Undirmannaðar

Undirmannaðar

Kids IS ↓ 152 episodes

Þrjár tvíburamæður með munnræpu. Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.

Author

Undirmannaðar

Category

Kids

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

51. Undirmannaðar - Andrea Röfn 18.07.2024

Andrea Röfn kom til okkar í spjall um lífið og tilveruna hjá sér og fjölskyldunni, en þau búa erlendis þar sem að Arnór maðurinn hennar er atvinnumaður í fótbolta. Þau eiga saman tvö börn og hafa þau flakkað saman a milli landa eltandi bolta. Andrea er með einstaklega jákvætt og fallegt hugarfar og gaman að heyra frá þeirra ævintýrum. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Venja.is...

50. Undirmannaðar - Bryndís Ottesen 11.07.2024

Þáttur vikunnar er með Bryndísi Ottesen, tvíburamömmu og hlaðvarpsstjórnanda með meiru! Bryndís eignaðist tvíbura árið 2017 sem hrundi því af stað að hún fór í ADHD greiningu þrítug. Virkilega skemmtilegt spjall um tvíburalífið, móðurhlutverkið með ADHD o.fl. Mælum með hlaðvarpinu hennar, Brestur sem fjallar um konur og ADHD. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Venja.is Wnoise.i...

49. Undirmannaðar - Sylvía Briem & Hanna Björk 04.07.2024

Fæðingarorlof á Íslandi er stærðfræðidæmi sem virðist alls ekki ganga upp! Við fengum til okkar þær Sylviu Briem og Hönnu Björk til að ræða fæðingarorlof á Íslandi, stöðu foreldra og réttindi barna. Ásamt því að ranta um stöðu fjölburadoreldra í fæðingarorlofi, en því orlofi hefur ekki verið breytt síðan 2003. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóð...

48. Undirmannaðar - Guðrún Eik 27.06.2024

Þáttur vikunnar er með Guðrúnu Eik, þriggja barna móður og fyrrum bónda! Við fórum í gegnum allan tilfinningaskalann og ræddum m.a. sveitalífið, tvíburalífið, fósturmissi og kulnun maka. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is

47. Undirmannaðar - Steiney Snorrad. 20.06.2024

Þáttur vikunnar er með magnaðri tvíburamömmu, Steineyju Snorradóttur! Sem er tvíburi og á pabba sem er tvíburi. Hvað eru margir tvíburar í því? Steiney sagði okkur frá krefjandi meðgöngu og fæðingu en tvíburi B fæddist með samvaxin höfuðbein og þurfti að gangast undir stóra aðgerð aðeins 3ja mánaða. Magnað að heyra frásögn hennar þar sem hún og maðurinn hennar hafa farið í gegnum allt með jákvæðum...

46. Undirmannaðar - Aldís Arnard. 13.06.2024

Aldís Arnardóttir kom til okkar í spjall um lífið með 4 gaura undir 6 ára. Aldís er einstaklega jákvæð og hefur tileinkað sér aðdáunarvert hugarfar í gegnum lífið og barneignarferlið. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is

45. Undirmannaðar - Sandra Dís 06.06.2024

Sandra Dís er tvíburamamma með stóra sögu. Sandra og Eyþór eiga saman 4 ára tvíburana Elektru og Eyþór en þau komu í heiminn á 29. viku. Magnað að hlusta á frásögn Söndru á einlægan og tilfinningamikinn hátt, þau gengu í gegnum ýmis áföll ásamt því að vera að fóta sig í foreldrahlutverkinu. Við viljum benda á að í þættinum er farið yfir mjög erfið veikindi barns og því TW sett hér. Þátturinn er í...

44. Undirmannaðar - Þórunn Eva 30.05.2024

Þórunn Eva er mögnuð kona sem hefur þurft að ryðja veginn fyrir langveika syni sína og ræðir við okkur þær krefjandi áskoranir sem foreldrar langveikra barna standa frammi fyrir. Þórunn er stofnandi Mia Magic og einnig eineggja tvíburi og ræðum við skemmtileg ráð og pælingar varðandi það að vera tvíburi. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is / Afsláttarkóði:...

43. Undirmannaðar - Maríanna Eva 24.05.2024

Þáttur vikunnar er með Maríönnu Evu, tveggja barna móður, jógakennara & iðjuþjálfanemi. Maríanna eignaðist tvö börn á 15 mánuðum & ræðir á einlægan hátt um fæðingarþunglyndi, hugarfarið við líkamlegar breytingar & daglegt líf með 2 börn undir 2. ára! Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afs...

42. Undirmannaðar - Arnar Long 16.05.2024

Eftir langa bið er komið aftur að pabba í spjall! Arnar Long fimm barna faðir og maður Hönnu Bjarkar kom til okkar í einlægt og skemmtilegt spjall. Arnar ræddi við okkur um krefjandi æsku, foreldrahlutverkið og daglegt líf með 5 börn undir 4. ára! Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: und...

41. Undirmannaðar - Ragga Gunn 09.05.2024

Þáttur vikunnar með einni “miðaldra” þriggja barna móður úr Hlíðunum eins og Ragga grínast sjálf með. Ragga er með PCOS og fræðir okkur um það ásamt því að fara yfir sögu sína og barneignarferlið en hún á þrjú börn undir þriggja ára. Ragga er lífsglöð og hæfileikarrík en hún hefur meðal annars túrað sem trompetleikari með Of Monsters and Men. Þátturinn er í samstarfið við: Netto.is & Änglamark...

40. Undirmannaðar - Salka Sól 02.05.2024

Sölku Sól Eyfeld þarf nú vart að kynna en hún er tveggja barna móðir, söng-, leik- og útvarpskona svo fátt eitt sé nefnt. Salka fer með okkur í gegnum sögu sína og Arnars þar sem þau gengu í gegnum ófrjósemi og þær miklu tilfinningar sem það hefur í för með sér ásamt því að slá á léttu nóturnar eins og henni einni er lagið. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Wnoise.is...

39. Undirmannaðar - Karin 25.04.2024

Karin Kristjana Hindborg, strákamamma og eiginkona kom til okkar í hjartnæmt spjall um lífið, börnin, barnsmissi *TW* og hvernig það er að stofna og reka fyrirtæki. Karin er förðunarfræðingur, stofnandi og eigandi NOLA, með BA í sænsku, uppeldis- og menntunarfræði. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is /...

38. Undirmannaðar - Erna Hrund 18.04.2024

Erna Hrund er þriggja barna móðir, förðunarfræðingur & vörumerkjastjóri hjá Danól. Erna og Jonni eiga saman hana Lottu en Erna Hrund á þá Tinna og Tuma úr fyrra sambandi. Erna er opin, einlæg og skemmtileg. Þessi þáttur fer með ykkur í gegnum allan tilfinningaskalann en Erna sagði okkur m.a. frá meðgöngunum, fæðingunum, fæðingarþunglyndi, skilnaðinum og hvernig það er að tvinna saman fjölskyld...

37. Undirmannaðar - Katla Hreiðars 11.04.2024

Létt og ljúft spjall um móðurhlutverkið við Kötlu Hreiðars. Katla á tvö börn með manninum sínum Hauki, hann á einnig tvö börn fyrir og gengur hún með sitt þriðja barn. Það er því líf og fjör! Hún deilir með okkur lífinu, flóknum áskorunum, ásamt hlátri og léttleika. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is & Änglamark Maikai.is Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Wnoise.is / Afsláttarkóð...

36. Undirmannaðar - Malen Rún 04.04.2024

Gestur vikunnar hjá okkur er nýbökuð tvíburamamma. Malen á 2. mánaða tvíbura og 2. ára strák með eiginmanni sínum Degi. Við ræddum tilfinningarnar varðandi það að eiga von á tvíburum, meðgönguna, fæðinguna, fyrstu mánuðina og hvernig það er að púsla saman lífinu með þrjú lítil börn. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is & Änglamark Maikai.is Mfitness.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannaðar

35. Undirmannaðar - Vilma Ýr (VilmaHome) 28.03.2024

Létt, ljúft og skemmtilegt spjall við filterslausu mömmuna Vilmu. Vilma er tveggja barna móðir sem er með ansi marga bolta á lofti en hún er eigandi Vilma Home, verslunarstjóri og deilir lífi sínu með instagram fylgjendum sínum. Svo skemmtilegt hvað hún fer kát og afslöppuð í gegnum lífið. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is

34. Undirmannaðar - Angelien Schalk 21.03.2024

Við fengum magnaðan gest til okkar þessa vikuna hana Angelien Schalk, en hún er 5 barna móðir sem gengið hefur í gegnum ýmsar áskoranir í lífinu. Hún fer með okkur í gegnum lífið með börnin, meðgöngu eineggja tvíbura og kulnun. Þetta er einn af þessum þáttum sem enginn má láta fram hjá sér fara. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is

33. Undirmannaðar - Hannah Davíðs. 14.03.2024

Hannah Davíðsdóttir kom í ótrúlega skemmtilegt spjall um allt milli himins og jarðar. Hún er tveggja barna móðir, eiginkona, nemandi í þroskaþjálfafræði og einn eigenda Ægir Gym, en þau fjölskyldan fluttu einmitt til Akranes í fyrra og opnuðu líkamsræktarstöð. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is

32. Undirmannaðar - Hafdís (Sofa Borða Elska) 07.03.2024

Við fengum til okkar góðan gest þessa vikuna. Hafdís er hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og svefnráðgjafi. Hafdís á fjögur börn og þar af eitt sett af tvíburastelpum. Hafdís deildi með okkur lífinu með fjögur börn og góðum ráðum varðandi svefn. Hún heldur úti Instagram síðunni Sofa Borða Elska. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is

31. Undirmannaðar - María & Hannes 29.02.2024

María Lena og Hannes komu til okkar í virkilega skemmtilegt spjall. Þau eru búsett í Reykjavík og eiga tvö börn, en fyrirtækið M fitness er þriðja barnið þeirra. Alveg frá því að þau byrjuðu saman hefur lífið mikið snúist um fyrirtækið í bland við fjölskyldulífið. Þau vinna tvö saman alla daga í fyrirtækinu og eru að byggja sér framtíðarheimili. Það er óhætt að segja að það sé mjög mikið um að snú...

30. Undirmannaðar - Eyrún Rakel 22.02.2024

Eyrún Rakel kom til okkar í kósý spjall, en hún er tveggja barna móðir og starfar sem talmeinafræðingur. Við ræddum móðurhlutverkið ásamt frábærum ráðum varðandi málþroska. Hún heldur einnig úti instagram síðunni Töfratal. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is

29. Undirmannaðar - Hildur 15.02.2024

Óvænt þungun og það af þríburum er saga Hildar sem eignaðist þríbura stráka árið 2013. Hildur ræðir um meðgönguna, fyrstu dagana og hvernig lífið með þríbura er ásamt því að fara með okkur á persónulegu nóturnar. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is

28. Undirmannaðar - Eyrún Telma 08.02.2024

Eyrún Telma kom til okkar í einlægt spjall. Eyrún og maðurinn hennar eiga eineggja tvíbura stráka en fyrstu mánuðir eftir meðgöngu voru átakanlegir og fer hún vel yfir þann tíma og líðan sína í dag í von um að geta miðlað sinni reynslu til að hjálpa öðrum. Þáttur sem enginn má láta fram hjá sér fara. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is

27. Undirmannaðar - Leikskólinn, lífið & líklegust 01.02.2024

Vinkonu spjall um lífið og tilveruna í dag, leikskólapláss, aðlögun og hver er líklegust. Þátturinn er í samstarfi við Netto.is, Maikai.is, Mfitness.is & Wnoise.is

Listen to the Undirmannaðar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.