Vendipunkturinn

Vendipunkturinn með Ásgeiri Ólafs

News IS ↓ 10 episodes

Vendipunkturinn er splunkunýtt hlaðvarp þar sem viðmælendur fara til þess tíma þar sem líf þeirra breyttist.  Ef þú vilt að ég hringi í einhvern, sendu hugmyndina þína á asgeirpodcast@gmail.com

Author

Vendipunkturinn

Category

News

Podcast website

vendipunkturinn.podbean.com

Latest episode

Jun 15, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gísli Einars og Landinn S1 E10 15.06.2026

Lokaþáttinn í fyrstu seríu af Vendipunktinum fær Gísli Einarsson, fjölmiðlamaður. "Multimaðurinn" eins og sumir kalla hann. Hann er skemmtilegur og hefur komið víða við.  Hann segir frá því hvernig Landinn varð til, og hvers vegna hann en ekki einhver annar landaði djobbinu. Hann segir frá símtali sem hann fékk sem var vendipunktur fyrir hann. í 16 ár hefur Landinn verið á skjánum, Gísli líka,  og...

Snorri Ásmunds S1 E9 10.06.2026

Hvar skal byrja þegar maður talar við Snorra Ásmunds. Hann er listamaður í húð og hár, hefur boðið sig fram til forseta, hann ætlaði að verða formaður sjálfstæðisflokksins. Hann er talinn vera færasti píanóleikari Evrópu og hann stofnaði tvö pólítísk öfl sem boðið hafa fram á Akureyri sem Kattarframboðið og sem Vinstri hægri snú í Reykjavík.  Að auki er hann mikill dýravinur og sérstaklega tengir...

Sigurbjörn Árni Arngrímsson S1 E8 02.06.2026

Bjössi er mikill sögumaður. Hann á vendipunkt sem þig langar að heyra og svo allt hitt sem hann hefur að segja. Mikið roooosalega er gaman að tala við sumt fólk.  Takk fyrir að hlusta á Vendipunktinn. 

Karl Ágúst Úlfsson S1 E7 18.05.2026

Kalli segir okkur frá uppsetningu Harrýs og Heimis sem hefur verið sýnt nú fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúskjallaranum. Hann á einn mikilvægan vendipunkt í lífinu þar sem hann segir okkur frá því að hann sé mögulega ástæða þess að hann varð leikari. Hvað ef þetta hefði ekki gerst og geta aðrir tekið þetta sér til fyrirmyndar? Endurskoðar maður líf sitt þegar maður veikist? Eigum við von á Karli í há...

María Lena, M - Fitness S1 E6 11.05.2026

Maríu Lenu hefur tekist á aðeins níu árum að gera hugmynd sína að þeim veruleika að vera með fimmtán starfsmenn, 200 fermetra verslun og 500 fermetra lager af vörunum sínum M - Fitness. M - Fitness nafnið varð hins vegar til löngu áður en fatnaðurinn fór af stað.  Af hverju gengu buxurnar hennar, það fyrsta sem hún setti á markað, svona vel?  Hvað gerði hún öðruvísi?  Hvernig tókst henni að gera þ...

Bjarni Fritzson S1 E5 04.05.2026

Ég hringdi í Bjarna eldsnemma og hann var  í banastuði eins og alltaf. Bjarni segir okkur sína vendipunkta í lífinu, og útskýrir fyrir okkur þegar hann fékk símtalið sem gerði það að verkum að hann er nú í framboði. Af hverju valdi hann 8. sætið? Hann svarar því einnig og útskýrir það vel. Orri óstöðvandi fær frí næstu jól í fyrsta sinn í 8 ár, og skúbbar Bjarni af hverju og hvað það er sem hann e...

Ragga Nagli S1 E4 30.04.2026

Ragnhildur Þórðardóttir, eða Ragga Nagli í frábæru viðtali þar sem hún rifjar upp vendipunkta í sínu lífi. Hún talar líka um allskonar. Voðalega er gaman að tala við skemmtilegt fólk. Ragga er það. Hún er skemmtileg.  Sendu þínar hugmyndir til mín á viðmælendur á asgeirpodcast@gmail.com .  Eða kannski langar þig vera með? Takk fyrir að hlusta á Vendipunktinn. 

Birgir Örn Steinarsson / Biggi Maus S1 E3 27.04.2026

Biggi er í fríi á mánudögum. Hann er að skrifa handrit fyrir sænskan leikstjóra.  Hann skrifaði Vonarstræti og Lof mér að falla með Badda Z. Margir vita það ekki. Sorglegur og magnaður vendipunktur í lífi Bigga átti sér stað árið 2003 sem leiddi hann þangað sem hann er í dag. Virkilega gott að heyra þetta Biggi. Takk. Ef þú vilt vera með eða vilt að ég hafi samband við einhvern ákveðinn aðila, sen...

Felix Bergsson S1 E2 21.04.2026

Í öðrum þætti segir Felix okkur frá sínum vendipunkti í lífinu.  Það gæti tengst Greifunum, Rúv eða einhverju allt öðru. Hann segir okkur líka frá skegginu. Ég Spurði Felix hvort hann væri alltaf jákvæður, hann svaraði því mjög skýrt.  Deildu endilega þættinum og leyfðu öðrum að hlusta og sendu mér hugmyndir að viðmælendum á asgeirpodcast@gmail.com Takk fyrir á hlusta á Vendipunktinn og þúsund þak...

Óðinn Svan - S1 E1 20.04.2026

Óðinn Svan hætti á RÚV, byrjaði að pípa og fer nú sem oddviti fram fyrir L- listann á Akureyri í kosningunum á Akureyri. Það er ekkert sem þessi gæi getur ekki gert held ég.  Virkilega gott og einlægt spjall þegar hann segir okkur frá vendipunktinum í sínu lífi og frá mjög erfiðri stöðu sem fjölskylda hans glímir við í dag. Jákvæðni og gott hugarfar umvefur þennan dreng.  Takk fyrir að hlusta! Ef...

Listen to the Vendipunkturinn með Ásgeiri Ólafs podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.