RÚV Hlaðvörp

Krakkaheimskviður

Kids IS ↓ 82 episodes

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar. Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir Ritstjórn: Birta Björnsdóttir, Karitas M. Bjarkadóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Author

RÚV Hlaðvörp

Category

Kids

Podcast website

shows.acast.com

Latest episode

Jul 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

SUMAR: Pöndur 11.07.2026

Hvers vegna eru pöndur mikilvægar í samskiptum milli landa og hvað er eiginlega dýradiplómasía? Við rifjum upp það sem við lærðum um þessa ofurkrúttlegu sendiherra í vetur í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

SUMAR: AirBNB-bann 04.07.2026

Sumarið er tími ferðamanna en mörg hafa skoðanir á því hvar og hvernig þeir dvelja á fjölförnum stöðum. Við rifjum upp umfjöllun um AirBNB-bann í Barcelona í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

SUMAR: Samfélagsmiðlabann í Ástralíu 27.06.2026

Breska þingið tilkynnti það fyrr í mánuðinum að það íhugaði samfélagsmiðlabann fyrir börn undir 16 ára aldri. Lög af sama tagi tóku gildi í Ástralíu í desember, við rifjum upp þáttinn um þau í dag. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

SUMAR: Saga Kóreu og K-Pop 20.06.2026

20. júní, var liðið heilt ár frá því að Netflix-myndin K-Pop Demon Hunters kom út. Af því tilefni ætlum við að rifja upp sögu Kóreu og K-Pop frá því í haust. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Sögulegur almyrkvi á sólu í sumar 13.06.2026

Í þessum síðasta þætti Krakkaheimskviða fyrir sumarfrí fræðist Karitas um almyrkvann sem verður sýnilegur frá Íslandi í ágúst. Stjörnu-Sævar er gestur þáttarins og segir okkur allt um sólmyrkva. Hvers vegna þarf maður sérstök sólmyrkvagleraugu og hvernig tengist norræn goðafræði sólmyrkvum? Allt um það í þætti dagsins! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Stærsta HM í fótbolta sögunnar 06.06.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða ræðir Karitas við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur um HM karla í fótbolta, breytingar sem gerðar hafa verið á mótinu, nýliðana og spennandi leiki framundan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Breytingar í Hollywood 30.05.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða eru breytingar í Hollywood í brennidepli. Hvað er samruni og samkeppni? Allt um yfirvofandi kaup Paramount á Warner Bros. í þætti dagsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Feneyjatvíæringurinn 23.05.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við á Ítalíu þar sem Feneyjartvíæringurinn fer fram um þessar mundir. Dagskrárgerðarmaðurinn Kristján Guðjónsson veit allt um málið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

17. maí og þjóðhátíðardagar um víða veröld 16.05.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða heldur Karitas upp á þjóðhátíðardag Noregs sem er í dag. Við skoðum líka aðra þjóðhátíðardaga, hvers vegna þeir eru þegar þeir eru og um hvað þeir snúast. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Eurovision og Attenborough 09.05.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við í heimi sjónvarpsins. Gísli Marteinn Baldursson er gestur þáttarins og ræðir við Karitas um Eurovision sem hefst á þriðjudaginn. Í seinni hluta þáttarins kynnumst við fjölmiðlamanninum David Attenborough sem varð 100 ára á föstudaginn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hvað er Evrópusambandið? 02.05.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðum við Evrópusambandið, ESB. Það hefur verið mikið til umræðu, bæði í fyrri þáttum Krakkaheimskviða og meðal Íslendinga. Hvers vegna? Og hvað gerir þetta samband eiginlega? Fréttamaðurinn Þorgils Jónsson er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Sögulegar kosningar í Ungverjalandi 25.04.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við til Ungverjalands og kynnum okkar nýafstaðnar og sögulegar þingkosningar þar. Hverjir eru Viktor Orbán og Péter Magyar? Hvernig tengist Evrópusambandið kosningunum? Fréttamaðurinn Björn Malmquist veit allt um málið og er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Artemis II og menn á tunglinu 18.04.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða beinum við sjónum okkar að Artemis II, leiðangrinum sem farinn var á tunglið fyrr í mánuðinum. Sævar Helgi Bragason er gestur þáttarins og veit allt um málið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Kosningar í Danmörku og Færeyjum 11.04.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur þingkosningar sem nýlega fóru fram í Danmörku og Færeyjum. Stjórnmálafræðingurinn Sara Þöll Finnbogadóttir býr í Danmörku og fylgdist vel með kosningunum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hvað er sumartími og hvers vegna breyta Íslendingar ekki klukkunni? 28.03.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar svefnvana Karitas hvers vegna klukkunum er breytt tvisvar á ári víðsvegar um heiminn - og hvers vegna það er ekki gert á Íslandi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hvað er að gerast í Íran? 21.03.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur hvað er að gerast í Íran. Mið-Austurlandafræðingurinn Magnús Þorkell Bernharðsson er gestur þáttarins og segir okkur frá landinu, sögu þess og atburðum síðustu vikna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Apinn Punch og metár hjá LEGO 14.03.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um ofurkrúttið Punch, lítinn apa unga sem vann hug og hjörtu fólks um allan heim fyrr í mánuðinum. Í seinni hluta þáttarins skoðar Karitas sögu LEGO og metárið þeirra 2025. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

150 ár frá fyrsta símtalinu 07.03.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða höldum við upp á 150 ára afmæli talsímans með sögulegri yfirferð. Góðir gestir segja frá fyrstu símunum sem þeir muna eftir og við komumst að því hvernig við fórum frá því að geta bara hringt í næsta herbergi í litlu lófatölvuna sem við þekkjum í dag. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Allt um ramadan 28.02.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðist Karitas um ramadan með fréttamanninum Ólöfu Ragnarsdóttur og Embla Bachmann kíkir í Stórmoskuna í Reykjavík og ræðir við unga múslima um hátíðina. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Pöndupólitík 21.02.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas pöndupólitík, eða pöndudiplómasíu og sögu risapöndunnar. Útvarpskonan Vera Illugadóttir og doktorsneminn Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir eru gestir þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Bad Bunny og Ofurskálin 14.02.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas Ofurskálina sem fór fram síðustu helgi, tónlistaratriði Púertó Ríkó-mannsins Bad Bunny og hvernig það tengist stjórnmálum í Bandaríkjunum. Fréttamaðurinn Ingunn Lára Kristjánsdóttir er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Vetrarólympíuleikarnar 07.02.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Vetrarólympíuleikana sem hófust á föstudaginn. Karitas rekur sögu leikanna og ræðir um keppnisgreinarnar við íþróttafréttamanninn Gunnar Birgisson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

EM og saga handboltans 31.01.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas þjóðaríþróttina handbolta. Hvaðan kemur hún og hvers vegna er handbolti svona vinsæll á Íslandi? Íþróttafréttamaðurinn Helga Margrét Höskuldsdóttir er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Saga Grænlands og vilji Grænlendinga 24.01.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða einbeitir Karitas sér að Grænlandi. Hver er saga landsins, hvers vegna eru allir að tala um það og hvað vill Trump eiginlega? Fréttamaðurinn Hallgrímur Indriðason veit ýmislegt um málið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Hvað er að gerast í Venesúela? 17.01.2026

Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur Venesúela, hvað gerðist þar í byrjun árs og hvers vegna. Fréttamaðurinn Oddur Þórðarson er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Listen to the Krakkaheimskviður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.