RÚV
Þú veist betur
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja. Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna. Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Balkanskagi - Seinni hluti 29.02.2024 55:00
Við höldum áfram yfirferð okkar um Balkanskaga og til upprifjunar sögðum við skilið við Jón Óskar Sólnes þegar Slobodan Milosevic er kominn til valda, það hafa verið átök í Króatíu en þar sem við enduðum var komið að stríðinu í Bosníu. En það er þá sem hræðilegir hlutir eiga sér stað, sem setja mark sitt ekki bara á sögu þessa svæðis heldur Evrópu allrar. Enda ekki meira en 30 ár síðan og því fólk...
Balkanskagi - Fyrri hluti 25.02.2024 45:41
Til þess að skilja nútíðina er mikilvægt að þekkja fortíðina. Þessi setning hefur verið mér hugleikin lengi enda finn ég hvernig ég verð meiri og meiri áhugamaður um sögu eftir því sem líður á ævina. Kannski er það partur af því að verða eldri, ég átta mig ekki almennilega á því. En hvað sem því líður þá á þessi setning vel við varðandi næstu tvo þætti af þú veist betur. Það er nefnilega svæði í s...
Líftækni 18.02.2024 55:00
Er ég einn um að finnast eins og það sé smá vor í lofti? Það er að minnsta kosti bjartara yfir og andleg líðan þjóðarinnar vonandi á uppleið í samhengi við það. En hvort sem það er sól, snjór, rok eða rigning höldum við áfram með þú veist betur og í þetta skipti er líftækni undir. Ég vil byrja á því að benda á að einn af fyrstu þáttum af Þú veist betur fjallaði um erfðir, í þeim þætti fór ég og hi...
Skátar 11.02.2024 55:00
Við skiljum hlaupin eftir í reyknum og færum okkur yfir í næsta viðfangsefni, en það eru skátar sem taka á móti okkur núna. Þessi hreyfing eða samtök sem mörg okkar taka lítið eftir fyrr en 17.júní ár hvert þar sem við förum á fjölfarna staði og hlustum á lúðrasveitir eða förum í hoppukastala sjálf eða með þeim sem minni eru. Hjálparsveit skáta er eitthvað sem við höfum líklegast öll heyrt, við er...
Hlaup 04.02.2024 1:22:06
Hvað er meira við hæfi svona í byrjun árs en að velta fyrir sér hreyfingu og hvaða hreyfing sem við stundum á sér lengri sögu en hlaup. Einn fót fram fyrir annan og svo framvegis. En hlaup eru ekki bara hlaup, innan þess rúmast skokk, spretthlaup, maraþon og alls kyns mismunandi útgáfur þar á milli. Sjálfur hef ég aldrei verið mikið fyrir hlaup og kannski er það aldurinn, en eftir þennan þátt byrj...
Taylor Swift 28.01.2024 1:02:43
Við höfum sagt skilið við viðskiptasiðferði enda geri ég ráð fyrir að við séum öll búin að líta rækilega í eigin barm og íhugað okkar eigin siðferði í leiðinni. Það er alltaf hollt, sérstaklega í byrjun nýs árs þar sem við erum umkringd eldgosum og snjóstormum. Hvað er þá betra en að kveikja á kerti og pæla aðeins í Taylor Swift? Hún var ein af manneskjum ársins hjá Time fyrir síðasta ár, er af mö...
Viðskiptasiðfræði 21.01.2024 55:00
Við fögnum nýju ári og höldum áfram viskugöngu okkar á vorönn Þú veist betur. Það var ótalmargt sem fangaði athygli okkar árið 2023, vonandi verður árið 2024 ennþá skemmtilegra og fræðandi. Í þetta skiptið ætlum við að beina sjónum okkar að viðskiptasiðfræði og þar er það Ketill Berg Magnússon sem ætlar að stýra skútunni. Það er fínt að taka það fram að fræðigreinin er viðskiptasiðfræði en viðfang...
Eldgos 20.12.2023 1:15:22
Það hefur mikið verið í gangi á Reykjanesi síðustu ár, svo ekki sé meira sagt. Fjórða eldgosið leit dagsins ljós fyrir stuttu og mig langaði að því tilefni að henda í smá þátt um fyrirbærið sem eldgos er. Því við heyrum og sjáum margt um þetta, en hvað þýða öll þessi hugtök sem er verið að tala um? Ég ákvað því að drífa í að ganga frá viðtali sem ég tók við Sigríði Kristjánsdóttur um eldgos, en vi...
Ásatrú 17.12.2023 1:05:08
Við höldum áfram á trúarlegum nótum en færum okkur frá kristni yfir til ásatrúar. Eins og ég nefndi í síðasta þætti þá fannst mér að minnsta kosti hjálplegt að fara aðeins yfir sögu kristni áður en við myndum kynna okkur ásatrú og þið munið heyra í þættinum að það er hálf erfitt að stoppa sig í að bera þessi tvö trúarbrögð saman. Sérstaklega þar sem kristni kom einmitt í staðinn fyrir ásatrú á Ísl...
Kristin trú 10.12.2023 1:26:48
Nú þegar líður að jólum og sunnudagarnir af skornum skammti langaði mig til að nýta tvo síðustu þætti ársins í trúmál. Eftir slétta viku þá sest ég niður með Hilmari Erni allsherjargoða og við ræðum ásatrú og allt sem henni tengist. En áður en ég sleppi honum frá mér þá langaði mig til að rifja upp þátt sem ég gerði um jólin 2020. Þar ræddi ég við Hjalta Hugason og Jónínu Ólafsdóttur um kristna tr...
Steypa 03.12.2023 55:07
Velkomin í nýjasta þátt af Þú veist betur. Ég heiti Atli Már og í þetta skiptið ætlum við að fara yfir manngert efni, sem er bókstaflega allt í kringum okkur. Án þess veit ég ekki almennilega hvernig borgir okkar eða bæir myndu líta út. En sem betur fer þurfum við ekki að velta því lengi fyrir okkur því nema þið séuð út í göngutúr eru allar líkur á því að þið getið komið við steypu á innan við 5 s...
Tíska 19.11.2023 55:00
Það er óhætt að segja að það sé ákveðið ástand í gangi á landinu, en við reynum að halda okkar stefnu í Þú veist betur og nú er komið að tísku. Nánar tiltekið fatatísku og hvernig hún hefur þróast í gegnum tíðina. Það mætti segja að við séum að tala um ákveðna hugmyndafræði sem er erfitt að finna einhver nákvæm svör við. Það er til dæmis ólíklegt að þið hlustið á þáttinn og endið með óaðfinnanlega...
Hvalir - 2.hluti 05.11.2023 48:07
Nú höldum við áfram þar sem frá var horfið í yfirferð okkar um hvalina. Í síðasta þætti fórum við yfir þróunarsöguna, hvernig hvalir þróuðust úr landdýrum með fjóra fætur yfir í þau dýr sem við þekkjum í dag. En allt þetta gerðist á mörgum milljónum ára og þar sem við settum punktinn síðast vorum við að ræða gáfnafar þeirra og til dæmis þær samskiptaleiðir sem þeir nota. Við tökum upp þráðinn á þe...
Hvalir - 1.hluti 29.10.2023 56:14
Umræða um hvali hefur verið ofarlega á baugi síðustu mánuði, ekki að ástæðulausu. En vitum við í raun um hvað við erum að tala eða mynda okkur skoðun á? Hvað eru hvalir, hvaða dýr teljast til hvala (svarið við þeirri spurningu mun koma ykkur á óvart), hver er þróunarsaga þeirra og hvernig hegða þeir sér. Hvað gera þessi skíði sem við heyrum alltaf um og af hverju eru sumir þeirra svona svakalega s...
Súkkulaði 22.10.2023 1:08:07
Það sem kemur mér einna helst á óvart við umræðuefni þáttarins í þetta skiptið er hversu lengi ég var að láta mér detta það í hug. Verandi algjör súkkulaðigrís hefði þetta átt að vera efst á baugi hjá mér en svona er maður stundum mistækur. Við erum kannski á svipuðum slóðum og síðasti þáttur, enda frekar líklegast að dópamín spili eitthvað hlutverk í súkkulaðineyðslu okkar. En förum ekki nánar út...
Dópamín 15.10.2023 43:50
Það eru allar líkur á því að viðfangsefni síðasta þáttar af þú veist betur hafi áhrif á það kerfi í líkama okkar sem framleiðir dópamín. Þetta orð hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og að einhverju leyti á frekar skakkan hátt. Oft snýst þetta um hvort að hinn eða þessi hlutur, í þessu tilfelli boðefni sem verður til í okkur sjálfum, sé gott eða slæmt. Er til dæmis slæmt að dópamín verði til...
Kaffi 08.10.2023 55:00
Oftar en ekki tala ég um að fyrirbæri þáttarins sé eitthvað sem sé allt í kringum okkur, svo ég held því bara áfram í þetta skiptið. Síðast var það internetið en núna er það kaffið sem við ætlum að fara yfir. Ég verð að viðurkenna að sjálfur hef ég aldrei verið mikill kaffigrís en á seinni árum drukkið meira en ég gerði áður fyrr, aldrei þó vitað nákvæmlega hvað ég sé að gera. Hvað er gott kaffi o...
Internetið 01.10.2023 55:00
Við notum það öll á hverjum degi, það er orðið jafn eðlilegur partur af tilveru okkar og rafmagn, jafnvel vatnsleiðslur í húsinu okkar. Þó vissulega sé ekkert internetið á rafmangs svo kannski erum við ekki að setja þessa hluti alveg á sama stað í forgangslistanum. Ég er þó ekki frá því að það sé eitthvað fólk þarna úti sem væri frekar til í að það sé vatnslaust frekar en internetlaust, því öll ge...
Sjómennska 24.09.2023 1:08:49
Í síðasta þætti af Þú veist betur ræddum við ketti, kosti þeirra og galla, hvernig væri best að gera þá hamingjusama og þar fram eftir götunum. Það leiðir okkur eftir ákveðnum krókaleiðum að viðfangsefni dagsins. Mér var nefnilega einu sinni sagt að appelsínugulir kettir hefðu komið til Íslands með víkingum, því þeir væru svo miklir sjókettir. Hvort það sé satt eða ekki þá liggur beinast við að fa...
Kettir 17.09.2023 1:16:32
Eftir tvo þætti um strengjafræði held ég að það sé fínt fyrir okkur að líta í nærumhverfið og velta fyrir okkur því dýri sem er í miklum samskiptum og samvistum við manninn, hefur verið það í háa herrans tíð og verður líklegast að eilífu. Við höfum áður fjallað um alls kyns dýr, þar á meðal refinn og hrafninn en nú langaði mig til að líta okkur nær og pæla aðeins í kettinum. Því er þó öðruvísi far...
Strengjafræði - 2.hluti 10.09.2023 49:32
Í síðasta þætti byrjuðum við á sögu strengjafræðinnar með honum Friðriki Frey Gautasyni og enduðum á þessum blessuðu víddum. Undirstaðan í strengjafræðinni er að þú þarft að vera með ákveðið margar víddir, en til að fá eitthvað út úr kenningunni, til dæmis öreindarfræðilíkön þá þarftu svo að byrja á að losa þig við víddirnar. En hvernig skrifaru niður vídd? Við byrjum á þessari spurningu en förum...
Strengjafræði - 1.hluti 03.09.2023 54:00
Við erum sífellt að reyna að skilja hlutina í kringum okkur betur. Hvort sem það er með athugunum, tilgátum, kenningum eða tilraunum viljum við vita af hverju heimurinn í kringum okkur er eins og hann er. Því manneskjan er hugsanlega eina dýrategundin sem á oft erfitt með að upplifa án þess að spyrja af hverju. Okkur hefur gengið frekar vel að svara þessari spurningu í gegnum tíðina, en höfum teki...
Sveppir 07.05.2023 55:00
Jæja mín kæru, nú er komið að síðasta þætti í þessari seríu af Þú veist betur sem er númer 95 í heildina hvorki meira né minna. En í sumar ætlum við Ingvar Þór að koma með aðra seríu af Þráðum þar sem við lítum í baksýnisspegilinn, rifjum upp áhugaverð mál og gröfum í kistunni að efni sem hefur ekki heyrst í langan tíma. Því þarf athyglin að færast yfir á það verkefni í bili. Þú veist betur heldur...
Gervigreind 2.hluti 30.04.2023 55:00
Í síðasta þætti hófumst við handa við að reyna að læra meira um gervigreind, sögu hennar, sem nær aftur á sautjándu öld ef við hugsum til vélrænnar sjálfvirkni einhverskonar. Að taka aðferðir eða aðgerðir og setja yfir í sjálfvirkni. Á nítjándu öld byrjum við svo að ímynda okkur svona vél, þ.e. sem við getum útskýrt fyrir hvað eigi að gera, og hún framkvæmir. Þetta er að eiga sér stað löngu áður e...
Gervigreind - 1.hluti 23.04.2023 55:00
Eftir því sem líður á vorið og veturinn lýtur í lægra haldi þá raðast efnin sem við erum að tækla í Þú veist betur upp á nokkurnveginn þann hátt sem ég hugsaði mér. Því viðtalið sem við ætlum að byrja að hlusta á í þessum þætti var tekið upp í janúarlok árið 2023. Sem undir öllum venjulegum kringumstæðum myndi teljast sem frekar stuttur tími, verandi apríl þegar þátturinn kemur loks út en í heimi...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.