auðjöfursins umdeilda, George Soros.
Ebólufaraldurinn 1976 25.01.2019 41:54
Í þættinum er fjallað um fyrstu tilfelli sjúkdómsins ebólu sem vísindamenn rannsökuðu, í afskekktu þorpi í Saír í Mið-Afríku 1976.
Ebólufaraldurinn 1976 25.01.2019 41:54
Í þættinum er fjallað um fyrstu tilfelli sjúkdómsins ebólu sem vísindamenn rannsökuðu, í afskekktu þorpi í Saír í Mið-Afríku 1976.
Súleiman mikli og Roxelana 18.01.2019 43:16
Í þættinum er fjallað um valdatíð Súleimans mikla, soldáns tyrkneska Ottómanveldisins 1520-1566, og um Roxelönu, sem var ambátt í kvennabúri soldáns sem fangaði hjarta soldánsins og varð smátt og smátt ein valdamesta kona sinna tíma.
Landvinningar Tyrkjasoldána 11.01.2019 42:32
Þátturinn er sá þriðji um sögu Ottómanveldisins tyrkneska. Í þessum þætti er fjallað um síðari hluta valdatíðar Mehmets 2., eftir að hann sigraði Konstantínópel 1453, og eftirmenn hans Bajesíd 2. og Selím grimma, sem lagði undir sig stóran hluta Miðausturlanda.
Lockerbie 21.12.2018 38:29
Í þættinum er fjallað um hryðjuverkaárás 21. desember 1988, sem kennd er við skoska smábæinn Lockerbie.
Fall Konstantínópel 14.12.2018 42:19
Í þættinum er fjallað um árás og umsátur Ottóman-Tyrkja, undir stjórn soldánsins unga Mehmet 2., á höfuðborg Býsansveldis, Konstantínópel, vorið 1453.
Upphafsár Ottómanveldisins 07.12.2018 46:18
Í þættinum er fjallað um tilurð hins tyrkneska Ottómanveldis á Anatólíuskaga í upphafi fjórtándu aldar og fyrstu herferðum Ottóman-Tyrkja gegn Býsansríki og Serbum á Balkanskaga.
Ota Benga 30.11.2018 40:03
Í þættinum er fjallað um kongóskan karlmann, Ota Benga, sem var hafður til sýnis með öpum í dýragarðinum í Bronx í New York við upphaf tuttugustu aldar.
Jim Jones og Peoples Temple II 16.11.2018 44:19
Í þættinum er fjallað áfram um bandaríska sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og leiðtoga hans Jim Jones, en fjörutíu ár eru um þessar mundir síðan meira en 900 liðsmenn safnaðarins frömdu sjálfsmorð að áeggjan leiðtogans í bækistöðvum safnaðarins í Gvæjana.
Jim Jones og Peoples Temple I 09.11.2018 39:39
Í þættinum er fjallað um bandaríska sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og leiðtoga hans Jim Jones, en fjörutíu ár eru um þessar mundir síðan meira en 900 liðsmenn safnaðarins frömdu sjálfsmorð að áeggjan leiðtogans í bækistöðvum safnaðarins í Gvæjana.
Herforingjastjórnin í Brasilíu 02.11.2018 39:55
Í þættinum er fjallað um valdarán hersins í Brasilíu 1964 og einræðisstjórn herforingja sem fylgdi fram til ársins 1985. Lesari: Guðni Tómasson. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Konungar Sádi-Arabíu 26.10.2018 38:33
Í þættinum er fjallað um sögu konungsfjölskyldunnar í Sádi-Arabíu.
1MDB 19.10.2018 40:47
Í þættinum er fjallað um eitt umfangsmesta fjársvikamál sem uppgötvast hefur, skipulagðan þjófnað forsætisráðherra Malasíu og ungs glaumgosa á milljörðum dollara úr opinberum fjárfestingarsjóði malasíska ríkisins. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Oxycontin 05.10.2018 40:50
Í þættinum er fjallað um verkjalyfið Oxycontin, sem hratt af stað ópíóíðafaraldrinum sem leikið hefur Bandaríkin grátt á síðustu árum, og óheiðarlega markaðsetningu framleiðandans Purdue Pharma á lyfinu.
Dauðahafshandritin II 28.09.2018 43:22
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um eina af merkustu fornleifauppgötvun síðustu aldar, forn handrit sem ungur hirðingjapiltur fann í helli við strönd Dauða hafsins í Palestínu 1946. Í þessum þætti er fjallað um tilraunir sýrlensks biskup til að selja handritin, hvernig þau rötuðu á smáauglýsingasíðu Wall Street Journal og blekkingarleik Ísraela til að komast yfir þau.
Dauðahafshandritin I 14.09.2018 38:28
Í þættinum er fjallað um eina merkustu fornleifauppgötvun síðustu aldar, þegar ungur hirðingjapiltur fann forn handrit falin í helli við strönd Dauða hafsins í Palestínu.
Emmett Till 07.09.2018 39:52
Þátturinn fjallar um einn af alræmdustu glæpum bandarískrar sögu, morðið á Emmett Till, fjórtán ára svörtum pilti í Mississippi árið 1955.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice