medvitadirforeldrar
Virðing í uppeldi
Þetta er hlaðvarp Meðvitaðra foreldra – virðing í uppeldi. Hér er rætt á jafningjagrundvelli um eigin reynslu, líkt og gert er á mánaðarlegum foreldramorgnum og -kvöldum. Þá bjóðum við góðum gestum til okkar sem hafa eitthvað alveg sérstakt fram að færa um virðingarríkt uppeldi.
Autor
medvitadirforeldrar
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
20. Mär 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
106. Mataruppeldi og að fyrirbyggja vanda 20.03.2026 1:47:40
Hér er á ferðinni frábær þáttur um hvernig við sem foreldrar getum reynt að frá grunni hlúa að mataruppeldi barnanna okkar þannig að sem best verði komið í veg fyrir átraskanir og hvaða viðbragða er viðeigandi að grípa til þegar við sjáum breytingar á matarvenjum barnanna okkar. Reynsluboltinn Elín Vigdís Guðmundsdóttir ræðir hér við Guðrúnu Ingu Torfadóttir um starf sitt hjá Sátt þar sem þeirra e...
105. Um uppeldi stráka með Rögnu Guðnýju 10.02.2026 1:04:10
Fjögurra, þriggja og tveggja stráka mæðurnar Ragnheiður Guðný, Dagný og Laufey settust saman og ræddu hvernig er að ala upp stráka. Ragna Guðný eins og hún er kölluð er aðstoðarskólastjóri í Sunnulækjarskóla í Árborg og er afar reynslumikil þegar kemur að bæði uppeldismálum sem og að ala upp strákana sína. Hvernig er best að hrósa? Hvernig má styrkja bræðrasambandið sem best? Hvernig eru erfiðu sa...
104. Skjáuppeldi - nú með Skúla Braga 15.01.2026 1:23:05
Við höldum áfram umfjöllun okkar um skjáuppeldi. Skúli Bragi Geirdal er sviðsstjóri hjá Netöryggismiðstöð Íslands (SAFT - Icelandic Safer Internet Center) sem er vakningarátak um örugga tækni- og miðlanotkun á Íslandi ásamt því að vera varaþingmaður á Alþingi og flutningsmaður þingsályktunartillögu um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum á síðasta haustþingi. Skúli hefur að auki þrætt skólana bak og...
103. Skjáuppeldi - Anna Laufey Stefánsdóttir 16.12.2025 1:18:36
Anna Laufey Stefánsdóttir kom til þeirra Birnu Almarsdóttur, Dagnýjar Hróbjartsdóttur og Guðrúnar Ingu Torfadóttur að ræða af hverju það er ekki svo góð hugmynd að láta snjallsíma í hendurnar á barni. Anna Laufey er forritari og fjögurra barna móðir. Hlaðvarp hennar og Kristínar Sævarsdóttur, Kvíðakynslóðin, er frábært um þetta málefni. Anna Laufey hefur ástríðu fyrir því að hjálpa fólki að finna...
102. Grænahlíð - með börnum og fjölskyldum þeirra í liði 09.12.2025 38:23
Í þessum þætti heimsækir Kristín Björg Viggósdóttir vinnustað sinn, Grænuhlíð, og ræðir við Önnu Maríu Jónsdóttur geðlækni og Öldu Pálsdóttur iðjuþjálfa um starfsemi miðstöðvarinnar og þá meðferðarnálgun sem þar er unnið eftir. Grænahlíð er fjölskyldumiðað geðheilbrigðisúrræði fyrir 0–25 ára börn og ungmenni, þar sem þverfaglegt teymi vinnur með allri fjölskyldunni út frá áfallamiðaðri og tengslae...
101. Uppeldi ungra barna ⎸Nokkur lykilatriði að mati Birnu, Dagnýjar og Laufeyjar 11.11.2025 1:13:29
Hvað skiptir mestu máli í uppeldi yngri barna? Þú ert í miðju þykkninu – þetta eru árin sem reyna á svefn, þolinmæði og tengsl svo um munar. Þær Birna Almarsdóttir, Dagný Hróbjartsdóttir og Laufey Ósk ræða nokkur lykilatriði virðingarríks uppeldis þegar kemur að yngri börnum. Þær eiga allar börn undir þriggja ára – auk eldri systkina. Nokkrir hlátraskellir fengu að fylgja með, enda er Dagný húmori...
100. þáttur - Viðkvæmar og viljasterkar 07.10.2025 1:02:30
Í 100. þætti Virðingar í uppeldi fóru þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Guðrún Inga Torfadóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir, Kristín Björg Viggósdóttir og Perla Hafþórsdóttir yfir það hvernig er að vera viðkvæmar og viljasterkar mæður í grunninn og eiga jafnvel viðkvæm og viljasterk börn líka. Þar sem þetta er 100. þátturinn var líka aðeins farið yfir hvernig það hefur mótað þær að tileinka sér virðin...
99. Unglingar 23.01.2025 1:37:40
Guðrún Inga Torfadóttir ræðir við Kristínu Björgu Viggósdóttur og Sólveigu Maríu Svavarsdóttur um hvernig má best efla foreldra í hlutverki sínu þegar börnin fara inn í unglingsárin. Þetta eru árin sem heilinn fer í gegnum ferli sem má líkja við að fara í allsherjar tiltekt og gerist í gamla heilanum fyrst og fremst, randkerfinu, og færir sig síðar ofar og framar og yfir í framheilann allra síðast...
98. Þroski og vegferð Elsu og Kristínar sem mæður, grasrótarkonur og uppeldisfræðingar 22.02.2024 1:11:45
Elsa Borg Sveinsdóttir og Kristín Björg Viggósdóttir ræddu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur vítt og breytt um virðingarríkt uppeldi og þroskasögu sína þegar kemur að foreldrahlutverkinu og foreldraráðgjöf. Allar þrjár hafa verið vinkonur í sjö til átta ár og mynduðu félagsskapinn Meðvitaða foreldra með fleiri góðum. Heilmikið vatn hefur runnið til sjávar frá því þær Elsa og Kristín urðu fyr...
97. Eitt svefnvandamál leyst 08.02.2024 22:06
Kona á samtal við konu um hvernig á að koma á nýjum svefnvenjum og eignast kvöldin sín aftur; fyrir raunveruleikaþætti, prjónaskap eða að stara út í loftið eða í augu makans. Skiptir ekki öllu máli fyrir hvað, en meira máli skiptir að trúa því að það er hægt! Í þetta sinn voru það vinkonurnar Birna Almarsdóttir og Guðrún Inga Torfadóttir sem rifjuðu upp hvernig gekk að gera stórar breytingar með l...
96. Undirbúningur fæðingar 25.01.2024 40:53
Auður Bjarnadóttir, eigandi Jógasetursins og dásamlegur meðgöngujógakennari, kom beint úr tíma með fullan sal af verðandi mæðrum sem dönsuðu og önduðu ásamt Birnu Almarsdóttur sem á brátt von á sér. Þær ræddu við Guðrúnu Ingu Torfadóttur um undirbúning fæðingar, stuðning maka, að vinna sig í gegnum tilfinningar sem vakna á meðgöngu og góðar möntrur sem hjálpa við að sjá fyrir sér góða fæðingu. Dás...
95. Gleðiskruddan og jákvæð sálfræði 11.01.2024 1:03:14
Perla Hafþórsdóttir tók á aðventunni á móti þeim Marit Davíðsdóttur og Yrju Kristinsdóttur sem saman sköpuðu Gleðiskrudduna og eru mjög virkar við að halda námskeið fyrir börn og ungmenni. Þær gáfu jafnframt út samnefnda dagbók fyrir börn að vinna með sem er mjög vel heppnuð og notuð víða. Gleðiskruddan byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan og við...
94. Hugarfrelsi 06.12.2023 1:22:50
Vinkonurnar til margra ára sem stofnuðu Hugarfrelsi og hafa í um tíu ár eða meira starfað við að heimsækja leik- og grunnskóla og kenna börnum að hugleiða, sem og foreldrum á ótal námskeiðum, heimsóttu þær Dagnýju Hróbjartsdóttur og Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Þetta eru þær Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir, sem saman hafa búið til auð af efni, alls konar spjöld, hugleiðslur og bæk...
93. Dúlur um úrvinnslu eftir erfiða fæðingu 23.11.2023 37:46
Í þættinum fjalla þær Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir dúlur mættar að ræða erfiða fæðingarreynslu og úrvinnslu vikurnar og mánuði á eftir, eða jafnvel enn síðar. Þær fjalla fallega um þetta málefni og gott er að hlusta á þær og gera upp sína eigin fæðingarreynslu í leiðinni.
92. Ágústa Rúnars um kynslóðauppeldi 08.11.2023 1:14:10
Í þættinum fékk Dagný Hróbjartsdóttir Ágústu Rúnarsdóttur til sín í spjall um foreldrahlutverkið og þróun og þroska sinn í því frá því hún varð móðir fyrst, tæplega 17 ára gömul og svo aftur komin yfir fertugt. Tímarnir hafa breyst og fólkið breytist með. Yndislegt spjall sem við mælum með!
91. Leiðir til gleðilegrar sængurlegu 26.10.2023 43:00
Hér er á ferðinni fjórði þáttur dúlanna Guðrúnar Björnsdóttur og Soffíu Bæringsdóttur í Hönd í hönd. Þær ræða í þættinum um leiðir til þess að gera sængurleguna ánægjulegri og reynslu sína hvað það varðar. Fallegt og rólegt spjall sem er yndi að taka í göngutúrnum, með makanum í bíltúr eða á koddanum fyrir svefninn, sérstaklega ef þú eða einhver nákominn þér á von á barni.
90. Gestur Pálmason 06.10.2023 1:15:39
Í þessum 90. þætti Virðingar í uppeldi kynnumst við viðhorfi Gests Pálmasonar, stjórnenda- og teymisþjálfara hjá breska þjálfunarfyrirtækinu Complete Coherence til foreldrahlutverksins í samtali við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Áhugi hans og starfsorka liggur í að vinna með fullorðnu fólki við að ná lengra í störfum og lífi sínu. Viðhorf okkar og orka segi til um hvernig við tengjumst öðrum sem hefur...
89. Stutt hugvekja um mörk 15.09.2023 15:41
Öll höfum við stundum gott af því að hlusta á eitthvað sem peppar okkur í leiðtogahlutverkinu. Hér er stutt hugvekja um mörk í boði Guðrúnar Ingu Torfadóttur.
88. Dúlur um parsambandið á meðgöngu og í fæðingu 24.08.2023 34:58
Enn á ný heiðra dúlurnar Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir í Hönd í hönd okkur með nærveru sinni í Virðingu í uppeldi með spjalli sínu og vangaveltum um parsambandið á meðgöngu og í fæðingu - og hvað aðkomu dúlur geta haft til að liðka fyrir og gefa því byr undir báða vængi áður en þau taka á móti barninu. Fallegt og rólegt spjall sem er yndi að taka í göngutúrnum, með makanum í bíltúr e...
87. Guðrún Jóhanna um að styrkja félagsfærni 08.08.2023 1:13:05
Guðrún Inga Torfadóttir tók hér á móti Guðrúnu Jóhönnu Benediktsdóttur iðjuþjálfa. Hún er með réttindi sem leiðbeinandi í PEERS félagsfærni fyrir börn, unglinga og ungt fólk og heldur námskeið í því hjá Lífsbrunni ásamt því að vinna með börnum og fjölskyldum þeirra almennt við skynúrvinnslumöt til að mynda. Frábært og upplýsandi spjall!
86. Undirbúningur fyrir fæðingu og hjálplegar staðhæfingar með Guðrúnu Björns og Soffíu Bærings 12.07.2023 36:17
Þær Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir dúlur hjá Hönd í hönd eru mættar aftur til að gefa konum og foreldrum sem eiga von á barni leiðir til að finna stuðning og ró í fæðingunni sjálfri sem og fæðingarundirbúningnum. Einkar ljúf hlustun sem við mælum heils hugar með.
85. Vignir Sigurðsson barnalæknir 28.06.2023 1:28:43
Hvað gerist þegar tvær traustar vinkonur sem kynntust í gegnum félagsskap okkar í kringum virðingarríkt uppeldi og búa á Selfossi taka spontant viðtal við barnalækninn á svæðinu sem önnur þeirra var svo ánægð með í síðustu heimsókn? Þessi þáttur. Vignir Sigurðsson læknir leyfir sér hér að segja það sem stendur hjarta hans nær. Vinkonurnar tvær blómstra í þessu spjalli sömuleiðis. Sértu heilbrigðis...
84. Guðrún Björns og Soffía Bærings um dúlustarfið 14.06.2023 48:05
Framundan inn á milli annarra þátta eru nokkrir þættir úr smiðju þeirra Guðrúnar Björnsdóttur og Soffíu Bæringsdóttur. Þær starfa báðar sem doulur. Guðrún er ein stofnmeðlima Meðvitaðra foreldra og tveggja barna móðir. Segja má að foreldrahlutverkið og ástríða hennar fyrir virðingarríku uppeldi hafi leitt hana á þá braut sem hún starfar á í dag, með börnum hjá Hjallastefnunni og sem doula eftir að...
83. Barna og fjölskyldustofa - Farsæld barna 25.05.2023 1:01:29
Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældarsviðs Barna- og fjölskyldustofu og Elísabet Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur hjá Barna og fjölskyldustofu spjölluðu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur og Önnu Mjöll Guðmundsdóttur frá Fyrstu fimm - hagsmunafélagi foreldra og fagaðila um barnvænna samfélag. „Hvað á að gera þegar barn byrjar að eiga í vanda?“ er meðal þes...
82. Marta Birna 03.05.2023 56:41
Marta Birna Baldursdóttir er einstæð móðir og sérfræðingur og verkefnisstýra í kynjaðri fjárlagagerð í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hún spjallar hér við Guðrúnu Ingu Torfadóttur vítt og breitt um foreldrahlutverkið og upplifun sína við að afla sér þekkingar á því sviði, sem og hvernig er að vera í fullu starfi og halda öllum boltum á lofti sem einstætt foreldri með litla aðstoð. Þá bregður á...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet