Kop.is

Gullkastið

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.kop.is

Autor

Kop.is

Categorie

Sports

Site-ul podcastului

www.kop.is

Cel mai nou episod

11 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Gullkastið - L´OL 17.08.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Síðasta vika var bara nokkuð hressandi út frá schadenfreude sjónarmiðum í ljósi þess að Liverpool átti ekki leik og er satt að segja bara að hefja sitt undirbúningstímabil fyrir næsta vetur.

Gullkastið - Liverpool er búið að kaupa leikmann! 11.08.2020

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Það er ekkert í hverjum leikmannaglugga sem Liverpool kaupir leikmann og því ber heldur betur að fagna kaupnum á Grikkjanum Kostas Tsimikas sem skrifaði undir samning við Liverpool í dag. Fórum yfir það ásamt helstu fréttum af okkar mönnum og boltanum almennnt.

Gullkastið – Uppgjör á fárbæru tímabili 29.07.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Jordan Henderson er búinn að lyfta Englandsmeistaratitlinum sem fyrirliði Liverpool, meira fórum við svosem ekki fram á fyrir þetta tímabil. Það hefur aldrei verið eins gaman að gera upp tímabilið.

Gullkastið – Titillinn á loft í þessari viku 21.07.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: Maggi, SSteinn og meistari Sverrir Jón Gylfason. Stóra stundin er formlega á dagskrá eftir leik á miðvikudaginn þegar Jordan Henderson lyftir bikarnum á loft. Við fengum einn besta vin þáttarinn Sverri Jón með okkur í þáttinn til að fara yfir helstu fréttir í þessari viku. Sverrir er stjórnarmaður í Liverpool klúbbnum á Íslandi og fór yfir það hvernig þeir...

Gullkastið - Afslappaður endasprettur 07.07.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Liverpool var ekki alveg komnir af djamminu þegar þeir fóru til Manchester en tapið þar var leiðrétt um helgina með sex stiga sveiflu okkur í hag. Ungu strákar eru farnir að grípa sénsinn á meðan Origi og Ox eru í veseni. Thiago frá Bayern er nýjasta leikmannaslúðrið og Leicester er að klúðra Meistaradeildarsætinu.

Gullkastið/Innkastið - Heimsókn í höfuðstöðvar Fotbolti.net 01.07.2020

Gullkastið kíkti í heimsókn í höfuðstöðvar Fótbolti.net til að fara yfir sigur í deildinni og enska boltann almennt. 

Gullkastið - Englandsmeistarar 26.06.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi, SSteinn og Maggi Þórarins (Beardsley) Liverpool eru Englandsmeistar með öllum þeim tilfinningarússíbana sem því fylgir fyrir alla tengdu félaginu. Gleðin er flöskvalaus og það var svo sannarlega málið þegar við skelltum okkur í Hellinn með Englandsmeistarabikarinn og stóra flösku af kampavíni.

Gullkastið – Steindautt á Goodison 23.06.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Enski boltinn er byrjaður að rúlla og það var nokkuð augljóst að það eru 100+ dagar síðan Liverpool átti síðast leik.

Gullkastið – Kampavínið í kæli! 15.06.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi, SSteinn og Bragi Brynjars. Fengum okkar allra besta Braga Brynjars með okkur á Sport og Grill í Smáralind til að hita upp fyrir fyrsta leik eftir Covid. Það er Hæ hó jibbý jei og City Arsenal strax á miðvikudaginn og svo byrjar ballið fyrir alvöru aftur á sunnudagskvöldið. Erum vægast sagt til í´ða.

Gullkastið - Engin stór leikmannakaup? 10.06.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi, SSteinn og Maggi Þórarins (Beardsley). Það er vika í enski boltinn fari aftur að rúlla skv. núverandi plani og Henderson byrjaður að æfa bikarlyftingadansinn sinn, þó er Covid hvergi nærri dáið út þar í landi. Kvennaliðið var dæmt niður um deild og ekki bara blandaði Liverpool sé ekki í baráttuna um Timo Werner heldur er orðið á götunni að ekkert ve...

Gullkastið - Istanbul var Priceless 27.05.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn

Gullkastið - Sumarið er tíminn 11.05.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Hægt og rólega færist (Staðfest) nær á Liverpool Englandsmeistarar og það er ár frá 4-0 sigrinum á Barcelona, einu besta kvöldi í sögu félagsins og að sjálfsögðu tilefni til að ryfja það upp.

Gullkastið - Flautað af? 29.04.2020

Það vantar ekkert upp á misvísandi fréttir þessa dagana og ljóst að óvissan með framhaldið er ennþá töluverð, ekki bara þegar kemur að fótboltanum. Fórum yfir helstu fréttir vikunnar.

Gullkastið - Rúmlega mánuður án fótbolta 14.04.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Hægt og rólega er að koma einhver mynd á það hvernig fótbolti kemur til með að rúlla aftur á Englandi og ljóst að biðin ekki ennþá hálfnuð þrátt fyrir að Liverpool hafi síðast átt leik fyrir rúmlega mánuði síðan.

Gullkastið - Hvenær og Hvernig? 31.03.2020

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Miklar vangaveltur áfram um framtíð tímabilsins undanfarið og bara framtíð fótboltans í heild. Ekki vantar "sérfræðingana" í þá umræðu. Neikvæðar fréttir um Liverpool selja líklega best af öllum í þessari mestu gúrkutíð í sögu íþrótta.

Gullkastið - Covid-19 17.03.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Þvílíka vika. Covid-19 umræða í víðu samhengi út frá sjónarhóli knattspyrnuaðdáenda. Þetta mun líka ganga yfir...og þá verðum við meistarar!

Gullkastið - #Meistararívor 10.03.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi, SSteinn og Sveinn Waage 01:00  – Hvar vinnum við titilinn? 20:00  – Kórónavírusinn 31:30  – Bournemouth 48:00  – Bikarleikurinn 54:00  – Atletico Madríd – stærsti leikur tímabilsins 01:07:00  – Merseyside Derby Frábær sex stiga sveifla Liverpool í hag um helgina og núna þarf bara eina slíka í viðbót til að landa titlinum. FA Bikarinn var ekki tekinn...

Gullkastið – Skítur skeður! 02.03.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi og SSteinn Ef að það á að tapa leik á annaðborð er jafngott að gera það bara með stæl og okkar menn gerðu einmitt það um helgina. Vonandi kjaftshöggið sem liðið var aðeins farið að þurfa. Tókum auðvitað fyrsta skell tímabilsins, bikarleikinn annað kvöld og leik helgarinnar ásamt öðru almennu spjalli um okkar menn.

Gullkastið - Upphitun frá Liverpool borg 24.02.2020

Stjórnandi: Einar Matthías  Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Liverpool borg er full af íslenskum stuðningsmönnum félagsins og verulega góður andi fyrir leik kvöldsins. Tókum aðeins stöðuna á leikjum helgarinnar, slúðri og spáðum í spilin fyrir West Ham.

Gullkastið - Ekkert stress eftir tap gegn Spænska Stoke 19.02.2020

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi  Það tók alls ekki langan tíma að jafna sig á þessum misskilningi í gærkvöldi gegn afkvæmi Allardyce og Pulis og hans mönnum í Atletioco. Klárum þá á Anfield, næst á dagskrá er St. Mirren, viljum fá alla í Torfasons Black& White Army stuðningsmannaklúbb St. Mirren á Íslandi. 

Gullkastið - Kop.is í Madríd 18.02.2020

Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn Erum í Madríd að taka út stemminguna fyrir leik

Gullkastið - Innslag frá Gatwick 17.02.2020

Tilvalið að nýta stórskemmtilegan biðtíma í millilendingu í létt podcast Stjórnandi: Einar Matthías  Viðmælendur: Maggi og SSteinn

Gullkastið - Össur um Norwich 14.02.2020

Stjórnandi: Magnús Þórarinsson (Beardsley) Viðmælandi: Össur Skarphéðinsson  Upphitun fyrir Norwich með Össuri Skaprhéðinssyni 

Gullkastið - Síðasta Meistaradeildarsætið 11.02.2020

Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Kristján Gylfi Guðmundsson  Mesta spennan á þessu tímabili er baráttan um fjórða sætið, það eru sex lið í hörku baráttu um þetta rándýra sæti og kaldhæðni örlaganna er að Arsenal er ekki eitt af þeim. Sætið þeirra! Það hefur líka meira en nóg gengið á hjá þessum liðum í vetur og til að spá í spilin með okkur fengum við United manninn Kristján Gylfa...

Gullkastið/Innkastið – Hvenær fáum við (Staðfest)? 03.02.2020

Stjórnandi:  Magnús Már (Fótbolti.net) Viðmælendur:  Einar Matthías, SSteinn og Maggi. Skelltum okkur á skrifstofur Fótbolti.net og vorum með í Innkastinu. Fókusinn auðvitað á Liverpool en tókum auk þess snúning á enska boltanum almennt og því helsta í Evrópu.

Ascultă podcastul Gullkastið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice