Félagsráðgjafafélagið
Félagsráðgjafahlaðvarpið
Hlaðvarp Félagsráðgjafafélags Íslands er vettvangur fyrir samtal, þekkingu og innsýn í heim félagsráðgjafar. Þar er fjallað um málefni sem snerta daglegt starf félagsráðgjafa, þróun fagsins, nýjar rannsóknir, samfélagsbreytingar og áskoranir í velferðarþjónustu. Í þáttunum heyrum við raddir fagfólks, skjólstæðinga og sérfræðinga sem varpa ljósi á fjölbreytt hlutverk félagsráðgjafa og mikilvægi þeirra í samfélaginu. Hlaðvarpið tengir saman fagið, miðlar reynslu og styrkir umræðu um velferð, réttindi og mannlega reisn.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: felagsradgjof.is
Author
Félagsráðgjafafélagið
Category
Podcast website
Latest episode
Nov 18, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þáttur #19 - Vilborg Oddsdóttir 18.11.2026 33:17
Gestur minn í dag er Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi, formaður siðanefndar Félagsráðgjafafélags Íslands og einn af öflugustu talsmönnum félagslegs réttlætis og réttinda barna á Íslandi. Hún starfar hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og hefur um áratuga skeið unnið með einstaklingum og fjölskyldum í viðkvæmri stöðu. Árið 2023 hlaut hún viðurkenningu Barnaheilla fyrir framlag sitt í þágu barna og fjöls...
Þáttur #18 - Ragnheiður Björg Guðmundsdóttir 11.11.2026 41:41
Í þessum þætti ræðum við við Ragnheiði Björgu Guðmundsdóttur, félagsáðgjafa, fjölskyldufræðing og eiganda Tengslamats í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Hún hefur sérhæft sig í tengslamati og tengslamiðaðri nálgun og kynnti á Félagsráðgjafaþinginu nýja tilviksrannsókn sem sýnir hvernig heildstæð vinna með fjölskyldu getur breytt líf barns og foreldra.
Þáttur #17 - Freydís J. Freysteinsdóttir 04.11.2026 56:01
Í dag ætlum við að beina sjónum okkar að menntun félagsráðgjafa, hvernig hún hefur þróast, hvernig námið lítur út í dag og ekki síst hvernig við menntum félagsráðgjafa fyrir samfélag sem breytist hratt. Gestur minn er Freydís J. Freysteinsdóttir, prófessor í félagsráðgjöf, sem tók við sem deildarforseti Félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands í sumar.
Þáttur #16 - Kristbjörg Karen Björnsdóttir 28.10.2026 32:05
Gestur okkar í dag er Kristbjörg Björnsdóttir sem var að ljúka mastersnámi í félagsráðgjöf. Hún kynnti meistararannsóknina sína á félagsráðgjafaþinginu í febrúar og hún er til umfjöllunar í tímariti félagsráðgjafafélagsins. Rannsóknin fjallar um umsáturseinelti í kjölfar ofbeldis í nánu sambandi. Fyrirbæri sem er of oft hulið í þögn en hefur djúpstæð og víðtæk áhrif á líf þolanda.
Þáttur #15 - Þuríður Sigurðardóttir 14.10.2026 35:10
Í dag ætlum við að fjalla um TINNU, virkniúrræði Reykjavíkurborgar sem hefur í tíu ár stutt einstæða foreldra sem hafa verið utan vinnumarkaðar og glímt við langvarandi félagslegan vanda. Verkefnið byggir á þeirri einföldu en öflugu hugmynd að þegar foreldrar fá stuðning, traust og tækifæri til að efla eigin styrkleika skilar það sér ekki aðeins til þeirra sjálfra heldur einnig til barna þeirra og...
Þáttur #14 - Eva Dögg Sigurðardóttir 30.09.2026 27:33
Í þessum þætti ræðum við við Evu Dögg Sigurðardóttur félagsráðgjafa og rannsakanda um áhugaverða rannsókn á tilkynningum til barnaverndar á fyrstu mánuðum COVID-19 faraldursins. Þegar samfélagið lokaðist, skólar skertu starfsemi sína og fólk var hvatt til að halda sig heima vöknuðu víða um heim áhyggjur af stöðu barna. Í rannsókn sinni skoðar Eva Dögg hvort ákall stjórnvalda um að ''Við sé...
Þáttur #13 - Kolfinna Bjarney Ólafsdóttir 23.09.2026 38:51
Í dag ætlum við að ræða efni sem snertir bæði starfsfólk í barnavernd og í raun okkur öll sem samfélag. Því þegar við tölum um líðan þeirra sem starfa við að hjálpa öðrum erum við líka að tala um gæði þeirrar þjónustu sem við viljum að börn og fjölskyldur fái. Gestur minn er Kolfinna Bjarney Ólafsdóttir, félagsráðgjafi, sem rannsakaði samkenndar þreytu meðal barnaverndarstarfsmanna á Íslandi í mei...
Þáttur #12 - Erla Björg Sigurðardóttir og Helena Gísladóttir 09.09.2026 44:05
Gestir okkar í dag eru þau Erla Björg Sigurðardóttir, lektor í félagsráðgjöf og Helena Gísladóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf. Í dag ætlum við að ræða mikilvægt en of lítt sýnilegt úrræði í íslensku velferðarkerfi. Það eru áfangaheimili fyrir fólk sem hefur lokið meðferð vegna vímuefnavanda og eru að byggja upp nýtt líf. Hvernig virka þessi heimili í raun? Hver er staða fólksins sem kemur þanga...
Þáttur #11 - Sigrún Júlíusdóttir 26.08.2026 34:58
Fjölskyldu höfnun er sífellt sýnilegri í samtímanum og í þættinum í dag ræðir Sigrún Júlíusdóttir um orsakir, afleiðingar og leiðir til að skilja og vinna úr rofnum tengslum.
Þáttur #10 - Sveindís Anna Jóhannsdóttir & Ásta Kristín Benediktsdóttir 19.08.2026 40:53
Í júní síðastliðnum fóru Íslensku félagsráðgjafarnir Sveindís Anna Jóhannsdóttir og Ásta Kristín Benediktsdóttir til Nairobi í Kenía þar sem þær sóttu heimsþing félagsráðgjafa, félagsráðgjafamenntunar og félagsþróunar. Þingið, SWSD 2026, fór fram dagana 26.-29. júní undir yfirskriftinni Harambee for Sustainable Shared Futures, hugtak sem vísar til samstöðu, sameiginlegrar ábyrgðar og þess að vinna...
Þáttur #9 - Díana Ósk Óskarsdóttir 11.08.2026 42:13
Í dag ætlum við að ræða málefnið sem snertir kjarnan í faginu, vellíðan, gæði á þjónustu og faglega handleiðslu. Margir félagsráðgjafar starfa við mikið álag, þunga ábyrgð og flókin mannleg mál og þá vaknar spurningin, hvernig styðjum við við fagfólkið sem styður aðra? Gestur okkar í dag er Díana Ósk Óskarsdóttir sem skrifaði áhrifaríka grein í tímaritið okkar þar sem hún lýsir handleiðslu sem gæð...
Þáttur #8 - Ásta Kristín Guðmundsdóttir og Friðrik Arnbjörnsson 29.07.2026 35:18
Í dag ætlum við sjónum okkar að einu af mikilvægustu verkefnum samfélagsins og það er að vernda börn og skapa þeim öryggi. Til okkar eru komin þau Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, og Friðrik Arnbjörnsson frá samtökunum B.A.C.A (Bikers Against Child Abuse).
Þáttur #7 - Regína Ásvaldsdóttir 23.07.2026 48:19
Í þessum þætti ætlum við að ræða hvernig menntun í félagsráðgjöf getur orðið sterkur grunnur að leiðtogahlutverki og stjórnun. Gestur minn í dag er Regína Ásvaldsdóttir félagsráðgjafi sem hefur gegnt fjölmörgum stjórnunarstörfum. Í nýlegu viðtali í Tímariti félagsráðgjafa segir hún að félagsráðgjöf hafi mótað sig sem leiðtoga.
Þáttur #6 - Valgerður Halldórsdóttir 15.07.2026 53:27
Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að veruleika sem að margir þekkja en of fáir tala nægilega skýrt um. Líf barna sem alast upp á tveimur heimilum, oft með stjúpforeldrum á báðum stöðum og flækjustigi sem getur fylgt því, bætanlegu lífi og innan kerfa sem eiga að styðja þau. Þótt þessi fjölskyldumynstur séu orðin algeng bendir ný umræða til þess að við séum enn ekki að ná utan um upplifun ba...
Þáttur #5 - Sólveig Sigurðardóttir 01.07.2026 53:47
Í þessum þætti fáum við til okkar Sólveigu Sigurðardóttur, félagsráðgjafa með meistaragráðu, deildarstjóra farsældarþjónustu barna hjá Akraneskaupstað, lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og faglegan handleiðara. Sólveig hefur áratuga reynslu af barnavernd, þróun samþættrar þjónustu og þverfaglegu samstarfi. Hún hefur sérstaklega lagt áherslu á tengslamiðaðar vinnuaðferðir og hvernig f...
Þáttur #4 - Guðrún Marínósdóttir 19.06.2026 39:39
Í þessum þætti fáum við til okkar einstaklega áhugaverðan gest, hana Guðrúnu Marínósdóttur, sem sameinar á einstakan hátt heim félagsráðgjafar, leiklistar, og myndlistar. Guðrún er félagsráðgjafi, leikkona og myndlistarkona og í ár málar hún forsíðumyndina á tímariti félagsráðgjafa 2026. Við ætlum að ræða um lífið, listina, félagsráðgjöfina og tengslin þar á milli og hvað það er sem myndlist getur...
Þáttur #3 - Hervör Alma Árnadóttir 10.06.2026 43:14
Í þessum þætti ætlum við að ræða félagsráðgjafanám við Háskóla Íslands, þróun þess og framtíð. Hvernig eru félagsráðgjafar menntaðir fyrir sífellt flóknari verkefni í samfélaginu? Hvers vegna eru starfsréttindi nú bundin við meistaragráðu? Hvaða hæfni þarf félagsráðgjafi framtíðarinnar að búa yfir og hvernig tryggjum við að námið haldist í takt við þarfir samfélagsins? Gestur minn er Hervör Alma Á...
Þáttur #2 - Páll Ólafsson 27.05.2026 57:30
Í dag ætlum við að fara beint í eina stærstu umbreytingu sem er að eiga sér stað í þjónustu við börn og fjölskyldur á Íslandi. Við ætlum að tala um farsældarlögin og hvað gerist þegar þau eru ekki bara orð á blaði heldur lifandi verkfæri í daglegu starfi. Við ætlum einnig að kafa dýpra í "signs of safety", nálgun sem snýr að því hvernig við hugsum um ábyrgð samtala og lausna. Spurningin...
Þáttur #1 - Steinunn Bergmann 13.05.2026 43:31
Velkomin í Félagsráðgjafahlaðvarpið. Það eru ákveðin tímamót í miðlun og sýnileika hjá okkur, því með því að hefja hlaðvarp í hljóði og mynd þá erum við farin á nýjan vettvang. Við viljum opna lifandi samtöl um fagið, fólkið, áskoranirnar og framtíðina. Við erum líka að opna alveg nýja leið í fjölmiðlun félagsins með því að dýpka viðtölin í tímaritinu okkar og gefa lesendum kost á að skanna inn QR...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.