Undirmannaðar

Undirmannaðar

Kids IS ↓ 152 episodes

Þrjár tvíburamæður með munnræpu. Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.

Author

Undirmannaðar

Category

Kids

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

76. Undirmannaðar - Alexandra Helga 16.01.2025

Viðmælandi vikunnar er Alexandra Helga, tveggja barna móðir og eigandi Mía verslun. Hún sagði okkur frá mjög krefjandi ófrjósemisbaráttu, lífinu í útlöndum, meðgöngunum, hypnobirthing og upplifun hennar að eiga á fæðingarheimili erlendis og hér heima. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadar Venja.is Shareiceland.is ⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠COSRX⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠ h...

75. Undirmannaðar - Aníta Rún 09.01.2025

Viðmælandi vikunnar er Aníta Rún, þriggja barna móðir og eigandi Sassy. Aníta og Danni eignuðust þrjú börn á þremur árum og ræddum við m.a. um barneignarferlið, lífið með þrjú ung börn, stofnun Sassy, húsbyggingu og hvernig er að tvinna saman fjölskyldulífi og eigin rekstri . Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadar Venja.is Shareiceland.i...

74. Undirmannaðar - Ágúst & Hrafnhildur 03.01.2025

Gleðilegt nýtt ár elsku hlustendur & takk fyrir ykkur og ykkar stuðning árið 2024, við kunnum innilega að meta ykkur <3 Við byrjum nýja árið á tvíburaforeldrunum Ágústi og Hrafnhildi en þau eru búsett í Danmörku og njóta lífsins þar sem fjölskylda. Við spjölluðum um meðgönguna, fæðinguna sem átti sér stað í Danmörku, fyrstu dagana og lífið og tilveruna eins og það er í dag. Einstaklega þægi...

73. Undirmannaðar - Kristín Gunnarsdóttir 26.12.2024

Gleðileg jól elsku hlustendur! Við vonum að þið séuð að njóta með ykkar nánustu <3 Ef orðatiltækið “it takes a village” á einhvern tímann við þá á það við um sögu Elds Elís og fjölskyldu hans en viðmælandi vikunnar er Kristín Gunnarsdóttir þriggja barna móðir og rekstrarstjóri Samkaupum. Kristín og eiginmaður hennar, Bjarki Páll, eiga saman þau Brynju Dís, Daníel Breka og Eld Elí. Í þættinum se...

72. Undirmannaðar - Tinna Þorra 19.12.2024

Viðmælandi vikunnar er Tinna Þorradóttir, tveggja barna móðir, flugfreyja og áhrifavaldur. Við áttum gott spjall um lífið og tilveruna, barneignir og hvernig hefur gengið að tvinna saman störfum hennar sem flugfreyja og áhrifavaldur. Tinna opnaði sig í þættinum um þær áskoranir sem þau fjölskyldan hafa staðið frammi fyrir sl. ár en eldri sonur hennar fæddist með stutta vöðva í fótum sem hefur teki...

71. Undirmannaðar - Elísa Viðars 12.12.2024

Viðmælandi vikunnar er Elísa Viðars, tveggja barna móðir, eyjamær, fótboltakona, og næringar- og matvælafræðingur. Elísa hefur verið afrekskona í fótbolta til margra ára og segir hún okkur frá móðurhlutverkinu, og hvernig það er að tvinna því saman við starf hennar og ástríðu sem atvinnukona í fótbolta ásamt því að fara út í skemmtilegar og fróðlegar pælingar um næringu. Léttur þáttur með skemmtil...

70. Undirmannaðar - Fanney Dóra 05.12.2024

Viðmælandi vikunnar er Fanney Dóra, tveggja barna móðir, leikskólakennari, áhrifavaldur og förðunarfræðingur.  Fanney og Aron eiga saman tvö börn en síðustu tvö ár hafa verið mjög krefjandi í lífi þeirra. Fanney segir okkur á einlægan hátt frá erfiðri lífsreynslu þegar dóttir þeirra greinist með heilaæxli aðeins 2 og hálfs árs gömul. Stuttu síðar komust þau að því að lítill laumufarþegi væri á lei...

69. Undirmannaðar - Eyja Eydal 28.11.2024

Viðmælandi vikunnar er Eyja Eydal þriggja barna móðir. Eyja og Egill maðurinn hennar eignuðust börnin sín þrjú á 14. mánuðum - JÁ þið lásuð rétt, 3 börn á 14 mánuðum. Við fórum yfir barneignarferlið, fyrstu mánuðina í orlofi með tvíbura, litla laumufarþegan og fjörið sem það var að eiga þrjú ung börn í orlofi. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / afsláttarkóði: un...

68. Undirmannaðar - Dr. Erla Björnsdóttir 21.11.2024

Viðmælandi vikunnar er engin önnur en Dr. Erla Björnsdóttir, 4 barna móðir,  sálfræðingur og doktor í svefnrannsóknum.  Hún hefur sérhæft sig í rannsóknum, greiningu og meðferð á svefni og svefnvanda og er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Við erum fullar af innblæstri eftir þetta spjall en hún fræddi okkur um allt sem tengist svefni, svefnvenjum, tengslum tíðahringsins við svefn og svo...

67. Undirmannaðar - Maggý 14.11.2024

Við fengum Maggý til okkar í skemmtilegt spjall um lífið og tilveruna. En hún og kærastinn hennar eiga saman þrjú börn, 4 ára stelpu og 1,5 ára tvíbura, stelpu og strák. Við fórum yfir meðgöngurnar, sjokkið við að fá fréttirnar að það væru tvíburar á leiðinni ásamt daglegu lífi hjá fjölskyldunni. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is / afsláttarkóði: undirmannadar Ve...

66. Undirmannaðar - Þórdís Björk 07.11.2024

Viðmælandi vikunnar er Þórdís Björk, þriggja barna móðir, leik- og söngkona, áhrifavaldur og skemmtikraftur. Í þættinum ræddum við allt milli himins og jarðar, barneignir, sambandsslit á meðgöngu, hvernig er að vera stjúpforeldri, vinnuna, lífið og fjölskylduna. Það var heldur betur hlegið svo við mælum með að hækka vel í græjunum og njóta! Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark El...

65. Undirmannaðar - Sólrún Diego 31.10.2024

Sólrún Diego mætti til okkar í spjall í vikunni. Hana þarf vart að kynna en hún er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins. Sólrún spjallaði við okkur á persónulegu nótunum um lífið og tilveruna, barneignaferlið, móðurhlutverkið, stór verkefni sem þau fjölskyldan hafa þurft að tækla saman og hamstrahjólið sem við virðumst því miður flest lenda í. Við fengum einnig að skyggnast á bakvið tjöldin varða...

64. Undirmannaðar - Ástrós Rut 24.10.2024

Ástrós Rut er viðmælandi vikunnar, 4 barna móðir, unnusta, píparanemi, baráttukona og svo margt fleira. Við ræddum allt milli himins og jarðar, menntaskólaárin, þegar hún kynntist æskuástinni, skyndileg veikindi Bjarka, baráttuna þeirra og fallega lífið sem þau sköpuðu sér. Við ræddum einnig hvernig er að vera aðstandandi, barneignaferlið þeirra og sorgina.  Ástrós tók þá ákvörðun að leyfa sér að...

63. Undirmannaðar - Aníta Rós 18.10.2024

Viðmælandi vikunnar er Aníta Rós, móðir og þrjóskupúki. Aníta og Smári eiga saman tvær stúlkur, þær Valgerði Móu og Heiðdísi Emblu en Heiðdís Embla fæddist andvana á 35viku meðgöngu. Þá eiga þau von á þriðju stúlkunni í mars á næsta ári. Í þættinum ræðum við meðgöngur, fæðingar og þá ólýsanlegu sorg að missa Heiðdísi Emblu. Aníta segir okkur á aðdáunarverðan hátt frá öllu og við vonum innilega að...

62. Undirmannaðar - Tinna Jökuls 10.10.2024

Tinna Jökuls mætti til okkar í skemmtilegt og einlægt spjall. Hún er 5 barna móðir, sjúkraþjálfari, fyrrum handboltakona og með allskonar skemmtilega bolta á lofti, bókstaflega! Tinna gaf okkur frábær heilræði, innsýn í fjölskyldulíf sjö manna fjölskyldu og svo margt fleira Þátturinn er í samstarfi við: ⁠Netto.is⁠ & Änglamark ⁠Eldabuskan.is⁠ / Afsláttarkóði: undirmannadar ⁠Venja.is⁠ / Afslátta...

61. Undirmannaðar - Júlíana Sara 03.10.2024

Flest ykkar ættu að þekkja viðmælanda vikunnar! Ein fyndnasta kona landsins, Júlíana Sara kom til okkar í spjall. Hún er tveggja barna móðir, unnusta, leikari, handritshöfundur og leikstjóri með meiru. Við erum fljótari að segja ykkur hvað við ræddum ekki í þættinum, en hann er stútfullur af skemmtilegu spjalli og miklum hlátri! Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is...

60. Undirmannaðar - Aníta Rut 26.09.2024

Nú þarf að rífa fram glósubókina og henda sér í djúpu laugina! Viðmælandi vikunnar er Aníta Rut, tveggja barna móðir og viðskiptastjóri. Við fórum um víðan völl og ræddum m.a. barneignir, hvernig er að tvinna saman fjölskyldu- og atvinnu, fyrstu skrefin í fjármálageiranum og ævintýrið hjá Fortuna Invest. Hún gaf okkur góð ráð og hvetur allar konur eindregið til að kynna sér fjárfestingar og byrja...

59. Undirmannaðar - Íris Lilja 19.09.2024

Viðmælandi vikunnar er Íris Lilja, þriggja barna móðir. Íris Lilja og Bjarki hafa verið saman síðan í menntaskóla og eiga saman þau Hermann Inga, sem er alveg að verða 5 ára, Emblu Rún, sem er 1,5 árs og Hólmar Orra sem er 3 mánaða. Við ræðum saman hvernig þau Bjarki kynntust, barneignir og meðgöngur barnanna og þá einkum hana Emblu Rún en það kemur í ljós við fæðingu hennar að hún er með Downs-he...

58. Undirmannaðar - Steinunn Helga 12.09.2024

Við héldum að við værum undrimannaðar en Steinunn Helga trompar okkur heldur betur! Hún er kröftug einstæð móðir, með fimm börn á aldrinum eins árs til átta ára. Yngstu eru tvíbura stelpur sem komu í heiminn á 27 viku. * TW vegna umræðu um fósturmissi og vökudeild* Steinunn fór m.a. með okkur í gegnum meðgönguna með tvíburana, tímann á vökudeild og baráttu hennar með SAMLEIK. Btw við drógum úr gja...

57. Undirmannaðar - Andri Steinn 05.09.2024

Viðmælandi vikunnar er Andri Steinn, tveggja barna faðir. Andri er uppalinn í Kópavogi og býr þar ásamt eiginkonu sinni, Sonju og dætrum þeirra. Andri starfar sem bæjarfulltrúi í Bæjarstjórn Kópavogs og tók m.a. þátt í að móta Kópavogsmódelið í leikskólamálum bæjarins. Við ræddum m.a. leikskólamálin, fæðingarorlofið og ýmis hita mál, ásamt því að svipast inn í fjölskyldulíf þeirra. Minnum á gjafal...

56. Undirmannaðar - Alexandra Ósk 29.08.2024

Viðmælandi vikunnar er Alexandra Ósk, tveggja barna móðir og kírópraktor. Alexandra og maðurinn hennar, Kristófer, fluttu til Englands með stelpurnar sínar árið 2016 þegar Alexandra hóf nám í Kírópraktík. Hún segir okkur frá barneignaferlinu, hvernig var að flytja erlendis og vera með lítil börn í námi ásamt því að ræða lífið í dag. Minnum á gjafaleikinn á instagram <3 Þátturinn er í samstarfi...

55. Undirmannaðar EINS ÁRS 23.08.2024

EINS ÁRS! Takk fyrir samfylgdina og sturlaðar móttökur! Það leynist glaðningur í þættinum & er þátturinn stútfullur af glensi og gaman <3 LETSGOO Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Eldabuskan.is Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Hellenergy.is / Afsláttarkóði: undirmannadar

54. Undirmannaðar - Thelma Guðmundsen 15.08.2024

Thelma Guðmundsen er viðmælandi vikunnar. Thelma og maðurinn hennar Logi eiga saman tvo drengi, Jökul og Tind. Hún ræðir við okkur um fæðingar strákanna, lífið með strákunum sínum þremur, erfiða æsku og hvernig æskan hennar hefur mótað bæði hana og viðhorf hennar gagnvart uppeldi strákanna sinna en það er aðdáunarvert að hlusta á hana og hennar viðhorf. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is &...

53. Undirmannaðar - Lovísa Fals 08.08.2024

Undirmönnuð móðir búsett í New York er viðmælandi vikunnar. Lovísa og Gunnar maðurinn hennar fluttu á vit ævintýranna til Bandaríkjanna árið 2021. Þau eiga þrjú börn undir 5 ára og segir Lovísa okkur frá skrautlegum flutningum, lífinu erlendis með þrjú lítil börn, ásamt mjög krefjandi og ólíkum fæðingum, en yngsta dóttir þeirra fæddist í Bandaríkjunum. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is &...

52. Undirmannaðar - Alexsandra Bernharð 25.07.2024

Við fengum til okkar Alexsöndru Bernharð, tveggja barna móður. Við fórum yfir víðan völl og ræddum við meðal annars barneignir, erfið vinaslit og sjálfsvinnuna í kjölfarið. Alexsandra er einstaklega einlæg og hlý, og aðdáunavert heyra söguna hennar og fjölskyldunnar. Þátturinn er í samstarfi við: Netto.is & Änglamark Venja.is Wnoise.is / Afsláttarkóði: undirmannadar Shareiceland.is

Listen to the Undirmannaðar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.