Félagsráðgjafafélagið

Félagsráðgjafahlaðvarpið

Hlaðvarp Félagsráðgjafafélags Íslands er vettvangur fyrir samtal, þekkingu og innsýn í heim félagsráðgjafar. Þar er fjallað um málefni sem snerta daglegt starf félagsráðgjafa, þróun fagsins, nýjar rannsóknir, samfélagsbreytingar og áskoranir í velferðarþjónustu. Í þáttunum heyrum við raddir fagfólks, skjólstæðinga og sérfræðinga sem varpa ljósi á fjölbreytt hlutverk félagsráðgjafa og mikilvægi þeirra í samfélaginu. Hlaðvarpið tengir saman fagið, miðlar reynslu og styrkir umræðu um velferð, réttindi og mannlega reisn.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: felagsradgjof.is

Autor

Félagsráðgjafafélagið

Categorie

Society

Site-ul podcastului

felagsradgjof.is

Cel mai nou episod

18 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android 10 mil.+ descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

Þáttur #19 - Vilborg Oddsdóttir 18.11.2026

Gestur minn í dag er Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi, formaður siðanefndar Félagsráðgjafafélags Íslands og einn af öflugustu talsmönnum félagslegs réttlætis og réttinda barna á Íslandi. Hún starfar hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og hefur um áratuga skeið unnið með einstaklingum og fjölskyldum í viðkvæmri stöðu. Árið 2023 hlaut hún viðurkenningu Barnaheilla fyrir framlag sitt í þágu barna og fjöls...

Þáttur #18 - Ragnheiður Björg Guðmundsdóttir 11.11.2026

Í þessum þætti ræðum við við Ragnheiði Björgu Guðmundsdóttur, félagsáðgjafa, fjölskyldufræðing og eiganda Tengslamats í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Hún hefur sérhæft sig í tengslamati og tengslamiðaðri nálgun og kynnti á Félagsráðgjafaþinginu nýja tilviksrannsókn sem sýnir hvernig heildstæð vinna með fjölskyldu getur breytt líf barns og foreldra.

Þáttur #17 - Freydís J. Freysteinsdóttir 04.11.2026

Í dag ætlum við að beina sjónum okkar að menntun félagsráðgjafa, hvernig hún hefur þróast, hvernig námið lítur út í dag og ekki síst hvernig við menntum félagsráðgjafa fyrir samfélag sem breytist hratt. Gestur minn er Freydís J. Freysteinsdóttir, prófessor í félagsráðgjöf, sem tók við sem deildarforseti Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands í sumar.

Þáttur #16 - Kristbjörg Karen Björnsdóttir 28.10.2026

Gestur okkar í dag er Kristbjörg Björnsdóttir sem var að ljúka mastersnámi í félagsráðgjöf. Hún kynnti meistararannsóknina sína á félagsráðgjafaþinginu í febrúar og hún er til umfjöllunar í tímariti félagsráðgjafafélagsins. Rannsóknin fjallar um umsáturseinelti í kjölfar ofbeldis í nánu sambandi. Fyrirbæri sem er of oft hulið í þögn en hefur djúpstæð og víðtæk áhrif á líf þolanda.

Þáttur #15 - Þuríður Sigurðardóttir 14.10.2026

Í dag ætlum við að fjalla um TINNU, virkniúrræði Reykjavíkurborgar sem hefur í tíu ár stutt einstæða foreldra sem hafa verið utan vinnumarkaðar og glímt við langvarandi félagslegan vanda. Verkefnið byggir á þeirri einföldu en öflugu hugmynd að þegar foreldrar fá stuðning, traust og tækifæri til að efla eigin styrkleika skilar það sér ekki aðeins til þeirra sjálfra heldur einnig til barna þeirra og...

Þáttur #14 - Eva Dögg Sigurðardóttir 30.09.2026

Í þessum þætti ræðum við við Evu Dögg Sigurðardóttur félagsráðgjafa og rannsakanda um áhugaverða rannsókn á tilkynningum til barnaverndar á fyrstu mánuðum COVID-19 faraldursins. Þegar samfélagið lokaðist, skólar skertu starfsemi sína og fólk var hvatt til að halda sig heima vöknuðu víða um heim áhyggjur af stöðu barna. Í rannsókn sinni skoðar Eva Dögg hvort ákall stjórnvalda um að ''Við sé...

Þáttur #13 - Kolfinna Bjarney Ólafsdóttir 23.09.2026

Í dag ætlum við að ræða efni sem snertir bæði starfsfólk í barnavernd og í raun okkur öll sem samfélag. Því þegar við tölum um líðan þeirra sem starfa við að hjálpa öðrum erum við líka að tala um gæði þeirrar þjónustu sem við viljum að börn og fjölskyldur fái. Gestur minn er Kolfinna Bjarney Ólafsdóttir, félagsráðgjafi, sem rannsakaði samkenndar þreytu meðal barnaverndarstarfsmanna á Íslandi í mei...

Þáttur #12 - Erla Björg Sigurðardóttir og Helena Gísladóttir 09.09.2026

Gestir okkar í dag eru þau Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og Helena Gísladóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf. Í dag ætlum við að ræða mikilvægt en of lítt sýnilegt úrræði í íslensku velferðarkerfi. Það eru áfangaheimili fyrir fólk sem hefur lokið meðferð vegna vímuefnavanda og eru að byggja upp nýtt líf. Hvernig virka þessi heimili í raun? Hver er staða fólksins sem kemur þanga...

Þáttur #11 - Sigrún Júlíusdóttir 26.08.2026

Fjölskyldu höfnun er sífellt sýnilegri í samtímanum og í þættinum í dag ræðir Sigrún Júlíusdóttir um orsakir, afleiðingar og leiðir til að skilja og vinna úr rofnum tengslum.

Þáttur #10 - Sveindís Anna Jóhannsdóttir & Ásta Kristín Benediktsdóttir 19.08.2026

Í júní síðastliðnum fóru Íslensku félagsráðgjafarnir Sveindís Anna Jóhannsdóttir og Ásta Kristín Benediktsdóttir til Nairobi í Kenía þar sem þær sóttu heimsþing félagsráðgjafa, félagsráðgjafamenntunar og félagsþróunar. Þingið, SWSD 2026, fór fram dagana 26.-29. júní undir yfirskriftinni Harambee for Sustainable Shared Futures, hugtak sem vísar til samstöðu, sameiginlegrar ábyrgðar og þess að vinna...

Þáttur #9 - Díana Ósk Óskarsdóttir 11.08.2026

Í dag ætlum við að ræða málefnið sem snertir kjarnan í faginu, vellíðan, gæði á þjónustu og faglega handleiðslu. Margir félagsráðgjafar starfa við mikið álag, þunga ábyrgð og flókin mannleg mál og þá vaknar spurningin, hvernig styðjum við við fagfólkið sem styður aðra? Gestur okkar í dag er Díana Ósk Óskarsdóttir sem skrifaði áhrifaríka grein í tímaritið okkar þar sem hún lýsir handleiðslu sem gæð...

Þáttur #8 - Ásta Kristín Guðmundsdóttir og Friðrik Arnbjörnsson 29.07.2026

Í dag ætlum við sjónum okkar að einu af mikilvægustu verkefnum samfélagsins og það er að vernda börn og skapa þeim öryggi. Til okkar eru komin þau Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, og Friðrik Arnbjörnsson frá samtökunum B.A.C.A (Bikers Against Child Abuse).

Þáttur #7 - Regína Ásvaldsdóttir 23.07.2026

Í þessum þætti ætlum við að ræða hvernig menntun í félagsráðgjöf getur orðið sterkur grunnur að leiðtogahlutverki og stjórnun. Gestur minn í dag er Regína Ásvaldsdóttir félagsráðgjafi sem hefur gegnt fjölmörgum stjórnunarstörfum. Í nýlegu viðtali í Tímariti félagsráðgjafa segir hún að félagsráðgjöf hafi mótað sig sem leiðtoga.

Þáttur #6 - Valgerður Halldórsdóttir 15.07.2026

Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að veruleika sem að margir þekkja en of fáir tala nægilega skýrt um. Líf barna sem alast upp á tveimur heimilum, oft með stjúpforeldrum á báðum stöðum og flækjustigi sem getur fylgt því, bætanlegu lífi og innan kerfa sem eiga að styðja þau. Þótt þessi fjölskyldumynstur séu orðin algeng bendir ný umræða til þess að við séum enn ekki að ná utan um upplifun ba...

Þáttur #5 - Sólveig Sigurðardóttir 01.07.2026

Í þessum þætti fáum við til okkar Sólveigu Sigurðardóttur, félagsráðgjafa með meistaragráðu, deildarstjóra farsældarþjónustu barna hjá Akraneskaupstað, lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og faglegan handleiðara. Sólveig hefur áratuga reynslu af barnavernd, þróun samþættrar þjónustu og þverfaglegu samstarfi. Hún hefur sérstaklega lagt áherslu á tengslamiðaðar vinnuaðferðir og hvernig f...

Þáttur #4 - Guðrún Marínósdóttir 19.06.2026

Í þessum þætti fáum við til okkar einstaklega áhugaverðan gest, hana Guðrúnu Marínósdóttur, sem sameinar á einstakan hátt heim félagsráðgjafar, leiklistar, og myndlistar. Guðrún er félagsráðgjafi, leikkona og myndlistarkona og í ár málar hún forsíðumyndina á tímariti félagsráðgjafa 2026. Við ætlum að ræða um lífið, listina, félagsráðgjöfina og tengslin þar á milli og hvað það er sem myndlist getur...

Þáttur #3 - Hervör Alma Árnadóttir 10.06.2026

Í þessum þætti ætlum við að ræða félagsráðgjafanám við Háskóla Íslands, þróun þess og framtíð. Hvernig eru félagsráðgjafar menntaðir fyrir sífellt flóknari verkefni í samfélaginu? Hvers vegna eru starfsréttindi nú bundin við meistaragráðu? Hvaða hæfni þarf félagsráðgjafi framtíðarinnar að búa yfir og hvernig tryggjum við að námið haldist í takt við þarfir samfélagsins? Gestur minn er Hervör Alma Á...

Þáttur #2 - Páll Ólafsson 27.05.2026

Í dag ætlum við að fara beint í eina stærstu umbreytingu sem er að eiga sér stað í þjónustu við börn og fjölskyldur á Íslandi. Við ætlum að tala um farsældarlögin og hvað gerist þegar þau eru ekki bara orð á blaði heldur lifandi verkfæri í daglegu starfi. Við ætlum einnig að kafa dýpra í "signs of safety", nálgun sem snýr að því hvernig við hugsum um ábyrgð samtala og lausna. Spurningin...

Þáttur #1 - Steinunn Bergmann 13.05.2026

Velkomin í Félagsráðgjafahlaðvarpið. Það eru ákveðin tímamót í miðlun og sýnileika hjá okkur, því með því að hefja hlaðvarp í hljóði og mynd þá erum við farin á nýjan vettvang. Við viljum opna lifandi samtöl um fagið, fólkið, áskoranirnar og framtíðina. Við erum líka að opna alveg nýja leið í fjölmiðlun félagsins með því að dýpka viðtölin í tímaritinu okkar og gefa lesendum kost á að skanna inn QR...

Ascultă podcastul Félagsráðgjafahlaðvarpið în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice