medvitadirforeldrar

Virðing í uppeldi

Society IS ↓ 106 episodes

Þetta er hlaðvarp Meðvitaðra foreldra – virðing í uppeldi. Hér er rætt á jafningjagrundvelli um eigin reynslu, líkt og gert er á mánaðarlegum foreldramorgnum og -kvöldum. Þá bjóðum við góðum gestum til okkar sem hafa eitthvað alveg sérstakt fram að færa um virðingarríkt uppeldi.

Author

medvitadirforeldrar

Category

Society

Podcast website

www.spreaker.com

Latest episode

Mar 20, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

31. Bókaklúbbur - The Whole Brain Child 13.05.2020

Rafrænn bókaklúbbur, svo til óklipptur, fær að flakka í þessum þætti. Bókin er The Whole Brain Child eftir Daniel J. Siegel og Tinu Payne Bryson. Fæst okkar myndu bara standa á öðrum fæti ef við gætum notað báða fætur. En hið furðulega er að mörg okkar – sérstaklega börn – nýta sér ekki mikilvæga hluta heilastarfsemi sinnar án þess þó að það sé meðvitað val. Vandinn er að hlutar heilans þroskast á...

30. Brjóstagjafarspjall 01.05.2020

Í þessum þætti er brjóstagjöfin rædd stuttlega en ófullkomlega eins og reynslusögur eru flestar. Fullt af góðum litlum punktum koma þarna fram hjá þeim Elsu Borg Sveinsdóttur, Guðrúnu Birnu le Sage, Guðrúnu Björnsdóttur, Guðrúnu Ingu Torfadóttur, Gyðu Björg Sigurðardóttur og Perlu Hafþórsdóttur. Skilaboðin eru að þú getur leitað hjálpar og ráða hjá fagfólki, vinkonum og öðrum góðum. Stundum þarftu...

29. Raunveruleg hljóðdæmi 14.04.2020

Í þessum þætti settumst við Guðrún Björnsdóttir, Guðrún Inga Torfadóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir og Perla Hafþórsdóttir niður yfir fáeinar upptökur með börnunum okkar þar sem reyndi á eitthvað sem okkur þótti vera þess virði að taka upp. Þetta er því eins konar raunveruleg tilraunastofa þar sem við deilum upptökum okkar með hlustendum, ræðum þær og gefum hvor annarri endurgjöf. Það reynir hér á...

28. Að vera til staðar - með Ágústu Margréti Arnardóttur 01.04.2020

Ágústu Margréti Arnardóttur kynntust hlustendur okkar í 17. þætti. Þegar hún kom í bæjarferð um daginn gripum við tækifærið og Guðrún Inga Torfadóttir og Guðrún Birna le Sage fengu hana aftur í settið og þær spjölluðu út frá nýrri bók Daniels Siegels og Tinu Brysons, The Power of Showing Up. Þegar kom að því að klippa þáttinn komst Guðrún Inga að því að hann á fullt erindi við okkur í dag. Við ger...

27. Um virðingarríkt uppeldi og einhverfu með Aðalheiði Sigurðardóttur 25.03.2020

Við hefjum þáttinn á örlitlu innskoti um stöðuna í dag frá Guðrúnu Ingu Torfadóttur og um framhaldið næstu vikur en við munum engan bilbug láta á okkur finna ef við getum einhverju um það ráðið og höldum áfram dagskrá okkar. Aðalheiður Sigurðardóttir, fyrirlesari og samskiptaráðgjafi, er móðir stúlku sem fékk einhverfugreiningu átta ára gömul. Hún kom til Guðrúnar Birnu le Sage og Kristínar Bjarga...

26. Þrjár meginleiðir til að tjá skilyrðislausa ást - Alfie Kohn III 11.03.2020

Í dag er komið að þriðja þætti í umfjöllun okkar um fræði og boðskap Alfies Kohns áfram, út frá bókinni hans Unconditional Parenting. Við nældum okkur í nýjar raddir í síðasta bókaklúbbi um bókina. Eða svo til nýjar sumar, Eva Rún Guðmundsdóttir, Elsa Borg Sveinsdóttir, Hafdís Ósk Pétursdóttir og loks Sólveig Rós! Í fyrsta þætti okkar um kenningar Alfies Kohns fórum við yfir hvað sé að skilyrtu og...

25. Um skilyrðislaust uppeldi - Alfie Kohn II 26.02.2020

Í þessum þætti höldum við umfjöllun okkar um fræði og boðskap Alfies Kohns áfram, út frá bókinni hans Unconditional Parenting. Með Guðrúnu Ingu Torfadóttur eru mættar þær Eva Rún Guðmundsdóttir, Guðrún Birna le Sage og Gyða Björg Sigurðardóttir. Í síðasta þætti stikluðum við á stóru um fyrri helming bókarinnar Unconditional Parenting. Við fórum yfir hegðunarvandamál sem leiða af skilyrtri ást fore...

24. Vandamálin við skilyrt uppeldi - Alfie Kohn fyrsti hluti 05.02.2020

Í dag hefjum við umfjöllun okkar um fræði og boðskap Alfies Kohns, og þá sérstaklega út frá bókinni hans Unconditional Parenting sem hann gaf út árið 2005 og fjallar um skilyrðislaust uppeldi ásamt því að við ræðum lítillega eina frægustu fyrri bóka hans, Punished by Rewards, frá árinu 1993. Í Time magazine hefur Alfie verið lýst sem „ef til vill mesta gagnrýnanda Bandaríkjanna um áhuga menntakerf...

23. RIE fyrir fullorðna II - Margrét Erla Maack um líkamsvitund, mjaðmahristur o.fl. 22.01.2020

Við höldum áfram að ræða um líkama okkar mæðranna. Djúpt samþykki, tenging og tjáning með líkamanum er bransinn sem Margrét Erla Maack lifir og hrærist í. Guðrún Inga Torfadóttir fékk þessa vinkonu sína úr framhaldsskóla og ballett til þess að opna á það með hlustendum okkar hversu mikilvægt það er að við konurnar samþykkjum okkur sjálfar. Hennar leið er að standa á sviði misfáklædd og gera grín a...

22. RIE fyrir fullorðna? 08.01.2020

RIE fyrir fullorðna? Við fengum þær stöllur Agnesi Ósk Snorradóttur og Köru Elvarsdóttur sjúkraþjálfara frá Hraust þjálfun í heimsókn til okkar í skrautlega upptöku þar sem þær ræddu við þrjár Guðrúnar úr hópi Meðvitaðra foreldra, Guðrúnu Ingu Torfadóttur, sem þurfti svo að hlaupa í burtu að ná vinnufundi, Guðrúnu Birnu le Sage sem stýrði þessu af stakri rósemd áfram, og loks náði Guðrún Björnsdót...

21. Um sorgarviðbrögð með Kristínu Sif og Aldísi Rut 18.12.2019

Í þessum þætti svona skömmu fyrir jól heimsækjum við það efni sem við flest viljum komast hjá yfirleitt að ræða eða verða fyrir: sorgina. Til Guðrúnar Ingu Torfadóttur komu þær Aldís Rut Gísladóttir prestur, jógakennari og þriggja barna móðir og Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona, íþróttakona og tveggja barna móðir. Þær hafa báðar ástríðu fyrir virðingarríku uppeldi og deildu með Guðrúnu Ing...

20. Kristín Maríella, Eva Rún og Guðrún Inga um að viðurkenna tilfinningar 09.12.2019

Í þessum enn einum aukaþætti desember-mánaðar gátum við ekki staðist mátið að ná í skottið á Kristínu Maríellu áður en hún sneri aftur heim til fjölskyldu sinnar. Við ræddum um umræðuefni vikunnar á samfélagsmiðlum, að viðurkenna tilfinningar barnanna okkar. Hvernig förum við að því að halda ró okkar yfir gráti barna og jafnvel reiði? Samfélagið okkar virðist reyna að bæla og koma í veg fyrir tján...

19. Jólaspjall meðvitaðra foreldra 02.12.2019

Í þessum aukaþætti aðventunnar spjölluðum við mismeðvitaðir foreldrar um sýn okkar á jólahaldið og hvernig við höfum og erum enn að reyna að einfalda og endurhugsa hlutina til þess að koma á friðsælli aðventu fyrir alla fjölskylduna. Talið barst að uppákomum og skyldum foreldranna í alls kyns viðburðum, val á jólagjöfum, hefðum sem við viljum stundum henda á haugana og loks ræddum við skógjafir og...

18. Spjallað um sambönd 27.11.2019

Í þetta sinn settumst við þrjú og hálft par niður til þess að ræða samböndin okkar. Það voru þau Guðrún Birna le Sage og Áki Barkarson, Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir og Birkir Ólafsson, undir stjórn Guðrúnar Ingu Torfadóttur sem tókst ekki að sannfæra sinn mann um að mæta þar sem hann var upptekinn í mikilvægari málum að eigin sögn. Hvernig hefur ok...

17. Ágústa Margrét Arnardóttir - er hægt að taka upp virðingarríka uppeldishætti með stærri börn? 20.11.2019

Ágústa Margrét Arnardóttir settist niður með okkur Guðrúnu Birnu le Sage og Guðrúnu Ingu Torfadóttur og sagði okkur allt af létta um vegferð sína og fjölskyldunnar yfir í virðingarríkt uppeldi, baráttu við að mæta syni sínum sjö ára og hjálpa honum að ná tökum á lífi sínu og hvernig fjölskyldan hefur stokkað upp og breytt öllu hjá sér. Við ræddum um Plan B aðferð Ross Greene og hvernig börn gera v...

16. Spjallað um tómstundaiðkun, heimalestur og dagskrá ungra barna 06.11.2019

Hér settumst við vinkonuhópurinn saman í miðri sumarbústaðarferð og byrjuðum að tala án þess að hafa ákveðið umræðuefni. Úr varð umræða um tónlistarnám, íþróttaiðkun og lestur ungra barnanna okkar. Rauði þráðurinn er hversu flókið það er að finna jafnvægi þess að vera styðjandi sem foreldri við að börnin efli og þrói hæfileika sína og svo að þau fái líka nægt rými til að vera heima í rólegheitunum...

15. Kim Jones og Play Iceland 23.10.2019

Guðrún Birna le Sage og Kristín Björg Viggósdóttir fóru askvaðandi ásamt Ófeigi, ungum syni Kristínar, niður í Iðnó þar sem fram fór einn metnaðarfullra dagskrárliða Play Iceland ráðstefnunnar. Þar tóku þær einn skipuleggjenda ráðstefnunnar tali, Bryndísi Hreiðarsdóttur, til að fræðast stuttlega um þessa ráðstefnu sem haldin var í sjöunda eða áttunda sinn á dögunum. Þá ræddu þær við Kim Jones sem...

14. Viðtal við Teacher Tom 16.10.2019

Í þessum fjórtánda þætti náði Guðrún Inga Torfadóttir tali af Tom Hobson sem staddur var á Íslandi til að taka þátt í ráðstefnunni Play Iceland á dögunum. Hann gaf sér góðan tíma til að setjast niður og ræða í upptöku um hversu mikið hann dáist að íslenskum leikskólum og leikskólabörnum. Þá ræddi hann um leikskólann sem hann starfar í og sér um að reka ásamt foreldrum barnanna sem ganga í skólann...

13. Mataruppeldi með Ebbu Guðnýju og Ásu Regins o.fl. 09.10.2019

Í þessum þætti hlaðvarpsins var rætt um mataruppeldi. Guðrún Inga Torfadóttir stjórnaði upptökum og spurði misgáfulegra spurninga, með spekingum úr hópi Meðvitaðra foreldra, þeim Guðrúnu Björnsdóttur og Svövu Margréti Sigurðardóttur. En í hópi sérfræðinga voru það Ása María Reginsdóttir og Ebba Guðný Guðmundsdóttir sem heiðruðu okkur með nærveru sinni. Sigrún Þorsteinsdóttir barna- og heilsusálfræ...

12. Systkinasambandið 25.09.2019

Í þessum 12. þætti berst talið að systkinasamböndum. Hvernig getum við búið barn undir komu systkinis og staðið með því í gegnum hegðunarerfiðleika við þau umskipti? Og ólumst við sjálf upp í hlutverkum sem við báðum aldrei um og erum jafnvel að endurtaka leikinn með okkar eigin börn? Það getur loks verið eldfimt ástand þegar systkini rífast og slást og foreldrarnir vita ekki sitt rjúkandi ráð. Al...

11. Í topp tilfinningalegu formi með Bjarti Guðmundssyni 11.09.2019

Bjartur Guðmundsson, leikari og árangursþjálfari, mætti í topp tilfinningalegu formi til Guðrúnar Ingu Torfadóttur í spjall, þar sem erfitt var að heyra hver væri að taka viðtal við hvern. Farið var yfir alls konar; hvaðan hann kemur í sinni hugmyndafræði, triggerabaráttuna, hvernig sé hægt að koma inn breytingum í líf sitt og vega og meta hegðun sína eftir líka gæði upplifana og þeim þörfum sem l...

10. Kristín Maríella og talað um triggera 28.08.2019

Í þessum tíunda þætti hlaðvarpsins Virðing í uppeldi fékk Guðrún Inga Torfadóttir heiðursgestinn Kristínu Maríellu í spjall. Í síðari hluta þáttarins komu til okkar Kristínar þær Guðrún Birna le Sage, Guðrún Björnsdóttir og Svava Margrét Sigurðardóttir. Við ræddum um triggera, eða viðnám og vörðum í það öllu okkar púðri og héldum engu eftir. Við fórum yfir nýlegar sögur þar sem við fórum sjálfar ú...

9. Spjallað um kynjahlutverkin með Karlmennskunni Þorsteini og Sólveigu Rós fræðslustýru Samtakanna '78 14.08.2019

Í þessum níunda þætti Virðingar í uppeldi og á Hinsegin dögunum sjálfum er kjörið tækifæri að fræðast um kynjahlutverkin. Hvernig tölum og hugsum við og hvaða áhrif hefur það á ungu, sem og eldri börnin okkar? Til Guðrúnar Ingu og Evu Rúnar mættu Sólveig Rós fræðslustýra Samtakanna ´78 og Þorsteinn V. Einarsson sem á sér hliðarsjálfið Karlmennskuna á Instagram. Meðal þess sem við ræddum um var: •M...

8. RIE og leikskólakennsla - á það vel saman? 31.07.2019

Nú er nýtt leikskólaár um það bil að hefjast og mörg börn að fara að stíga sín fyrstu skref í leikskóla, önnur að færast um deildir, nýir kennarar að taka við og ekki síst eru foreldrar sumir hverjir að sleppa taki af börnum sínum í fyrsta sinn. Við fengum til okkar góða gesti sem allar starfa á leikskólum og hafa mislangan starfsaldur og reynslu. Þær eru þó allar sammála um að virðingarrík uppeld...

7. Grunnatriði RIE - seinni hluti 03.07.2019

Síðari hluti umfjöllunar okkar um grunnatriði RIE. Hér ræddum við hlutverk foreldra samkvæmt RIE-fræðunum og deildum upplifunum okkar af því að spreyta okkur samkvæmt því. Þær sem mættu í hljóðver að þessu sinni voru Guðrún Birna le Sage, Guðrún Björnsdóttir, Perla Hafþórsdóttir og Svava Margrét Sigurðardóttir. Upptökum stjórnaði Guðrún Inga Torfadóttir.

Listen to the Virðing í uppeldi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.