RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Anne Carson og Ölver 08.10.2026 52:54
Kanadíska skáldið Anne Carson hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum í dag fyrir djörfung og nýjungagirni í höfundaverki sínu, en með glettnu samtali við hina klassísku hefð hafi henni tekist að skapa nýja tegund samtímabókmennta. Við kynnumst nýja nóbelskáldinu í dag, ræðum við Ragnar Helga Ólafsson, rithöfund, sem hefur gefið út og þýtt verk hennar og rifjum upp rýni Gauta Kristmannssonar í verk he...
Steinunn Þórarins í Úkraínu, Fuglinn bókaforlag, Íslandsklukka, Gunnella/rýni 07.10.2026 54:02
Við fáum óvenjulega ferðasögu frá Steinunni Þórarinsdóttur í þætti dagsins en hún opnaði nýverið sýningu á stríðsminjasafninu í Kænugarði. Þar sýnir hún verkið Brynjur, sem var fyrst sett upp í New York árið 2018 en hefur ferðast um heiminn síðan. Ný skáldsaga Steinars Braga, Frelsarinn, kemur út hjá bókaforlaginu Fuglinum í ár en að útgáfunni standa þeir Halldór Armand og Einar Aðalsteinsson. Þei...

Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill 06.10.2026 52:54
Nína okkar kærasta Nína er titill sýningar sem stendur yfir á Listasafni Reykjanesbæjar. Á sýningunni er ljósi varpað á Nínu Sæmundsson sem hinsegin listamann og eru mörg verk frá ferli Nínu til sýnis, en einnig var starfandi listafólki úr hinsegin samfélaginu boðið að vinna verk á sýninguna út frá verkum Nínu. Sýningarstýrurnar, þær Viktoría Guðnadóttir og Ynda Eldborg segja frá í þætti dagsins....
Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson 05.10.2026 52:27
Skúli Sverrisson byrjaði ungur að leika á rafbassa. Hann stundaði nám við tónlistarskóla FÍH en samferða námi lék hann með hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, djasspíanóleikara, fyrir dansi í naustinu. Síðar nam Skúli bassaleik við Berkley College of Music í Boston en að loknu námi flutti hann til New York borgar og bjó þar um árabil en heldur nú til í miðborg Reykjavíkur. Á ferli sínum hefur Skúli...

Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía 01.10.2026 51:04
„Soldið eins og ef Prúðuleikararnir myndu sjá um kynfræðslu,“ segir Margrét Erla Maack, sviðslistakona og ein af driffjöðrum fullorðinssirkússins Sex Ed sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Í verkinu sameinast íslenska kabarettsenan senunni frá New York, en bandaríski hópurinn Visceral Abstractions lýsir sér sem absúrdísku sirkus- og brúðuleikhúskollektívi sem blandar saman brúðum...

Víðsjá þrítug 30.09.2026 51:01
Í tilefni af 30 ára afmæli Víðsjár flökkum við vítt og breitt í tíma með hjálp tækninnar. Heyrum erindi frá Víðsjárkempum síðustu þrjátíu ára.
Víðsjá þrítug 30.09.2026 51:01
Í tilefni af 30 ára afmæli Víðsjár flökkum við vítt og breitt í tíma með hjálp tækninnar. Heyrum erindi frá Víðsjárkempum síðustu þrjátíu ára.
Netárásir, Svikasögur, Pollar 28.09.2026 55:38
Netárásir hafa verið áberandi í íslenskum bókmenntaheimi undanfarnar vikur. Undanfarna daga hafa átt sér stað árásir á bókmenntavefsíðurnar Lestrarklefann, norðdahl.org og Starafugl. Við mælum okkur mót við umsjónarmenn Lestrarklefans sem og Eirík Örn Norðdahl og ræðum þessar árásir. Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Svikasögur eftir Maríu Reyndal sem frumsýnt var í síðustu viku í Borgarleikhúsinu. E...

Haustbækur, Bríet Bjarnhéðins, Ástin ein taugahrúga 24.09.2026 50:39
Á sunnudag verður haldið verður upp á afmæli Bríetar Bjanhéðisdóttur, sem fæddist á þessum degi fyrir 170 árum. Það er félagið Leikhúslistakonur 50+ sem hafa gert dagskrá af þessu tilefni, sem kallast - Bríet, blómin og Hannes. Edda Þórarinsdóttir leikkona og Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur segja frá í þætti dagsins. Við heyrum rýni Trausta Ólafssonar á kammeróperunni „Ástin ein taugahrúga: e...
Aldrei las ég Laxness / Heimsljós II 23.09.2026 53:03
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Í síðustu viku komumst við aðeins hálfa leið með stórvirkið Heimsljós sem fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Í þessum seinni þætti ræðum við Bára Gísladóttir, tónskáld, um seinni bindin tvö: Hús skáldsins og Fegurð himinsins. Þátturinn var unninn...
Pétur Ben, Sanskrít, Inga Lísa Middleton 22.09.2026 53:08
Í handprentuðum bláleitum ljósmyndum teflir Inga Lísa Middleton saman stærstu og smæstu lífverum hafsins, hvölum og svifþörungum, og varpar ljósi á samspil þeirra. Sýninginí Loftskeytastöðinni kallast Hafið á öld mannsins, og hefur að geyma verk sem nú þegar hafa ferðast víða um heim. Víðsjá hitti Ingu Lísu við verkin og spurði út í vinnuferlið og innblásturinn, en við sögu koma þýskur efnafræðing...
Spássían, Nýtt Eldhús eftir máli, Bob Dylan 21.09.2026 50:27
Spássían nefnist haustsýning Hafnarborgar 2026. Sýningin felur í sér endurmat á möguleikum sýningarrýmisins, sem er gjarnan nálgast sem hlutlaus bakgrunnur, og skilgreinir það í staðinn sem virkan þátttakanda í sýningunni. Víðsjá ræðir við Daníel Ágúst Ágústsson, einn þeirra listamanna sem eru með verk á sýningunni. Sjöfn Hauksdóttir rýnir í leikverkið Nýtt eldhús eftir máli, eftir Friðgeir Einars...
Vaka og Varkár 17.09.2026 54:18
Ein af fyrstu bókunum til að flæða inn fyrir dyr ríkisútvarpsins í komandi jólabókaflóði er skáldsagan Varkár eftir rit- og danshöfundinn Margréti Bjarnadóttur. Verkið fjallar um þrána eftir því að eignast barn og þá miklu óvissu og ókyrrð sem fylgir því að missa fóstur. Margrét mun heimsækja okkur í hljóðstofu í síðari hluta þáttar og segja frá bókinni. Fyrst förum við uppeftir í Kópavog þar sem...
Aldrei las ég Laxness / Heimsljós 16.09.2026 55:28
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Heimsljós sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga, og fylgir vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljó...
Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós 15.09.2026 52:29
Víðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá sýningunni og rannsókninni sem liggur að baki. Vala Sigþrúðardóttir Jónsdóttir kíkti á sýningu Joe Keys og Svövu Björnsdóttur, Glundroða, í heimagalleríinu 1.h.v. að Lönguhlíð 19 og rýnir í sýninguna í myndlistarpistli sín...
Open og sýningarstjórnun 14.09.2026 59:15
Víðsjá kemur við á gjörningi í Open, listamannareknu rými í vesturbænum, þar sem sýningin Lesbíur frá Agoo opnaði um helgina. Pétur Eggertsson ræðir við þær Karin Itturalde Nurnberg og Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna. Við hugum að starfi sýningarstjórans. Daria Sól Andrews mun segja frá ferli sínum sem sýningarstjóri, rekja stöðu sýningarstjórnar hér á landi sem og afhjúpa þá margræðu mögulei...
Robert le Diable og Breadcrumbs 10.09.2026 50:29
Fyrir tæpum 200 árum var frumflutt ópera sem hafði feykileg áhrif á tónlistarsöguna en er að mestu gleymd og vanrækt á okkar dögum: Robert le Diable eftir Giacomo Meyerbeer. Egill Arnarsson, ritstjóri, mun fjalla um óperuna í þltti dagsins og setja í samhengi við hina svokölluðu risaóperu (grand opéra) en það óperuform stóð í mestum blóma um 1830 til 1850. Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, se...
Úlfur Eldjárn 50 ára, Heimsljós og Töfrafjallið. 09.09.2026 51:47
Úlfur Eldjárn tónlistarmaður og tónskáld fagnaði fimmtusgafmæli fyrir helgi. Alls ekki af því tilefni blés hann til tónleika í Fríkirkjunni síðasta sunnudag en Guðrún Sóley heimsótti hann á æfingu fyrir tónleikana sem hitti einmitt beint á afmælisdaginn. Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur, lítur við í hljóðstöfu og ræðir við okkur um Heimsljós og Töfrafjallið. En hún mun halda fyrirlestur um aða...
Led Zeppelin, íslenska og gríska. 08.09.2026 53:36
Led Zeppelin kom hingað til lands sumarið 1970 sem eins konar varalausn á Listahátíð eftir að annar listamaður, Donovan, reyndist of kostnaðarsamur fyrir tónleikahaldara - í þætti dagsins hleypum við nýjum dagskrárgerðarmanni að hljóðnemanum; Diljá Valsdóttir tekur við stjórninni og mun reyna að setja okkur inn í hugarheim fólksins sem sótti tónleika Led Zeppelin í Laugardalshöll á sínum tíma. Hau...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice