medvitadirforeldrar

Virðing í uppeldi

Society IS ↓ 106 episodes

Þetta er hlaðvarp Meðvitaðra foreldra – virðing í uppeldi. Hér er rætt á jafningjagrundvelli um eigin reynslu, líkt og gert er á mánaðarlegum foreldramorgnum og -kvöldum. Þá bjóðum við góðum gestum til okkar sem hafa eitthvað alveg sérstakt fram að færa um virðingarríkt uppeldi.

Author

medvitadirforeldrar

Category

Society

Podcast website

www.spreaker.com

Latest episode

Mar 20, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

81. Þegar ég kynntist RIE 29.03.2023

Í þættinum fáum við að heyra sögu Huldu Margrétar Brynjarsdóttur í spjalli hennar við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Hulda fer með miðilinn Leið að uppeldi og segir okkur frá því þegar hún kynntist uppeldisstefnunni RIE, hvaða bækur hún las fyrst, námskeið hennar hjá RIE Institute með Ruth Ann Hammond sem kennara og almennt um hvernig henni hefur fundist eftir að hún fluttist til Íslands og hóf störf í...

80. Tryggvi Hjaltason 13.03.2023

Tryggvi Hjaltason er duglegur að tjá sig um málefni barna og stöðuna í menntakerfinu og er sjálfur fjögurra barna faðir á aldrinum eins til tólf ára. Hann er formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins og starfsmaður greiningardeildar CCP og er þeim eiginleikum gæddur að hann dýfir sér djúpt ofan í málefnin sem vekja áhuga hans. Guðrún Inga Torfadóttir ræddi við hann um sýn hans á uppeldið, hlutverk...

79. Þátturinn sem þú vilt hlusta á - með Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur 24.11.2022

Perla Hafþórsdóttir heimsótti reynsluboltann, fag- og ástríðukonuna fyrir velferð barna, Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, Öddu, og fékk að eiga við hana samtal um ævistarfið og þau tól og tæki sem hún hefur þróað í starfi sínum með börnum. Adda heldur utan um kennslu í forvörnum um ofbeldi fyrir börn, foreldra og kennara ásamt því að ræða um heilbrigð samskipti og kenna börnum að vera læs á tilfinninga...

78. Mörk og samfélagslegt uppeldi 21.10.2022

Eftir gríðarlega neikvæðar fréttir að undanförnu um líðan barna, eineltismál, frásagnir af ofbeldi og með menntamálin í deiglunni töldum við rétt að taka aðeins púlsinn hjá tveimur frábærum sem vita talsvert um hlutina. Anna Rakel Aðalsteinsdóttir, félagsfræðingur og sáttamiðlari hjá Foreldrahúsi og Sólveig María Svavarsdóttir, heimakennari, unnu eitt sinn saman í grunnskóla. Þær hafa báðar gríðar...

77. Umhverfisþættir í uppeldi með Unu Emilsdóttur 22.09.2022

Í þættinum fékk Árni Kristjánsson til sín Unu Emilsdóttur, sérnámslækni í umhverfislæknisfræði, til að ræða um heilsuspillandi efni í nærumhverfi okkar og hvernig aukin þekking á skaðsemi þessara efna getur aukið sjálfstraust í foreldrahlutverkinu og stuðlað að virðingu í uppeldi. Una er brautryðjandi hér á landi í vitundarvakningu um áhrif efnanotkunar á heilsu okkar. Hún er jafnframt tveggja bar...

76. Um íþróttauppeldi barna 31.08.2022

Kristín Björg Viggósdóttir fékk þau Viðar Halldórsson og Guðlaugu Ingibjörgu Þorsteinsdóttur í spjall um tilgang íþróttaiðkunar fyrir börn. Þau ræddu aðgengi barna að íþróttum og hvernig íþróttir gætu verið meira á forsendum barnanna frekar en á forsendum íþróttagreina. Til að mynda hefur sýnt sig að börn innflytjenda taka síður þátt í íþróttum og stelpur síður en strákar. Einnig getur verið flóki...

75. Skólabyrjun 18.08.2022

Til Guðrúnar Ingu mættu þær Una Guðrún Einarsdóttir, aðstoðarskólastjóri grunnskólastigs og grunnskólakennari sem sérhæft hefur sig í kennsluaðferðum í lestri – en ekki síst fjögurra barna móðir - og Þórey Huld Jónsdóttir, aðstoðarskólastjóri leikskólastigs og tveggja barna móðir og reynslubolti í aðlögun og alls konar tengdu leikskólanum í Urriðaholtsskóla. Þær þrjár ræddu allt og ekkert sem teng...

74. María Rún um stafrænt uppeldi 27.07.2022

María Rún Bjarnadóttir er doktor í lögfræði og móðir og hefur haft stefnumarkandi áhrif á hvernig tekið er á stafrænum kynferðisbrotamálum hér á landi hin síðustu ár. Hún þekkir málaflokkinn sömuleiðis vel vegna núverandi starfa sinna hjá ríkislögreglustjóra sem verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá ríkislögreglustjóra. Þær Guðrún Inga Torfadóttir nutu þess afskaplega vel að leyfa umræðunni að far...

73. Samvinna við skilnað 06.07.2022

Guðrún Björnsdóttir, doula og einingastýra hjá barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði, tók þau Davíð Alexander Östergaard, sem er í MA-gráðu í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf, og Ragnheiði Láru fjölskylduráðgjafa tali um samvinnu foreldra eftir skilnað. Ragnheiður stofnaði ráðgjafarþjónustuna Tvö Heimili árið 2019 og hefur langa reynslu sem ráðgjafi á þessu sviði hjá Sýslumanninum í Reykjaví...

72. Betri borg fyrir börn 24.06.2022

Í þessum þætti ræðir Gyða Björg Sigurðardóttir við þrjár konur, þær Karen Lind Gunnarsdóttur, sálfræðing hjá Þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar, Gró Einarsdóttur, doktor í félagssálfræði, og Emblu Vigfúsdóttur, listrænan leikjahönnuð. Þær starfa í teymi sem vinnur að verkefninu „Betri borgar fyrir börn“ sem unnið er í samstarfi milli þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar og Bloomberg Phila...

71. Umhverfisvernd og uppeldi með Stefaníu Rut og Alexöndru 13.04.2022

Í þessum þætti settust þær Stefanía Rut Hansdóttir og Alexandra Kjeld niður með Guðrúnu Ingu og sögðu henni allt af létta um textíliðnaðinn og sjónarmið um umhverfisvernd með ýmsum leiðum - s.s. með ungbarnafataleigu og endurnýtingu en ekki síst kaupum á umhverfisvænum textíl. Eftir um 30 mínútna spjall um það var sjónum vikið að öðrum áhugamálum þeirra og Guðrúnar Ingu um foreldrakulnun, að ala s...

70. Guðmundur Ingi - um skjánotkun, uppeldi drengja og að alast upp af annarri kynslóð 30.03.2022

Guðmundur Ingi Þorvaldsson ræðir hér við Árna Kristjánsson um hvernig var að alast upp sem drengur í sveitinni sinni og verða síðan faðir fremur seint á lífsleiðinni. Umhverfið þá gjörólíkt og væntingar og hugmyndir um hlutverk feðra allt annað en áður var. Verandi faðir tveggja drengja hefur hann hugsað sig í gegnum ýmislegt sem varðar uppeldi stráka. Hann segir okkur einnig frá viðhorfum sínum t...

69. Spjallað um leiklist 16.03.2022

Heimsækjum aðeins orð Robin Einzig, stofnanda Visible Child: „Visible Child styður ekki að börn séu sett í skipulagða tíma eða tómstundir þar til þau hafa náð um 7 ára aldri – og þá aðeins að þeirra eigin beiðni og á máta sem býður upp á frjálsa aðferð og sem helst felur ekki í sér skuldbindingu í lengri tíma svo þau geti hætt eða byrjað hvenær sem þeim langar.“ En hvernig líður þá 7 og 8 ára göml...

68. Að upplifa lífið sitt á meðan það er að gerast 09.03.2022

Bryndís Jóna Jónsdóttir átti frábært núvitundarspjall við þrjár okkar úr hópi Meðvitaðra foreldra sem jafnframt eru eða hafa verið nemendur hennar hjá Háskóla Íslands, þar sem hún starfar sem aðjúnkt. Bryndís er jafnframt núvitundarkennari hjá Núvitundarsetrinu, með MA diplóma í jákvæðri sálfræði, MA í náms- og starfsráðgjöf og B.Ed. í grunnskólafræðum með áherslu á íþróttir og heilsu. Þá er hún v...

67. Handan hegðunar - seinni hluti 09.02.2022

Í dag höggvum við á hnútinn og ljúkum loks umfjöllun okkar um hina frábæru bók dr. Monu Delahooke Beyond Behaviors. Til þess að gefa meira fyrir hlustendur að melta og sofna ekki endanlega yfir sefandi rödd Guðrúnar Ingu ákváðum við að klippa inn bestu augnablik úr fjarbókaklúbbi Virðingar í uppeldi. Þátttakendur sem hljóma í þættinum eru þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir , Ágústa Margrét Arnardóttir,...

66. Spjallað um Waldorf-stefnuna 01.12.2021

Í þessum fyrsta þætti Virðingar í uppeldi í umsjón Árna Kristjánssonar kynnumst við Waldorf-skólanum á Íslandi örlítið með spjalli hans við Waldorfkennarana Martein Teit Kristjánsson og Ingibjörgu Jónu Sigurðardóttur, sem bæði eru reynslumiklir kennarar í Waldorf-stefnunni og hafa jafnframt alið upp börn sín eftir gildum hennar. Stefna Waldorfskólans byggir á heimspeki og heildrænum lífskenningum...

65. Meistaraspjall um virðingarríkt uppeldi með Árna og Hörpu 17.11.2021

Þau Árni Kristjánsson og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir fara hér yfir barnæskur sínar með Guðrúnu Ingu og setja í samhengi við hvernig þau mættu til leiks sem foreldrar. Þau ræða um mikilvægi ömmu og afa og tengslamyndunar þeirra við börnin og einnig hvernig við getum reynt að fá þau til liðs við okkur í að gera hlutina af virðingu. Þau ræða áfall sem þau urðu fyrir skömmu eftir að hafa orðið foreldra...

64. Handan hegðunar - fyrri hluti 03.11.2021

Í þessum frábæra þætti í umfjöllun Bókaklúbbs Meðvitaðra foreldra um bókina Handan hegðunar eftir dr. Monu Delahooke fékk Guðrún Inga Torfadóttir þær Önnu Mjöll Guðmundsdóttur, Margréti Thelmu Líndal og Sólveigu Rós til þess að lesa með sér yfir ítarlegan útdrátt úr fyrri hluta bókarinnar. Saman stöldruðu þær af og til við og leyfðu sér að velta upp ýmsum hugleiðingum um efnið. Bókin Handan hegðun...

63. Reynslusaga Ölmu um einveru 27.10.2021

Alma Björk er menntaður framhaldsskólakennari, viðskiptafræðingur og umhyggjusöm þriggja barna móðir sem segir Guðrúnu Ingu í þessum þætti frá baráttu sinni fyrir réttindum sonar síns í grunnskólakerfinu. Sú barátta hefur leitt líf hennar inn á nýjar og aðrar brautir; hún hóf nám í lögfræði og hefur son sinn nú í heimakennslu og á í virku samtali við aðra foreldra í svipuðum sporum inni á hópnum S...

62. Að eignast þriðja barn 20.10.2021

Í þessum þætti setjast þrjár þriggja barna mæður niður til að ræða hvernig lífið breyttist við að eignast þriðja barn. Það voru þær Gyða Björg Sigurðardóttir, Kristín Björg Viggósdóttir og Svava Margrét Sigurðardóttir sem ræddu málin. Hugmyndin að þættinum var í grunninn sú að ræða hvernig nálgun að uppeldi breytist við að eignast þriðja barn eftir hafa tileinkað sér virðingarríkar uppeldisaðferði...

Enn um hreyfiþroska með góðum gestum 06.10.2021

Við höfum nokkrum sinnum fjallað um hreyfiþroska ungbarna hér í hlaðvarpinu. Fyrst í þætti okkar um grunnatriði RIE og um að kenna eða kenna ekki, þegar við vorum að hefja flugið í þessu hlaðvarpi fyrir tveimur árum síðan. Þá hafa bæði sjúkraþjálfararnir Agnes og Kara úr Hraust þjálfun aðeins komið inn á þetta með okkur í 22. þætti sem og Freyja Barkardóttir sjúkraþjálfari og Kristín Björg Viggósd...

60. Í heilum heimi í uppalendahlutverkinu með Gyðu Dröfn 15.09.2021

Gyða Dröfn Tryggvadóttir er frábær ráðgjafi í meðvirknifræðum Piu Melody og gefur hlustendum okkar hér innsýn í hvernig hún hefur öðlast skarpskyggni á hvernig mynstrin úr æsku birtast okkur á fullorðinsárum og hafa áhrif á öll okkar sambönd og tengsl. Að alast upp í klessutengslum eða hafa verið yfirgefin eða látin afskipt af uppalendum okkar hefur þannig langvarandi og lúmsk áhrif sem mikils er...

59. Bókaklúbbur - Hvernig á að tala svo lítil börn hlusti og hlusta svo lítil börn tali 01.09.2021

Eftir langan sumardvala erum við vöknuð til lífsins í Virðingu í uppeldi og hefjum kröftugan og fjörugan fræðslu- og umræðuvetur um virðingarríkt uppeldi með umfjöllun um bókina How To Talk So Little Kids Will Listen And Listen So Little Kids Will Talk. Það virðist loða við uppeldisbækur sem við lesum að vera með langa titla. En það er í lagi, við ráðum við það. Þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Gyða...

58. Bókauppeldi með Bergrúnu Írisi og Hermundi 30.06.2021

Guðrún Inga Torfadóttir og Eva Rún Guðmundsdóttir hafa oft rætt saman með áhyggjufullum tóni eftir að börnin þeirra fóru upp á grunnskólastigið. Hverjar hafa áhyggjur þeirra verið? Jú, önnur er með strák og hin með stelpu. Þær hafa báðar haft áhyggjur af því að ánægja barnanna af að lesa fölni í umhverfi leshraðamælinga, límmiðagjafa og einkunnaspjalda. Börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í umh...

57. Meðvituð sambönd með Þórhildi og Soffíu 16.06.2021

Þá er komið að enn öðrum þættinum um ástarsambönd okkar foreldranna. Með Guðrúnu Ingu til halds og trausts voru mættar til leiks þær Soffía Bæringsdóttir og Þórhildur Magnúsdóttir. Fyrsti hluti þáttarins fjallar um týpískar aðstæður þar sem foreldrum í sambandi lenti saman við að svæfa barn og reyndi á samanburð, að vera saman í liði og hvernig yngri útgáfa af okkur sjálfum getur vaknað þegar alli...

Listen to the Virðing í uppeldi podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.