RÚV
Í ljósi sögunnar
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Kjarnorkusölumaðurinn 09.02.2018 41:14
Í þættinum er fjallað um mann sem hefur verið kallaður hinn eini sanni sölumaður dauðans, og hættulegasti maður heims: pakistanska kjarnorkuvísindamanninn AQ Khan, sem smíðaði fyrstu kjarnorkusprengja Pakistans með stolinni tækni og seldi svo ríkjum á borð við Íran og Norður-Kóreu kjarnorkutækni.

Geimskutlan Kólumbía 02.02.2018 38:20
Fyrir fimmtán árum, 1. febrúar 2003, fórst geimskutla bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, Kólumbía, þegar hún var á leið til lendingar í Flórída að loknum sextán daga leiðangri. Þegar örfáar mínútur voru til lendingar splundraðist skutlan í tugþúsund mola yfir suðvestanverðum Bandaríkjunum og allir um borð, sjö geimfarar, fórust. Í þættinum er fjallað um hinstu ferð Kólumbíu og rannsóknina á...
Kongóstyrjaldirnar miklu 26.01.2018 40:35
Í þriðja þætti um sögu Kongó í Mið-Afríku er fjallað um valdatíð einræðisherrans Mobutu Sese Seko, sem nefndi landið Saír og gerði það gjaldþrota með eyðslusemi sinni, og vargöldina sem tók við af honum, þegar grannríki Kongó réðust inn í landið og komu af stað einni mannskæðustu styrjöld síðari ára.
Kongó-krísan 19.01.2018 39:59
Í þættinum er fjallað áfram um sögu Kongó í miðri Afríku. Landið fékk sjálfstæði frá Belgum í júní 1960, en aðeins örfáum vikum síðar var landið allt í algjörri upplausn.
Kongó Leópolds konungs 12.01.2018 39:59
Í þættinum er fjallað um sögu Fríríkisins Kongó, gríðarstórrar einkanýlendu sem Leópold II Belgakonungur kom sér upp í miðri Afríku undir lok nítjándu aldar. Innfæddir Kongómenn máttu þola þá hryllilega glæpi, þrælkunarvinnu og arðrán en konungurinn græddi á tá og fingri.
Íranska byltingin 05.01.2018 40:00
Í þættinum er fjallað um byltinguna í Íran 1978-1979, þegar írönsk alþýða reis upp gegn keisaranum Mohammed Reza Pahlavi, og íhaldssamir íslamskir klerkar komust að lokum til valda.
Kettir 29.12.2017 40:00
Í þættinum er fjallað um sögu sambúðar katta og manna. Fjallað er meðal annars um nýjustu kenningar um upphaf kattahalds, kattatrú Forn-Egypta, hryllilegar kattapyntingar sem tíðkuðust til skemmtunar í Evrópu fyrir örfáum öldum og fyrsta köttinn í geimnum.

Jerúsalem II 22.12.2017 40:03
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um sögu helgu borgarinnar Jerúsalem. Í þessum þætti er fjallað um sögu borgarinnar á tuttugustu öld og fram til stofnunar Ísraelsríkis. Fyrstu árin laut borgin harðri stjórn Tyrkja sem beittu borgarbúa miklu harðræði. Síðar tóku Bretar við borginni og þá fór að hitna verulega í kolunum milli trúarhópa og þjóðarbrota í borginni.

Jerúsalem I 15.12.2017 36:41
Í þættinum er fjallað um sögu Jerúsalem frá því til forna og fram að aldamótum tuttugustu aldar, en á því langa tímabili skiptust á skin og skúrir í sögu borgarinnar helgu, sem ýmist var barist um af heilagri sannfæringu eða hún afskipt og afskekkt.
Kúrú 08.12.2017 38:11
Í þættinum er fjallað um dularfullan og ólæknandi sjúkdóm sem herjaði á frumstæða fjallaþjóð í Nýju Gíneu um miðbik tuttugustu aldar, og bandarískan vísindamann sem leysti ráðgátuna um sjúkdóminn, fékk Nóbelsverðlaunin fyrir en reyndist síðar hafa framið alvarlegan glæp.
Kim Jong-un 01.12.2017 37:00
Í þættinum er fjallað um Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, og þann þriðja úr Kim-ættinni sem fer með æðstu völd þar í landi. Farið er það litla sem vitað er með vissu um æsku og uppvöxt Jong-un og fyrstu ár hans við völd.

Gíslataka í leikhúsi í Moskvu 27.10.2017 38:50
Fimmtán ár eru um þessar mundir frá því að téténskir hryðjuverkamenn tóku um 900 manns í gíslingu í leikhúsi í Moskvu. Í þættinum er atburðarásinni þessa októberdaga í Moskvu 2002 lýst. Umsátri um leikhúsið lauk með harmleik og dauða meira en hundrað gísla, og enn í dag er spurningum ósvarað um málið.

Xi Jinping 20.10.2017 40:24
Í þættinum er fjallað um ævi eins valdamesta manns heims, Xi Jinping, formanns kínverska kommúnistaflokksins og forseta Kína. Xi var af kommúnískum aðalsættum en varði þó táningsárum sínum við erfiðisvinnu í helli í afskekktri sveit.
Kúrdar í Írak 13.10.2017 40:06
Í þættinum er fjallað um baráttu Kúrda í Írak fyrir sjálfstæðu ríki. Kúrdískir uppreisnarmenn háðu tvö mannskæð stríð við írösk stjórnvöld á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar, en það voru jafnframt miklir umbrotatímar í sögu Íraks.
Port Arthur-fjöldamorðin og skotvopn í Ástralíu 06.10.2017 36:31
Í þættinum er fjallað um fjöldamorðin í Port Arthur í Ástralíu árið 1996, þegar ungur maður myrti 35 og særði fjölda manns í mannskæðustu skotárás í ástralskri sögu. Morðin urðu til þess að áströlsk stjórnvöld settu stranga skotvopnalöggjöf og gerðu hundruð þúsunda öflugra skotvopna upptæk, aðgerðir sem stundum eru nefndar sem möguleg fyrirmynd að herðingu skotvopnalaga í Bandaríkjunum. Þátturinn...
Min Kóreudrottning 29.09.2017 40:00
Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kórea varð japönsk nýlenda í upphafi tuttugustu aldar og endalok hins aldagamla kóreska konungsríkis. Þar kemur við sögu síðasta drottning Kóreu, Min, ein merkilegasta kona kóreskrar sögu, sem komst til valda í karllægu ríki með bæði kænsku og hörku, reyndi að standa uppi í hárinu á Japönum en galt að lokum fyrir með lífi sínu. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Saga risapöndunnar II 22.09.2017 39:23
Síðari þáttur af tveimur um sögu pandabjarna. Í þessum þætti er meðal annars fjallað um einn frægasta pandabjörn tuttugustu aldar, Chi-Chi, sem flæktist inn í kalda stríðið, heimsókn Richards Nixon Bandaríkjaforseta til Kína og pandabirnina sem komu í kjölfarið til Bandaríkjanna.
Saga risapöndunnar 15.09.2017 38:33
Í þættinum er fjallað um eitt umtalaðasta dýr dýraríkisins, hinn svarthvíta pandabjörn. Í þessum fyrri þætti af tveimur um sögu pöndunnar er fjallað meðal annars um það þegar vestrænir menn komust fyrst í kynni við pöndur, fyrsta pönduæðið, þegar bandarísk kona veiddi fyrst Vesturlandabúa lifandi pönduhún og fór með hann til New York, svo og fyrstu dæmi þess að pöndur væru fluttar milli landa í pó...
Stofnun Norður-Kóreu 08.09.2017 44:05
Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kóreuskaganum var skipt upp í Norður- og Suður-Kóreu eftir seinni heimsstyrjöld, ævi fyrsta leiðtoga Norður-Kóreu, einræðisherrans Kim Il-Sung, og upphaf kjarnorkuáætlunar norðurkóreska ríkisins. Þátturinn var áður á dagskrá í september 2016.
Angela Merkel 01.09.2017 39:18
Í þættinum er fjallað um einn áhrifamesta stjórnmálamann samtímans, Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Sagt er frá uppvexti hennar sem prestsdóttir í Austur-Þýskalandi, ferli í eðlisfræðirannsóknum, kynni af leyniþjónustunni Stasi og undraverðs uppgangs hennar í pólitík eftir fall Berlínarmúrsins.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice