Brotkast ehf.

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: brotkast.is

Autor

Brotkast ehf.

Categorie

Arts

Site-ul podcastului

brotkast.is

Cel mai nou episod

1 oct. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,8 iOS în curând

Episoade

Harmageddon | S02E50 | Heilabilun frjálslynda vinstrisins 25.06.2024

Þátturinn í dag er helgaður þeirri klikkun sem gripið hefur um sig í vestrænum samfélögum og gengur út á að snúa öllum gildum okkar og menningu á hvolf. Við tölum um kynjuð ríkisskuldabréf, ímynduð mannréttindabrot Samfylkingarinnar, Blackface hjá hollenskum knattspyrnustuðningsmönnum, innflutta nauðgunarmenningu í Þýskalandi og dragdrottningar í barnaskólum. Allt þetta og miklu meira til í Harmag...

Norræn karlmennska | S02E36 | Unglingar eru að færa sig frá áfengi yfir í læknadóp 24.06.2024

Óskar Páll Sturlaugsson kemur og ræðir fíknisjúkdóma, meðferðarúrræði, forvarnir og fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Arnar Þór | S01E01 | Hvernig náum við siðbót og endurnýjun á vettvangi stjórnmálanna? 22.06.2024

Hvað væri hægt að gera til að framkalla siðbót og endurnýjun á vettvangi stjórnmálanna? Hvað verður að gera? Arnar Þór Jónsson leitar hér svara við slíkum spurningum og ræðir um stöðu Íslands í flóknum heimi. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Götustrákar | S02E17 | Ríkharð Óskar / Rikki G | Þátturinn í heild sinni 22.06.2024

Rikki kom til okkar, ræddum fótboltann, FM957 tímann og hann opnaði sig um erfiðan tíma þegar hann missti pabba sinn. Einlægur og heiðarlegur, Rikki G. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Spjallið með Frosta Logasyni | S02E42 | Slaufunarmenningin og Jordan Peterson 21.06.2024

Frosti Logason spjallaði við Jordan Peterson í annað sinn þegar hann heimsótti Ísland í júní árið 2022. Fóru þeir félagar vítt og breitt yfir svið sálfræðinnar og ræddu meðal annars um narsisissma, siðblindu og stjórnsemi. Þá ræddu þeir líka slaufunarmenningu, samfélagsmiðla, aukna tíðni geðrænna kvilla og mikilvægi einstaklingsmiðaðrar sjálfsvinnu. Viðtalið birtist nú í fyrsta skipti með íslensku...

Götustrákar | S02E75 | Ronni fer á verðlaunapall með krökkunum 21.06.2024

Kampavín í partýum, hefnigjarn Jeppi með krakkakviss á Ronna sem er missáttur, hvort er nettara, EM og keyrsla inn í helgina. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S02E49 | Sniðugt að selja Bláa Lónið núna 21.06.2024

Jarðhræringar á Reykjanesi hafa vakið eigendur Bláa Lónsins hressilega. Einn þeirra seldi Lífeyrissjóðum landsmanna allt hlutafé sitt á yfirverði eftir að vísindamenn fóru að vara við yfirvofandi hættu á svæðinu. Jafnréttisiðnaðurinn segir að jafnrétti verði aldrei náð. Loftslagskirkjan predikar að menning okkar og saga sé einskis virði og ríki og sveitarfélög ráða ekki við hlutverk sitt vegna ver...

Götustrákar | S02E74 | Smutty Smiff: „Hitaði upp fyrir David Bowie“ 20.06.2024

Hann var í hljómsveitinni Levi and the rockats, tveir fullvaxnir búttaðir karlmenn með bjagaða ensku taka viðtal við gamla rokkstjörnu. Hann hitaði upp fyrir David Bowie, The Clash, Bob Dylan. Í dag vinnur hann á gistiskýlinu þar sem hann tengir við þá sem eru þar, og er giftur íslenskri konu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Norræn karlmennska | S02E35 | Hvað var svona merkilegt við WPATH skjölin og Cass skýrsluna? 20.06.2024

Eldur Smári, formaður Samtakanna 22 mætir og ræðir af hverju WPATH skjölin og Cass skýrslan breytti öllu þegar kom að meðhöndlun kynama. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Blekaðir | S01E17 | Helvítis kokkurinn 19.06.2024

Í þættinum fá þeir Dagur og Óli til sín Ívar Örn Hansen sem er einnig þekktur sem Helvítis kokkurinn. Ívar framleiðir m.a. sultur sem þeir gæða sér á, er með sjónvarpsþætti og er einkakokkur fyrir efnameiri ferðamenn sem koma hingað til lands. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Götustrákar | S02E73 | „Lögreglan setur poka yfir hausinn á honum“ 18.06.2024

17. júní, Húsdýragarðurinn og metalhátíð í Stykkishólmi. Ömurlegar uppfinningar og eru lögreglumenn ofbeldisfullir við fíkla? Krakkakviss, þar sem gáfur Jeppa koma í ljós. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S02E48 | Loftslagsguðinn er reiður og heimtar fórnir 18.06.2024

Ráðherrar kynna með stolti frekari skerðingar á sjálfsögðum mannréttindum borgaranna. Allt til þess að uppfylla óljós markmið sem engin veit hver nákvæmlega eru. Samfylkingin ákveður að taka ekki afstöðu í umdeildustu málum stjórnmálanna og Píratar krefjast þess að mótmælendur fái að áreita kjörna fulltrúa í friði. Margt jákvætt á fróni þessa daganna. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti da...

Norræn karlmennska | S02E34 | Stelpur hvattar í tækninám, strákar fá ekkert 17.06.2024

Thelma Gylfadóttir er gestur í þættinum og við ræðum bótasvindl, ótrúlegt óréttlæti gagnvart strákum í grunnskóla þegar kemur að starfskynningu og viðurkenningum og fleira til. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Götustrákar | S01E73 | Enok | Þátturinn í heild sinni 15.06.2024

"Ég var stunginn, skal sýna ykkur videoið, en ég var að biðja strákana að hætta kýla gaurinn en á meðan var hann að stinga mig" "Án alls djóks hvað kostaði gender revealið?" "Dýrasta sem ég á? Birgitta Líf og hundarnir" Hann mætti til okkar kóngurinn Enok Jónsson, fyrrverandi gemsi, núverandi sjó- og iðnaðarmaður. Nýbúin að panta þyrlu í kynjaveislu on the balcony í S...

Götustrákar | S02E72 | Kjafturinn á þér er eins og hakkavél 14.06.2024

Aron sköllóttur, löng helgi, hengirúm á Arnarnesinu, top 5 leiðinlegustu bíómyndir allra tíma. Er Bjarki með átröskun? Er Aron að lifa of hátt? Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S02E47 | Ósamræmi í úthlutun fjármuna 14.06.2024

Á meðan afreksíþróttafólk fær árlega um 350 milljónir úr ríkissjóði ætla stjórnvöld að hækka listamannalaun um 700 milljónir, úr 860 milljónum upp í 1560 milljónir. Á sama tíma verja stjórnvöld um 16 milljörðum á ári í málefni hælisleitenda ár hvert. Þetta er áhugaverð forgangsröðun þó ekki sé meira sagt. Þá þarf undirmönnuð lögregla í auknum mæli að beita valdbeitingarvopnum á sama tíma og mannaf...

Götustrákar | S02E71 | „Microdóserar sem labba um berfættir“ 13.06.2024

Þessi þáttur er bannaður innan 18, fikniefnadjöflar, telegram, sterar, íslensk slagsmál, hvort myndiru frekar og skemmtilegt fólk segir skemmtilega hluti. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Blekaðir | S01E16 | Húðfletting eftir andlát? 12.06.2024

Í þættinum fara þeir Dagur og Óli út um víðan völl og ræða meðal annars hvort þeir myndu húðflúra látið fólk, hvort húðflúrin geti lifað áfram eftir andlát og hvað þeir gera ef viðskiptavinur lyktar illa. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Norræn karlmennska | S02E33 | Traðkað á drengjum allsstaðar þessa dagana 11.06.2024

Karlmaður vikunnar er á sínum stað, fjölmörg mál sem snerta viðkvæma stöðu drengja í skólakerfinu, grímulaust karlahatur og af hverju þú ættir að forðast að leita uppi ofbeldi. Allt þetta og fleira í þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Götustrákar | S02E70 | „140 kílómetra hraða með tvær gellur í bílnum, þá er ég í topp málum“ 11.06.2024

Þéttpakkaður þáttur, glæpahornið, 5 lúðalegir hlutir og topp 5 sumar bangers. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S02E46 | Stjórnmálamenn sem hækka húsnæðisverð 11.06.2024

Kanada og Ísland eru að glíma við nákvæmlega sama vandann þegar kemur að húsnæðismarkaðnum. Enda margt líkt með stjórnmálamönnunum Justin Trudeau og Degi B. Eggertssyni. Stórhættuleg öfgaöfl vilja vernda og varðveita menningu og sögu Evrópu. Vinstri menn átta sig á að koma verður í veg fyrir slíkt brjálæði. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á...

Götustrákar | S01E64 | Kolli The Ice Bear | Þátturinn í heild sinni 08.06.2024

Kolbeinn The Ice Bear er eini atvinnumaðurinn í hnefaleikum á Íslandi, með score-ið 13-0. Búinn að rota þó nokkra, Ræddum Tyson Fury vin hans, en Kolli og Fury eru með sama þjálfara. Hann er sirka 2 bardögum frá titilbardaga. Jake Paul er ágætur og KSI er gerpi. Yfir og út. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Spjallið með Frosta Logasyni | S02E41 | Hvað gerir Arnar Þór næst? 07.06.2024

Arnar Þór Jónsson, lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Arnar stendur á tímamótum og segist vera vinna úr þeirri reynslu sem undanfarnir mánuðir hafa fært honum. Hann er þeirrar skoðunnar að mikið þurfi að breytast í íslensku þjóðfélagi, stjórnmálum og umræðu og fer vandlega yfir það í þessu viðtali. Arnar segist líka skynja að einhver miki...

Götustrákar | S02E69 | Guðjón Heiðar / Álhatturinn 07.06.2024

Fórum yfir P Diddy málið stóra, Covid, Illuminati, femínista, innflytjendur og Trump. Guðjón er að hafa rétt fyrir sér með samsæriskenningar þegar tíminn líður. Podcastið hans Álhatturinn finnið þið á spotify. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S02E45 | Ærandi þögn RÚV 07.06.2024

Alvarlega ásakanir hafa verið settar fram um forstjóra Unglingheimila ríkisins. Einhverja hluta vegna segir fréttastofa ríkisútvarpsins samt ekki frá því þó hún hafi verið fljót til að stökkva á önnur sambærileg mál. Vinstri græn eiga erfitt með að horfast í augu við gjaldþrota hugmyndafræði. Hlýnun jarðar tekur á sig kuldalegar myndir og ekki stendur steinn yfir steini í kenningum um kynbundinn l...

Ascultă podcastul Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice