Hafdís og Oddný
Ljósmæðrarýmið
Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu ❤️
Author
Hafdís og Oddný
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 9, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#19 Foreldrajátningar 09.07.2026 45:13
Hefur þú gleymt að þú varst að keyra um með ungabarn í aftursætinu? Engar áhyggjur, það höfum við líka gert, og flestir hlustendur okkar líka! Endilega skelltu þessum í eyrun ef þú vilt eyða foreldra samviskubiti dagsins, enda erum við flest í sama rugli.
#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið 02.07.2026 1:34:54
Í þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða. Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu. Þetta er þáttur sem við höfum beðið spennta...
#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar 25.06.2026 1:13:09
Missir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir. Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem...
#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara 18.06.2026 1:11:12
Íris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf...
#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara? 11.06.2026 44:10
Við erum mættar aftur eftir stutta pásu! Ferskari en nokkru sinni fyrr. Hvert fórum við? Hvert erum við að fara með hlaðvarpið? Pælingar: Af hverju heyrum við og sjáum lang mest af hryllingssögum um fæðingu en sjaldan góðu sögurnar? Af hverju ákváðum við að synda svolítið gegn straumnum og skapa vettvang fyrir jákvæðar fæðingarupplifanir? 🎧 Njóttu vel! Vertu með okkur á Instagram: Ljósmæðrarý...
#14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja? 03.04.2026 27:14
Er þetta að byrja… eða ekki alveg strax? Í þessum örþætti talar Oddný um eitt ruglingslegasta og oft vanmetnasta stig fæðingarinnar: forstigið. Þegar líkaminn er að undi rbúa sig fyrir fæðingu, en ekkert er alveg komið í gang ennþá. Verkir geta komið og farið, orðið þéttari og dottið svo niður. Tilfinning um að eitthvað sé að gerast en þú veist ekki alveg hvað. Rætt er um:– hvernig forstigið getur...
#13 Ljósmæður yappa + fæðingarsaga 26.03.2026 58:50
Í þessum þætti tókum við gott spjall. Við svöruðum spurningum sem hlustendur hafa sent inn og fórum út í alls konar pælingar tengdar starfinu. Þetta er meðal annars það sem við ræðum: Fetal ejection reflex Fylgjulos Af hverju við fórum í ljósmóðurfræði Hvað er skemmtilegast við vinnuna okkar Spangardeyfingu, er alltaf hægt að biðja um hana Við endum svo á að lesa upp innsenda fæðingarsögu Léttur,...
#12 Örþáttur - Að missa vatnið 23.03.2026 19:04
Legvatnið fer… Hvað gerum við næst? Hvað þýðir það þegar vatnið fer áður en samdrættir hefjast? Hvernig ættum við að bregðast við og hvað gerist næst? Allt þetta og meira um farið vatn í þessum örþætti ljósmæðrarýmisins. Vertu með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir
#11 Fæðingarsaga Sólbjartar 19.03.2026 46:46
Sólbjört elskar að tala um fæðingar og við elskuðum að tala við hana um hennar fæðingu. Hún missti vatnið, verandi GBS beri og fór í gangsetningu í kjölfarið - sem endaði vitanlega með barni, þó að henni hafi ekki alltaf liðið eins og það myndi gerast neitt í náinni framtíð. Hlustið og njótið! Fylgist með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir Sólbjört Sigurð...
#10 Örþáttur - Samdráttaverkir eftir fæðingu 16.03.2026 11:49
Vissir þú að það er algengt að fá samdráttarverki eftir fæðingu? Af hverju eigum við ekki betra orð í íslensku talmáli? Eigum við að nota orðið eftirverkir? Hvers vegna koma þeir, hvenær og hvernig er best að höndla þá þegar þeir koma? Fylgist með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir
#9 5 hlutir sem koma mörgum á óvart í fæðingu 09.03.2026 43:10
Í þessum þætti ræðir Hafdís 5 hluti sem er kannski minna talað um þegar kemur að fæðingum og gæti komið mörgum á óvart. Við förum yfir: - Hvernig líkaminn tekur yfir í fæðingu - Hvernig fæðingarverkir eru oft öðruvísi en fólk ímyndar sér vernig hugurinn hefur áhrif á ferlið - Hversu óútreiknanlegar fæðingar geta verið - Hinn heimurinn sem maður fer í, í fæðingu Allt til þess að gefa þér betri inns...
#8 Fæðingarsaga Huldu Heiðdal 02.03.2026 59:22
Hulda Heiðdal segir okkur frá sinni upplifun af barneignarferlinu, sem var lituð þeirri staðreynd að hún var í mikilli yfirþyngd. Hún var í meðgöngueftirliti á LSH vegna þessa og var ráðlagt að fæða með keisaraskurði, en hana dreymdi um fæðingu um leggöng. Hulda ræðir sína upplifun, fitufordóma og margt fleira. Fylgist með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir Hul...
#7 Fæðingarsögur Kötlu í Systur og Makar 23.02.2026 54:46
Katla sagði okkur á sinn einstaka hátt frá þremur mismunandi fæðingum. Fyrsta gangsetning í covid og blæðing eftir fæðingu, önnur heimafæðing á baðherbergisgólfinu og svo hröð þriðja fæðing á sjúkrahúsi. Þið sem þekkið til Kötlu vitið að hún er ekkert að skafa af hlutunum og það var engin undantekning hér. Njótði vel! Fylgist með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmó...
#6 Fæðingarsögur Helgu Möggu 16.02.2026 49:20
Helga Magga er ein hraustasta kona sem þið finnið og var "óþolandi heilbrigð" á sínum meðgöngum. Enda gekk hún alls ekki fyrir í gangsetningar röðinni fyrr en hún var að detta í 42 vikur. Allar þrjár fæðingarnar hennar voru settar af stað um það leiti. Sú bið var ekki skemmtileg, en fæðingarnar gengu vel og hún átti geggjaðar fæðingar. Fylgist með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska...
#5 Örþáttur - Slímtappinn 13.02.2026 7:45
Hvað er þessi slímtappi? Hvaðan kom hann og hvert er hann að fara? Hlustið til að vita meira. Fylgist með okkur á Instagram: Ljósmæðrarýmið Sofa borða elska Oddný ljósmóðir
#4 Fæðingarsögur Melkorku Rutar 09.02.2026 1:20:19
Fyrsti gestur Ljósmæðrarýmisins er Melkorka Rut Bjarnadóttir. Hjúkrunarfræðingur og þriggja barna móðir en hún átti þriðja barnið sitt 3 dögum eftir að þátturinn var tekin upp! Melkorka leiddi okkur á skemmtilegan hátt í gegnum fyrstu tvær fæðingarnar sínar og ræddi væntingar og tilfinningar gagnvart þeirri þriðju, sem hún vissi ekki þá að var rétt handan við hornið. Hér var ekkert skilið eftir. H...
#3 Fæðingarsögur Hafdísar 01.02.2026 53:50
Í þessum þætti deilir Hafdís, annar þáttastjórnenda Ljósmæðrarýmisins, sínum fæðingarsögum. Hún var orðin ljósmóðir þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn og fer yfir upplifun sína af tveimur hröðum fæðingum og að lokum tvíburafæðingu sem var mögnuð á svo marga vegu. Þátturinn er persónulegur, einlægur og sýnir hversu fjölbreyttar fæðingar geta verið, jafnvel hjá sömu konu.
#2 Fæðingarsögur Oddnýjar 01.02.2026 45:14
Í þessum þætti heyrum við fæðingarsögur Oddnýjar, annars þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins. Hún deilir sínum upplifunum af sínum ólíku fæðingum, fyrsta með löngum aðdraganda og mænurótardeyfingu, annarri sem gerðist hraðar og svo þriðju í Björkinni. Hún ræðir sína upplifun sem fæðandi kona en lítur líka til baka með ljósmæðragleraugun á sér.
#1 Hverjar erum við og af hverju ljósmæðrarýmið? 01.02.2026 14:38
Í þessum fyrsta þætti kynnum við okkur og deilum segjum ykkur frá því hvernig Ljósmæðrarýmið varð til. Við ræðum hvernig orð og sögur geta haft lúmsk áhrif á viðhorf kvenna til fæðinga og hvers vegna okkur finnst mikilvægt að hækka rödd þeirra sem upplifa fæðingu sem jákvæða og styrkjandi.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.