Truthbomber

Truthbomber Podcastið

Comedy IS ↓ 32 episodes

Bjartasta von Íslenskrar hlaðvarpsflóru Hlustaðu eða hlustaðu ekki, þú munt iðrast hvors tveggja.

Author

Truthbomber

Category

Comedy

Podcast website

rss.com

Latest episode

Apr 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

32. þáttur - Bitur, súr og fullur af rjóma 08.04.2026

Það er lafþunnt og ylvolgt hjá strákunum í þetta skiptið. Jón borðar sokk. Hildigunnur hellir upp á kaffi. Illugi spáir í klósettferðum.

31. þáttur - Birkir Fjalarball Z: Turbo Hrútalykt White Man Viðhorf Xtreme ásamt Birki Fjalari 13.02.2026

Birkir Fjalar frá Reyðarfirði kíkir í hljóðverið. Japanskar teiknimyndir, pungþvottur, þungarokk, Austfirðir og margt annað ratar upp á borð.

30. þáttur - King of Kæfa fist tournament; Truthbomber Grand Prix 29.12.2025

Truthbomber snýr til baka úr vetrardvala og óskar landsmönnum gleðilegra jóla. Reyndar eru jólin búin en það er annað mál. Góðkunningjar þáttarins takast á í stærsta ímyndaða viðburði ársins. Svo er líka rætt um jólahefðir og afmynduð kynfæri og eitthvað hverjum er ekki drull

29. þáttur - Stone Cold Kári Stefáns 22.09.2025

Enn og aftur þrífur Truthbomber í háls sannleikans og þrumar honum í gegnum þrjú borð. Óréttlætið verður tekið föstum höndum og powerbombað fram úr hring hversdagsleikans ofan í hyldýpi loðnuveiða. Svo er líka talað um peninga og life hacks og eitthvað. Konur á breytingarskeiðinu viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

28. þáttur - Töff stöff 28.07.2025

Uppáhalds Bomberinn sinn er ylvolgur í sumarfríi. Að vísu eru öryrkjar auðvitað alltaf í sumarfríi svo kannski er ekkert nýtt uppi á teningnum Mótorhjól, Danskir trúboðar, Joseph Kony og líknardráp eru meðal þess sem japlað er á. Lemmy Kilmister viljum við fyrirfram biðja afsökunar

27. þáttur - Freestylað á innsoginu 09.06.2025

Núna er allt farið í skrúfuna hjá Bombernum. Jón gleymir að taka lyfin sín (eða hann tók þau, erfitt að segja). Illugi checkar út andlega. Stjána viljum við fyrirfram biðja afsökunar. Og hlustendur almennt bara

26. þáttur - Fifty shades of Grái fiðringurinn 05.05.2025

Truthbomber taka rösklega af stað inn í sumarið en þurfa svo að setjast niður og teygja svo þeir rífi ekki kálfavöðva. Jaðaríþróttir, Metallica, karllægt óöryggi og free range krakkfíklar koma meðal annars við sögu. Opruh Winfrey viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

25. þáttur - Ku Klux Kæfubrauð ásamt Jónasi Haux 09.04.2025

Fastir liðir eins og venjulega þegar Jónas Haux heimsækir Truthbomber. Alkóhólismi, Leðurblökumaðurinn, kloflausir vinnugallar og Reykjadoom hátíðin koma meðal annars við sögu. Svarta manninn viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

24. þáttur - Fast end Fjúríös 12: Ass Traffic 28.02.2025

Stórkostleg endurkoma Truthbomber í einhvern kjallara í Kópavogi er heldur betur saga til næsta bæjar! Engir gestir og eitthvað vesen, bara same old same. Einelti, sexí bílamenning og mannát eru meðal annars til umræðu. Lalla Johns viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

23. þáttur - Jón Alone 2: Lost in Bókasafn ásamt Ingibjörgu 21.01.2025

Jón fær heimsókn frá góðvini þáttarins, Ingibjörgu, í ljósi þess að Illugi var veikur heima. Varúlfar, World of Warcraft, heimilisofbeldi og látin amma Jóns er meðal annars til umræðu. Illuga og fjölskyldu viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

22. þáttur - Aðventubömmer ásamt Fannari rafvirkja 22.12.2024

Liðsmenn Truthbomber leggja sig alla fram við að koma sér í jólagírinn, með mismiklum árangri. Misheppnuð framboð, pug hundar, UFC bardagamenn og Japanskir nördar á sýru koma allir við sögu, ásamt alls konar. Fannar rafvirki kíkir í heimsókn.

21. þáttur - Hámenning/Lágmenning ásamt Degi Atlasyni 20.11.2024

Ekkert lát er á gestagangi í Casa de la Truthbomber en í þetta skiptið mætir trymbillinn og menningarfrömuðurinn Dagur Atlason í heimsókn. Jón segir sjúkrasögur. Dagur mætir undirbúinn. Illugi rífur nærbuxurnar sínar. Hlustið og njótið.

20. þáttur - Leyndardómar landsbyggðarinnar ásamt Stjána Gaddavír 23.10.2024

Það er tekið djúpt í árina þetta skiptið, þar sem Truthbomber fá heimsókn frá Stjána Gaddavír og ræða svo mörg málefni að það er varla hægt að nefna þau öll. Landsbyggðin, heitur brauðréttur, sifjaspell og páfagaukar sem tala dönsku koma m.a. við sögu. Óla Máttlausa viljum við fyrirfram biðja afsökunar

19. þáttur - Heilsukvíði og Kafkaískt hygge 30.09.2024

Truthbomber býður haustið velkomið og sötrar á lafþunnu tei raunveruleikans. Andleg veikindi, tölvuleikjagerð og endurkoma vandamálahornsins mjaka sér inn í þetta skiptið. Blint fólk viljum við fyrirfram biðja afsökunar [insert braille text]

18. þáttur - Hestasmygl, hlaupabóla og Hvíti riddarinn 17.08.2024

Truthbomber snýr aftur úr sumarfríi með vasana fulla af ADHD og ekkert sérstakt þema eða umræðuefni. Sérstakir gestir mæta í hljóðver (og síma) til þess að ræða mikilvæg mál. Kengúrur viljum við sérstaklega biðja afsökunar fyrirfram.

17. þáttur - Lausaleiksbörn og trompetleikarinn Pétur 14.06.2024

Truthbomber allra landsmanna hnusar af leyndardómum Íslensks samtímalífs. Hvað gerist bak við luktar dyr á Hverfisgötu? Af hverju borða Akureyringar bara rusl? Hlustið, lærið og njótið. Skítamóral viljum við fyrirfram biðja afsökunar (plís ekki lemja okkur)

16. þáttur - Barist um Bessastaði og helaumt grussy 15.05.2024

Truthbomber menn taka handahlaup inn í sumarið með hyldjúpum umræðum um forsetakosningarnar, óeðlilegar kynvitundir og njósnaaðgerðir. Dýraríkið, Íslenska BDSM samfélagið og almenning viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

15. þáttur - Truthbomber kúgar bussurnar 18.04.2024

Í þessum þætti er metnaði og frumleika hent út um gluggann og þess í stað er ekkert nema klósetthúmor og ærumeiðingar. Svona er nú fyrir manni komið. Maður hefði kannski getað tekið meiraprófið eða æft körfubolta eða eitthvað, en nei. Bara kúkabrandarar og nöldur. Þetta er það sem kennarar landsins eru að reyna að koma í veg fyrir með því að kenna líkindareikning og Brennu-Njáls sögu. En nei, auðv...

14. þáttur - Ber er hver að baki nema sér Truthbomber eigi 12.03.2024

Truthbomber allra landsmanna tekur vorinu fagnandi opnum örmum. Iðjuleysi, Færeyjar, sinnepsfíkn og gamlir menn á sýru koma öll við sögu. Gylfa Ægis viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

13. þáttur - Truthbomber skyldi í upphafi skoða. 06.02.2024

Truthbomber allra landsmanna skrópaði í janúar en skellir einum nettum á borðið til að forðast fleiri fjarvistaskráningar. Forsetaframboð, snjókarlar og Eurovision eru meðal þess sem borið er á borð í þetta skiptið.

12. þáttur - Ég sá mömmu kyssa Truthbomber 25.12.2023

Árlegt jólaboð Truthbomber er ekki af verri endanum þetta árið Riff Raff, Ikea geitin, hatursglæpir vegna rabarbara og kapítalismi koma meðal annars við sögu. Gleðileg jól til allra nema Amaury Guichon og Ísraelshers

11. þáttur - Truthbomber lítur um öxl 24.11.2023

Truthbomber allra landsmanna fagnar 1. árs starfsafmæli sínu með líflegum umræðum um tímana tvenna. Nostalgían, innanhúsarkitektúr og umferðaröngþveiti ber meðal annars á góma til að lyfta greyið hlustendunum upp úr svartasta skammdeginu. Grindvíkinga viljum við fyrirfram biðja afsökunar www.patreon.com/Truthbomber , þar sem ekkert af viti gerist

10. þáttur - Græddur er geymdur Truthbomber 21.10.2023

Bomberinn hristir af sér haustlægðirnar og býr sig undir veturinn og fyllir búrskápinn af fjöri og fróðleik fyrir alla aldurshópa. Einræðisherrar, calzones og daglegt líf forfeðranna og yfirskegg koma m.a. við sögu. Örlyg viljum við fyrirfram biðja afsökunar

9. þáttur - Truthbomber eru frá Venus... 29.08.2023

Konur allra landa sameinist og leggið á hlustir, þar sem Truthbomber kemur færandi hendi með þátt sérstaklega handa ykkur! Stjörnuspá, samskipti kynjanna og raðmorðingjar ásamt ýmsu er krufið til mergjar. Viljum biðja hjólreiðafólk og hljómsveitina Tool fyrirfram afsökunar.

8. þáttur - Brennt barn forðast Truthbomberinn 11.08.2023

Nú þegar sumrinu er að ljúka og liðsmenn Truthbomber komnir með leið á lúsmýbitum og grilluðum pylsum, er kominn tími á nýjan, sneisafullan þátt! Guðni Th. í ruglinu, leiðinlegir Bretar, Stjörnustríð og margt fleira er tekið fyrir.

Listen to the Truthbomber Podcastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.