medvitadirforeldrar

Virðing í uppeldi

Society IS ↓ 106 episodes

Þetta er hlaðvarp Meðvitaðra foreldra – virðing í uppeldi. Hér er rætt á jafningjagrundvelli um eigin reynslu, líkt og gert er á mánaðarlegum foreldramorgnum og -kvöldum. Þá bjóðum við góðum gestum til okkar sem hafa eitthvað alveg sérstakt fram að færa um virðingarríkt uppeldi.

Author

medvitadirforeldrar

Category

Society

Podcast website

www.spreaker.com

Latest episode

Mar 20, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

56. David Weinstock on Raising Children Empathically 02.06.2021

In this episode, conducted in English in this Icelandic podcast on respectful parenting, Gudrun Inga discusses with David Weinstock how his methods of practicing somatic NVC by using his Aikido training background, can be applied when raising children. We hear how he has best understood what our human needs are and how to listen empathically to our children. If you'd like to learn more about Mr. W...

55. Bókaklúbbur Suðurlandsþríeykisins skoðar grunnatriði RIE - Elevating Child Care 19.05.2021

Í þessum þætti heimsóttu þær Birna Almarsdóttir, Dagný Hróbjartsdóttir og Laufey Ósk okkur í hlaðvarpið og fjölluðu um bók Janet Lansbury, Elevating Childcare með Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Bókin er grunnbók um RIE-uppeldi og því er þetta frábær umfjöllun fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessum efnum og góð upprifjun fyrir aðra. Þær grínuðust mikið inn á milli háalvarlegra umræðna og s...

54. Sæunn Kjartansdóttir 05.05.2021

Sálgreinirinn og rithöfundurinn Sæunn Kjartansdóttir er ein helsta hugsjónarmanneskja eldri kynslóðarinnar um virðingarríkt og tengslavænt uppeldi. Perla Hafþórsdóttir tók á móti henni í litla eldhúsið sitt í spjall um helstu hugðarefni Sæunnar, sem hún hefur verið mikilvirk við að setja í orð og birta á prenti hingað til. Bækur hennar Fyrstu 1000 dagarnir, Árin sem enginn man, Hvað gengur fólki t...

53. Fyrstu fimm 21.04.2021

Þrír meðlimir úr stjórn Fyrstu fimm mættu til Guðrúnar Ingu Torfadóttur að ræða um þau sjónarmið sem leiddu þau saman og liggja að baki áherslumálum hagsmunafélagsins. Þau Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Matthías Ólafsson og Ólafur Grétar Gunnarsson eru öll í stjórn Fyrstu fimm og eru, eins og aðrir í stjórninni, blanda af fagfólki og foreldrum með reynslu af virðingarríku uppeldi. Þau hafa öll ástríðu...

52. Um tengsl og áhrif annarra með Sigrúnu Júlíusdóttur 07.04.2021

Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í Félagsráðgjöf og stofnandi Tengsla meðferðarþjónustu fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur, var viðmælandi Kristínar Bjargar Viggósdóttur í þessum 52. þætti. Sigrún er reynslubolti á sínu sviði og hefur haft mikil áhrif á málefni barna og fjölskyldna á Íslandi síðastliðna áratugi. Hún hefur meðal annars haft áhrif á að foreldraviðtöl séu haldin í leikskólum og hve...

51. Birna Almars 24.03.2021

Birnu Almarsdóttur þekkja e.t.v. nokkrir glöggir hlustendur úr þáttum okkar nr. 43 og 44 um bókina sem þú vildir að foreldrar þínir hefðu lesið eftir Philippu Perry. Í þættinum fáum við að kynnast Birnu og ferðalagi hennar í gegnum krabbameinsmeðferð síðasta hálfa árið. Við heyrum hvernig RIE nýttist henni persónulega sem og með dóttur hennar og kærasta í gegnum þetta allt, hvar þurfti að gefa sla...

50. Svefnuppeldi - hátíðarþáttur 10.03.2021

Í sérstökum hátíðarþætti í tilefni þess að vera 50. þáttur hlaðvarpsins Virðingar í uppeldi fjöllum við ítarlega og af metnaði um svefnuppeldi. Gestir eru þau dr. Berglind Sveinbjörnsdóttir, dr. Erla Björnsdóttir, Ólafur Grétar Gunnarsson og Soffía Bæringsdóttir. Stjórnandi þáttarins er Guðrún Inga Torfadóttir og með henni þau Ingibjörg Þóranna Steinudóttir, Konráð Jónsson og Perla Hafþórsdóttir....

49. Auðnast: Um sambönd og uppeldi 24.02.2021

Þær Hrefna Hugosdóttir og Ragnhildur Bjarkadóttir frá Auðnast spjölluðu í þessum þætti við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Hrefna er hjúkrunarfræðingur og Ragnhildur sálfræðingur. Báðar eru þær með framhaldsmenntun í fjölskyldumeðferð en nefna sig aðallega mæður. Saman stofnuðu þær fyrirtækið með miklar hugsjónir um að huga að öllum þáttum heilsunnar til að ná jafnvægi í einkalífi og starfi. Í spjallinu...

48. Bókaklúbbur - The Explosive Child krufin til mergjar 10.02.2021

Í þessum þætti birtum við upptöku af fjarbókaklúbbi um snilldarbókina The Explosive Child eftir dr. Ross Greene. Guðrún Inga Torfadóttir sat sveitt í nokkra daga yfir að því er henni fannst ofvaxna verkefni að gera bókinni skil og heimfæra CPS-fræði Ross Greene yfir á aðra hluti sem við ræðum um í þessu hlaðvarpi, eins og RIE og almennt virðingarríka framkomu við börn. Frábærir gestir mættu sem be...

47. Konfektmoli með þakklæti 27.01.2021

Áslaug Björt Guðmundardóttir, rithöfundur bókarinnar Þökk til þín, verkefnabókar, Guðrún Birna le Sage markþjálfi með meiru og uppeldiskúnstner og Þórhildur Magnúsdóttir verk- og hagfræðibræðingur, Kyrrukona og þakklætisiðkandi ræddu í þessum þætti við Guðrúnu Ingu Torfadóttur um þakklæti. Í þættinum ræddum við hvernig við styrkjum þakklætisvöðvann með iðkun, líkamlegri sem og andlegri og getum þa...

46. Hátíðaruppgjörið 06.01.2021

Við fögnum því ákaflega að nýtt ár er runnið í garð en förum fyrst aðeins yfir hvernig hátíðirnar gengu. Hvað mætti gera betur og hvað mætti endurtaka? Þetta var því þáttur til að taka upp núna rétt eftir áramót og jafnvel hlusta á hann líka til að hugsa málið sjálf á meðan minnið er enn á sínum stað - en hlusta svo aftur fyrir næstu jól til að endurtaka ekki sömu vitleysurnar. Þátttakendur voru G...

45. Sigga Dögg og Soffía Bærings um sambandsslit 16.12.2020

Í þessum þætti fékk Guðrún Inga Torfadóttir þær Siggu Dögg kynfræðing og Soffíu Bæringsdóttur fjölskylduráðgjafa og doulu með sér til að spá aðeins í sambandsslitum foreldra. Þátturinn hefst á 7 mínútna langri og krefjandi einræðu Guðrúnar, ef þú vilt sleppa við hana, um tengslatýpur og hvernig þær geta haft áhrif á hvernig samband virðist fara hring eftir hring í þvottavél af spennu, upplausn og...

44. Bókin sem... seinni hluti 09.12.2020

Í þessum síðari þætti um bók Philippu Perry, Bókin sem þú vildir að foreldrar þínir hefðu lesið, förum við yfir skilyrði góðrar geðheilsu og að setja mörk. Þetta var svo gott efni að við áttum erfitt annað en að tala djúpt og mikið og það var áskorun að klippa eitthvað í burtu til að þetta yrði ekki allt of langt. Þátttakendur að þessu sinni voru reynslu- og þekkingarbrunnar: Ágústa Margrét Arnard...

43. Bókin sem... fyrri hluti 25.11.2020

Í þessum þætti gefum við hlustendum okkar færi á að hlusta á ítarlega umfjöllun okkar um bók Philippu Perry, Bókin sem þú vildir að foreldrar þínir hefðu lesið (og börnin þín fagna að þú gerir). Bókin er löng og yfirgripsmikil en auðlesin að okkar mati og rímar vel við kenningar Mögdu Gerber og fleiri virðingarríka sérfræðinga um uppeldi. Guðrún Inga Torfadóttir stjórnaði upptökum og leyfði sér að...

42. Pabba-rabb II 11.11.2020

Eftir rúmlega árs þögn er komið að öðrum pabbarabbs-þætti. Þeir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, sem stýrði umræðum, Arnar Pétursson, Árni Kristjánsson og Matthías Ólafsson tengdu sig inn á sömu bylgjulengd á sama tíma og ræddu hvað virðingarríkt uppeldi er fyrir þeim og hvaða áhrif það hefur helst haft á þá í föðurhlutverkinu. Á meðal þess sem bar á góma var hvaða upplifun sumir þeirra hafa af feðraorl...

41. Umhugsunarefni dagsins 28.10.2020

Í þættinum förum við nokkrar yfir hvað við erum að hugleiða í dag í tengslum við uppeldið og létum upptökutækið ganga á milli okkar. Það sem kom við sögu var ýmist uppeldi á okkur sjálfum eða börnunum okkar. Hér fengu vangaveltur að flakka um notkun uppnefna í systkinahópi, svefnrútínu, einkatíma, útiveru, húsverkaþátttöku, svefntíma, málþroska, að vera gagnsæ um okkar líðan við börnin og uppákomu...

40. Vandræðasögur – börn í klípu og hvað gerum við? 14.10.2020

Í fertugasta þætti okkar skyggnumst við á bak við barnabókina Vandræðasögur og fáum að heyra lýsingu höfunda bókarinnar á hugmyndafræðinni sem fyllir þær báðar ástríðu um hvernig við getum sem best hjálpað börnum að leysa úr klípum sín á milli og aðkomu hinna fullorðnu til að það megi heppnast sem best. Sögur eru vel til þess fallnar að fá börn í samræður um þær klípur sem geta komið upp í samskip...

39. Fjarbókaklúbbur The Objectivist Parenting 30.09.2020

Í þessum þætti er farið yfir bókina The Objectivist Parenting eftir Roslyn Ross í fjarbókaklúbbi. Sem fyrr var tæpt á helstu atriðum bókarinnar og svo fjörlegar umræður inni á milli. Við vitum aldrei hverjir mæta á þessa fjarbókaklúbba en það sýnir sig að þegar stjórnartaumunum er sleppt kemur eitthvað frábært upp úr dúrnum. Þessi bók er knöpp og fer ítarlega yfir allt sem Roslyn og aðrir telja ve...

38. Forgangsröðun í umgjörð fjölskyldunnar 16.09.2020

Í þessum þætti, sem spratt upp sem sjálfstætt framhald af frábærum síðasta þætti um minimalisma og virðingarríkt uppeldi, ræddum við nokkrar um hvernig við forgangsröðum í lífum okkar hvað varðar hagsmuni barnanna og okkar sjálfra. Ólíkir foreldrar forgangsraða með ólíkum hætti en það þýðir ekki að einhver þeirra hafi rétt fyrir sér og aðrir rangt. Þetta reyndist vera prýðisgott umræðuefni og hægt...

37. Einfaldleiki í virðingarríku uppeldi 02.09.2020

Þær Sigurlaug Elín Þórhallsdóttir og Þórhildur Magnúsdóttir frá Kyrru lífsstíl hafa marga fjöruna sopið þegar kemur að því að ræða einföldun umgjarðar fjölskyldulífs enda verið að veltast með stóru spurningarnar undanfarin ár. Hvernig er best að haga gjöfum? Haga húsverkum? Hugsa um neyslu okkar? Raða í fataskápana? Huga að þvottinum? Þessi einföldu atriði geta flækt lífið afar mikið þegar við set...

36. Aldrei gleyma að leika - spjall við Sigrúnu Yrju Klörudóttur 19.08.2020

Í þessum fyrsta þætti eftir sumarfrí ræddi Guðrún Inga Torfadóttir við Sigrúnu Yrju Klörudóttur, sem er konan á bak við heimasíðuna, fb-hópinn og Instagram-reikninginn Always Remember To Play. Hvernig datt henni í hug, búandi á Austfjörðum með börnin sín í fæðingarorlofi, að hefja þá vegferð að gerast áhrifavaldur um leik barna með metnaðarfullum hætti? Við mælum með að hlusta á þetta spjall við f...

35. Kulnun í foreldrahlutverki 08.07.2020

Við vorum þrjár í þessum þætti hver á sínum stað á Norðurlöndunum. Í Svíþjóð var það Ingibjörg Ólafsdóttir, sem kallar sig Hjálp ég er útbrennd á Instagram, en hún hefur tiltölulega nýlokið meðferð að sænskum hætti við kulnun og hefur viðað að sér miklum fróðleik um málefnið og miðlað því til annarra. Í Danmörku var það Stefanía Rut Hansdóttir, sem skrifaði lokaritgerð sína í sálfræði ásamt vinkon...

34. Bókaklúbbur - Hold On To Your Kids 24.06.2020

Í þessum þætti er upptaka birt af bókaklúbbi um bókina Hold On To Your Kids eftir þá Gordon Neufeld uppeldissálfræðing og lækninn og rithöfundinn Gabor Maté frá árinu 2004. Höfundar þessarar bókar eru þeirrar skoðunar að börn séu að renna foreldrum úr greipum, að verða nánast týnd kynslóð og þá sér í lagi með skjáina alls staðar í sjónlínu og unglinga sem vilja sem minnst vita af foreldrum sínum....

33. Hreyfiþroski 10.06.2020

Í þættinum er fjallað vel og ítarlega með hæfilegu kæruleysi að venju um hreyfiþroska barna út frá kenningum dr. Emmi Pikler og RIE með Freyju Barkardóttur sjúkraþjálfara og Kristínu Björgu Viggósdóttur iðjuþjálfa. Okkur þótti þetta vera góður tímapunktur fyrir foreldra allra barnanna þarna úti sem eru ekki enn farin að ganga og geta spreytt sig liggjandi á jörðinni úti við, helst berfætt eins og...

32. Þóra Jónsdóttir ásamt góðkunningjum um barnasáttmálann, meðvirkni, sambönd, uppeldi og sjálfsvinnu 27.05.2020

Í dag ræðum við Guðrún Birna le Sage, Ágústa Margrét Arnardóttir og Guðrún Inga Torfadóttir við Þóru Jónsdóttur, lögfræðing hjá Barnaheillum og markþjálfa. Hugmyndin var Ágústu Margrétar eftir að þær kynntust í gegnum markþjálfarahitting á netinu. Þetta er því spjall tveggja lögfræðinga og þriggja markþjálfara og eðlilega var komið aðeins inn á bæði hlutverkin. Þóra kemur í þættinum inn á hlutverk...

Listen to the Virðing í uppeldi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.