Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson

Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

Music IS ↓ 66 episodes

Birkir Fjalar og Hörður Ólafsson láta móðinn mása um þungarokk frá ýmsum sjónarhornum.

Author

Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson

Category

Music

Latest episode

Jul 7, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

015. Lög sem ég þarf aldrei að heyra aftur (1. hluti) 01.03.2024

Tveir aldraðir leiðindaskarfar finna sig knúna til að ræða lög sem þeir þurfa alls ekki að heyra aftur. Hvernig fer sjóferð sú? Tónlist í þættinum: Sinew Censer með SPECTRAL VOIC E af Sparagmos (2024)   Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook ! Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).   Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu .  Ljós // Hljóð //...

014. UNE MISÉRE viðtal (Damned EP fagnað) 07.02.2024

Nú er lag. Nú skal fagnað. En fyrst...  Í lok nóvember 2023 kom út ógurleg þröngskífa sem minnti okku ekki bara á að UNE MISÉRE væru alls ekki af baki dottnir (þrátt fyrir töluvert mótlæti), heldur að þeir eru ákafari, harðari og þyngri en nokkru sinni. Það hreinlega gustar af lögunum á Damned þröngskífunni, flutningur eins og hann gerist bestur og hljómurinn svakalegur. Hlustið á Damned . Mætið á...

013. Hilmir snýr aftur; Hlaðvarp vaknar 05.02.2024

Hann er kominn heim! Tarfurinn hefur lokið útlegð sinni og við fögnum því auðvitað með því að a) Vakna af værum og lööööngum blundi b) Kíkja á nýjasta nýtt hjá okkur báðum c) Tíunda hvað sé á döfunni d) Stökulsgagnrýni (Kerry King) e) Stefnulaust þvaður f) Drekka te Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook ! Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð).   Alltaf sama platan er k...

012. HELLIRINN METALFEST #3, Reykjadoom, Morpholith og Bongripper (Hörður Jónsson & Jónas Hauksson) 08.10.2023

Hugsjónamennirnir Jónas Haux og Hörður Jónsson, báðir meðlimir Morpholith , mættu í kaffi hjá strákunum til að ræða Hellinn Metalfest #3 (fyrir alla aldurshópa) sem fram fer 14. október næstkomandi, tilurð og stöðuna á Morpholith þessi dægrin, pælinguna  á bak við og tilgang Reykjadoom (áður Doomcember) en síðast en ekki síst tilvonandi heimsókn doom og sludge metal risanna í Bongripper.   Helliri...

011. REYKJAVÍK DEATHFEST (Ingólfur Ólafsson & Stefán Friðriksson 21.09.2023

Það er alltaf mikill glaumur og gleði þegar Reykjavík Deathfest á sér stað. Í raun ættum við að vera þakklát fyrir þessa hátíð og hugsjónastarfið sem hún grundvallast á. Metnaður og stemmning, tengingar og uppgötvanir, það er það sem allt snýst um. Hér er dauðarokkið --og afkimar þessu-- komið til vegs og virðingar. Til að ræða þetta, sögu hátíðarinnar og þau atriði sem eru á boðstólnum þetta árið...

010. OBITUARY - Slowly We Rot & Cause of Death (Baldur Beck) 19.09.2023

Lengsta tilhlaup Stokkið í eldinn til þessa og ekki að ósekju. Þetta er stór, safaríkur og blóðugur biti og mikið af tilfinningum í spilinu. Einir af guðfeðrum dauðarokksins, Obituary , liggja til grundvallar, nánar tiltekið fyrsti tvær plötur þeirra; Slowly We Rot og Cause Of Death . Aldargamall vinur og ævifélagi Smára og Birkis, Baldur Beck, er þeim til fulltingis í þessi sneisaþykka niðurbroti...

009. Lífið er lag; sóló Friðriks Karlssonar (Þráinn Skálmöld, Haukur Blóðmör og Snorri Barón) 11.09.2023

Heill þáttur um eitt gítarsóló og það úr Júróvisjónlagi? Að sjálfsögðu!  Smári Tarfur og Birkir Fjalar velta fyrir sér stórleik Friðriks Karlssonar (Mezzoforte, Heart To Heart, Stjórnin, Tívolí) í poppsmell Model , „Lífið er lag.“  Þeim til fulltingis voru Þráinn Árni Baldvinsson ( Skálmöld ), Haukur Þór Valdimarsson ( Blóðmör ) og Snorri Barón ( ríki myrkrahöfðingjans ). Tónlistin í þættinum: - D...

008. Lífsmark (kvöldsund með tveimur kumpánum) 25.08.2023

Sannast hið fornkveðna að á misjöfnu þrífast börnin best. Þetta vita Smári Tarfur og Birkir Fjalar. Hvað hefur það með nokkurn skapaðan hlut að gera, eða öllu heldur, með þetta hlaðvarp og þessa miklu þögn? ...Það veit enginn. Af hverju hefur engin þáttur farið í loftið síðan 3. júní síðastliðinn? Svörin er að finna í þessum ólgandi þætti. Ólgandi! Hvað sem því líður þá lifir Stokkið í eldinn. Lif...

007. DEATH - Human (Magnús Halldór Pálsson) 03.06.2023

Þungarokksbræðurnir standa oft á gati þegar Human plata Flórídarisanna í Death ber á góma. Ástæðan er einföld; þegar um tímamótaverk er að ræða - sem tíminn fær ekki bitið á - þá verður lotningin slík að hún breytist nánst yfir í óttablandna virðingu.  Það er svo ægilega mikið sem loðir við foringja sveitarinnar, frumkvöðulinn Chuck Schuldiner , og hans áhrif á þungarokkið æ síðan hann gaf út sína...

006. Dagur Gonzales (MISÞYRMING) og Rammstein 10.04.2023

Kvöldstund með listamanni ; Forsprakki Íslensku svartmálsmsveitarinnar Misþyrmingar , hann Dagur Gonzales , mætti í hljóðver til að eiga við okkur orð um eina af hans lifsins hljómsveitum. Sú er Þýsk. Mjög þýsk. Rammstein hefur verið í eyrum Dags síðan hann var polli. Það heyrist og jafnvel sést. Dagur spólaði hressilega til baka og sagði okkur frá því hvernig Þjóðverjarnir knáu komu inn í líf han...

005. PANTERA (Terry Glaze árin) 19.03.2023

Á undan Anselmo var Glassúrinn. Það er þessi eilífi vandræðagangur á Pantera alla daga. Þannig hefur það verið síðan við vorum peyjar. Eins og öll vita urðu Pantera stærri en lífið sjálft og þannig var það lengi, lengi. En svo var hvíslað að manni að fortíð þeirra, tónlistarleg fortíð þeirra, væri þyrnum stráð. Hernig stóð á því? Er þetta ekki bara búin að vera heljarinnar sleggja síðan Kúasmalar...

004. ANTHRAX og Stóru-Fjóru (Big Four) 05.03.2023

Hvað með Anthrax? Þetta þarf að ræða. Þetta verður að ráðast. Eða hvað? Neinei, fyrst og fremst er yndislegt að tala um tónlist og samtalið er lifandi og í stöðugri þróun. En. Og þetta er stórt en. Stundum hefur fólk rangt fyrir sér. Einfaldlega. Og þó... Smári Tarfur og Birkir Fjalar velta fyrir sér hvernig það megi vera að enn sé Anthrax fyrsta sveitin til að detta út af Big 4 of Thrash sé yfirl...

003. GORGUTS - Erosion Of Sanity 22.02.2023

Í smábæ einum í Frönsku-Kanada leystist úr læðing dauðarokksafl svo ægilegt að ennþá  eimir af áhrifum og keðjuverkun þess sem bílskúraðist og blandspólaðist af stað  árið 1989. Gorguts var það heillin!  Við erum á jaðrinum, því þrátt fyrir veru sína hjá Roadrunner útgáfunni og að frumraunin, Considered Dead (1991), hafi verið tekin upp af hinum goðsagnakennda Scott Burns , í hinu sögufræga Morris...

002. SLAYER og Metal Blade árin 09.02.2023

Slayer! SLAYER! Tölum um Slayer. Þungarokksþátturinn Stokkið í eldinn (hlaðvarp) er í umsjá Birkis Fjalars og Smára Tarfs. Þátturinn er studdur af Luxor : Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. www.luxor.is

001. METALLICA - Kill 'Em All og þrassið verður til 01.02.2023

Málmhausarnir ræða vægi og gæði fyrstu hljómplötu Metallicubræðra á líf Reyð - og Patreksfirðings sem og gjörvalls mannkynsins, svei mér þá. Tímamótaverkið Kill 'Em All kom út árið 1983 og ekkert varð eins eftir það. Fullyrðingar sem fram koma í þættinum eru sagðar án ábyrgðar. Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor...

000. Kynningarþáttur 31.01.2023

Hæ öll! Af hverju þungarokksþáttur? Af hverju svona? Af hverju þessir tveir karlar? Hvernig verður þetta allt? Er Slayer? SLAYER!!!

Listen to the Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.