Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson
Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn
Birkir Fjalar og Hörður Ólafsson láta móðinn mása um þungarokk frá ýmsum sjónarhornum.
Author
Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 7, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
041: DEFTONES (Adrenaline & Around The Fur) m. Birni Stefáns (Spitsign/Mínus) og Bóas Hallgríms (Spitsign/Reykjavík!) 23.10.2025 2:58:00
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Ja hérna hér. Stundum getur maður ekki orða bundist. Eins og núna. Hvað gerist þegar þrír æskuvinir (Björn Stefánsson, Bóas Hallgrímsson og Birkir Fjalar Viðarsson) blása til endurfundar hvar uppáhalds plötur þeirra og saga vináttunnar liggja til grundvallar? Hversu mikilvæg er tónlistin þeim? Er hún samofin stórum stundum í lífi þeirra? Breytti hún lífi þeirra?...
039: FUZZFEST 2025 og saga hátíðar m. Ingu Hrönn og Agnari Diego 22.10.2025 1:13:50
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Birkir frændi og Kiddi Málmsmiðju Crowley glöddust mjög er skapara og skipuleggjendur FUZZFEST tónleikaviðburðarins mættu og leiddu stjórnendur þáttarins inn í sannleikan um tilurð og lífsseiglu Fuzzfest og hvers vegna skipuleggjendur standa í þessu. Kemur upp úr dúrnum að það er heilmikið að gera í Íslenska stóner - eyðimerku - doom - og sludgejukkinu. Alveg hei...
038: Tomas 'Tompa' Lindberg hugvekja og breytingar á Stokkið í eldinn 03.10.2025 1:42:28
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Birkir frændi og Kiddi Málmsmiðju Crowley settust niður með Húsvíkingnum næma, Jóhanni Hermannssyni, og ræddu hvernig áhrif Tomas Lindberg hafði á okkur og þá sérstaklega þegar við vorum mun yngri menn. Einnig var slegið á þráðinn til Guðnýju Thorarensen og Stefáns Magnússonar sem bæði höfðu afskipti af goðsögninni þegar AT THE GATES ferðuðust í Neskaupsstað til...
037: Í víking #2 ásamt AMON AMARTH, PANTERA, SLAYER o.fl. með Agli Óskari og Júlíusi Gretti 29.07.2025 58:30
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Birkir frændi og Kiddi Málmsmiðju Crowley slógu á þráðinn til Egils Óskars Rústafólkssyni til að fylgja eftir viðtali sem við áttum við hann og vopnabróðir hans, Júlíus Gretti Bernsdorf, og fengum fréttir af #strákunum okkar beint í æð. Þeir hafa undanfarnar vikur verið í hnífaparís við krakkana í PANTERA ásamt því að koma fram með Svíunum knáu, og Íslandsvinum,...
036: NORÐANPAUNK 2025 m. Ólöfu Rún og Ægi Draug Birgis 26.07.2025 1:12:25
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: NORÐANPAUNK 2025 fer senn í hönd og við fögnuð. Hátíðin á 10 ára afmæli! Við fögnum því. Við fögnuð litríkustu hátíð landsins. Við fögnum ófyrirsjáanlegustu hátíð landsins. Við fögnum fjölbreytileikanum. Við fögnum manngæskunni og villimennskunni - frumkraftinum og frjóseminni sem mætist í stríðum straumum ár hvert á Norðanpaunki. Ólöf Rún Benediktsdóttir og Æg...
035. CHÖGMA í samtali 15.07.2025 36:56
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Austur á fjörðum mallar eitthvað alveg einstakt. Hljómsveitin CHÖGMA úr Fjarðabyggð (nánar tiltekið Neskaupsstað, Stöðvar- og Fárskrúðsfirði) lenti í þriðja sæti Músíktilrauna í fyrra, sem er gott og blessað, en kemur upp úr dúrnum að keppni sú virðist hafa vakið upp eitthvað virkilega kraftmikið og 'einbeitt' sem farið er að rúlla af stað af mikilli ákefð og ver...
034: Í víking ásamt AMON AMARTH, PANTERA, SLAYER o.fl. með Agli Óskari og Júlíusi Gretti 05.07.2025 1:23:14
Það hljómaði bæði súrealískt og ótrúlega er okkur barst til eyrna að vinir tveir; MMA spjátrúngar, áhættuleikarasjomlar, adrenalínfíklar og þungarokkarar, væru komnir um borð í langskip eitt sem var á leið til fundar við AMON AMARTH , PANTERA ( þáttur ) og SLAYER ( þáttur ) hvar þeir myndu berjast við þeirra hlið víðsvegar um veröld. Við hreinlega urðum að ná í skottið á þeim til að komast að því...
033. SÁTAN 2025: Nýjasta Testamentið 02.06.2025 47:41
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir: Smári (týndur) og Birkir (vansvefta) söknuðu hvors annars. Því var skutlað í hraðsoðin þátt án alls undirbúnings hvar aðalviðfangsefnið var auðvitað SÁTAN 2025 , hlýtt var á CHÖGMA demó, slagsmál í æsku, slysfarir vegna sjálfsfróunar og margt margt fleira. Hlustendur komu við sögu í þættinum og gammurinn gaus. Heiðrum minningu Nansý Guðmundsdóttur með því að ve...
032. Karl Ágúst Guðmundsson (SORORICIDE, BELLATRIX & SPOON) 05.04.2025 2:13:39
Það var heldur betur handagangur í öskjunni, gleði, glaumur og uppfræðsla þegar sjálfur Karl Ágúst Guðmundsson (SORORICIDE / BELLATRIX) mætti á mót Stokkið í eldinn bræðranna. Eins og hendi væri veifað þá var saga þessa merka tónlistarmanns gernegld og pækluð af honum sjálfum í ljómandi fjörugu, en innilegu, samtali um feril kauða og samferðafólks hans. Tónlist í þættinu: Deathless með SORORICIDE...
031. METALLICA - Ride The Lightning 2. hluti 25.03.2025 1:29:00
Ride The Lightning er af mörgum talin sú besta; í það minnsta það besta sem runnið hefur undan rifjum Metallica . Pælarar og málsmetandi tónlistarfólk teflir Ride The Lightning gjarnan fram þegar leitað er álits þeirra um bestu skífu Metallica og jafnvel bestu þungarokksplötur allra tíma. Það verður ekki deilt um mikilvægi þessarar plötu svo sígild er hún. Réttir menn á réttum tíma. Hvar standa S...
030. DADDY ISSUES með Eið Steindórs (Snafu, Future Future) og Agli Geirs (Dormah, Changer) 16.02.2025 3:14:31
Það voru miklir endurfundir er Birkir, Egill Geirsson og Eiður Steindórsson hittust í fyrsta sinn eftir tæp 20 ár í sundur. Birkir var radd og-vitlaus, vannærður, vansvefta og yfirgíraður, Eiður nýkominn af næturvakt og Egill með lítið eftir á tanknum fyrir eitthvað kjaftæði, eða hvað? Kiddi Crowley þurfti að hafa sig allan við að halda körfunni á karfanum. Egill (Munnriður, Changar, Dormah, Dadd...
029. TESTAMENT; The Legacy og New Order m. Kristjáni B. Heiðarssyni (Changer, Vetur, Drungi, Skurk) 09.02.2025 2:58:56
Upp er runnin veisla. Hún er svipur hjá sjón! Hún er fugl og fiskur! Smári Tarfur snýr aftur og mætir Kristjáni B. Heiðarssyni, gullgesti vorum, ásamt Birki og Kristni Rey. Það er vart hægt að hugsa sér manneskju til starfans þegar vinnan er Testament. Þessi merka, fróma, langlífa og frjósama hljómsveit sem ekkert virðist geta stöðvað né grandað. Alltaf eru þeir þarna. Alltaf vilja stærstu byssurn...
028. Bréf frá Tarfinum (CARCASS, Brujeria og Rotten Sound í Stuttgart) 31.01.2025 45:48
Fréttaritari Stokkið í eldinn í Þýskalandi, Smári Tarfur, sendir hlustendum hljóðpistil af dýrari sortinni. Hann skjalfestir þá merku stund er hann fór á tónleika með hjartasveit sinni Carcass . Carcass stigu á stokk í LKA Longhorn, Stuttgart (16. jan. 2025) ásamt Brujeria , Rotten Sound . Saman voru sveitirnar á tónleikaferðalegi sem nefnt var Europa Rigor Mortis Tour Part 1 . Frá Gestseyri í Pat...
027. "TÞM árin" m. Ragnari Sverrissyni (Helfró) & Ingólfi Erni Hallgríms (Blood Feud) 18.01.2025 2:31:28
Þegar Tómas Ísdal ( Misþyrming , Naðra o.fl) talaði um TÞM árin... TÞM senuna, í síðasta þætti Stokkið í eldinn ( 026. Íslenskur Svartmálmur (önnur bylgja) m. Tómasi Ísdal, Friederike Wießner og Þóri Garðarssyni ) þá hafði hann óvart komið með kveikju á næsta þætti. Þetta var eitthvað órætt en samt skýrt. Eitthvað sem þurfti að gaumgæfa betur. Hvaða sveitir lágu til grundvallar? Momentum ? Gone P...
026. ÍSLENSKUR SVARTMÁLMUR (önnur bylgja) m. Tómasi Ísdal, Friederike Wießner og Þóri Garðarssyni 10.12.2024 3:34:11
Í þessum þætti höldum við áfram að velta fyrir okkur tilveru og þróun Íslenska svartmálmsins og gerum heiðarlega tilraun til að merkja bylgjur og/eða kaflaskil inn á ímyndað tímatal hvar ár og atburðir eru á reyki, eins og vera ber (senur og list er ekki stærðfræði, heldur flæðandi). Til að gæta þess að viðfangsefnið sé nálgast frá sem flestum sjónarhornum og af miklu innsæi og reynslu fengum við...
025. ÍSLENSKUR SVARTMÁLMUR (fyrsta bylgjan) m. Eyvindi Gauta og Magnúsi Pálssyni 13.10.2024 1:35:37
Verkefnið er ærið og grafalvarlegt. Svartmálmurinn er kóngurinn hér á landi og þannig hefur það verið í áraraðir frá og með sveitum á borð við Carpe Noctem , Chao , Svartidauði , Finngálkn svo einhverjar séu nefndar. En hvað var í gangi áður en sú markverða og heimsþekkta bylgja hófst? Var eitthvað þarna ( Flames Of Hell , Forgarður Helvítis , Sólstafir ?) sem hægt er að setja undir sömu reghnhlíf...
024. DEICIDE - Banished By Sin neyðarþáttur 07.10.2024 1:23:37
Þegar ein af þeim stærstu og mikilvægustu gefa út þá verðum við að taka það fyrir. Banished By Sin var vel tekið af áðdáendum og mörgum skrípentum. Hvað segjum við/þið? Flórídakvartetinn Deicide þarf ekki að kynna fyrir neinu ykkar. Hér er á ferðinni ein sögufrægasta dauðarokkssveit allra tíma. Það er ekkert flóknara en það. Án Deicide værum við tæplega komin svona langt og víða eins og raun ber...
023. Kvöldstund með listamanni; Simon 'Sludge' Hawemann úr NIGHTMARER 12.09.2024 24:07
Hljómsveitin Nightmarer varð á vegi mínum fyrir nokkrum árum síðan þegar ég var í miðri dauðaleit að nýju og fersku dauðarokki. Ef minnið mitt svíkur mig ekki, þá átti þessi dásemdarstund sér stað í ástralska þungarokksþættinum Scars and Guitars. Hefur þáttur sá reynst mér ansi mikil gullkista allar götur síðan þegar kemur að góðri, þungri tónlist. Það var þröngskífan Monolith of Corrosion sem gre...
022. METALLICA - Ride The Lightning 1. hluti 31.08.2024 1:30:45
Bird RVK bar & grill (Tryggvagötu) kynnir: Ride The Lightning er af mörgum talin sú besta; í það minnsta það besta sem runnið hefur undan rifjum Metallica. Pælarar og málsmetandi tónlistarfólk teflir Ride The Lightning gjarnan fram þegar leitað er álits þeirra um bestu skífu Metallica og jafnvel bestu þungarokksplötur allra tíma. Það verður ekki deilt um mikilvægi þessarar plötu svo sígild er hún...
021. Lífsmark .... 30.08.2024 30:52
Bird RVK bar & grill (Tryggvagötu) kynnir: Sumarglundroða lýkur, karlarnir sjá glitta í rútínu vetrar og sitja betur og betur í sjálfum sér. Hvað voru stjórnendur þáttarins að gera? Hvað ætlar þeir að gera? Hvað gerir þú? Við minnum fólk á að fylgja okkur á Instagram og Facebook ! Stokkið í Eldinn styður SÁTUNA (tónleikahátíð). Þessi þáttur var í boði Bird RVK ; samlokustaðurinn, tónleikastaðu...
020. BLÓÐMÖR snúa aftur 15.05.2024 33:21
Hin dáða og sívinsæla Blóðmör snýr aftur til tónlauks eftir hart nær tveggja ára þögn í þeim málaflokki. Nýir meðlimir kynntir til leiks, ný tónlist rædd, nýir lagatitlar o.s.frv. Blóðmör eru: Haukur Þór Valdimarsson Andri Eyfjörð Jóhannesson Óttarr Daði Garðarsson Proppé Tónlist í þættinum: Sigga - la - fó - BÚGDRÝGINDI ( Kúbakóla , 2002) Falska hetjan - BLÓÐMÖR ( Í Skjóli Syndanna , 2021) Stok...
019. ANDLÁT: 20 ára afmæli plötunnar Mors Longa (2004) 08.04.2024 2:04:00
Það var eitthvað við Andlát . Þetta tiltölulega stutta tímabil þar sem hróður þeirra óx og óx og ekkert gat þá stöðvað. Hvernig tónlist bunaði úr þeim var síðan það sem fólkið hengdi sig fyrst og fremst á. Upp úr þessu spruttu vináttur og vinahópar hvaðanæva af Stór-Höfuðborgarsvæðinu og Mosfellsbæ bundust skapandi böndum. Hver fílar ekki risastór og grípandi riff sem grúva eins og djöfullinn? Eri...
018. Practice What You Preach; sóló ALEX SKOLNICK (Þráinn Skálmöld, Sigurgeir Sigmundsson og Sigurjón Óli (Devine Defilement) 20.03.2024 1:51:40
Heill þáttur um eitt af eftirminnilegustu og dáðustu gítarsólóum þungarokkssögunnar... Því eins og Snorri Barón sagði: „Gítarsóló eru framtíðin.“ Þetta vita öll. Smári Tarfur og Birkir Fjalar velta fyrir sér stórleik og margra hæða músíkölsku sólói Alex Skolnick (Testament, Savatage, Metal Allegiance, Trans-Siberian Orchestra) í titillagi plötunnar Practice What You Preach (1989) með Testament. ...
017. BLEEDING VOLCANO viðtalið (saga, örlög og læti) 16.03.2024 1:50:18
"Fjólublátt hraun við barinn" Hin leyndardómsfulla Íslenska þungarokkssveit, BLEEDING VOLCANO (1990 og 1992), fór mikinn þrátt fyrir stuttan líftíma. Má segja að sveitin hafi búið í einhverju einskismannslandi hvar ein þungarokksstefna virtist hvorki mæta né taka við af annarri. Þetta var stuttur tími en í þessum glugga átti margt og mikið sér stað og er saga BLEEDING VOLCANO furðu "kjötuð" þeg...
016. DEVINE DEFILEMENT í samtali 06.03.2024 52:46
Smári Tarfur og Birkir Fjalar rifja upp ljómandi skemmtilegt og gott viðtal við DEVINE DEFILEMENT . Ástæðan var ný plata -- Age Of Atrocities -- sem var í vændum, plötusamningur og almenn ævintýri sveitarinnar á þessum tímapunkti á ferli hennar. Arek "Peppaðastur" Alejnikov (bassi/bakraddir) og Ingólfur Ólafsson (söngur) eru dæmalaust góðir gestir þegar kemur að þvaðri líkt og heyrist hér. Njótið....
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.