Handkastið

Handkastið

Podcast by Handkastið

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: soundcloud.com

Autor

Handkastið

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

soundcloud.com

Cel mai nou episod

2 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Hátt falla Hauka - Andri Snær með stílinn á lofti og Bjarki Már verður heima í janúar 16.12.2025

Sérfræðingurinn fékk þá Einar Inga Hrafnsson og Ásgeir Jónsson til að fara yfir það sem hefur gerst í handboltanum hér heima síðustu daga. Stelpurnar eru farnar aftur af stað í Olís-deild kvenna á meðan Olís-deild karla er komin í jólafrí. Snorri Steinn Guðjónsson velur lokahópinn fyrir EM í vikunni og þá var mikill hiti í toppslagnum í Grill66-deildinni.

Fram að vakna til lífsins og erfiðleikar í Garðabænum 12.12.2025

Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Geiri Sly komu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanun hér heima og erlendis. Landsliðshópurinn verður valinn eftir viku og Snorri liggur á bæn að allir haldist heilir. Fær Donni kallið? Olís deild kvenna fer aftur af stað um helgina. Fram eru að vakna til lífsins meðan KA eru aðeins að missa flugið. Hvað er að gerast í Garðabænum? Þetta og miklu mikl...

Jákvæð teikn á lofti hjá landsliðinu og stuðningsmenn Þórs gengu út 08.12.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu og gerðu upp helgina í Handkast stúd´íóinu í morgun. HM er lokið hjá Stelpunum Okkar og jákvæð teikn á lofti upp á framtíðina. Erum við að verða á eftir öðrum þjóðum í kringum okkur í handboltanum? Valsmenn rúlluðu eftir FH síðustu 10 mínútur leiksins og unnu í Kaplakrika. Þórsarar mættu ekki til leiks gegn Fram fyrir norðan og stuðningsmenn geng...

Vegferðin heldur áfram hjá stelpunum og eru ÍR fallnir? 05.12.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi gerðu upp vikuna í handboltanum hér heima og erlendis. Stelpurnar Okkar hafa sýnt góða takta í Þýskalandi en hafa ekki náð að klára leikina. Lokaleikur mótsins er gegn Færeyjum á laugardaginn. Það var netlaus í Mosfellsbænum á miðvikudaginn. Eru ÍR-ingar fallnir úr deild þeirra bestu eftir tap gegn Selfoss? Olísdeildin heldur áfram um helgina. Þetta o...

Strákarnir mættu taka stelpurnar sér til fyrirmyndar 30.11.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í stúdíó Handkastsins gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Stelpurnar okkar eru komnar í milliriðil sem hefst á þriðjudaginn sem þeir eiga fínan séns á að sækja úrslit í. Leikgleðin hjá hópnum skín í gegn og vill Sérfræðingurinn sjá Strákana Okkar taka þetta sér til fyrirmyndar á næsta stórmóti. ÍR eru komnir með sinn...

Einar Baldvin í landsliðsklassa og Stelpurnar Okkar í eldlínunni um helgina 27.11.2025

Stymmi Klippari, Gunnar Valur og Benni Grétars kíktu í stúdíó Handkastins og gerðu upp vikuna í boltanum. Stelpurnar Okkar sýndu jákvæða frammistöðu gegn sterku Þýsku liði í opnunarleiknum á Heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi. Afturelding lék sér að Haukum í Mosfellsbænum og Einar Baldvin var í landsliðsklassa. Valur eru komnir á topp deildarinnar og virðist fátt geta stöðvað þá. Stórle...

Stelpurnar byrja á miðvikudaginn og Olís deild karla er hálfnuð 24.11.2025

Stymmi Klikkari, Davíð Már og Geiri Gunn mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Stelpurnar unnu Færeyjar á laugardaginn og hefja leik á HM á miðvikudaginn. Gummi Gumm gæti vel hugsað sér að taka við landsliði. Stjarnan og Valur rúlluðu yfir leikina sína um helgina. Olís deildin er hálfnuð og lið fyrri hlustans var valið í þættinum. Þetta og svo miklu...

EM í hættu, KA með montréttinn og Arnar Pétursson á línunni 21.11.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé gerðu upp vikuna í Handkast stúdíóinu þennan föstudagsmorgun. Þorsteinn Leó er í kappi við tímann og önnur meiðsli eru að hrjá landsliðsstrákana okkar. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn hjá HSÍ. Uppselt var á nágrannaslaginn fyrir Norðan þar sem KA fór með sigur af hólmi. Selfoss halda áfram að koma á óvart og unnu Aftureldingu í gær. Kvennalands...

Aukakastið - Díana Dögg Magnúsdóttir 19.11.2025

Gestur Aukakastsins í nóvember er landsliðskonan Díana Dögg Magnúsdóttir. Díana Dögg fer yfir uppvaxtar árin í Vestmannaeyjum og hvernig hún fór í að læra flugvélaverkfræði í Þýskalandi. Hún er núna ásamt landsliðinu að undirbúa sig fyrir HM sem hefst í næstu viku.

Akureyrarslagur í opinni dagskrá og fimm bestu stelpurnar í vetur 17.11.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly komu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Ágúst Elí er án liðs og gæti verið á heimleið. Úr íslenskir leikmenn að fá afslátt í gagnrýni? Það er stórleikur fyrir norðan í vikunni og allar líkur á að það verði uppselt í KA heimilið. Hverjar hafa verið fimm bestu í Olís deild kvenna í vetur. Ættum við að fækka í...

Slæm vika fyrir xG og eiga KA að sækja sér markmann? 14.11.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Alli Eyjólfs kíktu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi. Kíkti einhver á 35 manna lista fyrir HM kvenna? Þetta var slæm vika fyrir xG tölfræðina. Er KA einum góðum markmanni frá því að geta keppt um titla? Kvennadeildin aldrei verið jafnari og það gætu verið þrjú lið með jafn mörg stig fyrir HM pásu. Þetta og svo miklu miklu meira í...

Landsliðshópur tilkynntur með e-maili og þjálfaralausir Stjörnumenn í landsliðsviku 10.11.2025

Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis. Það var lágstemmd stemmning þegar landsliðshópur kvenna fyrir HM var tilkynntur á föstudaginn og fengu fjölmiðlar e-mail með hópnum og hafði Sérfræðingurinn sitt að segja um það. Valur og Haukar fengu skell í Evrópukeppnunum um helgina. ÍBV rúlluðu yfir KA/Þór í Olísdeild kvenna og S...

Árni Bragi er besti leikmaður deildinnar og Haukar setja stefnuna á úrslitakeppnina 07.11.2025

Stymmi Klippari, Gaupi og Einar Ingi mættu í Handkast stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér heima. 9.Umferðin í Olísdeildinni fór fram í gær og ÍR voru næstum búnir að vinna sinn fyrsta leik á tímabilinu. Arnór Snær mætti í sinn fyrsta leik og virðist ætla að taka yfir deildina. Árni Bragi Eyjólfsson er besti leikmaður deildarinnar að mati Gaupa. Díana Dögg segir Hauka var að byggja upp...

Björgvin til bjargar og hver tekur við kvennaliði Stjörnunnar? 02.11.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Jónsson mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp síðari landsleik Íslands gegn Þýskalandi. Björgvin Páll var að tryggja sér farmiðann á enn eitt stórmótið. Andinn í Strákunum okkar var allt annar í dag. Heil umferð fór fram í Olís deild kvenna um helgina. Leikmannamarkaðurinn er líflegur í Olís deild karla. Hver mun taka við kvennaliði Stjörnunnar? Þetta o...

Þarf Snorri Steinn fleiri í þjálfarateymið og Patti Jó farinn frá Stjörnunni 31.10.2025

Stymmi Klippari, Aðalsteinn Eyjólfsson og Einar Örn Jónsson mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Íslenska landsliðið áttu skelfilegan leik gegn Þýskalandi í gær og margar viðvörunarbjöllur sem Snorri þarf að bregðast við. Var skert þjálfarteymi Snorra Steins sökin? Alferð Gíslason er búinn að gjörbreyta þessu þýska landsliði og gæti unnið til verðlauna í Janúar. Powerade...

Þriðjungsuppgjör í Olís og getur eitthvað lið veitt Valskonum keppni? 27.10.2025

Stymmi Klippari, Davíð Már og Geiri Gunn mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Getur eitthvað lið í Olís deild kvenna veitt Val keppni í vetur? Er Viktor Sigurðsson til Fram kaup ársins? Sambandslaust í Garðabænum og æsispennandi leikur í Vestmannaeyjum. Eru liðin sátt með frammistöðu sína eftir að þriðjungur deildinnar er búinn? Hverjir eru búnir að vera bestir og hvað...

Var vanmat hjá Haukum og leikmannasölur á Íslandi 24.10.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Handkast stúdíóið og fóru yfir vikuna í handboltanum. Viktor Sig var keyptur frá Val yfir í Fram en upphæðin er óljós. FH unnu Hafnarfjarðarslaginn í gær og deildin hefur aldrei verið jafnari. Þór ætla sér sæti í úrslitakeppninni og með Brynjar Hólm í þessu formi getur allt gerst. Valsmenn slökuðu heldur mikið á klónni í gær og hleyptu ÍR inn...

Aukakastið - Ágúst Þór Jóhannsson 22.10.2025

Gestur Aukakastsins í Október er enginn annar en Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari meistaraflokks karla í Val. Gústi eins og hann er oftast kallaður fer yfir æsku sína í handboltanum sem byrjaði vestur í bæ hjá KR. Hann hefur komið víða við sem þjálfari og hefur frá mörgum skemmtilegum sögum að segja. Gjörið svo vel, vinir!

Við erum bara ekki betri en þetta og áhugaverðar viðureignir í Olísdeildinni 20.10.2025

Handkastið fór yfir allt það helsta í handboltanum um helgina. Snorri Steinn valdi 17 manna landsliðshóp á föstudaginn fyrir æfingarleiki gegn Þjóðverjum. Íslenska kvenna landsliðið tapaði öðrum leiknum í röð gegn Portúgal í gær 26-25. 7.umferðir Olísdeildarinnar kláraðist um helgina þar sem ÍR-ingar eru límdir við botninn. Ræddum fólskulegt brot hjá Bjarna Ófeig gegn Val í síðustu viku. Þetta og...

Vanmátu íslensku stelpurnar Færeyjar og misjafnt gengi fyrir Norðan 17.10.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Handkast stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Íslenska kvenna landsliðið tapaði gegn Færeyjum í vikunni í undankeppni EM. Fram stóðu í Porto framan af en lentu svo á vegg síðustu 15 mínúturnar. Haukar halda áfram að vinna og eru komnir á topp deildinnar. KA hafa komið öllum á óvart í vetur og eru komnir í 3.sætið....

Það er allt í lagi að vera með grín, svo framarlega sem það fer ekki út í sprell 12.10.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars komu í Handkast stúdíóið á þessu sunnudagskvöldi og gerðu upp helgina í handboltanum. Stelpurnar okkar eru að fara í 2 leiki gegn Færeyjum og Portúgal í vikunni. HK skildu ÍR eina eftir á botninum og KA sigraði Fram í Úlfarsárdalnum en fékk að nota 8 leikmenn til þess. Haukar rúlluðu yfir ÍBV í Eyjum í dag án Arons Rafns sem var í löngu planaðari g...

Er erfitt að reka þjálfara í deildinni og sleppur Ívar Logi við bann? 10.10.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi gerðu upp vikuna í handboltanum. Bikarkeppnin var í fullum gangi í upphafi vikunnar og voru óvænt úrslit þar. Landsleikjahlé komið hjá stelpunum í Olísdeildinni fyrir leiki gegn Færeyjum og Portúgal. 6.umferð Olís deildar karla hófst í gær og voru Þórsarar með svakalega endurkomu í Kaplakrika. Boltabloggið finnst lítil þjálfaravelta á Íslandi. Er erfi...

Stórveldi í vanda, sterkir nýliðar og gæða útlendingar 06.10.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly fóru yfir allt það helsta frá helginni í handboltanum. Bikarkeppnin er í fullum gangi og ævintýri ÍBV 2 lauk í gær þegar KA menn komu í heimsókn. ÍR unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í gær og eru komnir í 8 liða úrslit. 4. umferðin í Olísdeild kvenna lauk um helgina og það er eru svakalegir leikir í vikunni hjá stelpunum. Topp 5 listar voru allsráðan...

Erlingur nennir Handkastinu ekki og loksins vann HK 02.10.2025

Stymmi Klippari, Davíð Már og Geiri Gunn mættu í Handkast stúdíóið í kvöld og gerðu upp 5.umferðina í efstu deild karla í kvöld. Þór og Stjarnan skildu jöfn í háspennu leik fyrir Norðan meðan KA og ÍR voru með markaveislu í kvöld. ÍBV tapaði gegn Selfoss og Erlingur Richardsson nennti ekki að ræða við Handkastið eftir leik. Afturelding eru einir á toppi deildinnar með fullt hús stiga eftir að hafa...

Ár og aldir síðan HK vann leik og svakalegur fimmtudagur framundan 29.09.2025

Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í boltanum. Gaupi fór yfir brottrekstur Gumma Gumm í Danmörku og Janus Daði Smárason varð fyrir skelfilegum meiðslum í gær. Haukar og Fram gerðu jafntefli um helgina en Haukar verða án Rutar í vetur þar sem hún er ólétt. Valskonur unnu fyrri viðureign sína í Evrópukeppninni í Hollandi meðan Selfoss tapaði me...

Ascultă podcastul Handkastið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice