RÚV

Þú veist betur

Society IS ↓ 142 episodes

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja. Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna. Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Að mynda ríkisstjórn 26.09.2021

Það er við hæfi að þátturinn í þetta skiptið, sem kemur út á sunnudegi kvöldið eftir kosningar snúist um hvað gerist næst. Flokkarnir hafa fengið sín atkvæði og nú þarf að setja niður og mynda ríkisstjórn. En hvernig er það gert og hefur það tekið einhverjum breytingum í gegnum tíðina? Ég fékk til mín Þorstein Pálsson til að tala við okkur um ferlið, smá um söguna og hvernig það er að standa í þes...

Kosningar 19.09.2021

Það ætti ekki að koma neinum af ykkur á óvart að fyrsti þáttur haustins hjá okkur fjallar um mál málanna, það sem við gætum ekki forðast við að verða var við jafnvel þó við myndum fela okkur í helli. Kosningar eru á næsta leyti og þó okkur geti fundist þær leiðinlegar eða þreytandi, við vitum ekki hvað við ætlum að kjósa eða hvernig sem það er, þá er mikilvægt að nýta þennan rétt, sem fjöldi fólks...

Lífeyrismál 27.06.2021

Í þessum síðasta þú veist betur þætti fyrir sumarfrí ætlum við að tækla málefni sem snertir okkur öll. Því öll verðum við eldri, gömul myndi einhver kannski segja, og þá skiptir máli hvað tekur við þegar við förum út af vinnumarkaði. Og þar koma lífeyrisjóðirnir inn, kerfi sem flestum finnst sjálfsagt, enda er auðvelt að gleyma því að það kerfi kemur til sögunnar í hverjum mánuði þegar laun eru gr...

Aftur til fortíðar 20.06.2021

17. júní fyrir ári síðan var á dagskrá yfirlitsþáttur fyrir Þú veist betur þar sem við fórum yfir fyrri þætti og hlustuðum á sum brot sem komu ekki fram í upprunalegu þáttunum. Þar sem pásan milli jóla og nýárs var frekar löng í seríunni fannst mér rakið að heimsækja aftur fyrri þætti sem tilheyra útsendingarárinu sem er í gangi ákkúrat núna og rifja upp umræðuefni sem duttu hugsanlega milli skips...

Talmeinafræði 13.06.2021

Í dag ætlum við að kafa örlítið ofan í viðfangsefni sem snertir okkur öll. Því öll tjáum við á einhvern hátt, hvort sem það er með tali, höndum, augum eða hvernig sem það er. En á árum áður var kannski venjan að ef barn átti í erfileikum með tal eða tjáningu þá var auðveldast að flokka það bara sem vitlaust, eða heimskt. Í dag höfum við sem betur fer þróað með okkur skilning á því að öll erum við...

Veður 2.hluti 06.06.2021

Í síðasta þætti tókum við smá rispu varðandi veðrið, hún Elín Björk Jónasdóttir kíkti til okkar og við fórum aðeins yfir söguna og svo líka örlítið varðandi þessi veðurhugtök sem við heyrum svo oft í dag. Við ætlum að halda áfram í þessum þætti, ræða fleiri hugtök sem við áttum okkur kannski ekki alveg á hvað þýða og pæla svo aðeins í framtíðinni. Við enduðum síðasta þátt á því að Elín nefndi að m...

Veður 1.hluti 30.05.2021

Mér líður eins og það sé að verða venja í byrjun þáttar að ég nefni að umræðuefni þáttarins í þetta skiptið sé allt um lykjandi, og það verði ekki hjá því komist að eiga við það í hinu daglega amstri. Íslenska krónan, vatn, vegakerfið bara til að nefna nokkur dæmi. En einhvernveginn grunar mig að í þetta skiptið séum við komin niður á fyrirbæri sem sameinar okkur öll. Þú getur sleppt því að nota í...

Íslenska krónan 09.05.2021

Við notum hana öll og höfum gert frá því að við munum eftir okkur. Við meðhöndlum kannski peninga í minna mæli, jafnvel ekki neitt lengur en þó að peningarnir okkar séu nánast bara tölur á blaði þá vitum við að þetta eru íslenskar krónur, og þær eru frábrugðnar öðrum krónum. Það er mikið rætt um þennan blessaða gjaldmiðil okkar og oft veit maður ekkert hvort hún sé góð eða vond. Eða hvort hún sé y...

Iðjuþjálfun 02.05.2021

Mér finnst alltaf gaman þegar ég rekst á viðfangsefni fyrir þáttinn sem ég hef heyrt lítið sem ekkert um, eða veit lítið sem ekkert um, því þá er meira til að læra og fræðast um. Það er svo sannarlega tilfellið í þetta skiptið þar sem við ætlum að fræðast betur um iðjuþjálfun. Sum ykkar hafa mögulega heyrt orðið en hvað þýðir það ef einvher er í iðjuþjálfun, annaðhvort að læra það eða nýta sér aðs...

Arkitektúr 2.hluti 25.04.2021

Í síðasta þætti byrjuðum við að fara yfir arkitektúr og tækluðum þá söguna, enda er af nogu að taka þar. Í þættinum í dag ætlum við að færa okkur yfir í nútímann, hvernig arkitektar í dag vinna, við töluðum um barrok og endurreisnina til dæmis í síðasta þætti sem byggingarstíla sem hafa verið vinsælir í gegnum tíðina, en hvað ætli sé ráðandi á okkar tímum? Við förum einnig aðeins út í framtíðina o...

Arkitektúr 1.Hluti 18.04.2021

Í gegnum tíðina höfum við oft tekið fyrir viðfangsefni í þessum þætti þar sem ég nefni að eitthvað sé allt í kringum okkur en við áttum okkur kannski á því. Það hefur sjaldan átt betur við en í þetta skiptið. Það skiptir ekki máli hver við erum, við höfum flest fæðst á spítala, að minnsta kosti inn í einhverri byggingu, og sú bygging var hönnuð af einhverjum. Það var einhver sem hugsaði fyrir hver...

Tölvunarfræði 11.04.2021

Nú á dögum er nánast fátt sem ekki er búið að tölvuvæða, við göngum um með snjallúr, með snjallsíma í vasanum, sum hver keyrandi um á bílum sem er að einhverju leyti tölvuvæddur og þvottavélin er farin að senda okkur sms þegar þvotturinn er tilbúinn. En allt þetta gerist ekki að sjálfum sér, það þarf einhver að hugsa út í hvernig kerfin eigi að vera, hvernig þau séu búin til, hvað gæti hugsanlega...

Páskarnir 04.04.2021

Á þessum páskadegi er við hæfi að setjast aðeins niður og pæla í páskunum sjálfum. Hver er uppruni þessarar hátíðar sem við höldum upp á, hvað gerðist á þessum dögum sem sum okkar halda heilaga, aðrir eru kannski bara fegnir að fá smá frí út úr þeim. Það er því miður lítil útskýring sem fæst á því hvaðan páskaeggin koma, tenging þeirra við kristni er óljós í besta falli en kannski er það bara skem...

Kvóti 28.03.2021

Ég held að flest okkar átti sig á mikilvægi fiskveiða fyrir Ísland, oft er talað um sjávarútveg sem eina grunnstoð landsins, jafnvel þá grunnstoð sem sá hvað mest um að byggja það upp. Eina stríðið sem ég veit um að Ísland hafi staðið í er Þorskastríðið, sem er kannski gott efni fyrir annan þátt en er góður mælikvarði á hversu mikilvæg þessi grein er fyrir okkur sem þjóð. En þó við heyrum orðið kv...

Vatn 21.03.2021

Titillinn á þættinum í þetta skiptið er hugsanlega ruglandi því í þó við ætlum að tala aðeins um vatn, þá er hér ekki átt við um vatn í efnislegum skilningi, eða efnasambandið H2o. Mér hefur alltaf þótt það frekar áhugavert, og eiginlega óskiljanlegt, að vatn fyrir okkur hér á íslandi að minnsta kosti, er nánast hvar sem við lítum. Kranar, sturtur, klósett bara til að nefna nokkra hluti sem eru he...

Stafrænt öryggi 14.03.2021

Frá því að maðurinn byrjaði að eignast eitthvað, hefur einhver verið að reyna að taka það frá honum. Við höfum nánast öll lent í því að einhverju sé stolið frá okkur, hvort sem það sé eitthvað stórt eins og innbrot í bíla eða íbúðir. Eða bara að við lendum í vasaþjófum eða að allt í einu er hjólið okkar ekki þar sem við skyldum það eftir. En þegar internetið varð til var kannski ekki mörgum sem da...

Stjórnarskráin 07.03.2021

Undanfarið hefur fólk líklegast orðið vart við mikla umræðu um stjórnarskrá okkar íslendinga. Það hefur verið hávær krafa frá ákveðnum hópi sem vill nýja stjórnarskrá sem var sett saman af stjórnlagaráði og hefur talsverður hiti komist í umræðurnar oft á tíðum. Mér datt því í hug að kafa aðeins dýpra ofan í sögu okkar stjórnarskrár og fara yfir hvað er verið að tala um. Ég fékk til mín Ragnhildi H...

Hlutabréf 28.02.2021

Tvo síðustu þætti höfum við fjallað um loftslagið okkar og umhverfi en við vendum okkar kvæði nú í kross og færum okkur yfir á fjármálamarkaðinn. Nánar tiltekið hlutabréf. Ég vildi að ég gæti útskýrt fyrir ykkur minn skilning á því fyrirbæri en hann er því nánast lítill sem enginn. Þetta er mér og mörgum öðrum fjarlægur heimur þar sem öskrandi fólk kaupir og selur allan daginn og einhvernveginn en...

Kolefnisförgun 21.02.2021

Í síðasta þætti af þú veist betur talaði ég við Guðrúnu Sævarsdóttur um loftslagið okkar, þar töluðum við meðal annars um hvernig við getum barist gegn losun okkar á gróðurhúsalofttegundum, þar talaði Guðrún meðal annars um fyrirtækið carbix og þeirra verkefni. Mér fannst því tilvalið í kjölfarið á þeirri umræðu að fá til mín einhvern frá carbfix til að útskýra betur hvernig þessi lausn virkar og...

Loftslagið 14.02.2021

Það er allt í kringum okkur, við sjáum það kannski ekki en án þess værum við ekki hér. En eftir því sem árin líða virðist koma meira í ljós hvað við hugsum lítið út í það, og hvaða áhrif við erum að hafa á það. Mig langaði til að vita meira, hvenær við byrjuðum að hugsa svona út í umhverfi okkar, hvað það er nákvæmlega sem er að gerst og hver framtíð okkar í sambandi við loftslagsmál er. Umræðuefn...

Tölvuleikir 25.11.2020

Tölvuleikir eru allt í kringum okkur og hafa verið í dágóða stund. En þróunin síðustu ár hefur gert það að verkum að fleiri hafa aðgang að tölvuleikjum, hvort sem það er í símanum, tölvunni eða sérstökum leikjatölvum. Tölvuleikjabransinn hefur tekið fram úr kvikmyndaiðnaðinum hvað varðar tekjur og stærðargráðu, það eru fleiri í heimnum sem spila League of Legends en golf og tug þúsundir áhorfenda...

Túr 18.11.2020

Um það bil helmingur allra sem búa á þessari plánetu hafa upplifað eða munu upplifa það sem umræðuefni þáttarins snýst um. Túr, blæðingar, þessi tími mánaðarins eða hvernig sem þú vilt orða það er eitthvað sem hefur nánast áhrif á allt samfélag okkar. Sum sem fara á túr upplifa gríðarlega vanlíðan, fyrir aðra er þetta ekkert mál. Og það eru ekki bara konur sem fara á túr, heldur fólk með leg. Allt...

Bridge 11.11.2020

Umfjöllunarefni þáttarins í þetta skiptið er spil sem mér hefur alltaf fundist vera frekar forvitnilegt. En ekki vitað neitt um, hugsanlega gert ráð fyrir að með aldrinum þá kvikni á bridge genunum í mér. En á tímum þar sem við erum meira heima og hugsanlega að leita að fleiri hlutum til að gera, fannst mér tilvalið að forvitnast meira um bridge, hvernig það verður til og hvernig maður spilar það....

Sápa 04.11.2020

Í þetta skiptið ætlum við að kafa aðeins dýpra í fyrirbæri sem við eigum við oft á hverjum deg og jafnvel enn oftar í núverandi ástandi. En hvaðan kemur sápa, úr hverju er hún gerð og hvað er að gerast þegar við þvoum okkur. Ég fékk til mín Þórð Jónsson sápugerðamann til að útskýra þetta fyrir mér og þátturinn í þetta skiptið er með aðeins öðruvísi sniði

Töfrar 28.10.2020

Umræðuefni þáttarins eru hulið dulúð og hefur verið þannig alla tíð. Töframenn segja ekki frá, allt er leyndarmál og þú veist aldrei betur. En í dag ætlum við að reyna. Hvað eru töfrabrögð, hvaðan koma þau og hvert eru þau að fara. Ég tek fram að í þættinum eru ekki sérstök töfrabrögð útskýrð, heldur kannski hugsunin á bakvið þau. Hvað gerir töframaður, hvernig lærir maður að verða töframaður? Ég...

Listen to the Þú veist betur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.