RÚV

Þú veist betur

Society IS ↓ 142 episodes

Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja. Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna. Umsjón: Atli Már Steinarsson.

Author

RÚV

Category

Society

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Frakkland - Deuxième partie 16.04.2023

Þá dembum við okkur í meira efni um Frakkland og ef þið hafið hlustað á fyrri þáttinn, sem ég geri nú ráð fyrir að sé líklegast tilfellið fyrst þið eruð mætt hingað þá erum við Rósa Elín búin að fara aðeins yfir sögu landsins, kynnast Jóhönnu af Örk, Napóleon og fleiri áhugaverðum karakterum, ásamt því að heyra af frönsku byltingunni sem hafði áhrif á allan heiminn, upplýsingin sem kom í kjölfarið...

Frakkland - Partie Un 16.04.2023

Við vindum kvæði okkar í kross og prófum eitthvað nýtt í þættinum í þetta skiptið. Ég viðurkenni fúslega að hugmyndin að þættinum er sprottin upp úr eigin áhuga á franska tungumálinu sem ég hef verið að reyna læra með misjöfnum árangri í smá tíma. En hvað sem því líður þá er Frakkland merkilegt land, í nútíma og sögulegu samhengi. Því langaði mig til að vita meira og sannfærði Rósu Elínu Davíðsdót...

Heilinn - 2.hluti 02.04.2023

Þá höldum við áfram yfirferð okkar um heilann, í síðasta þætti vorum við að ræða söguna aðeins, bæði hvað varðar okkar heila og svo líka þegar kemur á þekkingu okkar á honum. Nú dembum við okkur aftur í spjallið og tökum upp þráðinn þar sem ég er að velta fyrir mér hvernig hlutirnir í heilanum á okkur, eða líkama, það að tala, hreyfa sig, hvað sem það er, gerist svona hratt. Og kannski aðeins stær...

Heilinn - 1.hluti 26.03.2023

Við höldum ferð okkar um bókstafinn H áfram, skiljum hrafnana eftir og förum að hugsa aðeins um heilann. Ég er nefnilega með smá efni tilbúið sem ég er að vinna í til dæmis varðandi gervigreind, en áður en við förum í það allt saman fannst mér mikilvægast að byrja á heilanum í okkur sjálfum. Áður en við förum að pæla í gerviheila og hvernig hann myndi virka. Í heimspekiþættinum nefndum við Descart...

Hrafnar 19.03.2023

Ég vil byrja þáttinn í þetta skiptið á því að þakka fyrir alla póstana og ábendingar sem ég hef verið að fá upp á síðkastið. Því fleiri því betra segi ég nú bara. Eftir svona langan tíma af því að gera þættina þá getur manni oft liðið eins og það sé búið að tala um allt en þá er einmitt svo gaman og hollt af fá alls kyns hugmyndir utan úr bæ um efni sem gæti verið gaman að tala um. Enda er svo ótr...

Heimspeki 12.03.2023

Nú höfum við sagt skilið við eðlisfræðina sem síðustu tveir þættir hafa farið í, og frá hinu veraldlega förum við yfir í hið óþekkta, vísindin sem reyna að útskýra okkur sjálf, hver við erum og af hverju við erum þannig. Sem er auðvitað hræðilega einfölduð leið til að koma sér að efni þáttarins, heimspeki. Því það sem er frekar merkilegt við eðlisfræðina sem dæmi, er að upphaflegu pælingarnar komu...

Eðlisfræði - 2.hluti 05.03.2023

Í síðasta þætti lögðum við af stað í vegferð um heim eðlisfræðinnar með honum Lárusi Thorlacius. Við fórum yfir söguna, eða part af henni að minnsta kosti, hvernig eðlisfræðin myndar grunn fyrir svo margar aðrar greinar. Hugtök eðlisfræðinnar geta verið notuð til að útskýra hvernig plánetur hegða sér en einnig alveg í hina áttina, þar sem við útskýrum nánast minnstu hluti sem við þekkjum og hverni...

Eðlisfræði 1.hluti 26.02.2023

Í gegnum tíðina höfum við farið yfir alls kyns hluti, hvort sem það eru lifandi eða dauðir hlutir, kenningar eða saga. Til að mynda hef ég fengið til mín sérfræðinga um skammtafræði, svarthol og kjarnorku en að einhverju leyti er hægt að segja að ég hafi byrjað á röngum enda. Því allir þessir hlutir, og þessar vísindagreinar byggja á einhverjum grunni. Sem hefur alltaf komið fram í þáttunum sjálfu...

Ljósmyndun 12.02.2023

Öll tökum við myndir, hvort sem við hugsum eitthvað frekar út í það eða ekki. Símarnir okkar eru oft valdir út frá því hversu góð myndavél sé á þeim og dagarnir þar sem fólk fór og keypti filmur eru að mestu leyti liðnir. Meira að segja eru dagar stafrænna myndavéla komnir og farnir, þá meina ég helst þessara myndavéla sem almenningur keypti og hafði með sér út um allar trissur. Með minniskortum o...

Öndun 05.02.2023

Þá erum við farin aftur af stað á nýju ári og við ætlum að byrja á því sem sameinar okkur öll, andardrættinum. Ég rakst á bók fyrir jól eftir James Nestor sem heitir Andardráttur eða Breath. Mér fannst hún forvitnileg og hámaði hana í mig en það var ekki nóg að lesa um þær villigötur sem við erum komin á varðandi öndun, ég varð að kynna mér málið betur. Svo fyrsti þáttur ársins 2023 fer í það að k...

Íslendingasögurnar 18.12.2022

Hvað er líkt með tölvuleiknum og Netflix seríunni The Witcher og Grettis sögu? Eru Íslendingasögurnar sannar eða uppspuni frá rótum, eða eitthvað þar á milli? Og hvað getum við lært af þeim? Öll höfum við komist í kynni við Íslendingasögurnar á ævi okkar, hvort sem það er tilneydd í skóla eða að eigin frumkvæði og forvitni. Í kjölfarið af þættinum sem ég gerði fyrir ekki svo löngu um landnámið með...

Ál 11.12.2022

Stóriðja er orð eða hugtak sem við könnumst við, ætli orðið útskýri sig ekki sjálft en innan þess er alls kyns iðnaður sem við vitum að er stundaður, hvort sem það er hér á landi eða út í heimi. Sá iðnaður sem stendur okkur hvað næst er blessað álið, hér á landi eru þrjú álver sem oft hefur gustað um en í þessum þætti ætlum við að láta það liggja sem milli hluta en kynnast því kannski frekar hvað...

Hernámið 04.12.2022

Flest okkar hafa heyrt um hernámið, örugglega um ástandið líka. En hvað vitum við í raun um hvernig þetta fór allt saman fram, hvernig var það þegar bretar mættu hérna um morgun 10 maí árið 1940? Hvað gerðist svo í framhaldinu og hvernig breytti það landinu? Ég fékk til mín Leif Reynisson sagnfræðing sem hefur rannsakað hernámið og áhrif þess í þaula. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Batterí 27.11.2022

Nánast allt í okkar daglega lífi tengist batteríum á einhvern hátt. Við erum hugsanlega hætt að taka eftir því en tölvurnar okkar, símarnir, fjarstýringar og þar fram eftir götunum eru keyrð áfram af batteríum. Og talandi um að keyra, þá eru batterí í öllum bílum, hvort sem þeir eru knúnir áfram af eldsneyti eða rafmagni. Þannig að þau eru allt í kringum okkur og án þeirra værum við enn föst í mol...

Landnámið 20.11.2022

Ég er nokkuð viss um að öll okkar hafi heyrt nafnið Ingólfur Arnarson, jafnvel þó við vitum ekki nákvæmlega hvað það var sem sá mæti maður gerði. Hrafna Flóki er annað nafn sem við kynntumst í grunnskóla og líklegast ekki pælt neitt sérstaklega mikið í síðan þá. En eru þetta þeir sem eru ábyrgir fyrir því að nokkrum sinnum á hverjum vetri heyrum við eða lesum spurninguna ?Hver eiginlega ákvað að s...

Kjaramál 13.11.2022

Hver kannast ekki við að fylgjast með fréttum, hvort sem það er í sjónvarpi eða á netinu og þar blasir við mynd af fréttamanni sem er staddur fyrir utan hús þar sem mikilvægar viðræður fara fram sem munu hafa áhrif á samfélagið okkar næstu ár. Kjaraviðræður. Umræður um hvað fólk vill fá í laun, hvað sé hægt að hækka laun mikið eða stytta vinnuvikuna um marga klukkutíma án þess að hjól atvinnulífsi...

Hestar 06.11.2022

Ég ætla að viðurkenni eitt, ég hef verið hræddur við hesta nánast allt mitt líf. Þetta er engin ofsahræðsla, og hún hefur batnað með aldrinum, en fyrst og fremst hef ég ekki treyst því að dýr sem er 5-6 sinnum þyngra en ég hafi einhvern áhuga á því að hafa mig á baki. Segjandi því hvert það á að fara og hversu hratt. Það breytir því þó ekki að mér hefur alltaf þótt hestar vera flottir, að það sé f...

Dekk 30.10.2022

Nú veit ég ekki hvar fólk hlustar á þú veist betur en það er líklegt að einhver séu á leið eitthvert í bíl. Eða á hjóli. Mögulega flugvél. Kannski er verið að keyra einhvern um í hjólbörum, hvað veit ég. En ég veit þó að án dekkja kæmumst við ekki neitt. Þessi uppfinning olli straumhvörfum í okkar daglega amstri og við könnumst öll við máltækið að það þurfi ekki að finna upp hjólið upp á nýtt. En...

Frumur 23.10.2022

Velkomin í nýjan þátt af þú veist betur, ég heiti Atli Már Steinarsson og í þetta skiptið hugsum við smátt. Nánast eins smátt og hægt er, svo lengi sem þú ferð ekki að hugsa um atóm. Það er annar þáttur, engar áhyggjur. Ég sá nefnilega á internetinu fyrir stuttu mynd sem fullyrt var að væri nákvæmasta mynd af frumu sem hefði verið tekin. Ef ég ætti að reyna að lýsa henni í orðum þá var myndin eins...

Málning 16.10.2022

Hafið þið einhvertíman pælt í því að nánast allt í kringum ykkur er málning? Hvort sem hún er á veggjum, í loftinu, utan á húsum eða ofan á þeim er málning eitthvað sem við komumst í tæri við á hverjum einasta degi. Og hugsum líklegast ekki neitt út í það. Nema auðvitað þegar við þurfum að taka þessa stóru ákvörðun um hvernig umhverfi okkar eigi að vera á litinn. Sem gerist ekkert það oft, ég hef...

Bananar 09.10.2022

Nú þegar við höfum kafað djúpt í myrkustu kima alheimsins í síðustu þáttum er við hæfi að beina sjónum okkar í okkar nær umhverfi og að hlut sem ég held að sé óhætt að fullyrða að við þekkjum öll, hvort við leggjum það í vana okkar að borða hann er önnur saga. Svo frá svartholum færum við okkur til banana. Persónulega borða ég 1-2 banana á dag eða hér um bil, þeir eru alltaf til heima hjá mér og é...

Svarthol - 3.þáttur 02.10.2022

Jæja þá, við erum komin á þriðja og síðasta þáttinn í yfirferð okkar um svarthol. Ég vona að þið séuð að taka þetta í þeirri skammtastærð sem hentar ykkur, bara svona til þess að gefa heilanum smá frí á milli. Nú ætlum við að kynnast svartholinu betur og fá úr því skorið hvort við þurfum í raun að óttast eitthvað. Eða eru áhyggjur okkar byggðar á kvikmyndum og ýktum raunveruleikum handritshöfunda...

Svarthol - 2. þáttur 25.09.2022

Í síðasta þætti byrjuðum við að tala um svarthol við hann Helga Frey Rúnarsson og fórum yfir mestmegnis af sögunni sem tengist svartholum. Þegar við ákvaðum að setja punktinn vorum við nýbúin að kynnast Signus, tifstjörnu sem gaf til kynna að ekki væri allt með feldu. Og til sögunnar var kominn eitt stykki Stephen Hawking. Þó þátturinn snúist auðvitað ekki um hann sjálfan markar koma hans í spilið...

Svarthol - 1.þáttur 18.09.2022

Velkomin aftur í Þú veist betur, ég heiti Atli Már Steinarsson og ætla að reyna mitt besta að forvitnast um fyrirbæri og hluti sem eru allt í kringum okkur en við vitum kannski ekki svo mikið um, en værum til í að vita meira. Í vetur munum við fara yfir hluti eins og málningu, frumur og banana en við byrjum á einu svakalegu dæmi. Það er nefnilega kominn tími til að tala um svarthol. Frá því að ég...

Frídagur verslunarmanna 01.08.2022

Sérstakur örþáttur af Þú veist betur í tilefni frídags verslunarmanna þar sem Ragnar Þór Ingólfsson fer yfir söguna, hvenær dagurinn var fyrst haldinn og af hverju. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Listen to the Þú veist betur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.