RÚV
Þú veist betur
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja. Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna. Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Kapítalismi 04.07.2026 54:15
Hvað er kapítalismi í raun og hvers vegna er svo erfitt að tala um hann án þess að taka pólitíska afstöðu? Í þessum þætti kemur Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor til að rekja sögu kerfisins sem mótar daglegt líf okkar. Frá Adam Smith og iðnbyltingunni, í gegnum kommúnismann sem reis upp sem andsvar, og baráttuna gegn auðhringjum eins og Standard Oil í upphafi 20. aldar. Gylfi fer yfir hvernig Ísla...
Sjórinn - 2. hluti: Breytingar og framtíðin 04.07.2026 46:33
Hafið er að hlýna og súrna en hvernig vitum við hvað er eðlilegur breytileiki og hvað er afleiðing okkar eigin losunar? Í seinni hluta samtals míns við Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun, skoðum við þessar tvær breytingar í hafinu og hvers vegna þær eru ekki það sama, þó þær eigi sér sömu rót. Steingrímur rifjar upp síldarbrestinn 1965 og hvernig erfitt getur verið að greina slí...
Sjórinn - 1. hluti: Hvernig hafið virkar 04.07.2026 39:56
Sjórinn þekur 71% af yfirborði jarðar, er að meðaltali 4000 metra djúpur, og við skiljum hann verr en yfirborð Mars. Getur þetta verið? Í næstu tveim þáttum fæ ég til mín Steingrím Jónsson, sérfræðing hjá Hafrannsóknastofnun og prófessor við Háskólann á Akureyri, til að fara yfir grunneðlisfræði þessa risastóra og dularfulla fyrirbæris: hvaðan vatnið kom upphaflega, hvers vegna sjórinn er saltur,...
Bensín 04.07.2026 52:46
Olía er svarta, þykka efnið sem kemur djúpt úr jörðinni og endar einhvern veginn í öllu sem við gerum en hvernig gerist það í raun? Í þessum þætti fæ ég til mín Brynjólf Stefánsson, sem starfaði í áratug í olíuviðskiptum hjá Morgan Stanley í New York og vinnur núna hjá Íslandssjóðum, til að fara yfir alla leiðina. Frá myndun olíu djúpt í jarðlögum, í gegnum aldargamla valdabaráttu um olíulindir, o...
Augun 04.07.2026 55:22
Hvernig fer sólarljós, milljón kílómetra leið í gegnum tómarúm, og endar sem mynd af andlitinu þínu? Í þessum þætti fáum við til okkar Einar Stefánsson augnlækni og lífeðlisfræðing, sem hefur starfað í faginu í hálfa öld, til að fara í gegnum augað frá grunni: hvernig samsetta augað okkar varð til í þróunarsögunni, hvers vegna 20/20-sjón er í raun bara félagslega ákveðinn staðall, og hvernig letia...
Kindur 04.07.2026 55:21
Íslenska kindin er er svo samofin íslenskri sjálfsmynd að við hugsum varla um hana. En hvað er það í raun sem gerir íslenska sauðkindina sérstaka, og hvernig hefur hún í raun haldið lífinu í þessari þjóð frá landnámi? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólaf Dýrmundsson, sérfræðing með doktorspróf í greininni og áratuga feril hjá Bændasamtökunum, til að fara yfir uppruna norður-evrópska stuttrófustofnsin...
Fráveitur 04.07.2026 48:31
Hvað gerist eiginlega þegar maður sturtar niður? Hvert fer allt þetta vatn eiginlega? Í þessum þætti fæ ég til mín Laufeyju Lilju Ágústsdóttur, fagstjóra vatnsmiðla hjá Veitum, til að rekja sögu fráveitunnar allt frá rómversku gyðjunni Cloacina og risastóru holræsunum í Róm, til þess hvernig Reykjavík breyttist úr opnum skólprennum og útikömrum í það kerfi sem ber okkar úrgang ósýnilega í dag. Lau...
Fyrri heimstyrjöldin - 2.hluti: Persónur og leikendur 04.07.2026 39:58
Hverjir eru karakterarnir á bak við stærstu ákvarðanirnar í fyrri heimsstyrjöldinni? Ólíkt seinni heimsstyrjöldinni, þar sem Churchill, Roosevelt, Stalín og Hitler eru okkur svo kunnir er erfiðara að festa hendur á því hverjir réðu örlögum heimsins í fyrri stríðinu. Í seinni hluta samtals míns við Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing tökum við þetta fyrir, og förum þaðan í Versalasamninginn, þann bitu...
Fyrri heimstyrjöldin - Fyrri hluti: Upphaf og ástæður 04.07.2026 49:31
Heimsstyrjöld sem þurfti ekki að skella á, en gerði það nú samt. Í þessum þætti fæ ég til mín Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing til að fara yfir Evrópu árið 1914: stórveldin, bandalagskerfið, og hvernig morðið á ríkiserfingja Austurríkis-Ungverjalands í Sarajevo varð að heimsstyrjöld á rúmum mánuði. Við förum í skotgrafirnar á vesturvígstöðvunum, austur til Rússlands og byltingarins sem breytti gan...
Borgarlínan 04.07.2026 43:58
Hvers vegna er Reykjavík ein af fáum borgum á Norðurlöndum sem byggði sig algerlega upp í kringum einkabílinn og hvað kostar það að breyta því núna? Í þessum þætti fæ ég til mín Ólöfu Örvarsdóttur, sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, og Þorstein R. Hermannsson, framkvæmdastjóra Betri samgangna, til að rekja sögu Borgarlínunnar. Hvernig svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins fy...
Einar Jónsson 15.06.2025 1:21:18
Einar Jónsson var fyrsti myndhöggvari þjóðarinnar, en hann var líka málari og gerði fjölmörg tvívíð verk. List hans er táknræn og stundum torskilin – og hann lifði að mörgu leyti í eigin heimi. Í þetta skiptið skoðum við hver Einar var, hvað hann vildi segja með verkunum sínum, og hvers vegna list hans vekur enn spurningar og áhuga. Umsjón: Atli Már Steinarsson Viðmælandi: Alma Dís Kristinsdóttir
Næringarfræði 15.06.2025 53:57
Við borðum öll. Oftar en einu sinni á dag, ef við erum heppin. En hvernig ákveðum við hvað fer ofan í okkur? Er það smekkur? Vaninn? Hráefnisverð? Eða eitthvað sem amma sagði einu sinni? Í þessum þætti ætlum við að velta fyrir okkur næringarfræði, ekki bara sem lista yfir vítamín og steinefni, heldur sem fræðigrein sem hefur mótað samfélagið, matarmenningu og jafnvel pólitík. Ég fékk Bryndísi Evu...
Eyrun 15.06.2025 54:31
Eyrun eru ekki bara það sem haldast við sólgleraugun eða hvað sem við klæðum í skart. Þau eru hliðin að heimi hljóðsins. Við tökum þeim gjarnan sem sjálfsögðum hlut, en þau eru í stöðugri vinnu: greina tal, veiða ískur og melódíur, halda jafnvægi og vara okkur við hættum. Í þessum þætti skoðum við hvernig eyrun virka, hvernig þau eru byggð upp og hvað þau þurfa til að halda áfram að þjóna okkur ve...
Súrdeig 15.06.2025 51:03
Það er eitthvað dularfullt við súrdeig. Þetta lifandi efni sem þarf að næra, klappa og fylgjast með eins og það sé gæludýr. Það andar, bólgnar út og deyr ef maður sinnir því ekki. Sumir elska það, aðrir fá nældu bara við tilhugsunina. Í þessum þætti ætlum við að skoða hvað súrdeig er eiginlega, hvaðan það kemur, hvernig það virkar og af hverju fólk er svona heltekið af því. Ég fékk Ragnheiði Maísó...
Lungun 15.06.2025 51:52
Við hugsum sjaldnast um lungun – nema þegar þau bregðast. En samt eru þau okkur bókstaflega lífsnauðsynleg, öndunartakturinn sem heldur okkur gangandi alla ævi. Í þessum þætti ætlum við að beina sjónum að þessari líffæravél sem við öndum í gegnum, frá fyrstu andardrætti til síðasta útöndunar. Ég fékk Ólaf Baldursson til mín, lungnalækni sem hefur fylgst með þróun læknisfræðinnar á þessu sviði og v...
Hundar 15.06.2025 49:49
Við segjum oft að hundurinn sé besti vinur mannsins, en hvernig varð það eiginlega þannig? Í þessum þætti skoðum við hvernig hundar komu inn í líf okkar, hvernig þeir breyttust úr úlfum í fjölskyldumeðlimi, hvað greinir tegundir að og hvað þarf að hafa í huga þegar maður ákveður að fá sér hund. Ég fékk Helgu Finnsdóttur til mín sem veit bæði fræðilega og persónulega hvað felst í því að ala upp hun...
Vindorka 15.06.2025 53:06
Ég veit ekki með ykkur, en þegar ég sé vindmyllu þá fer ég ósjálfrátt að hugsa um Don Kíkóta. Eða kannski aðallega um vindinn sjálfan, þetta ósýnilega afl sem blæs okkur í gegnum daginn, ýtir á móti manni á leið í vinnu og lætur þakrennur syngja á haustin. Vindurinn er þarna alltaf, en við höfum tekið okkur góðan tíma í að læra að nýta hann. Og nú stendur hann í miðri orkupólitískri skotgröf, einh...
Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 5: Endalok og eftirskjálftar 15.06.2025 1:00:20
Þegar stríðinu fer að halla undir lok berst Þýskaland á þremur vígstöðvum samtímis. Sovétmenn sækja fast að austan, bandamenn þrýsta að vestri og suðri. Berlín fellur, Hitler sviptir sig lífi, og það sem eftir stendur er rústir. Bæði í raun og í hugum fólks. Mannfallið í seinni heimsstyrjöldinni er gríðarlegt, herforingjar höfðu sín markmið, en fórnarlömbin voru milljónir, bæði hermenn og óbreytti...
Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 4: Eyðimerkur, kafbátar og vígvellir heimsins 15.06.2025 53:59
Í þessum þætti opnast stríðið enn frekar. Eyðimerkurstríðið markar þáttaskil, ekki bara fyrir Evrópu heldur líka fyrir þátttöku Bandaríkjamanna, sem nú fara að láta til sín taka í auknum mæli. Við kíkjum á herforingja eins og Marshall og Andrews, sá síðarnefndi lést reyndar í flugslysi á Íslandi, þegar flugvélin Hot Stuff fórst við Fagradalsfjall eins og kemur fram í þættinum. Áður en við förum ti...
Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 3: Vígvellir og viðsnúningar 15.06.2025 1:02:48
Í þessum þætti færist stríðið upp í loftið, bókstaflega. Orrustan um Bretland markar tímamót, þar sem litlar vélar eins og Spitfire breyta gangi sögunnar. Áður en við snúum okkur að Sovétríkjunum, stoppum við aðeins í Asíu, þar sem Japan og Kína eru í blóðugu og flóknu stríði sem heimurinn fylgist illa með. Þjóðverjar gera síðan skyndilega innrás í Sovétríkin. Churchill, sem hingað til hefur staði...
Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 2: Öxulveldin og fyrstu skrefin 15.06.2025 56:15
Eftir innrás Þýskalands í Pólland líður aðeins á áður en næstu stóru skref eru stigin. Stríðið er byrjað, en margir bíða. Í þessum þætti ræðum við hvernig öxulveldin mótast og hverjir standa hvar. Við kíkjum á fyrstu orrustuna á hafi úti í stríðinu, þar sem Ísland tengist atburðunum beint þó við höfum enn ekki verið hernumin. Við skoðum líka af hverju Þýskaland réðst á Noreg en þar voru það málmar...
Seinni heimsstyrjöldin, þáttur 1: Aðdragandi og upphaf 15.06.2025 50:42
Við byrjum nýja seríu af Þú veist betur á umræðuefni sem er erfitt að tækla í 1-2 þáttum, enda urðu þeir á endanum 5. Þetta er veisla fyrir öll okkar sem hafa áhuga á seinni heimstyrjöldinni, en líka bara þau sem vilja skilja betur heiminn sem við búum í, nútíminn er skiljanlegri ef við vitum hvaðan við komum. Seinni heimsstyrjöldin byrjar ekki bara með innrás í Pólland. Hún á sér aðdraganda sem n...
Bandaríkin - Fyrri hluti 24.03.2024 55:00
Ég sver að það var ekki endilega viljandi, en eftir smá pásu frá löndum heimsins með þætti um hjólaskautaat, höldum við áfram og virðumst nánast fara í stafrófsröð. Balkanskagi til Bandaríkjanna. Enda var vopnahléssamningur varðandi Bosníu undirritaður í Daytona í Ohio, svo tengingin er augljós. Eða hvað? Þetta land sem er svo nátengt Íslandi, hafði mikil áhrif á efnahag þjóðarinnar í seinni heims...
Bandaríkin - Seinni hluti 24.03.2024 1:15:36
Í síðasta þætti byrjuðum við á yfirferð okkar um það risastóra verkefni og fyrirbæri sem Bandaríkin eru. Til upprifjunar fórum við yfir stofnun landsins árið 1776, þrælastríðið milli norðurs og suðurs en enduðum svo í kringum seinni heimstyrjöldina og þann tíma þegar Franklin Delano Roosevelt er forseti. Verkefni hans var að reisa landið við eftir seinni heimstyrjöld og mín fyrsta spurning til Sil...
Hjólaskautaat 10.03.2024 55:00
Það getur verið að einhver ykkar þarna úti hafið heyrt talað um hjólaskautaat, en þetta tiltölulega óþjála orð er þýðing á enska orðinu “rollerderby”. En það getur líka vel verið að einhver hafi bara aldrei heyrt á þetta fyrirbæri, sem flokkast sem íþróttagrein og er frekar ung sem slík. Ég sá hana fyrst fyrir rúmlega 15 árum á ferðalagi í Bandaríkjunum og vissi ekki mikið þá, en fyrst það er byrj...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.