Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson
Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn
Birkir Fjalar og Hörður Ólafsson láta móðinn mása um þungarokk frá ýmsum sjónarhornum.
Author
Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 7, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
066: STOKKIÐ Á RÚNTINN - Bassalífsinsleikur 07.07.2026 1:15:11
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Stokkið í eldinn fjélgar koma sjálfum sér og hvorum öðrum rækilega á óvart með lagavali kvölds sem var. Ferskir vindar gnauða milla eyrna þeirra beggja og uppgröftur af dýpri sortinni gefur hann góðann. Vonandi hafið þið gagn og gaman af þessu. Lög frá eftirfarandi listamönnum lágu til grundvallar: FOX JAW ZORN VIRUS DISFIGURING THE GODDESS THE CONTORTIONISTS GRAV...
065: MASTODON - Blood Mountain 27.06.2026 3:52:25
Moonstone tattoo studio Reykjavík færir þér... Við erum komin í þriðju plötu Atlantasveinanna í MASTODON er nefnd var - og heitir enn - Blood Mountain (Relapse 2006) og einhver hafa haldið því fram að hér kveði við nýjan tón og að annað hljóð sé komið í skrokkinn o.s.frv. svo mikið reyndar að hún virðist stundum týnast á milli Leviathan og Crack The Sky í Mastadonheimsþvaðrinu. Hví er það svo? H...
064: SÁTAN 2026 - Dagur 3 yfirferð 12.06.2026 1:33:03
Moonstone tattoo studio Reykjavík færir þér... Það er eitthvað svo dásamlegt að hugsa til þess að við styðjum Sátuna. Það er að segja; þegar við félagarnir lesum nótur hvers þáttar og í þeim stendur að Stokkið í eldinn styður Sátuna . Við styðjum hana með stolti og þannig min það áfram vera! Alltént, þá lögðum við upp með nokkur markmið varðandi aðdraganda Sátunnar 2026 og svo, sem okkur þótti mik...
063: SÁTAN 2026 - Dagur 2 yfirferð (Sindri Kamban, Móa Hlíf, Haukur Þór, Arnar Eggert o.fl.) 07.06.2026 1:08:23
Moonstone tattoo studio Reykjavík færir þér... Í þessum þætti verður allt vitlaust. Það er margt um manninn, það er hangið harkalega og galsinn töluverður enda fólk upp um alla veggi í fíling að tala (hrópa) á hvort annað um það sem máli skiptir; þungarokk, vináttu og sjónvarpsþættina um Hunter og bestu vinkona hans hana DeeDe McCall. Til að aðstoða okkur við að skvera dag tvö Sátunnar 2026 fengum...
062: SÁTAN 2026 - Dagur 1 yfirferð (Kristján Breytari & Smári Tarfur) 05.06.2026 1:12:06
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Hráir og fínir í nánast lifandi útsendingu frá SÁTUNNI 2026 allt svo hlustendur geti sjálfur tekið púlsin heima í stofu. Hljómgæðin eftir því en samt drullunett hvað sem öllu öðru líður. Kristján Breytari Heiðarsson, af sinni alkunnu snilld, fór yfir tónleika fimmtudagsins. Smári Tarfur tróð inn tríninu og sagði okkur aðeins frá ráðstefnuaugnabliki hvar Haukur Þór...
061:Stokkið á rúntinn - LEIÐIN Á SÁTUNA 2026 m. Ingólfi Erni Hallgrímssyni 04.06.2026 50:53
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir HVAÐ ATHUGIST: Þátturinn er tekinn upp við nokkuð frumstæðar aðstæður og ber hljómurinn (á köflum) þess glöggt vitni. Samt þrælnett! Stokkið í eldinn bræður eru hér komnir um borð í skrjóðnum hans Ingó-Djóks og leiðin liggur á Sátuna 2026! Dauðafæri til að Stökkva á rúntinn ; spila fyrir hvorn annan nokkur hressandi lög og auðvitað tala um Sátuna. Ingólfur Örn (...
060: STRIGASKÓR NR. 42 - Blót m. Hauki Bragasyni 31.05.2026 3:50:19
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Ævintýri. Þor. Landamæraleysi. Fífldirfska. Framsækni. Þrekvirki. Leikur. Galdrar. Draumar. Martraðir. Athafnir. Sveppatripp. Hugbreytandi. Þyngdarleysi. Víddir. Ímyndunarafl. Sannfæring. Þjóðlegt. Draugalegt. Ágengt. Heillandi. Þetta er bara brot af þeim orðum sem koma til tals þegar hin ómótstæðilega og undraverða Blót fer á fóninn. Kópavogs fyrirbærið STRIGASK...
059: AT THE GATES - The Ghost of a Future Dead + PATRONIAN 17.05.2026 3:02:48
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Þá er komið að því. Tilhlaupið var langt; rúmar þrjár vikur síðan platan kom út í áþreyfanlegu og Birkir eins nálægt því að vera andlega tilbúinn í verkefnið og hægt var miðað við tímaramma. En samt bara alls ekki! Burðarstólpar öfgaþungarokks á heimsvísu, hjartahljómsveit Birkis og tiltölulega ný máltíð á matseðli Hödda, AT THE GATES kveðja með síðustu plötu sinn...
058: STOKKIÐ Á RÚNTINN - Tæmt úr pokanum og minningasjóður Hafnafjarðar 12.05.2026 1:13:24
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Drengirnir halda áfram á rúntinum og ílengjast í Hafnafirði. Við ítrekum að hljómgæðin og tja, hljóðstílinn á talinu, er frábrugðin því sem gengur og gerist í þáttunum sem við gerum í hljóðveri vegna þess að við erum vissulega á rúntinum. Við erum á raunrúntinum, krakkar, með þráðlausa hljóðnema og ég veit ekki hvað og hvað. Stokkið á rúntinn er til svo að Stokkið...
057: STOKKIÐ Á RÚNTINN - Lífsmark og losað um málbein (Wacken MB, KORN o.fl.) 09.05.2026 1:00:08
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Eftir að hafa lent undir fyrirséðum árstíðarskaflinum þá eru félagarnir Hörður Ólafs og Birkir Fjalar komnir á rúntinn og hlustendum Þungarokksþáttarins Stokkið í eldinn er boðið með. Meðal efnis í snörpum þætti eru niðurstöður Wacken Metal Battle á Íslandi 2026, Sátan 2026 , önnur ný CONVERGE , GAVIN PORTLAND furðumál, tónleikavenjur Íslendinga, þrass á Akranesi...
056: NEUROSIS - An Undying Love for a Burning World m. Birnir Halldórssyni + KVARV 29.03.2026 3:18:03
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Er það að bera í bakkafullan lækinn að fá að baða sig í nýrri NEUROSIS plötu og sérstaklega plötu þá sem við höfðum ekki hugmyndaflug til að trúa að kæmi nokkurn tíman út því NEUROSIS voru sannarlega dauðir? Steindauðir. Dauðir á svo marga vegu að fljótt á litið munum við ekki eftir jafn afgerandi dauða hljómsveitar. Nema hvað... An Undying Love for a Burning Worl...
055: STOKKIÐ Á RÚNTINN - 2. hluti (Tæmt úr pokanum) og Wacken Metal Battle 26.03.2026 1:09:10
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Fyrsti Stokkið á rúntinn gekk svona glimrandi vel en vegna tímaskorts þá gátum við bara farið yfir og brugðist við lögunum frá Hödda. Upphaflega áformið var, að á sama rúnt, fengi Höddi að hlusta á þrjú lög frá Birki. Nýverið var unnin bragabót á þessu öllu saman þegar kumpánarnir fóru á annan kærkominn rúnt til að hlusta á og tala um tónlist líkt og tíðkaðist svo...
054: STOKKIÐ Á RÚNTINN 21.03.2026 45:50
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Hörður sín Ólafsson heldur áfram að vera uppspretta góðra hugmynda. Innblásin af gömlu verkefni Birkis og Andrew Westerhouse, skapara aversionline.com , sem nefndist The Mystery Grab Bag (sjá dæmi eins og þetta og þetta ) kom hann á legg pokapælingu sem fram fer inn í bíl á meðan rúntað er um götur Stór-Höfuðborgarsvæðisins. Hörður ber undir Birki þrjú lög sem han...
053: SÁTAN 2026 undirmulningur m. Kidda Crowley (Ultra Magnus/Málmsmiðjan/X977) 18.03.2026 1:38:33
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Birkir Fjalar fær loksins að nördast og grallarast með Kidda Crowley sínum (og Hörður Ólafs fær kærkomið frí frá þeim fyrr nefnda) þegar blásið var til Sátufundar vegna ærinnar ástæðu... Jú jú; SÁTAN 2026 er handan við Skessuhornið! Í mannsögulegu samhengi þá er 'etta að bresta á, vinir! Kristinn Reyr og Birkir Fjalar fara í þessum þætti yfir það sem er í vændum á...
052: CROWBAR sendinefnd Íslands í Englandi & nýtt Sepultura 15.03.2026 1:30:50
Moonstone Tattoo Reykjavík CROWBAR er hjartahljómsveit Birkis og fleiri Reyðfirðinga og sömuleiðis er það hjartahljómsveit Sigvalda dordinguls Ástríðarsonar góðavinar þáttarins, aldavinar Birkis. Það spurðist svo út að CROWBAR væru á leið í túnfót Íslands, einnig þekktur sem Bretlandseyjar, þá hófst Birkir handa við að róta saman fólki sem farið gæti með honum út til að sjá hetjurnar. Alltént mátt...
051: CONVERGE - Love Is Not Enough (2026) *Neyðarþáttur* + GRJÓT 10.03.2026 1:24:17
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: MEGADETH og CONVERGE eiga það m.a. sameiginlegt að teljast til brautryðjenda, burðar- og máttarstólpa þungarokksins og báðar þessar sveitir uppfylla, augljóslega, þær kröfur sem við eiga þegar nýjar útgáfur fá sinn sérstaka neyðarþátt. Stokkið í eldinn bregst hér við, Love Is Not Enough , nýjustu og elleftu hljóðversskífu (í fullri lengd) þessara fræknu Massachus...
050: MEGADETH - Múrsteinn kveður með Megadeth (2026) *Neyðarþáttur* 14.02.2026 2:55:52
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Stórkostlega MEGADETH ! Hliðstæðulausi-Dave Mustaine! Mega Davíð prestur Ellefson! Þið ofboðslegu og breysku risar! Þetta gátuð þið! Við föllum að fótum ykkar! Fótsporin er greinanleg úr geimnum og þau eru sannarlega stór! Goðsögn tryggð. Nú fara magnararnir ykkar að þagna, axirnar inn í geymslu og sneer-ið hans Mustaine mun brátt aðeins bergmála úr fortíðinni þv...
049: MASTODON - Leviathan 02.02.2026 3:38:58
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Það er eitthvað þegar Guð, oft kallaður Rob Halford , heldur það mikið upp á kjúkklingahljómsveitina þína að hann finnur sig knúinn til að hrópa það ofan af húsþökum sköpunarverks síns og harkalega yfir hausamótum mannkyns. Við eitthvert tækifærið lét hann hafa þetta eftir sér; “Mastodon defined a new era that kept us fans glued to their ongoing singular feats of...
048: MASTODON - Uphhafið og Remission 26.01.2026 3:05:07
Þá er loksins komið að því. Nú er lag! Eitt af markverðustu, atkvæðamestu og heilt yfir ferskustu - þó með endalausa snertifleti við allan andskotan - böndum vorra tíma... MASTODON ! Og það dugir ekkert minna en að fara yfir meira og minna allt sem þessir jólasveppir hafa gefið út. Markmiðið var að fara yfir fyrstu útspil Atlantaveitarinnar knáu til og með Leviathan en djúsinn og aldinkjötið var...
047: SÁTAN 2026 m. Lilju Ýr Víglundsdóttur o.fl (Sólför, Megadeth, fréttir) 17.01.2026 2:12:23
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Stokkið í eldinn flokkurinn ásamt Kidda 'Málmsmiðju' Crowley pældu og þvældu um tónlistarhátíðina SÁTAN 2026 og lífshlaup hennar frá upphafi til dagsins í dag. Spöggleringarnar um hljómsveitirnar sem leika fyrir dansi í Stykkishólmi dagana 4. til 6. júní næstkomandi ásamt innilegu og hráu samtali við eina af knallettum hátíðarinnar sem engin önnur en Lilja Ýr Víg...
046: Blæðing Andra Freys (CANNIBAL CORPSE og The Bleeding) 30.12.2025 3:38:04
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: MALBYGG BRUGGHÚS KVÖLDSTUND MEÐ ANDRA FREY OG BLÆÐINGUNNI HANS Það er eitthvað jólalegt og við blóðsúthellingar og innyflahátíðina sem er Buffalo, NY, dauðarokkssveitin CANNIBAL CORPSE . Talandi um blóð; þungarokkið rennur djúpt í æðum Andra Freys Viðarssonar, sem kom ástríðutjúnaður inn sem gestur og erindreki Blæðingarinnar ( The Bleeding , 1994) og ennfremur þ...
045: Axel Lúðvíksson (CELESTINE) - Molestin ævintýrið og ælt á hljóðnema 12.12.2025 3:14:57
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Birkir og Hörður leituðu djúpt inn í Katakómbur Íslensks þungarokks og dustuðu rykið af Axel Lúðvíkssyni, sem þá var í senn einn eftirtektaverðasti en dularfullsti söngvari síns tíma þrátt fyrir að vera í einum af þeim sveitum sem var afar áberandi; en það var hljómsveitin CELESTINE. Í dag er Axel (Seli, Aggi, Langavitleysan, öxin) ljúfur og jafnlyndur maður sem...
044: TIDAL ARMS undrið og þytur í laufi fortíðar 28.11.2025 3:38:35
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: "Eru þið með þriggja tíma þátt um band sem er no-name?" - Áhyggjufullur Sigvaldi Ástríðarson Ó já! Við hefðum getað talað í a.m.k. níu klukkustundir um þau 22 lög sem Brooklyn tríóið TIDAL ARMS (hugvekjan um þá hefst 49:04mín inn í þættinum) gaf mannkyninu á plötum sínum tveimur; The Sun Exploding (2011) og þeirri samnefndu (2013). Hins vegar trúa Hörður Ólafsson...
043: TESTAMENT - Para Bellum neyðarþáttur + AFTURGANGA 14.11.2025 2:45:48
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Það hlaut að koma að nýjum neyðarþætti. Fyrir honum er ástæðan ærin; nýtt frá stórlöxunum og goðsögnunum í TESTAMENT! Para Bellum kom út fyrir rúmum mánuði og er þeirra þrettánda hljóðversplata (við teljum The First Strike is Still Deadly ekki með). Síðast er neyðin var nægilega mikil var það vegna útspils DEICIDE Banished By Sin . Hvernig kom TESTAMENT úr þessar...
042: Smári Tarfur kveður; Hörður Ólafs heilsar og nýjar PATRONIAN upptökur 04.11.2025 1:12:25
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Þá er komið af því. Smári Tarfur Jóspesson er komin á sína stoppistöð á leið Stokkið í eldinn sporvagnsins. Aldarvinur Birkis, Hörður Ólafsson mynd- og tónlistarmaður ( MOMENTUM ) stígur um borð. Þið megið gjarnan bjóða hann velkominn! Betra gat það ekki verið því Tarfurinn hefur miklar mætur á Herði og svo hef ég (Birkir) átt í djúpu og löngu (Type O Negative sk...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.